Þjóðviljinn - 02.10.1986, Síða 3

Þjóðviljinn - 02.10.1986, Síða 3
Við skulum bara vona að Gorb- atsjof og Reagan kyssist ekki af eins miklum ástríðuþunga og brúðhjónin í Kína! Póstur og sími Gengur allt upp Þetta er án efa stærsta verkefni sem Póstur og sími hefur fengist við. Undirbúningur er í fullum gangi hjá okkur og ég á von á að þetta muni allt ganga upp, sagði Jón Þóroddur Jónsson yfirverk- fræðingur hjá Pósti og síma í gær, en þar standa menn í ströngu við að veita fréttamönnum þá þjón- ustu sem þeir þurfa til þess að koma fréttum frá landinu. Þurft hefur að bæta við ýmsum búnaði til þess að gera þetta kleift. Jón sagði í gær í að næstu daga yrði sjónvarpað frá landinu til allra heimsálfa 10-14 stundir á dag, ústendingar hófust strax í gærmorgun og munu ná hámarki dagana 9-12. október. Starfs- menn Póst- og símamálastofnun- arinnar munu funda stíft næstu daga til að undirbúa stóru stund- ina, komu leiðtoganna hingað til lands og fundi þeirra. Til þess hefur gengið vel að uppfylla óskir þeirra sem óskað hafa eftir þjón- ustu stofnunarinnar, að sögn Jóns. -gg Undirbúningsnefndin Fyrsti fundur í gær Embættismannanefndin sem falið hefur verið að undirbúa leiðtogafundinn af íslands hálfu kom saman í fyrsta sinn í gær, að visu formannslaus, því Ingvi Ingvason ráðuneytisstjóri í utan- ríkisráðuneytinu kom ekki til landsins fyrr en í gærkvöldi. Hann var í Grænlandi en var kall- aður heim vegna fundarins. Þeir sem sæti eiga í nefndinni eru auk Ingva, Guðmundur Ben- ediktsson ráðuneytisstjóri for- sætisráðuneytisins, Böðvar Bragason lögreglustjóri í Reykja- vík, Þorgeir Þorsteinsson, lög- regíustjóri á Keflavíkurflugvelli, Þórður Einarsson prótókoll- stjóri, Ólafur Tómasson Póst- og símamálastjóri, Magnús Óskars- son staðgengill borgarstjóra, Að- alsteinn Maack frá húsameistara, Magnús Torfi Ólafsson blaðafull- trúi ríkisstjórnarinnar og hugsan- lega fleiri. Fundinn í gær sátu einnig forsætisráðherra og utan- ríkisráðherra. FRÉTTIR Leiðtogafundurinn 300 í oryggisgæslu Lögregluskólafrestað. Afleysingamenn kallaðirtil. Fyrstu erlendu öryggisverðirnirtil landsins ígœr Ég vona að þetta takist sómasamlega hjá okkur, en enn sem komið er er lítið hægt að segja um hvernig við munum hátta öryggisgæslu. Það skýrist á næstu dögum, sagði Bjarki Elíasson yfirlögregluþjónn í sam- tali við Þjóðviljann síðdegis í gær, en Bjarki var þá nýkominn af ströngum fundum þar sem fjallað var um öryggisgæslu vegna leiðtogafundarins. Það var að sögn Bjarka aðal- lega rætt um hversu miklu liði yrði hægt að ná saman. „Uppi- staðan verður auðvitað frá Reykjavík, en auk þess leitum við eftir liðsstyrk frá nágranna- sveitarfélögum. Þá verður Lög- regluskólinn fenginn til liðs við okkur og þar náum við í 50 manns, auk þess sem við eigum von á að afleysingamenn frá í sumar komi til starfa. Alls verð- um við með um 300 manna lið,“ sagði Bjarki. Víkingasveitin er þar með talin og hefur æfingar- ferð hennar til Noregs verið frest- að vegna þessa verkefnis. Fyrstu eriendu öryggisverðirn- ir munu hafa komið til landsins í gærkvöldi og þeim mun fjölga jafnt og þétt næstu daga. Lög- reglan mun hefja viðræður við þá í dag. Ekki lá ljóst fyrir í gær hversu margir þeir verða, en bú- ast má við miklum fjölda og er ekki að efa að þeir verða gráir fyrir járnum og þungvopnaðir. Bjarki var spurður hvort ís- lenskir löggæslumenn myndu bera vopn meðan leiðtogarnir funda hér, en hann vildi ekkert um það segja. Hann neitaði því að leitað yrði eftir liðveislu frá hemum. Eftirlit með komum útlend- inga til landsins var þegar á mið- vikudaginn hert verulega, fylgst verður náið með öllum sem koma um Keflavíkurflugvöll, Reykja- víkurflugvöll og um hafnir lands- ins. -gg Ferðamál Fjölmi&lar hvaðanæva í heiminum verða með sína menn á Islandi næstu vikurnar. Þessir fréttamenn bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar CBS komu á miðvikudagskvöldið og hófu að senda fréttir þegar daginn eftir. I gær spjölluðu þeir við fólk á förnum vegi í Reykjavík og sendu með það sama til höfuðstöðvanna í New York. Eitthvað áttu þeir í basli með vélina, en þetta eru vanir menn og kipptu því í lag áður en lagt um leið. Mynd S IG. Fréttamenn Fjölmiðlafárið hafið JeffFagarfrá CBS: Býst við 2000fréttamönnum, enda stór- viðburður áferð. 30 mannsfrá CJ$S Þetta er vissulega stórviðburð- ur og það má alveg reikna með að hingað komi um 2000 fréttamenn víðs vegar að. Ég á von á að við verðum um 30 frá CBS, sagði Jeff Fagar fréttamað- ur bandaísku sjónvarpsstöðvar- innar CBS í samtali við Þjóðvilj- ann í gær. Mikill fjöldi fréttamanna er þegar kominn til landsins, en meginþorrinn kemur þó ekki fyrr en í næstu viku. 6 manna lið frá CBS kom til íslands þegar á mið- vikudagskvöldið og stax í gær- morgun sendi það frá sér fyrstu fréttimar út til Bandaríkjana. Að sögn Fagars var þar m.a. viðtal við íslenska forsætiráðherrann, auk umfjöllunar um landið og viðbrögð manna við stórtíðind- unum. Fagar og félagar fengu inni á Loftleiðum á miðvikudaginn, en þar geta þeir ekki verið nema fram á föstudag. Þá verða þeir að fínna sér annan samastað eins og aðrir fréttamenn sem nú eru á hótelinu. Þeir munu senda fréttir út nær daglega fram að fundi leiðtoganna, auk þess að vinna að undirbúningi fyrir fundinn sjálf- an. Fagar var spurður hvort þeir byggjust við stórtíðindum af fundi leiðtoganna, og taldi hann ekki ólíklegt að um eitthvert sam- komulag milli þeirra Gorbatsjofs og Reagans yrði að ræða. Þegar Þjóðviljamaður var að ræða við Fagar vora fréttamenn sjónvarpsstöðvarinnar að búa sig undir að fara niður í bæ og taka almenning tali, forvitnast um hvað fólki fyndist um að fundur leiðtoganna yrði haldinn hér á landi og þeim viðtölum átti síðan að sjónvarpa í gærkvöldi. -gg Auglýsing aldarinnar Kjartan Lárusson: Reynum að leysa vanda vegna skorts á hótelher- bergjum Þetta verður áreiðanlega mesta auglýsing sem ísland mun fá á þessari öld. Við erum að reyna að átta okkur á því hversu stórt vandamálið er varðandi gisticými og verðum bara að vona að við verðum þessum vanda vaxin. Það er alveg Ijóst að nýta verður allt gistirými í 100 kflómetra fjarlægð frá Reykjavík, sagði Kjartan Lárusson framkvæmdastjóri Ferðaskrifstofu ríkisins í samtali við blaðið í gær. „Hótelin í Reykjavík eru þegar út úr myndinni, þau eru fullbók- uð, en það er alveg með ólíkind- um hversu margir hafa hringt í okkur og boðið gistingu á heimil- um sínum,“ sagði Kjartan. Ferðaskrifstofu ríkisins hefur verið falið að reyna að leysa þennan vanda sem skapast hefur vegna skorts á hótelherbergjum og verður unnið ötullega að því næstu daga. Hótel í næsta ná- grenni við Reykjavík munu njóta góðs af leiðtogafundinum, hótel- in í Keflavík, Hveragerði, á Sel- fossi, jafnvel uppi í Borgarfirði og rætt hefur verið um að opna Hótel Valhöll á Þingvöllum og veita þar fréttamönnum húsa- skjól. -gg Leiðtogafundur Beðið fyrir árangri Pétur Sigurgeirsson biskup hefur sent prestum landsins til- mæli um að þeir biðji fyrir því í kirkjubæn við guðsþjónustur næsta sunnudag að viðræður þeirra Gorbatsjofs og Reagans í Reykjavík leiði til friðar í heimin- um. Þá hefur biskup ákveðið að kalla saman kirkjuþing 11. nóv- ember n.k. og mun það standa til 20. nóvember. Þingið fer fram í Bústaðakirkju og munu 22 full- trúar sækja það. -gg Flmmtudagur 2. október 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.