Þjóðviljinn - 02.10.1986, Page 6
FLÓAMARKAÐURINN
LANDSBYGGÐIN
Til sölu
Tvöfaldur stáleldhúsvaskur og 9
hansahillur með uppistöðum. Selst
ódýrt. Einnig fæst gamall svefnsófi
gefins á sama stað. Uppl. í síma
82881 eftir kl. 18.
Stór fataskápur
eða stór kommóða óskast. Sími
611844 til kl. 13 og eftir kl. 20.30.
Til leigu
fyrir skrifstofur, teiknistofur 30 m2 á
3ju hæð við Laugaveg. Uppl. í síma
27450 og 21920 kl. 9-5.
Svalavagn/kerruvagn
fæst gefins. Sími 31665.
Er ekki einhver jákvæð
og góðhjörtuð manneskja sem get-
ur komið og gefið 8 ára telpu há-
degismat og passað að hún mæti á
réttum tíma í skólann, ca. 2 tímar á
dag. Hafið samband í síma 621746
eftir kl. 19.
Til sölu
ný eldhúsinnrétting (stór) tvö ný
gólfteppi 8,4 m2 og 16 m2. Fóta-
nuddtæki Clairol og hillur í
geymslur. Slmi 39198.
Óska eftir að kaupa
ódýr húsgögn
af öllu taai. Gjarnan furu. Einnig
gardínur. Á sama stað er til sölu
traustur góður bíll fyrir veturinn.
Sími 622373.
Lítið furuhjónarúm til sölu
140x200 án dýna. Uppl. eftir kl. 4 (
sima 641141.
Vantar barnfóstru
á kvöldin annað slagið. Uppl. í síma
39325 eftir kl. 18. Er í Austurbrún.
2 Nikon myndavélar
og 2 Motordrive, 28 mm linsa, 55
micro og 135 mm. Sími 39571.
Gamalt hjónarúm til sölu
ásamt náttborðum og dýnum. Selst
ódýrt. Uppl. í síma 41262.
Kaupi:
íbúaskrá Reykjavíkur og aðrar,
manntöl, nafnaskrár, þjóðskrár,
bæjarskrár og útsvarsskrár frá
öllum árum. Einnig ættartöluhandrit
og fjölrit, stéttartöl, ættfræðibækur
o.fl. þ.h. Sími 27101 (Jón).
4 snjódekk til sölu
Undan Colt ’80. Stærð 155x12“.
Aðeins notuð einn vetur. Seljast
ódýrt. Uppl. í sím 681310 Sigríður.
Óska eftir að kaupa
vel með farna og ódýra Commador
64 tölvu. Sími 73623 eftir kl. 4.
Sjónvarp óskast
til kaups. Ódýrt. Sími 77231.
Leikfimi á myndböndum
Þrjú mismunandi erfið prógrömm.
Hvert um sig klukkustundarlangt.
Leiðbeinandi er Hanna Ólafsdóttir
Forrest íþróttakennari. Nánari upp-
lýsingar í síma 18054 eftir kl. 18 á
kvöldin og um helgar. Sendi í
póstkörfu.
Til sölu
Vil selja á vægu verði vel með farið
skatthol, svefnbekk (þarf nýtt á-
klæði) og sama sem ekkert notaða
íslenska gæruúlpu á ungling. Uppi.
í síma 92-1123.
Pioneer kasettutæki og
magnari til sölu
Kr. 5 þúsund. Sími 24691 eftir kl.
20.30.
4 felgur sem nýjar
á Ford Escort '85 til sölu á góðu
verði. Uppl. í síma 12176 eftir kl. 5.
Til sölu
2 14“ vetrardekk á felgum undir
Skoda og 3 hurðir með öllu. Passa
á árg. '77 og yngra. Uppl. í síma
44465.
Til sölu
sófasett 3+2+1 (Ijósdrappað),
sófaborð og hornborð, hillusam-
stæða, fallegur ruggustóll, kringlótt
eldhúsborð og 4 stólar, símaborð,
svefnbekkur, hjónarúm með rauð-
um bólstruðum gafli, lampar og Ijós
og fallegur gardínukappi úr dökkum
viði (útskorinn). Uppl. Ís(ma31884.
Tveir litlir strákar
óska eftir borði og stólum í barna-
stærð. Má ekki vera mjög dýrt.
Uppl. í síma 74845 eftir kl. 18.
. Áreiðanleg hjón
með tvo litla drengi óska eftir 3ja-
4ja herbergja íbúð í mið-austurbæ.
Neytum ekki áfengis né tóbaks.
Uppl. í síma 74845 eftir kl. 18.
Til sölu eldhúsborð
og 2 stólar með örmum, 2ja sæta
bekkur með baki og örmum (enskt),
barnavagn (Marnet) og burðarrúm
fylgir, strauvél. Ennfremur Gunda-
ofn fæstgefins. Uppl. ísíma36518.
Til sölu
vel með farinn Emaljunga barna-
vagn, notaður af einu barni. Uppl. í
síma 25668.
Óska eftir ódýrum ísskáp
Meðalstærð. Sími 10708 eftir kl. 17.
Vantar blómasúlu með
þremur örmum
Sími 40682.
Tvíburamömmur -
tvíburapabbar
Tvö rúm til sölu, tvær skúffur undir
hvoru rúmi. Lengd 1.80 m. Uppl. í
síma 28321.
Hjálp
Bý við Laugaveg og vantar dag-
mömmu fyrir 8 mán. dreng. Uppl. í
síma 13009 á kvöldin.
Basar, flóamarkaður, hluta-
velta
verður í Gerðubergi laugardaginn
4. október. Hefst kl. 2. Kattavinafé-
lagið.
Gestalt
Helgina 4. og 5. október verður
haldið námskeið að Fríkirkjuvegi 11
frá kl. 10-18 báða dagana. Meginá-
hersla verður lögð á líkamann og
tilfinningalíf hans, með hópæfing-
um og einstaklingsvinnu. Þátttak-
endum verður gefinn kostur á að
vinna með drauma sína eftir aðferð-
um Gestaltmeðferðar. Leiðbein-
andi: Daníel Ág. Daníelsson. Helg-
ina 11. og 12. október: Nærandi
samskipti. Leiðbeinandi: John Witt.
Sjálfeflishópar, kvöldnámskeið.
Uppl. og skráning í síma 18795. (s-
lenski Gestaltskólinn.
Aðalfundur
Vörubílstjórafélagsins Þróttar Reykjavík veröur
haldinn laugardaginn 4. október og hefst kl. 15 í
húsi félagsins að Borgartúni 33.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf skv.
lögum félagsins.
2. Lagabreytingar.
3. önnur mál.
Stjórnin.
Það fer vel á með þeim Jóni Sigurbjörnssyni og Kraka.
Prófessor
í leiðmennsku
Albert Sigurðsson í viðtali við Eiðfaxa
Út er komið 8. tbl. Eiðfaxa.
Hefst blaðið á forystugrein Sig-
urðar Sigmundssonar. Segir þar
m.a.:
„Nokkru fjármagni hefur verið
varið til að endurbæta reiðvegi,
'sem sér nokkurn stað, víðsvegar
á landinu. En betur má ef duga
skal. Verkefnin eru óþrjótandi í
þessum efnum. Hestamannafé-
lögin, hvert á sínu svæði, þurfa að
hafa forgöngu um margvíslegar
umbætur. Nefna má að varða eða
viðhalda vörðum á fornum
leiðum yfir fjallvegi. Merkja þarf
vöð á ám, reisa áningarhólf, þar
sem þau geta komið að góðum
notum. Fjarlægja þarf vírdræsur,
sem geta orðið hestum eða öðru
búfé til skaða. Síðast en ekki síst
þarf að bæta reiðvegina og halda
gömlum fornum reiðleiðum opn-
um“.
Eiðfaxi leggur leið sína að
Helgastöðum II í Biskupstungum
og tekur tali hinn góðkunna
leikara og hestamann Jón Sigur-
björnsson, sem þar býr með
hrossum sínum og unir því með
ágætum. „Þó að mjög mikill tími
fari í hestamennskuna þá finn ég
bara ekkert fyrir því. Samskiptin
við hrossin gefa mér svo mikið,
að ég verð aldrei var við hvað
þetta tekur mikinn tíma og mikla
fyrirhöfn,“ segir Jón Sigurbjörns-
son. - Þá er rabbað við Rosemar-
ie Þorleifsdóttur í Vestra-
Geldingaholti í Gnúpverja-
hreppi, en hún og maður hennar,
Sigfús Guðmundsson hafa rekið
reiðskóla fyrir börn frá 1964,
þann fyrsta hér á landi.
Hjalti Jón Sveinsson heimsæk-
ir Reyni Hjartarson á Brávöllum
við Eyjafjörð. Ber þar margt á
góma, sem vænta mátti, m.a.
möguleikar á sölu hrossa til
Bandaríkjanna. „Ég hef mikla
trú á þessum markaði" segir
Reynir - „og vona að þetta dæmi
gangi upp, - svo fremi sem við
förum ekki að ausa í fólkið trunt-
um. Ég óttast að ýmsir aðilar hér
heima sjái í þessu skjóttekinn
gróða en ef við förum hægt í sak-
irnar og skynsamlega þá ætti að
vera mikil framtíð í þessu“.
Hjalti Jón ritar einnig „Hug-
leiðingar um aðstöðu og um-
gengni á Kili“ og reyndar víðar
þar efra og finnst hún ekki
beinlínis til fyrirmyndar. - Þá er
viðtal við Sigurbjörn Bárðarson,
sem er „maður íslandsmótsins
um leið og hann heldur upp á tut-
tugu ára kappreiðaafmælið".
Rætt er við Akureyringinn AI-
bert Sigurðsson, sem stundaði
bréfanám við bandarískan reið-
skóla. „Þegar ég hafði lokið til-
skyldum prófum endaði ég sem
félagi í þessum reiðklúbbi þarna
úti og fékk heljarmikið „dipl-
om“, þar sem ég er titlaður pró-
fessor. Reyndar þýðir það að ég
hafi réttindi til að kenna þessar
aðferðir. Ætli ég sé ekki eini ís-
lendingurinn, sem hef prófessor-
nafnbót í reiðmennsku? segir Al-
bert, - og er trúlega rétt.
Spjallað er við stigahæstu ung-
lingana á íslandsmótinu, þá Hörð
Ármann Haraldsson og Hákon
Pétursson. Margt fleira er að
finna í Eiðfaxa, sem og langt yrði
upp að telja.
-mhg
Sauðfjárbœndur
Umdeild
ályktun
um stefnu í framleiðslumálum
Eðlilega urðu talsverðar um-
ræður á sauðfjárbændafund-
inum um stefnuna í fram-
ieiðslumálum. Voru fundarmenn
engan veginn á eitt sáttir. Og sú
ályktun, sem endanlega hlaut af-
greiðslu, var samþykkt með 3ja
atkv. mun, 18 með, 15 á móti. En
ályktunin hljóðar þannig:
- Fundurinn ... varar við á-
formum um enn frekari samdrátt
í sauðfjárframleiðslu. Meiri sam-
dráttur getur haft veruleg áhrif á
byggð víða um land. Skorar fund-
urinn því á Stéttarsamband
bænda að semja ekki við ríkið um
minna framleiðslumagn en 12000
tonn af kindakjöti nema fyrir
liggi af hálfu ríkisvaldsins hvar
byggð skuli aflögð. Þá bendir
fundurinn á, að frekari samdrátt-
ur getur stefnt afkomu vinnslust-
öðvanna í tvísýnu, þar sem þús-
undir manna hafa lífsviðurværi
sitt af. Má þar t.d. nefna skinna-
iðnaðinn í landinu, en hann
skapar nú verulegar gjaideyrist-
ekjur.
-mhg
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN