Þjóðviljinn - 02.10.1986, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 02.10.1986, Blaðsíða 8
Vegarstæðið er rækilega púkkað með sérstökum grjótkippum að amerískri fyrirmynd. Ljósm. EG Vegurinn upp fjallið er gríðarlegt mannvirki og vinna stórvirkar vélar frá ýmsum verktökum við þá framkvæmd. Ljósm. EG Hernaðarmannvirkin rísa eitt af öðru Hálfur annar miljarður í Bolungarvík Byrjað á undirstöðum ratsjárhússins. Heimamenn maka krókinn: hluturJóns Friðgeirs Einarssonar í hermanginu 30-40 miljónir. Vatnsból Bolvíkinga menguð. Björgunarsveitin líka í hermangið. Leigutekjur kaupstaðarins 2.650 kr. á ári - með verðbótum! Framkvæmdir við ratsjár- stöð Bandaríkjahers í Stigahlíð fyrir ofan Bolung- arvík eru nú í fullum gangi. Byrjað var á vegagerð upp að stöðvarstæðinu í fyrra- sumar og nú hafa verka- menn hafið vinnu við undir- stöður sjálfrar ratsjárstöðv- arinnar. í upphaflegri áætl- un var reiknað með að stöð- in yrði tekin í gagnið á árinu 1988 og má búast við að sú áætlun standist. En hvað skyldi þetta ævintýri allt saman kosta? Hver er ávinn- ingur íslendinga í þessu dæmi og hvaða hag hafa heimamenn af byggingu stöðvarinnar? Hverjir maka krókinn í þessum vaxtar- sprota hermangsins og hverjir hafa einkum beitt sér fyrir andófi gegn þessum tröllauknu hernað- arframkvæmdum? Það er viðtal við einn slíkan hér í opnunni en það er meira blóð í kúnni. Gífurleg framkvæmd Pappírar um hvað þessi ratsjár- stöð kostar liggja ekki á glám- bekk. Hins vegar fullyrða fróðir menn að allt verkið kosti ekki undir 35 miljónum dollara eða um einum og hálfum miljarði ís- lenskra króna. Bandaríkjamenn greiða alla þessa upphæð enda bandarískt mannvirki, reist fyrir bandaríska dollara og bandaríska hagsmuni, eins og komist hefur verið að orði. í samningum er svo látið heita að sérstakur sjóður á vegum NATO pungi út þessu mikla fé. Það eitt sýnir svo ekki verður um villst að hér er hernaðarmann- virki á ferðinni. Eða halda menn að NATO beiti sér fyrir borgara- Iegri strandgæslu, almennri flugumferðarstjórn eða öryggi ís- Ienskra sjómanna? Ármenn NATO og Bandaríkjastjórnar hér á landi, vistaðir í Varnarmál- adeild utanríkisráðuneytisins, héldu því raunar fram að ratsjár- stöðin tryggði öryggi íslenskra sjómanna meðal annars. Ræki- lega hefur verið bent á fánýti slíkra raka og sú umræða ekki tekin upp frekar að sinni. Óþörf stöð? Andófsmenn vestra bentu einkum á það í sínum málflutn- ingi að stöðin á Stigahlíð í Bola- fjalli væri með öllu óþörf. Einn þeirra, sr. Jón Ragnarsson, segir m.a.: „Ratsjáreftirlit er þegar umtalsvert. Áuk stöðva á jörðu niðri, sem skyggna vel rúmlega íslenska lofthelgi, eru stöðugt flogið eftirlitsflug með AWACS vélum, sem skyggna rúmlega sjónsvið jarðstöðvanna. Þar að auki hafa risaveldin komið sér upp ratsjám í geimnum, sem eru býsna glöggar, ef marka má frétt- ir“. Undir þetta hafa fjölmargir sérfræðingar um fjarskipti tekið. Það bendir því allmargt til þess að með þessari fjárfestingu séu hemaðaryfirvöld einungis að sýna landanum vald sitt og festa sig í sessi með þessum hætti. Jarð- stöð af þessu tagi er eðli málsins samkvæmt býsna jarðbundin og verður ekki svo auðveldlega flutt á braut eins og gera má við eftir- litsflugvélarnar. Víðtæk samstaða Það var að beiðni George Bush varaforseta Bandaríkjanna sem samþykkt var að reisa ratsjár- stöðvarnar á Bolafjalli og Gunn- ólfsvíkurfjalli. Um mitt ár 1983 skýrði Ríkisútvarpið frá þessari bandarísku málaleitan og að full- trúar hermangsins í íslenskum stjórnmálum, Steingrímur Her- mannsson og Geir Hallgrímsson, hefðu meðtekið skilaboðin. Allt síðan þá hefur verið reynt að reyra umræðuna í viðjar stjórnmálaflokka hermangsins. Þegar heimamenn í Bolungar- Jón Friðgeir undirverktaki Islenskra aðalverktaka á Stigahlíð og Kristinn H. Gunnarsson bæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins. Ljósm. EG vík og nærbyggðum fréttu þessi tíðindi tóku þeir að ráða ráðum sínum. Fljótlega var stofnuð þverpólitísic hreyfing manna og fóru þar fyrir ýmsir þekktir borg- arar Vestfjarða. 1. desember 1984 komu menn saman og stofn- uðu hóp er m.a. hafði það hlut- verk að berjast gegn ratsjárstöð- inni. í þessum hópi eru m.a. Pét- ur Pétursson héraðslæknir, sr. Jón Ragnarsson, sr. Lárus Þ. Guðmundsson, Finnbogi Her- mannsson, Kristinn H. Gunnars- son, Þórdís Rögnvaldsdóttir, Margrét Kristjánsdóttir, Jón Sig- urpálsson, sr. Jakob Hjálmars- son og Eggert Ólafsson. Hópur- inn byggir starf sitt á Bænaskrá Vestfirðinga og í henni er að finna þennan kjarna: „Vér bendum á, að málefni friðar og afvopnunar, er flokks- sjónarmiðum stjórnmálaflokk- anna. í málefnum friðar og af- vopnunar hljóta allir að vera kall- aðir til ábyrgðar“. Foringjar hermangsins voru ekki á sömu skoðun. Kristinn H. Gunnarsson bæjarfulltrúi Al- þýðubandalagsins í Bolungarvík flutti tillögu um það að ailsherjar- atkvæðagreiðsla færi fram um málið í Bolungarvík. Hann segir m.a.: „Þessi tillaga mín var að sjálfsögðu felld með atkvæðum bæjarfulltrúa allra hermangs- flokkanna. Auðvitað voru þeir hræddir um að bæjarbúar væru á öðru máli en þeir og auðvitað gengu þeir þar erinda húsbænda sinna í N ATO eins og endranær". Hvaða hagsmunir? Eftir hverju var þá eiginlega að slægjast? Áttu bolvískir bæjar- stjórnarmenn von á því að þar vestra risi Klondike hins nýja gullæðis? Eða trúðu þeir fullyrð- ingum Varnarmáladeildar utan- ríkisráðuneytisins um að stöðinni væri ætlað að verja íslendinga fyrir vondum Rússum? Erfitt er að geta í þær eyður. Hins vegar er ljóst að býsna drjúgir brauðmolar hljóta að hrynja af borði þar sem matar- föng eru metin á einn og hálfan miljarð íslenskra króna. Islenskir aðalverktakar á Keflavíkurflug- velli hreppa þar stærstan hlut eins og lög gera ráð fyrir. Það fyrir- tæki er helmingaskiptafyrirtæki Sjálfstæðisflokks og Framsókn- arflokks og þar er þess vendilega gætt að gróðinn dreifist ekki á of margar hendur. Þessari meginreglu er auðvitað fylgt varðandi framkvæmdir í Stigahlíð en hins vegar skulu menn ekki gleyma ítökum heima- manna í Bolungarvík í hermangs- flokkunum, einkum Sjálfstæðis- flokki. Ætt Einars Guðfinns- sonar er eins og allir menn vita býsna valdamikil í plássinu og hún varð að fá sinn hlut af köku- nni. Því réðu íslenskir aðalverk- takar sér bolvískan undirverk- taka, Jón Friðgeir Einarsson, son fyrrnefnds Einars Guðfinns- sonar. Fyrirtæki Jóns Friðgeirs hefur lengi unnið að ýmiss konar framkvæmdum, einkum bygging- arframkvæmdum, og var um tíma stærsta verktakafyrirtæki Vest- fjarða. Sagt er að reksturinn hafi gengið brösuglega hin síðari árin, en þessi himnasending frá NATO réttir eflaust skútuna við. Giska má á að hlutur verktakans Jóns Friðgeirs Einarssonar í þessu hermangi nemi 30-40 miljónum króna og geta menn þá skilið áhuga vestfirskra íhaldsmanna að fá þennan kepp í sinn hlut. Raunar má spinna vefinn áfram og minna á að bróðursonur Jóns Friðgeirs er Einar Guðfinns- son alþingismaður. Sá sami gerð- ist sérstakur talsmaður þess að ratsjáin risi fyrir ofan fæðingar- stað sinn og kom m.a. í sjónvarp þar sem hann tíundaði dásemd þessa nýja vaxtarsprota í atvinnu- lífi heimabyggðarinnar. Ætt Ein- ars Guðfinnssonar gerir ekki lengur út á fisk og verslun heldur fengsælli mið. Björgunarsveitin líka! Sterkasta vopnið í herferðinni að heilbrigðri skynsemi er að kaupa menn til fylgilags. Sölu- menn vígbúnaðarkapphlaupsins kunna þá list öðrum betur. Mörg vígin hafa fallið fyrir þessu lagi og fleiri heldur en þjóðþrifafyrirtæki á borð við Einar Guðfinnsson og Co. Þegar framkvæmdir í Stigahlíð voru í undirbúningi, var komið upp veðurathugunarmastri við fyrirhugaðan grunn ratsjárstöðv- arinnar. Var ætlunin að átta sig á veðurskilyrðum og reikna út burðarvirki í samræmi við þær upplýsingar. Björgunarsveitinni Omum í Bolungarvík var falið þetta verkefni, væntanlega gegn hæfilegri þóknun, og skiptust fé- lagamir á að lesa af mælum. Raunar ætlum við ekki að áfellast þá björgunarsveitarmenn fyrir að hafa fallið fyrir þessum bauna- disk en dæmið sýnir vel hvaða að- ferðum er beitt til að brjóta niður mótstöðu heimamanna. Og fé- lagamir í Örnum em ekki einir um að vilja maka krókinn þegar hermangið er annars vegar því sögur hafa gengið um ótrúlega háa reikninga frá ýmsum aðilum fyrir störf í þágu þessa hugsjóna- verks, m.a. vegna framkvæmda við vegagerð og vatnsveitu. Nóg um það að sinni. Vatnsbolið mengað Þegar ratsjárstöð NATO var valinn staður á Bolafjalli ofan við Stigahlíð var strax ljóst að vatns- ból Bolvíkinga yrðu í mengunar- hættu. Uppi á fjallinu verða m.a. reistir olíugeymar, völlur fyrir þyrlur auk þess sem bílaumferð upp fjallið verður allnokkur. í dalnum þar fyrir neðan hafa Bol- víkingar sótt sitt neysluvatn og því neyddust menn til að flytja vatnsbólin og taka nú vatnið í sk. Mannafellsskál. Við gömlu vatnsbólin var hins vegar reist dælu- og hreinsunarstöð til að tryggja að neysluvatnið spilltist ekki. Þessi framkvæmd kostar auðvitað stórfé og er staðfesting á þeirri mengun sem alltaf fylgir framkvæmdum af þessu tagi. Vís- ast geta Bolvíkingar treyst á að fá ómengað vatn úr krananum sín- um en náttúran að öðru leyti þolir olíusullið bótalaust. Baráttan fyrir lífinu Hér hefur verið varpað ljósi á gang framkvæmda við ratsjár- stöðina fyrir ofan Bolungarvík og sagt frá andófi heimamanna. Þá eru ótalin veigamestu rökin sem höfð hafa verið uppi gegn fram- kvæmdunun, sumsé þau að rat- sjárstöð af þessu tagi er skotmark í stríði. Raunar hafa ármenn út- lends valds á íslandi búið svo um hnúta á síðustu árum að landið allt er orðið skotmark í stríði, trú- legast kjarnorkustríði. Við skulum enda þessa yfirferð á tilvitnun í grein sem birtist í Ratsjá, málagni 1. desember- hópsins, og ber heitið Baráttan fyrir lífinu: „Okkar kynslóð á engrar undankomu auðið nema að taka þátt í baráttunni fyrir líf- inu. Baráttan fyrir herratsjám hér í næsta nágrenni ætti að vekja okkur öll til umhugsunar og að- gerða til þess að við getum ekki og þurfum ekki að ásaka okkur í framtíðinni fyrir að hafa ekki lagt okkar af mörkum til að leiðrétta vegvilltan heim. Af sjónarhóli friðarsinna og andstæðinga hern- aðarmannvirkja er það ekki mót- byrinn, sem gæti hrundið hug- sjónum okkar, heldur afskipta- leysið, kæruleysi og ábyrgðar- leysi manna, hvers á sínum stað í lífinu, á heimili, á vinnustað og innan stjórnmálaflokka. Verum minnug þess, að andinn hefur áður sigrað þursa og tröll - Davíð felldi Golíat". Þeir sem mest fagna fyrirhug- uðum viðræðufundi Reagans og Gorbatsjéfs hér á landi innan tíð- ar ættu að hyggja að þessum orð- um. Við gerum þau að okkar . > -v. Texti: Valþór Hlöðversson Myndir: Eyjólfur Guðmundsson Nu er hollt að muna eftir Skútuvogi 4 Slátur er einstaklega ódýr mat- ur — þú kemst að því ef þú heimsækir slátursölu SS. Eitt slátur með hreinsuðum vömbum kostar þar kr. 200,-. Fimm slátur í pakka kosta bvf aðeins 1.000.-. krón- ur. Það er ekki til önnur leið betri til að lækka útgjaldaliði heimilisbók- haldsins en taka og borða slátur. CV Slátursala & Skútuvogi 4 Sími 35106 Allt til sláturgerðar á einum stað. Þ/S4 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 2. október 1986 Fimmtudagur 2. október 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.