Þjóðviljinn - 02.10.1986, Side 16
UOBVIUINN
1936-1986 ÞJÓÐVIUINN 50 ÁRA
Flmmtudagur 2. október 1986 223. tölublað 51. örgangur Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 681663.
Hallgrímskirkja
Hait deilt um altariströppur
Formadur byggingarnefndar vill ekki brautfyrir hreyfihamlaða upp að altarinu. Byggingar-
nefnd kirkjunnar hafnar tillögum húsameistara um breytta innanhússhönnun.
Mikil áónœgja hjá tónlistarfólki og prestum kirkjunnar
Eg lét bóka mótmæli mín á
fundi byggingarnefndar og
framkvæmdaaðila þegar ákveðið
var að hafna tillögum embættis
húsameistara ríkisins um nýja
hönnun á tröppum upp í kórinn í
Hallgrímskirkju, sagði Hörður
Áskelsson organleikari Hall-
grímskirkju í samtali við blaðið,
en hann er ásamt fleiri aðilum ó-
sammála þeirri ákvörðun for-
manns byggingarnefndar Hall-
grímskirkju, Hermanns Þor-
steinssonar, að fara eftir 10 ára
gömlum teikningum frá tímum
Harðar Bjarnasonar, sem var
áður húsameistari, við skipulag í
kór kirkjunnar.
Tillögurnar sem geröar voru á
Framboð
Guðmundur
óákveðinn
Guðmundur Einarsson fyrr-
verandi BJ-ari segist ekki hafa
ákveðið neitt um hugsanlegt
framboð í næstu kosningum fyrir
Alþýðuflokkinii. Búist hefur vcr-
ið við að hann reyni sig I prófkjöri
á Reykjanesi, og orðrómur
austanlands segir hann hugsan-
legan í efsta sæti A-listans þar.
Þær getgátur gera ráð fyrir að
Guðmundur muni sýna hinum
nýja flokksformanni sínum
tryggð með því að „skera hann
niður úr snörunni" sem Jón Bald-
vin kom sér í með því að hóta
eigin framboði á Austfjörðum.
- Mér er eiður sær, sagði Guð-
mundur við Þjóðviljann í gær, -
ég hef engin plön lagt enn um
framboð. Um Reykjanes sagði
hann að slíkar umræður væru
eðlilegar, - hann væri nú þing-
maður fyrir Reykjanes, en Guð-
mundur sagðist ekki kannast við
Austfjarðaframboð. - Ég á
reyndar margt frændfólk á
Austfjörðum, - var þar í smala-
mennsku fyrir tíu dögum, en það
var ekki hugsað sem liður í próf-
kjöri, - ég var þá á höttunum eftir
fénaði og ekki atkvæðum. En þú
segir nokkuð. Austfirðirnir eru
sjarmerandi kjördæmi, bæði
vegna staðhátta og atvinnuhátta,
- og verðugra andstæðinga...
Þetta er ári góð hugmynd. -m
þessu ári hjá embætti húsa-
meistara ríkisins voru gerðar í
samráði við fulltrúa tónlistarfólks
innan safnaðarins og presta kirkj-
unnar, auk þess sem sérstaklega
var tekið tillit til þess að hreyfi-
hamlaðir gætu komist að altarinu
án aðstoðar. Þessum tillögum
hafnaði formaður byggingar-
nefndar og sagði hann í samtali
við blaðið að það hefði hann gert
á þeim forsendum að Guðjón
Samúelsson, sem teiknaði kirkj-
una fyrir 40 árum hefði verið beð-
inn um að teikna kirkju fyrir 1200
manns og kirkjan myndi ekki
rúma þann fjölda ef farið væri að
nýju tillögunum. Breytingar voru
þó gerðar á teikningum Guðjóns
árið 1975 og skrifaði Hörður
Bjarnason, þáverandi húsa-
meistari upp á þær. Að mati Her-
manns Þorsteinssonar myndi
braut fyrir fatlaða breyta útlitinu
mjög mikið og auk þess er gert
ráð fyrir því f nýju tillögunum að
tröppurnar nýtist sem pallar fyrir
kóra. „Það væri stórt skref frá
upprunalegum hugmyndum að
stækka þessa aðstöðu fyrir tón-
listarfólk meira en orðið er og
myndi kosta miklar fjárhæðir",
sagði Hermann. „Og hvað varðar
málefni fatlaðra höfum við góða
hreyfanlega presta sem geta fært
fötluðum sakramentið niður í
kirkuna."
„í tillögum okkar komum við
til móts við óskir presta og tón-
listarmanna innan safnaðarins,
sem tóku þátt í að móta tillög-
urnar. Þær tóku tillit til staðsetn-
ingar altaris, skírnarfonts, kórs,
kórorgels og þarfa fatlaðra, sagði
Garðar Halldórsson húsameistari
ríkisins í samtali við blaðið í gær.
„Tímamir eru breyttir og ný við-
horf ríkjandi þannig að enginn
getur sagt um hvort Guðjón
Samúelsson hefði ekki teiknað
þetta öðruvfsi ef hann væri að því
í dag.“
„Prestar era ekki atkvæðisbær-
ir í byggingarnefnd en mér þykir
það mjög leitt að ekki var hægt að
finna leið sem allir geta sætt sig
við,“ sagði séra Karl Sigur-
björnsson, prestur í Hallgríms-
kirkju í samtali við blaðið. „Til-
lögur húsameistaraembættisins
voru mjög athyglisverðar og það
hefði ábyggilega verið hægt að út-
færa þetta öðruvísi þannig að allir
væru ánægðir." -vd.
Þeir Þórður Þórðarson múrarameistari og Albert Finnbogason húsasmíðameistari Hallgrimskirkju virða fyrir sér fram-
kvæmdirnar sem eru gerðar eftir 10 ára tillögum fyrrverandi húsameistara. Mynd Sig.
Barnadeildir Landspítalans
Bömin send heim um helgar
Gífurlegfólksekla háir starfsemi barnadeilda Landspítalans. Sólfríður Guðmunds-
dóttir hjúkrunarframkvœmdastjóri: Vonum að heilbrigðisyfirvöld grípi inn í áður
en til lokana þarfað koma
Ef ástand það sem skapast hef-
ur vegna fólkseklu hér lagast
ekki verða barnadeildir Land-
spítalans ekki opnaðar aftur cftir
jólin og eingöngu verður hægt að
reka bráðamóttökuna, sagði Sólf-
ríður Guðmundsdóttir hjúkrun-
arframkvæmdastjóri í samtali við
blaðið í gær.
Af fimm barnadeildum eru nú
aðeins tvær fullmannaðaf, og
vegna fólkseklunnar hefur
rekstrarforminu verið breytt
þannig á 2 deildum að önnur
þeirra er rekin sem dagdeild ein-
göngu en hin er aðeins opin um
virka daga. Á þeirri fimmtu,
gjörgæsludeild fyrir nýbura eru
stöðuheimildir fyrir 15 hjúkrun-
arfræðinga en þar er aðeins starf-
að í 7,8 stöðugildum. Ákvörðun
um að breyta rekstrarforminu á
þennan hátt í tilraunaskyni í 3
mánuði var tekin að loknum
sumarleyfum, en þá var ljóst að
skortur var á hjúkrunarfræðing-
um.
„Þetta ástand hefur þróast á
löngum tíma og við höfum stans-
laust auglýst eftir fólki án áran-
gurs,“ sagði Sólfríður. „Á dag-
deildinni starfa nú hjúkrunar-
fræðingar í 8 og hálfri stöðu en
eiga að vera 13. Sjúkraliða vantar
líka og þeir hafa allir sagt upp
störfum frá 1. október. Á þeirri
deild sem verður að loka um
helgar vantar í 5 stöður hjúkrun-
arfræðinga. Foreldrarnir verða
að taka börnin heim og það veld-
ur þeim oft erfiðleikum. Þau
börn sem eru ekki nógu frísk til
að fara heim eru færð á aðra
barnadeild. Starfsfólkið vinnur
mikla yfirvinnu og er undir miklu
álagi. Við bindum vonir okkar
við að heilbrigðisyfirvöld grípi
inn í og bæti kjör hjúkrunarfólks
áður en alvarlegt ástand skapast
og til lokunar þarf að koma.“
-vd
Hjálparstofnumn
Ráðherra
skipar nefnd
I gær skipaði dóms- og kirkju-
málaráðherra Jón Helgason,
nefnd sem mun vinna að því að
rannsaka gjafir til Hjáiparstofn-
unar kirkjunnar og ráðstöfun
stofnunarinnar á þeim.
Hjálparstofnunin lagði mikla
áherslu á skipan þessarar nefndar
þrátt fyrir það að ráðherra og
ríkisendurskoðandi hafi ekki séð
ástæðu til þess að setja málefni
stofnunarinnar undir smásjána.
í nefndinni sitja Sigurgeir
Jónsson fyrrum hæstaréttardóm-
ari, og formaður nefndarinnar,
Baldur Möller fyrrverandi ráðu-
neytisstjóri og Haildór V. Sig-
urðsson ríkisendurskoðandi.
-K.ÓI.