Þjóðviljinn - 13.01.1987, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 13.01.1987, Blaðsíða 3
r 2. deild Jafntefli hjá toppliðunum Góðir sigrar Þórs, HK og ÍBK Toppliðin í 2. dcild karla í handknattleik, ÍR og Aftur- elding, skildu jöfn, 17-17, í íþrótt- ahúsi Seljaskóla á laugardaginn. Þau standa sem fyrr langbest að vígi í deildinni og eru líklegustu liðin til að vinna sér sæti í 1. deild. Þórsarar frá Akureyri gætu blandað sér í toppbaráttuna og þeir unnu góðan sigur á ÍBV í Eyjum, 20-18. HK malaði Gróttu, 33-20, og komst með því af hættusvæðinu og ÍBK styrkti verulega stöðu sína með stórsigri á Fylki, 28-19. Staðan í 2. deild er nú þessi: (R..............9 7 2 0 223-171 16 Afturelding.....9 7 1 1 227-178 15 ÞórA............7 4 2 1 146-149 10 ReynirS.........8 2 4 2 179-200 8 HK..............9 4 0 5 213-190 8 Grótta..........8 3 1 4 178-212 7 ÍBK.............8 3 1 4 169-161 7 ÍBV.............8 3 0 5 178-169 6 Fylkir..........9 1 1 7 173-213 3 (A..............7 1 0 6 142-185 2 Leik Reynis og ÍA var frestað. -VS Pólski þjálfarinn Metnaður og baráttu- gleði í Víkingum „Víkingar komu mér á óvart í að þcir hafa mikinn metnað og fyrri leiknum og það er greinilegt baráttuvilja en skortir nokkuð reynslu og það sást í seinni leiknum. Þá var greinilegt að þeir eru ekki í nógu góðu úthaldi,“ sagði Zdzisloaw Czoska, þjálfari Gdansk, í samtali við Þjóðviljann eftir leikinn. „Við vorum svolítið smeykir við dómarana í upphafi og nokkr- ir dómar fengu okkur til að efast en þeir stóðu sig vel. Víkingsliðið hefur nokkrum mjög góðum leik- mönnum á að skipa og sumir eru ótrúlega góðir miðað við aldur. Markvörðurinn stóð sig mjög vel og fyrirliðinn (Guðmundur) lék mjög vel í síðari leiknum,“ sagði Czoska. -lbe Laugardalshöll 11. janúar Gdansk 23(10) Víkingur 17 (9) 3-0, 4-1, 4-4, 6-5, 9-5, 9-8, 10-9 - 10-10,11-11,12-12,18-12,18-14,19- 15, 21-15, 23-16, 23-17. Mörk Gdansk: Loacki 6, Wenta 5, Waszkiewicz 5(1 v), Stodolny 3, Malo- uszkiewicz 2, Plechoc 1, Zawadzki 1. Mörk Víkings: Guömundur Guö- mundsson 5(2v), Árni Friðleifsson 4, Karl Þráinsson 3(3v), Bjarki Sigurðs- son 2, Siggeir Magnússon 1, Hilmar Sigurgíslason 1, Einar Jóhannesson 1. Dómarar: Sjong og Ludvigssen (Noregi) - góöir. Maöur leiksins: Daniel Waszkiewicz, Gdansk. ÍÞRÓTTIR ■o % ‘ -FfiæW' . • Z'TZ’SÍV Éijj íé ■%s 1 dm&r *■ mm Æmm Guðmundur Gu&mundsson lék geysilega vel fyrsta korterið gegn Gdansk í fyrrakvöld og hér skorar hann eitt marka sinna á þeim kafla. Mynd: E.OI. Víkingur-Gdansk Skíði Úthaldið brást ✓ Höfðum úthald íeinn og hálfan leik, þeir ítvo, sagði Arni. Sex mörk Gdansk í röð á 12 mínútna kafla gerðu útum leikinn. Góð reynsla fyrir ungt lið Víkinga Nei, hinum ungu Víkingum tókst ekki að standa uppi í hárinu á öflugum og reyndum pólsku meisturunum frá Gdansk annan leikinn í röð. Þeir gerðu þó heiðarlega tilraun, leikurinn var í járnum þar til skammt var liðið af seinni hálfleiknum - þá sögðu úthaldið og reynslan til sín, Gdansk skoraði sex mörk í röð og eftir það áttu Víkingar ekki möguleika. Wybrzeze Gdansk er komið í undanúrslit Evrópu- keppni meistaraliða í handknatt- leik eftir 23-17 sigur og 48-42 samanlagt. Ekki kæmi á óvart þó Pólverjarnir færu alla leið í úr- slitaleikinn annað árið i röð. „Þetta er munurinn á liðunum, við höfðum úthald í einn og hálf- an leik, þeir í tvo. Það var svipað og ég bjóst við. En það er mikil reynsla fyrir Víkingsliðið að hafa fengið þessa leiki og náð svona langt í keppninni. Leikmenn gerðu ótal mistök undir álagi, og þau koma aftur nema þeir læri af þeim. Pólska liðið er geysisterkt og reynsluríkt í aiþjóðlegum handknattleik og það er ekki hægt annað en að læra af því,“ sagði Árni Indriðason þjálfari Víkinga í samtali við Þjóðviljann eftir leikinn. Hraðinn gífurlegur „Hraðinn var gífurlegur í báð- um leikjunum og það kom niður á úthaldinu. Við höfðum einfald- lega ekki þrek í tvo svona erfiða leiki. Þetta gekk ágætlega í fyrri hálfleik, við höfðum búið okkur undir að Siggeir yrði tekinn úr umferð, en þegar þreytan fór að segja til sín misstum við ein- beitinguna og fórum að gera slæmar vitleysur. En það er ómetanleg reynsla að leika við þetta lið og við sjáum galla í leik okkar sem ætti að koma okkur til góða,“ sagði Guðmundur Guð- mundsson fyrirliði Víkinga. Réðst á 12 mínútum Úrslitin réðust á 12 mínútum í seinni hálfleik. Þá skoruðu Vík- ingar ekki mark, Pólverjarnir skoruðu m.a.s. tvö mörk manni færri á meðan Víkingar gerðu sig seka um hver mistökin á fætur öðrum. Slæmar sendingar, skotið á röngum tíma og í vonlitlum fær- um. Gdansk komst í 18-12 og því forskoti varð ekki ógnað. Annars sýndu Víkingar mikinn baráttuvilja þegar þeir unnu upp fjögurra marka forskot Gdansk í fyrri hálfleiknum. Heilladísirnar virtust síðan ætla að snúast á sveif með þeim í byrjun þess síðari þegar Kristján Sigmundsson varði úr dauðafæri í stöðunni 11- 11. En þá vantaði 1-2 leikreynda leikmenn í viðbót til að halda höfði þegar með þurfti. Kristján varði markið þokka- lega, sérstaklega á mikilvægum augnablikum í fyrri hálfleiknum. Guðmundur Guðmundsson virt- ist ætla að taka leikinn í eigin hendur á upphafsmínútunum þegar hann skoraði þrjú fyrstu mörk Víkinga og fiskaði vítakast sem gaf það fjórða. En Plechoc andstæðingur hans neytti allra ráða til að halda honum í skefjum og tókst það sæmilega það sem eftir var. Siggeir Magnússon var tekinn úr umferð strax frá byrjun og komst aldrei inní leikinn og þetta hafði sín áhrif á sóknarleik Víkinga. Bjarki Sigurðsson var mistækur, náði ekki að fylgja eftir góðum leik sínum á föstu- dagskvöldið, enda aldurinn lágur ogreynslan engin. Árni Friðleifs- son hefur komist merkilega vel frá erfiðu hlutverki leikstjórn- anda, gerði oft góða hluti en óhjákvæmilega mistök inná milli. Karl Þráinsson náði sér aldrei á strik og gerði slæmar villur. Hilmar Sigurgíslason komst lítið áleiðis í sókninni en var fastur fyrir í vörninni að vanda og þar stóðu Árni Indriðason og Einar Jóhannesson fyrir sínu að vanda. Það voru einkum tveir menn sem öðrum fremur lögðu grunn- inn að sigri Pólverjanna. Daniel Waszkiewicz, sá reyndi og út- sjónarsami leikmaður, sem steig varla feilspor í seinni hálfleik og skoraði mikilvæg mörk, og mark- vörðurinn luralegi, Michalo Geo- lounski, sem varði 14 skot, þar af tvö vítaköst frá Karli. Línumað- urinn hávaxni, Grzegorz Loacki, var Víkingum einnig erfiður og lék hreinlega á næstu hæð fyrir ofan Víkingsvörnina. En annars er lið Gdansk heilsteypt og sterkt - einfaldlega of stór biti fyrir Vík- inga að kyngja. Víkingar geta borið höfuðið hátt þrátt fyrir ó- sigurinn, þeir eiga margt ólært en ættu að geta nýtt sér vel þessa miklu reynslu. -VS Góð helgi hjá Zurbriggen Pirmin Zurbriggen, svissneski heimsmeistarinn, gerði það gott í heimsbikarnum um helgina. Hann sigraði í bruni í Garmisch Partenkirchen í Vestur- Þýskalandi á laugardaginn og varð síðan annar í risasvigi á sama stað á sunnudaginn. Þá sigraði Vestur-Þjöðverjinn Markus Wasmeier. Þeir tveir eru nú orðnir efstir í stigakeppni karla, Zurbriggen er með 147 stig en Wasmeier 135. Richard Pramotton frá Ítalíu hrapaði af toppnum niður í þriðja sæti mlð 118 stig. Beatrice Gafner frá Sviss vann óvæntan sigur í bruni kvenna í Mellau í Austurríki á laugardaginn. Tamara McKinney frá Bandaríkjunum sigraði síð- an í svigi á sama stað á sunnudag. Svissneskar stúlkur eru sem fyrr í fjórum efstu sætum í stigakeppni kvenna. Vreni Schneider er með 183 stig, Maria Walliser 182, Brigitte Oertli 148 og Erika Hess 128. McKinney kemur næst með 118 stig. -VS/Reuter Badminton ísland vann Frá Baldri Pálssyni fréttamanni Þjóðviljans í Nor- egi: Island vann Noreg 3-2 í landsleik í badminton sem háður var í nýrri íþróttahöll í Kristiansand á laugardaginn og var sýndur beint í norska sjón- varpinu. Broddi Kristjánsson og Þórdís Edwald unnu örugga sigra í einliðaleik. Norðmenn sigruðu síð- an í tvenndarleik og tvíliðaleik karla en Þórdís og Elísabet Þórðardóttir tryggðu síðan íslandi sigur- inn með því að vinna nokkuð örugglega í tvíliða- leik kvenna. 10 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 13. janúar 1987 ÍÞRÓHIR Kvennahandbolti Stórleikur Erlu Skoraði 11 gegn KR. Létthjá Víkingi ogFram Erla Rafnsdóttir átti stórleik með Stjörnunni þegar liðið vann KR 24-16 í 1. deildinni í Selja- skóla á sunnudaginn. Hún skoraði 11 mörk í leiknum sem var jafn mest allan tímann, 10-8 í hálfleik fyrir Stjörnuna, en Garðabæjarliðið sigldi endanlega framúr á síðustu 10 mínútunum. Lið Stjörnunnar lék vel í heild en Karólína Jónsdóttir var best hjá KR og átti mjög góðan leik. Elsa Ævarsdóttir hjá KR var rek- in af leikvelli fyrir fullt og allt á fyrstu mínútunum og undir lokin virtist úthaldið vera á þrotum hjá hinu unga liði KR. MörkKR: Karólína Jónsdóttir7, Bryndis Haröardóttir 3, Snjólaug Benjamínsdóttir 3, Elsa Ævarsdóttir 1, Arna Garðarsdóttir 1, Aldís Arthúrsdóttir 1. Mörk Stjörnunnar: Erla Rafnsdóttir 11, Hrund Grétarsdóttir 4, Margrét Theodórs- dóttir 4, Guöný Guðnadóttir 2, Steinunn Þorsteinsdóttir 1, Brynhildur Magnúsdóttir 1, Oddný Teitsdóttir 1. Víkingur vann síðan yfirburða- sigur á slöku liði Ármanns, 30-12. Staðan var 16-7 í hléi og Víkingur lék með hálfgert varalið í seinni hálfleik en það breytti engu. Það var aðeins í byrjun leiksins sem Ármannsstúlkurnar héldu í við Víking. Báðir markverðir Vík- ings fengu að spreyta sig í sókn og segir það sína sögu. Sigrún Ólafs- dóttir markvörður unglinga- landsliðsins skoraði m.a. eitt mark. Mörk Víkings: Inga Lára Þórisdóttir 9(1 v), Vilborg Baldursdóttir 4, Sigurrós Björnsdóttir 4, Eiríka Ásgrímsdóttir 3, Vald- ís Birgisdóttir 2, Margrét Hannesdóttir 2, Hrund Rúdólfsdóttir 2, Jóna Bjarnadóttir 1, Sigrún Ólafsdóttir 1, Halla Kristjánsdóttir 1. Mörk Ármanns: Elísabet Albertsdóttir 3, Margrét Hafsteinsdóttir 2, Guðbiörq Agústsdóttir 2, Ellen Einarsdóttir 2, Brynd- ís Guðmundsdóttir 2, Halla Grétarsdóttir 1. í Eyjum vann Fram öruggan sigur á ÍBV, 25-17. Staðan var 13-8 í hálfleik og sigur íslands- meistaranna var aldrei í neinni hættu. Staðan Fram. FH.... Stjarnan Víkingur KR..... Valur.. ÍBV.... Ármann 1. deild: . 10 9 0 ...9 7 . 10 7 . 10 5 . 10 4 ...9 3 ...7 1 ...9 0 225-170 18 200-138 14 227-172 14 198-169 10 173-200 9 179-163 7 94-155 2 130-259 0 Annað kvöld er toppleikur f höllinni, Fram-FH kl. 19, og kl. 21.30 mætast Valur og Ármann. -MHM/JR/VS Akureyri Skoraði 45 en samt í tapliði! Það er sjaldgæft að einn leik- maður skori 45 stig í körfubolta- leik og enn sjaldgæfara að hann sé þá í tapliði. En það gerðist ein- mitt á laugardaginn á Akureyri, Eyjólfur Sverrisson skoraði þá 45 stig fyrir Tindastól sem tapaði í fjörugum leik, 111-101, fyrir Þórsurum. Þór var yfir allan tímann, 58-46 í hléi. ívar Webster skoraði 34 af stigum liðsins, Konráð Óskars- son 24 og Eiríkur Sigurðsson 19. Björn Sigtryggsson kom næstur Eyjólfi hjá Tindastóli og skoraði 19 stig en Kári Maríusson þjálfari gerði 14 stig. -K&H/Akureyri Blak OvænttapHK Erla Rafnsdóttir — 11 mörk. Vestur-Þýskaland Grosswallsladt Vann síðan KA í kvennaflokki KA vann óvæntan en öruggan sigur á HK, 3-0, í karladeildinni í blaki í Kópavoginum á sunnudag- inn. Hrinurnar enduðu 15-9, 17- 15 og 15-3. Daginn áður tapaði KA 0-3 fyrir Þrótti R., 12-15, 8-15 og 10- 15. í Neskaupstað unnu Framar- ar sigur á heimamönnum, Þrótti N., 3-2 í hörkuleik (15-13, 7-15, 4-15, 15-9, 15-10). Staðan í karladeildinni: Þróttur R........9 9 0 27-5 18 óvart með því að sigra KA 3-2 (2-15,15-11,1-15,15-9 og 15-10). Fyrstu hrinurnar og þar með fyrsti leikurinn sem Kópavogslið- ið vinnur. Staðan í kvennadeildinni: IS....... Víkingur.... Breiðablik. Þróttur R. HK...... KA....... .5 5 0 .7 5 2 .6 3 3 .5 3 2 ..5 1 4 ..8 1 7 15-3 10 15-7 10 13-9 6 11-8 6 3-14 2 5-21 2 -VS W St ■ OB Fram I/^ZIiZ'lO 7 3 24-16 14 Handboltí naöl tssen Baltic liðið valið Pállmeð tvö ogAtliþrjú 2 8 15-25 1 9 11-29 Frá Jóni H.Garðarssyni frétta- manni Þjóðviljans í V.Þýskalandi: Grosswallstadt náði Essen að stigum í Bundesligunni í hand- knattleik um helgina með því að sigra Schutterwaíd 23-15. Essen lék ekki vegna Evrópuleiks og er með tveimur leikjum færra. Páll Ólafsson skoraði 2 mörk fyrir Dusseldorf sem vann Ha- meln örugglega, 22-16. Milberts- hoven vann Göppingen 31-27 á útivelli og Handewitt sigraði Schutt.wald..16 Hameln.......17 10 292-342 12 304-358 Atli Hilmarsson skoraði 3 mörk fyrir Leverkusen sem vann Oberaden 19-17 í 2. deild. Víkingur tapaði óvænt fyrir Breiðabliki, 0-3, í kvenna- deildinni. Hrinurnar enduðu 2- 15, 11-15 og 15-17. Þróttur R. vann KA 3-0 (15-0,15-9 og 15-13) en síðan kom HK verulega á Dortmund þessi: 18-15. Staðan er Essen.........15 13 1 Grossw.stdt.... 17 13 1 Kiel..........16 9 2 Dusseldorf...17 9 2 Milb.hoven...17 9 1 Schwabing....16 8 2 Gummersbach 15 7 2 Hofweier.....17 6 4 Lemgo........15 5 4 Göppingen....17 6 2 Dortmund.....17 5 1 Handewitt....16 3 4 1 327-269 27 3 371-316 27 5 366-324 20 6 353-327 20 7 390-380 19 6 357-348 18 6 273-257 16 7 364-377 16 6 321-325 14 9 358-382 14 11 292-327 11 9 322-358 10 Ameríka Maradona sá besti Diego Maradona, knattspyrn- usnillingurinn frá Argentínu, var á laugardaginn útnefndur Iþróttamaður ársins 1986 í Mið- og Suður-Ameríku af fjölmiðlum á svæðinu. Fréttastofan Prensa Latina á Kúbu stóð fyrir kjörinu. Alls völdu 82 aðilar af 94 Mara- dona í efsta sætið og yfirburðir hans voru því miklir. Kúbumenn áttu tvo næstu menn, glímu- manninn Raul Cacaret og frjáls- íþróttakonuna Fedeliu Quirot. -VS/Reuter Útnefning Iþróttamaður ársinsídag Valinní31. skipti Samtök íþróttafréttamanna útnefna í dag íþróttamann ársins 1986 og er það í 31. skipti sem samtökin standa að þessu kjöri sem fyrst fór fram árið 1956. Vilhjálmur Einarsson hlaut útnefninguna fyrstur og hefur verið kjörinn oftast allra, fimm sinnum á fyrstu sex ár- unum. Sonur hans, Einar, var kjörinn 1985 og einnig 1983. Annars hafa eftirtaldir verið kjörnir íþróttamenn ársins frá upphafi: 1956: Vilhjálmur Einarsson 1957: Vilhjálmur Einarsson 1958: Vilhjálmur Einarsson 1959: Valbjörn Þorláksson 1960: Vilhjálmur Einarsson 1961: Vilhjálmur Einarsson 1962: Guðmundur Gíslason 1963: Jón Þ. Ólafsson 1964: Sigríður Sigurðardóttir 1965: Valbjörn Þorláksson 1966: Kolbeinn Pálsson 1967: Guðmundur Hermannsson 1968: Geir Hallsteinsson 1969: Guðmundur Gíslason 1970: Erlendur Valdimarsson 1971: Hjalti Einarsson 1972: Guðjón Guðmundsson 1973: Guðni Kjartansson 1974: Ásgeir Sigurvinsson 1975: Jóhannes Eðvaldsson 1976: Hreinn Halldórsson 1977: Hreinn Halldórsson 1978: Skúli Óskarsson 1979: Hreinn Halldórsson 1980: Skúli Óskarsson 1981: Jón Páll Sigmarsson 1982: Óskar Jakobsson 1983: Einar Vilhjálmsson 1984: Ásgeir Sigun/insson 1985: Einar Vilhjálmsson 1986: ????????????? Árið 1986 var óvenju við- burðaríkt á íþróttasviðinu hérlendis og niörg góð afrek voru unnin. Margir eru því til- nefndir en að vanda er aðeins einn útvalinn, sem hlýtur þetta mesta sæmdarheiti í íþróttum hér á landi. -VS Handknattlcikslandsliðið fyrir Baltic keppnina í A-Þýskalandi síðar í mánuðinum var valið gær. Kristján Sigmundsson, Víkingi gaf ekki kost á sér í liðið. Markmenn verða þeir: Einar Þorvarðarson, Tres de Mayo, Guðmundur Hrafnkelsson, Breiðablik og Brynjar Kvaran, KA. Aðrir leikmenn verða: Jakob Sigurðsson, Val, Guðmundur Guðmundsson, Víking, Bjarni Guðmundsson, Warne-Eichel, Karl Þráinsson, Víking, Geir Sveinsson, Val, Þorgils Óttar Mathiesen, FH, Kristján Ara- son, Gummersbach, Sigurður Sveinsson, Tres de Mayo, Páll Ólafsson, Dusseldorf, Alfreð Gíslason, Essen, Héðinn Gils- son, FH og Júlíus Jónasson, Val. -lg- 2. deild Léttir í úrslit? Léttir úr Reykjavík virðist ör- uggur með sæti í úrslitakeppni 2. dcildar karla í körfuknattleik eftir sigur á Snæfelli úr Stykkis- hólmi, 62-48, á föstudagskvöldið. Leikið var á „heimavelli" Hólm- ara, Digranesi í Kópavogi. Léttir hefur nú leikið alla úti- leiki sína og unnið alla en tvö lið fara í úrslit úr riðlinum. Staðan í A-riðli er þessi: Léttir...........4 4 0 270-225 8 UlA..............4 2 2 289-275 4 Snæfell..........3 1 2 200-208 2 lA............ 3 1 2 196-214 2 Árvakur..........2 0 2 124-157 0 -vs Þriðjudagur 13. januar 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.