Þjóðviljinn - 27.01.1987, Page 1

Þjóðviljinn - 27.01.1987, Page 1
f Kvenréttindafélag Islands 80 ára 17 konur á þingi í 65 ár Rætt við Láru V. Júlíusdóttur formann Kvenréttindafélags íslands um árangurfélagsins í baráttunni fyrir jafnrétti kynjanna: Brýnustu málin eru launajafnrétti í reynd og aukin stjórnmálaþátttaka kvenna Lára V. Júlíusdóttir er for- maður Kvenréttindafélagsins. Hún var fyrst spurð um að- draganda þess að félagið var stofnað fyrir 80 árum. Aðdragandinn kemur erlendis frá. Á þessum tíma voru súfra - getturnar með hreyfingar úti um lönd og Bríet Bjarnhéðinsdóttir kynntist þeim konum sem sátu á þingi Alþjóðasamtaka kvenrétt- indafélaga í Berlín 1904. Þær hvöttu hana til að stofna félag á íslandi sem hefði það eitt á stefnuskrá sinna að vinna að kosningarétti kvenna og fullu jafnrétti kvenna við karla á öllum sviðum. Kvenfélög voru þá þegar við lýði og Hið íslenska kvenfélag sem var stofnað 1899 hafði pólit- ísk réttindi kvenna á stefnuskrá sinni en sneri sér síðan að líkn- armálum. Bríet vildi að félags- konur sneru sér að upphaflegum markmiðum en þær vildu það ekki. Hún brá þá á það ráð að stofna sjálfstætt félag sem hafði þetta einvörðungu á stefnuskrá sinni. Það er einkennandi fyrir Kvenréttindafélagið að það sinn- ir einungis réttindamálum og hef- ur aldrei tekið upp neins konar líknarmál. Stefnan var fullt stjórnmálalegt jafnrétti, kosningaréttur og kjörgengi og réttur til embætta og atvinnu til jafns við karlmenn. Þar sem ljóst var að félagið gat ekki unnið að öllum þeim málum sem það hafði áhuga fyrir hvatti það konur um land allt til að stofna félög um einstaka málaflokka, einsog til dæmis Verkakvennafélagið Fra- msókn, sem var stofnað 1914. Önnur félög sem KRFÍ átti þátt í á stofna voru Lestarfélag kvenna, mæðrastyrksnefnd, Mæðrafé- lagið og Félag afgreiðslustúlkna í brauð-og mjólkurbúðum. 1944 var félagið gert að iandsfélagi og óskað var eftir því við félögin úti á landi að þau gengu í það. Félagið er því annars vegar félag einstaklinga og hins vegar samtök félaga. f dag eru 42 félög í Kvenréttindafélaginu og um 500 einstaklingar. Það er nokkuð merkilegt að fé- lagið hefur alltaf verið þverpólit- ískt. Þegar kosið er í stjórn og nefndir er reynt að tryggja það að sjónarmið alíra stjórnmáiaflokka komi fram. Þetta er bæði styrkur og veikleiki. Styrkur okkar er sá að þegar rætt er um kvenréttindi er það málefni, sem allar konur geta sameinast um, hvar í flokki sem þær standa. Við höfum alltaf verið sam- mála um markmiðin en okkur hefur stundum greint á um leiðirnar. Margar konur eru á þeirri skoðun að þverpólitísk samtök á borð við Kvenréttinda- félagið eigi ekki rétt á sér, aðrar telja að þetta sé vænlegasta leiðin til árangurs. Sjálfri finnst mér óþarfi að deiila um þetta, konur ættu fremur að vinna að jafnrétti hvaða leið sem þær velja. Tilgangurinn helgar meðalið og við verðum að leita allra leiða. Baráttumál félagsins hafa eðli- lega breyst með tímanum. Kosn- ingamálið, sem félagið var upp- haflega stofnað um, vannst að hluta strax ári seinna, 1908 fengu konur kosningarétt til sveita- stjórna. 1911 kom réttur til emb- ættisgengis kvenna og almennan kosningarétt fengum við svo 1915. Þessi réttindi voru þá loks í höfn en lengi framan af nýttu konur sér þau því miður ekki, og voru mjög tregar til þess. Ein ástæða þess er auðvitað sú að það skorti verulega á menntun þeirra. Jafnréttislögin voru ekki sett fyrr en 1976. Baráttan beinist að jafnrétti í reynd. Stórkostleg hug- arfarsbreyting hefur orðið síð- astliðin 15 ár, umræðan hefur verið mjög mikil og fólk er opn- ara en áður. Konur hafa sótt fram á öllum sviðum. Það er alveg ljóst að stærsta byltingin, sem varð í jafnréttis- málum síðari tíma varð þegar notkun pillunnar varð almenn. Þá dró úr barneignum á hverja konu úr 5-7 börnum í 2-3 börn og konur fengu aukið frelsi. Við það að ráða barneignum opnuðust valkostir. Konurnar komu út í atvinnulífið og settu fram kröfur um dagvistun barna, samfelldan skóladag og svo fram- vegis. Við að koma út í atvinnulífið Lára V. Júlíusdóttir formaður Kvenréttindafélags Islands: „Baráttan beinist að jafnrétti í reynd." I baksýn eru Hallveigar- staðir, listaverkið er Fýkur yfir hæðir eftir Ásmund Sveinsson. Mynd E.ÓI verða vistunarmál barna meira brennandi á konum en áður. Jafnframt breytast kröfur þjóð- félagsins á hverjum tíma, fólk gerir meiri kröfur til efnalegra gæða en fyrir 20 árum. Krafan um eigið húsnæði er mjög almenn og veldur því að bæði hjón vinna úti. Launajafnrétti í reynd Aðeins örlítill hluti kvenna á raunverulegt val um hvort þær vilja vera heimavinnandi eða úti á vinnumarkaðnum. Við þessa breytingu verða raddir kvenna um samfélagslega hjálp við barnauppeldið æ háværari. Og það kemur alltaf að því sama í þessarri umræðu: baráttan fyrir jafnri foreldraábyrgð og jafnri ábyrgð á heimilishaldi. Þetta eru þau mál sem KRFÍ hefur sett á oddinn í sínum mál- flutningi, ásamt því að hvetja komur til þátttöku í stjórnmálum og þjóðlífinu almennt. Við vilj- um að raddir kvenna heyrist þar sem menn ráða ráðum sínum og ákvarðanir eru teknar. Konur hafa nefnilega svolítið annað sjónarhorn á tilveruna en karlar og það er ekki fyrr en á allra síð- ustu árum að þær hafa látið að sér kveða við ákvarðanatöku. Það sem mér finnst brýnast í dag og það sem mestu máli skiptir í baráttunni er jafnrétti í launa- málum á vinnumarkaðnum. Einn þeirra þjóðfélagshópa sem eru mjög illa settir hvað það varðar eru ungar einstæðar mæður. Konur á almennum vinnumark- aði hafa lægri laun en karlar og það er ekki vegna taxtanna, held- ur eru laun í reynd lægri. Konur geta ekki tekið á sig jafnmikla yfirvinnu og karlar, þær komast ekki jafnauðveldlega í betri stöð- ur og karlar og karlmenn eru mun oftar yfirborgaðir. í fyrravetur og nú í vetur hefur starf KRFÍ beinst að stjórnmálaþátttöku kvenna vegna sveitarstjórnakosninganna í fyrra og þingkosninganna í vor. Við höfum lagt á það áherslu við stjórnmálaflokkana að konur væru ofarlega á listum og við höf- um einnig hvatt kvenfélög til að láta sitt ekki eftir liggja. Sautján konur í 65 ár Það er vandamál hve erfitt er að fá konur til að gefa sig að pól- itík, það er erfið ákvörðun fyrir konur að fara í framboð og sér- staklega fyrir konur utan af landi sem þurfa að rífa upp heimili sín með rótum til þess að setjast á þing í Reykjavík. Heimilið hvflir ennþá á konum á meðan karlarn- ir geta „skroppið“ í bæinn og ver- ið þar hálfan veturinn. A næstsíðasta kjörtímabili voru 3 konur á þingi en á þessu kjörtímabili eru þær 9 talsins, en Kvennalistinn kom fram 1983. Konur eru því aðeins 15% alþing- ismanna sem er lægsta talan á öllum Norðurlöndum. Við erum neðstar á blaði í flestu ef við mið- um við Norðurlöndin. Fyrsta konan var kjörin á þing hér á landi árið 1922, það var Ing- ibjörg R. Bjarnason. Hún var kosin af sérstökum kvennalista, en gekk strax ári síðar í íhalds- flokkinn. Það hafa aðeins 17 kon- ur setið sem aðalmenn á þingi fram til dagsins í dag. Ef kona sat á þingi fram til 1949 varhún eina konan. Til 1971 voru þær ýmist ein eða tvær og eftir það yfirleitt þrjár til 1983. Þá voru níu konur kosnar á þing. Tökum allar þátt Maður vonast auðvitað til að konum fjölgi á þingi en ég á ekki von á stóru stökki í vor, vegna þess hvernig framboðslistar eru skipaðir. Fáar konur eru í örugg- um sætum og óvissa er ríkjandi um marga þætti. Hins vegar er hlutfall kvenna á listum í heild nokkur huggun og sýnir jákvæða breytingu frá því fyrir fáum árum. Það er ljóst hvert við stefnum og markmiðið hlýtur að verða það að ekki verði spurt um kyn fólks. Það á að verða sjálfsagður hlutur að konur sinni sömu störfum og karlar sinna eingöngu nú og öfugt. Til þess að þetta geti orðið verða allar konur að taka þátt í baráttunni. Ég vil því sérstaklega hvetja ungar konur til þess að ganga í félagið. Margar þeirra reka sig ekki á misréttið fyrr en þær fara að vinna úti og áfallið er oft óþægilegt.“ -vd. Þriðjudagur 27. janúar 1987 ÞJÓÐVILJINN - I

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.