Þjóðviljinn - 14.02.1987, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 14.02.1987, Qupperneq 6
INNSÝN á óeðlilegri mismunun og koma í veg fyrir að þröngur hópur nefnd- armanna ráði með smekk sínum og geðþótta kvikmyndagerðar- innar. Og í þriðja lagi þarf að sjá til þess að framleiðendum sé gert kleíft að taka þá áhættu sem þeir sjálfir vilja leggja í - án þess að óábyrgar nefndir telji það í verkahring sínum að hafa vit fyrir þeim. Þetta til að kvikmynda- gerðarmenn ráði sjálfir, hvaða myndir eru gerðar og hverjar ekki, því að það eru þeir og engir aðrir sem eiga að ráða ferðinni. Á þeim hvílir hin raunverulega ábyrgð. Einfaldar reglur Reglur sem tryggja þetta er auðvelt að setja. Og nóg frjálsræði er eftir fyrir nefndar- menn til að gera starf þeirra spennandi. Þessar reglur gætu til dæmis litið svona út: 1. Úthluta skal úr Kvikmynda- sjóði íslands fjórum sinnum á ári: 15. jan., 15. apríl, 15. júlí og 15. október. Úthlutunarfé sjóðsins skal skipta í tvo hluta: A og B og skal þriggja manna úthlutunar- nefnd skipuð fyrir hvorn hlutann. Hvor nefnd A og B skal úthluta tvisvar á ári. (Þetta skipulag væri til bóta að því leyti, að framleiðendur gætu oftar kannað undirtektir sjóðsins við hugmyndum og verkefnum. Einnig væri með þessu skipulagi komið í veg fyrir, að um umsókn- ir væri fjallað á einu og aðeins einu dómsstigi. Það er sjálfsagð- ur hlutur að hægt sé að áfrýja úr- skurðum dómstóla, og hvers vegna skyldu kvikmyndagerðar- menn ekki eiga rétt á því að fá tækifæri til að leggja hugmyndir sínar og verkefni í dóm fleiri aðila en einnar þriggja manna nefnd- ar). 2. Um fjármögnun mynda. Kvikmyndasjóður skal aldrei leggja fram meira af fjármagns- þörf kvikmyndar en sem nemur 75%, þannig að tryggt sé að fram- leiðendur taki ávallt áhættu á eigin verkum. Þeir framleiðendur sem sækja um minna en 50% fjármagns í Kvikmyndasjóð skulu hafa for- gang að fjármagni, geti þeir sýnt fram á að þeir ráði yfir því við- bótarfjármagni sem þarf til myndarinnar með staðfestingu frá banka. (Þessar reglur um fjármögnun eru einfaldar en tryggja um leið, að úthlutunarnefndir taki ekki upp á því að fjármagna myndir um 100% fyrir einhver gæludýr sín. Sömuleiðis mundi reglan um forgang þeirra framleiðenda sem þora að taka 50% áhættu virka örvandi á kvikmyndagerðar- menn og leiða til þess að kvik- myndagerðin væri að mestu rekin að frumkvæði kvikmyndagerðar- mannanna - en ekki sem ríkisfyr- irtæki). Mat á forgangsröð Fleiri reglur tel ég ekki þörf á að setja um Kvikmyndasjóð í bráð. Þetta mundi nægja til að fyrirbyggja að mestu leyti mis- munun, og ennfremur yrðu þess- ar reglur kvikmyndagerðar- mönnum hvatning til að gera myndir, sem höfða til almenn- ings. Og þrátt fyrir þessar reglur væru úthlutunarnefndum falið að reyna að leggja skynsamlegt mat á forgangsröð verkefna, en slíkt mat er óhjákvæmilegt, að minnsta kosti svo lengi sem eftir- spurn eftir fjármagni til kvik- myndagerðar er meira en fram- boðið. Að sjálfsögðu þarf stjórn Kvik- myndasjóðs einnig að semja leiðbeiningar fyrir nefndarmenn og vera þeim til ráðuneytis, til að nefndarmenn gleymi ekki sjálf- sögðum hlutum eins og að styrkja heimildarmyndir, barnamyndir og „listræna tilraunastarfsemi“. Ekki á að veita sérstaka styrki til handritsgerðar. Hins vegar er nauðsynlegt að veita styrki til undirbúningskönnunar, sem til dæmis fara í að fullvinna forvitni- leg handrit og til að gera ná- kvæmar kostnaðaráætlanir, til að finna tökustaði (sem er mikilvæg- ara hér á landi en víðast annars staðar, því að hér tíðkast varla að taka kvikmyndir upp í stúdíóum eins og erlendis). Og þá á ekki að gera ráð fyrir að mynd sem hlotið hefur undirbúningsstyrk hljóti endilega framleiðslustyrk, því að betra er að hætta við vafasamt verkefni þótt það hafi kostað nokkurt fé heldur en að fullvinna það og kasta milljónum á glæ). Um mismunun og annarleg sjónarmið Það hefur alla tíð verið deilt og pexað um úthlutanir Kvikmynda- sjóðs enda eru störf úthlutunar- nefnda á engan hátt hafin yfir gagnrýni fremur en önnur mann- anna verk. En af þessum deilum öllum má þann lærdóm draga, að ekki ætti að koma að sök þótt úthlutunarnefndum væru settar skýrari reglur á borð við þær sem hér var minnst á að framan. Sumt af deilum þessum stafar beinlínis af því að við lifum í litlu þjóðfélagi, þar sem á stundum getur komið upp sambúðarvandamál sterkra ein- staklinga vegna hins litla olnbog- arýmis. Og allt tal um mismunun og annarlegt viðhorf verður að forð- ast, en hjá því verður helst komist með því að deila þeirri ábyrgð og því valdi sem því fylgir að útdeila fé á sem flestar herðar. Það þarf að skipta um fólk í úthlutunarnefndum oft - að minnsta kosti um einn mann á ári í hverri þriggja manna úthlutun- arnefnd. Og það þarf að skipta um formann Kvikmyndasjóðs helst ekki sjaldnar en á tveggja ára fresti. Að öðrum kosti er hætt við að erfitt sé að kveða niður tal um mismunun og annarleg sjónarmið, en allt slíkt tal er skaðlegt fyrir það hlutverk sem Kvikmyndasjóði er ætlað að þjóna, en það er glæsileg framtíð íslenskrar kvikmyndagerðar. Þjóðleg, innlend kvikmyndagerð Margt fleira væri skemmtilegt að tína til um stöðu og þróun kvikmyndagerðarinnar. Til dæm- is þá barnalegu hugmynd manna sem ekki hafa hundsvit á kvik- myndagerð, og gengur út á að framtíð íslenskrar kvikmynda- gerðar felist í framleiðslu alþjóð- legra stórmynda eða þátttöku í slíkum fyrirtækjum. Það er þjóðleg, innlend kvik- myndagerð sem við þurfum að styrkja. Af alþjóðlegum stór- myndum höfum við nóg í bíóun- um, í Sjónvarpinu, á videóleigun- um og á Stöð 2. En til að þessi orð misskiljist ekki er rétt að taka það skýrt fram, að sjálfsagt er að efla ís- lenska kvikmyndagerðarmenn til þátttöku í samstarfi við erlenda aðila um íslensk verk, eins og nú er gert í sambandi við „Tristan og ísold“ Hrafns Gunnlaugssonar. Gangi honum allt í haginn, og sömuleiðis Karli Óskarssyni, sem einnig fékk góðan styrk úr sjóðn- um og ræðst nú í sitt stærsta verk- efni til þessa, framleiðslu á heilli bíómynd, hafandi sýnt góð tilþrif sem einn af bestu kvikmynda- tökumönnum okkar. Við eigum duglegt kvikmynda- gerðarfólk, sem er líklegt til góðra afreka á næstu árum. Og við eigum góða og tryggja áhorf- endur, sem aldrei láta sig vanta þegar eitthvað áhugavert er á hvíta tjaldinu. Takist okkur að gera þriðja þáttinn í kvikmyndagerðinni jafnöflugan og hina tvo fyrri, kvikmyndagerðarmennina og áhorfendurna - þá þarf ekki að bera kvíðboga fyrir framtíð ís- lenskrar kvikmyndagerðar. - Þráinn DJÓÐVIIJINN 0 68 13 33 Tímiim 0 68 18 66 0 68 63 00 Blaóburður er BESTA TRIMMIÐ og borgar sig Blaðbera vantar víðsvegar um borgina ÞJOÐVILJINN flAUSAR STÖÐUR HJÁ REYKJAVIKURBORG Starf fulltrúa á skrifstofu borgarlæknis Starf háskólamenntaðs fulltrúa á skrifstofu borg- arlæknis er laust til umsóknar. Starfið felst í skýrslugerð um heilbrigðismál, tölvuvinnslu upplýsinga, gerð rekstraráætlana og rannsókna á sviði heilsuhagfræði. Æskilegt er að umsækjendur hafi viðskiptafræði/hagfræði- menntun. Laun samkv. kjarasamningi starfs- manna Reykjavíkurborgar. Upplýsingar veitir borgarlæknir í síma 22400. Umsóknarfrestur er til 1. mars nk. Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. H Auglýsing um rannsóknarstyrki frá J.E. Fogarthy International Research Foundation J.E. Fogarthy-stofnunin í Bandaríkjunum býður fram styrki handa erlendum vísindamönnum til rannsóknastarfa við vís- indastofnanir í Bandaríkjunum. Styrkir þessir eru boðnir fram á alþjóðavettvangi til rannsókna á sviði læknisfræði eða skyldra greina (biomedical science). Hver styrkur er veittur til 6 mánaða eða 1 árs á skólaárinu 1988-89 og á að standa straum af dvalarkostnaði styrkþega auk ferða- kostnaðartil og frá Bandarikjunum. Einnig ergreiddurferða- kostnaður innan Bandaríkjanna. Til þess að eiga möguleika á styrkveitingu þurfa umsækj- endur að leggja fram rannsóknaáætlun í samráði við stofn- un þá í Bandaríkjunum sem þeir hyggjast starfa við. Nánari upplýsingar um styrki þessa veitir Atli Dagbjartsson, læknir, barnadeild Landspítalans (s. 91 -29000). - Umsóknir þurfa að hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 15. júlí nk. Menntamálaráðuneytið, 12. febrúar 1987.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.