Þjóðviljinn - 14.02.1987, Qupperneq 15

Þjóðviljinn - 14.02.1987, Qupperneq 15
ÍÞRÓTTIR Ísland-Júgóslavía Stefnir í okkar sterkasta lið AUt bendir til þess að ísland verði með flest alla sína bestu menn í landsleikjunum við heims- og Ólympíumeistara Júgóslava sem fram fara í Laugardalshöll- inni eftir rúma viku. Þeir sem leika í Vestur- Þýskalandi koma allir, Kristján Arason, Alfreð Gíslason, Bjarni Guðmundsson, Atli Hilmarsson og Páll Ólafsson, og góðar líkur eru á að „Spánverjarnir" Sigurð- ur Gunnarsson og Einar Þorvarð- arson komi líka. Leikirnir fara fram á mánu- dagskvöldið 23. og þriðjudags- kvöldið 24. febrúar og það þarf ekki að fjölyrða um að þessi heimsókn Júgóslava er einhver mesti hvalreki á fjörur íslenskra handknattleiksáhugamanna á síðari árum. -VS Unglingalandsleikurinn Glæsisigur! Ellefu markaforysta íseinni hálfleik gegn Vestur-Þjóðverjum Úthlutun Valsmenn fengu stærstu sneiðina Það er greinilegt að ísland þarf ekki að kvíða fyrir framtíðinni í handknattleik. I gær sigraði ung- lingalandsliðið, 18 ára og yngri, lið Vestur-Þjóðverja 25-20 og hefði sá sigur getað verið mun stærri. Það var aðeins á fyrstu mínút- unum sem Þjóðverjar náðu að hanga í íslendingunum og þeir voru reyndar yfir 3-4. Þá komu sex mörk frá íslandi sem breyttu stöðunni í 9-4. f hálfleik var stað- an 13-7. íslendingar byrjuðu síðari hálf- leik vel og þegar 15 mínútur voru til leiksloka var staðan 22-11! Þá kom full rólegur kafli hjá ís- lenska liðinu ogÞjóðverjargengu á lagið, en sigurinn öruggur 25- 20. Þessi sigur byggðist fyrst og fremst upp á sterkri vörn og skynsamlegum sóknarleik. Þeir Árni Friðleifsson og Héðinn Gilsson voru ógnandi fyrir utan og í hornunum áttu þeir stórleik Konráð Olavsson og Sigurður Sveinsson. Þá varði Bergsveinn Bergsveinsson vel. Þó gerði íslenska liðið nokkuð af mistökum og mörg dauðafæri fóru í súginn þ.á.m. 4 vítaköst. Mörk íslands: Konráð Olavsson 8(3v), Sigurður Sveinsson 6(1 v), Héðinn Gilsson 3, Árni Friðleifsson 3(1 v), Ólafur Kristjáns- son 2, Halldór Ingólfsson 1, Þorsteinn Guðjónsson 1 og Oskar Helgason. Markahæstur Þjóðverja var Brandes með 4 mörk. -Ibe. Valsmenn fengu stærstu sneiðina af kökunni þegar borg- arráð Reykjavíkur úthlutaði í vikunni íþróttafélögunum sam- tals 21,8 miljónum til fram- kvæmda á svæðum sínum á þessu ári. Þeir fá 3,8 miljónir til fram- kvæmda við grasvöll sinn að Hlíðarenda. Þróttarar koma næstir með 3,5 miljónir til byrjunarframkvæmda við grasvöll og endurbyggingu á malarvelli. ÍR er í þriðja sæti með 3,2 milj- ónir til framkvæmda við girðing- ar og byrjunarframkvæmdir við grasvöll. Ármann fær 2,5 miljónir til endurbyggingar og stækkunar á grasvelli. Um helgina Júdó Sveitakeppni JSÍ fer fram í dag í íþróttahúsi Kennaraháskólans og hefst kl. 14 með keppni í drengjaflokki. Þar er keppt í 5 þyngdarflokkum. Keppni í karla- flokki hefst kl. 15 og þar eru hinir 7 hefðbundnu þyngdarflokkar. Fimm sveitir mæta til leiks í karlaflokki, þar á meðal gesta- sveit skipuð erlendum keppend- um með landsliðsþjálfarann f Reino Fagerlund í fararbroddi. Fimleikar Unglingamót í fimleikum verð- ur háð í Laugardalshöllinni í dag og hefst kl. 14. Keppni er tví- skipt, keppt er í 4. þrepi íslenska fimleikastigans kl. 14 en kl. 16.30 hefst keppni í 3. og 2. þrepi. Skíði Ólafsfjörður er aðal vettvang- ur skíðamanna um þessa helgi. Þar er keppt í norrænum grein- um, 30 km göngu, 3x7,5 km boð- göngu og stökki í flokki fullorð- inna og einnig er keppt í ung- lingaflokki. A Akureyri keppa hinsvegar unglingar 13-14 ára í alpagreinum. Sund Unglingasundmót KR og Spe- edo fer fram í dag og á morgun. Keppni hefst kl. 10 báða dagana. Keppt er alls í 49 greinum og veitt einstaklingsverðlaun og stiga- hæsta félag fær farandbikar Spee- do. Handbolti 1. deild kvenna: 14.2. IBV-Valur..........14.45 15.2. KR-Fram............20.00 15.2. Víkingur-Stjarnan..21.15 15.2. FH-Ármann..........20.00 Fylkir fær 2,4 miljónir til fram- kvæmda við grasvöll. KR fær 2,2 miljónir til að koma upp stæðum fyrir áhorfendur, bað- og snyrtiaðstöðu og girðing- um. Leiknir fær 2 miljónir til fram- kvæmda við bað- og búnings- klefa. Fram fær 1,8 miljónir vegna framkvæmda við lóð og um- hverfi. Þetta er lokagreiðsla. Víkingur fær 400 þúsund vegna uppgjörs á framkvæmdum við grasvöll á árinu 1986. Borgarráð samþykkti óbreytta tillögu frá fþrótta- og tómstunda- ráði. -VS Úrvalsdeildin UMFN í basli Vann KR meðfimm stigum Njarðvíkingar lentu óvænt í miklu basli með KR-inga í gær- kvöldi en náðu að sigra 72-67 eftir að hafa komist yfir í fyrsta skipti um miðjan síðari hálfleik. Njarðvíkingar voru all kæru- lausir framanaf og virtust vera í hálfgerðri tilraunastarfsemi. Þeir bættu síðan vörnina hjá sér og við það riðlaðist leikur KR undir lok- in. Valur, Helgi og Jóhannes voru í aðalhlutverkum. KR-ingar léku skynsamlega og af öryggi en lentu í villuvand- ræðum þegar leið á leikinn. Þeirra bestu menn voru Guðni, traustur og öruggur allan tímann, Ástþór og Guðmundur. -SÓM/Suðurnesjum Frjálsar Koch keppir! Það eru aðeins 12 dagar síðan austur-þýska hlaupadrottningin Marita Koch tilkynnti að hún væri hætt keppni og væri búin að draga sig í hlé. Skipuleggjendur bandaríska meistaramótsins í Kvennahandbolti Fjögur berjast Þegar tæplega tveimur þriðju- lilutum af keppni í 2. deild kvenna er lokið er ljóst að fjögur félög, Haukar, ÍBK, Afturelding og Þróttur, berjast um sætin tvö f t. deild. Staðan í 2. deild er þessi, þó gæti vantað 2-3 síð- ustu leiki inní og gott væri að heyra í fulltrúum viðkomandi félaga um þau: Haukar...... 9 7 0 2 195-130 14 IBK........ 9 6 0 3 159-138 12 Þróttur.... 8 5 0 3 138-132 10 Afturelding. 8 4 0 4 162-162 8 HK........ 10 2 0 8 167-220 4 Breiöablik. 8 2 0 6 127-166 4 -VS HMINorrœnar frjálsum íþróttum innanhúss ráku því upp stór augu nú í vik- unni þegar þeim barst listi yfir keppendur frá Austur- Þýskalandi - því nafn Maritu var skráð þar skýrum stöfum. Marita Koch er þrefaldur Evrópumeist- ari, á heimsmetin í 200 og 400 m hlaupum kvenna og varð Ólymp- íumeistari í 400 metrunum árið 1980. -VS/Reuter Njarðvik 13. febrúar UMFN-KR 72-67 (35-40) 7-15, 17-25, 23-29, 29-35, 35-40 - 40-44,45-49,57-55,62-61,66-65,70- 65, 72-67. Stig UMFN: Valur Ingimundarson 22, Jóhannes Kristbjörnsson 14, Helgi Rafnsson 10, Kristinn Einarsson 8, Isak Tómasson 6, Teitur Örlygsson 6, Hreiðar Hreiðarsson 4, Árni Lárusson 2. Stig KR: Guðni Guðnason 24, Ást- þórlngason 16, GuðmundurJóhanns- son 14, Þorsteinn Gunnarsson 8, Ólafur Guðmundsson 5. Dómarar: Bergur Steingrímsson og Jóhann Dagur Björnsson - góðir. Maður leiksins: Guðni Guðnason, KR. Norskt gull Anne Jahren frá Noregi sigraði í 10 km göngu kvenna á heimsmeistaramótinu í norræn- um greinum í Oberstdorf í gær. Marjo Matikainen frá Finnlandi varð önnur og Brit Pettersen frá Noregi þriðja þannig að öll verð- laun á mótinu til þessa hafa fallið Norðurlandaþjóðum í skaut. -VS/Reuter Laugardagur 14. febrúar 1987 Unglingalandsliðið sem nú er f B-keppninni. Badminton Unglingar í Frakklandi Unglingaiandslið íslands tekur um helgina þátt í fyrstu B- keppni unglinga undir 16 ára sem haldin er í Strasbourg í Frakklandi. Þetta eru yngstu keppendur sem BSÍ hefur sent til keppni erlendis. Island er í riðli með Austurríki og Sviss en alls taka 12 þjóðir þátt í mótinu og leika í fjórum riðlum. íslensku keppendurnir eru frá Akranesi, Borgarnesi og TBR og eru Jón Zimsen, Óli Björn Zimsen, Birgir Örn Birgisson, Skúli Þórðarson, Birna Petersen og Ásdís Dan Þórisdóttir. Körfubolti Enn eitt Blikatap Breiðablik tapaði sínum sjötta leik í röð í 1. deild í karla í gærkvöldi þegar Grindvikingar komu í heimsókn í Dig- ranesið. Suðurnesjamenn unnu ör- uggan sigur, 95-72. Á Sauðárkróki vann Þór hinsvegar sinn sjötta leik í deildinni í röð, 72-62 gegn Tindastóli. Staðan er þessi: IR........... 17 15 2 1584-1158 30 Þór.......... 16 13 3 1323-1182 26 Grindavík.... 14 9 5 1128-992 18 Breiðablik... 17 4 13 1040-1349 8 Tindastóll... 15 4 11 1079-1280 8 IS........... 15 2 13 900-1093 4 -vs Handbolti Föstudagur þrettándi! Föstudagur og þrettándi sögðu Skagamenn eftir stóran skell á heima- velli, 13-23, gegn Fylki í 1. deild karla í gærkvöldi. Þriðji sigur Fylkis ■ röð. ÍR vann Reyni 33-23 í Sandgerði. IR......... 13 10 2 1 326-247 22 Afturelding.. 12 7 2 3 286-246 16 Þór A....... 12 7 2 3 265-254 16 ÍBV......... 12 7 0 5 276-252 14 IBK......... 12 5 2 5 259-246 12 ReynirS...... 13 4 4 5 300-339 12 HK........... 13 6 0 7 326-283 12 Fylkir....... 13 4 1 8 257-291 9 Grótta....... 12 4 1 7 262-303 9 (A........... 12 1 0 11 234-330 2 -vs Kvennakarfa Loks sigur Grindavík vann f gærkvöldi sinn fyrsta leik í kvennadeildinni í körfu- knattleik - sigraði UMFN 33-32 í Njarðvík. Staðan var 24-13, Grinda- vík í hag, í hálfleik. -SÓM/Suðurnesjum England Blikur alofti Evcrton á góða möguleika á að auka forystu sína í 1. deild ensku knattspyrnunnar í dag. Liðið sækir Oxford heim á meðan Arsenal á erfið- ari útileik, gegn Sheffield Wednesday. Arsenal á f vandræðum því Viv Anderson og David Rocastle eru í leikbanni en á móti kemur að marka- kóngur Sheff.Wed., Lee Chapman, er fjarverandi af sömu ástæðu. Hjá Everton eru líka blikur á lofti því Graeme Sharp og Paul Power eru meiddir. Þá mun Les Phillips leika með Oxford á ný eftir 5 leikja bann en það var einmitt hann sem tryggði Ox- ford afdrifaríkan sigur á Everton í fyrra - sem varð til þess að Everton missti af meistaratitlinum. Chelsea verður án þriggja lykil- manna í Coventry í dag, David Spee- die, Nigel Spackman og Mike Hazard eru allir meiddir. Skotinn sterki Ne- ale Cooper verður ekki með Aston Villa í Luton en Paul EUiott, fyrrum leikmaður Luton, tekur stöðu hans. -VS/Reuter Blak Kínverjinn velur tíu Kínverjinn Jia Chang-Wen, sem nýverið var ráðinn landsliðs- þjálfari karla í blaki, hefur yalið sitt fyrsta landslið til æfinga. í því eru eftirtaldir 10 leikmenn: Bjarni Þórhallsson, Víkingi Einar Hilmarsson, Þrótti Friðjón Bjarnason, (S Kristján Már Unnarsson, Fram Leifur Harðarson, Þrótti Ólafur Árni Traustason, Fram Sigurður Þráinsson, (S Stefán Jóhannesson, Víkingi Sveinn Hreinsson, Þrótti Þröstur Friðfinnsson, Vikingi -VS ÞJÓÐVILJINN - SfÐA 15

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.