Þjóðviljinn - 31.03.1987, Blaðsíða 2
ÍÞRÓTT1R
Knattspyrna
Malta náði
jafntefli
Malta náði nokkuð óvænt jafn-
tefli gegn Portúgal í Evrópu-
keppninni í knattspyrnu, 2. riðli.
Leikurinn var í Portúgal og enda-
ði 2-2.
Jorge Placido náði forystunni
fyrir Portúgal á 12. mínútu, en
öllum á óvart komst Malta yfir
með mörkum frá Mizzi og Bus-
uttil. Placido náði að jafna fyrir
Portúgal á 76. mínútu og þar við
sat.
Þessi úrslit eru mikið áfall fyrir
Portúgal og möguleikar þeirra
líklega úr sögunni.
Ítalía er í efsta sæti í riðlinum
með 8 stig eftir 4 leiki, Svíþjóð í
öðru sæti með 5 stig eftir 3 leiki,
Portúgal í þriðja sæti með 3 stig
eftir 4 leiki og Sviss og Malta í
neðstu sætunum, með eitt stig.
-Ibe/Reuter
Tómas Ouðjónsson sigraði í
einliða- og tvenndarleik gegn Jersey.
Borðtennis
ísland í
3. sæti
ísland hafnaði í 3. sæti i 3. deild
Evrópukeppninnar í borðtennis á
Jersey um helgina.
ísland sigraði í fyrsta leiknum
gegn Mön 5-2. Næst átti ísland að
leika gegn Möltu. Malta mætti
ekki og því fékk ísland sigur þar
og vann því báða leiki sína fyrri
daginn.
Það gekk ekki jafn vel síðari
daginn. ísland tapaði gegn Jers-
ey, 2-5. Tómas Guðjónsason
sigraði í einliðaleik og í tvenndar-
leik með Ástu Urbancic. Síðasti
leikurinn var gegn Portúgal og
sigraði Portúgal örugglega 7-0.
Hilmar Konráðsson var sá eini
sem náði að vinna lota af Por-
túgal en þeir unnu alla sína leiki
7-0.
-Ibe
Stofan Erlksson frá Svíþjóð sigraði í hringjum, stökki og tvíslá. Mynd: E.ÓI
Mikaal Pattarsson frá Svíþjóð sigraði í fjölþraut. Mynd:E.ÓI
Fimleikar
á Reykjavíkurmótinu í fimleikum. Guðjón komst á verðlaunapall
Svíar og Spánverjar voru í sér-
flokki á Reykjavíkurmótinu í fim-
leikum. Svíar sigruðu i karla-
flokki og Spánverjar í kvenna-
flokki.
Það má líklega segja að spán-
ska stúlkan Laura Munoz hafi
verið stjama mótsins. Hún sigr-
aði í öllum greinum sínum og
hafði nokkra yfirburði yfir aðra
keppendur í kvennaflokki.
Svíarnir Stefan Erikson og
Mikael Petterson sigmðu í öllum
greinum í karlaflokki að boga-
hestinum undanskildum.
Guðjón Guðmundsson var eini
íslendingarinn sem komst á verð-
launapall. Hann lenti í 3. sæti í
gólfæfingum.
Árangur íslendinga var nokk-
uð góður og mikilsvert fyrir þá að
fá tækifæri til að taka þátt í svona
stórmótum.
Mótið gekk nokkuð vel fyrir
utan það að festingar á hringjun-
um gáfu sig þrisvar sinnum á fyrri
deginum.
Landskeppni karlaflokkur:
1. Svíþjóð 105.90
2. Noregur 104.55
3. Sviss 98.70
4. Skotland 95.70
5. Grikkland 95.20
6. Belgía 93.10
7.ísland 88.30
Fjölþraut karla:
1. Mikael Petterson, Svíþjóð
53.20
2. Sefan Eriksson, Svíþjóð 52.70
3. Henry Zondacq, Luwemburg
51.80
Guðjón Guðmundsson lenti í 10.
sæti með 47.80 stig.
Fjölþraut kvenna:
1. LauraMunoz, Spáni....38.40
2. Lidia Castillejo Spáni.... 36.95
3. HelenÖstreng,Noregi.. 35.60
Fjóla Ólafsdóttir hafnaði í 10.
sæti og Linda Pétursdóttir í 12.
sæti.
Guðjón Guðmundsson lenti í
3. sæti í gólfæfingum, en þar sigr-
aði Mikael Pettersson frá Sví-
þjóð.
Stefan Eriksson frá Svíþjóð og
Björnar Larsen sigruðu á tvíslá.
Mikael Pettersson sigraði á
svifrá.
Stefan Eriksson frá Svíþjóð
sigraði í stökki, en þar lenti Guð-'
jón Guðmundsson í 5. sæti.
Það var sama sagan í hringjun-
um. Stefan Eriksson sigraði og
Guðjón lenti í 5. sæti.
Paul Hetland frá Noregi sig-
raði á bogahesti.
Laura Munoz sigraði í öllum
kvennagreinunum. Fjóla Ólafs-
dóttir lenti í 5. sæti á slá.
Skipting verðlauna:
Svíþjóð............. 7 3 2
Spánn............... 6 5 0
Noregur............. 2 4 4
Luxemburg........... 0 2 3
Grikkland............ 0 0 2
ísland............... 0 0 1
Skotland............. 0 0 1
Skotland, írland og Belgía
náðu engum verðlaunum
-Ibe
Laura Munoz frá Spáni sigraði i öllum sínum greinum. Mynd: E.ÓI
Svíþjóð og Spánn í sérflokki
Landskeppni kvennaflokkur:
l.Spánn................75.35
2. Noregur..............71.25
3. Grikkland............69.55
4. Skotland.............68.70
5. Luxemburg............68.00
6. ísland...............67.15
7. írland...............65.95
Handbolti
Haukamir fallnir
Vinningstölurnar 28. mars 1987.
Heildarvinnlngsupphæð: 4.994.736,-
1. vinningur var kr. 2.501.252,- Aðeins einn þátttakandi var með allar
tölur réttar.
2. vinningur var kr. 748.524,- og skiptist hann á 266 vinningshafa, kr.
2.814,- á mann.
3. vinnlngur var kr. 1.744.960,- og skiptist á 8512 vinningshafa, sem fá
205 krónur hver.
Upplýsingasími:
685111.
Haukar eru nú endanlega
fallnir í 2. deild eftir tap gegn KA
á laguardaginn, 27-23.
Taugaveiklun einkenndi leik
Iiðanna framan af. Mikið um
slæmar sendingar og mennn
gripu ekk boltann. KA náði for-
ystunni í upphafi en með góðum
kafla náðu Haukar að skora sex
mörk gegn einu. En Akureyring-
ar voru ekki lengi að taka við sér
og jöfnuðu aftur. í hálfleik var
staðan 11-10 KA f vil.
Slæmur kafli hjá Haukum í
upphafi síðari hálfleiks færði KA
fjögura marka forskot, en
Haukar náðu að minnka muninn
í eitt mark. Þá tók KA við sér og
gerði út um leikinn með góðum
kafla.
KA-menn voru mun sterkari í
síðari hálfleik eftir fremur slaka
byrjun. Axel Björnsson og
Friðjón Jónsson voru bestir í liði
KA og Brynjar Kvaran varði vel í
síðari hálfleik.
Með þessu tapi eru Haukar
endanlega fallnir í 2. deild.
Reyndar voru möguleikarnir
ekki miklir. Sigurjón Sigurðsson
var yfirburðamaður í liði Hauka.
Hann hélt liðinu uppi í fyrri hálf-
leik og skoraði sjö af tfu mörkum
Hauka. Helgi Harðarson átti
ágætan leik og einnig Jón Örn
Stefánsson.
-HK/Akureyri
Akureyri 28. mars
KA-Haukar 27-23 (11-10)
3-1,4-7, 8-8,11 -10,14-11,18-14,18-
17, 21-20, 25-20, 27-23
Mörk KA: Axel Björnsson 6, Friðjón
Jónsson 6,Svanur Valgeirsson 4(1 v),
Hafþór Heimisson 3, Eggert Tryggva-
son 3(1 v), Pétur Bjarnason 3(2v), Jón
Kristjánsson 1 og Guðmundur Guð-
mundsson 1.
Mörk Hauka: Sigurjón Sigurðsson
12(4v), Helgi Haraldsson 3, Sindri
Karlsson 2, Jón öm Stefánsson 2, Jón
Þórðarson2, Jón Hauksson 1 og Pétur
Guðnason 1.
Dómarar: Sigurður Baldursson og
Björn Jóhannsson-ágætir.
Maður leiksins: Sigurjón Sigurðs-
son, Haukum.
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þrl6judagur 31. mars 1987