Þjóðviljinn - 31.03.1987, Page 3
ÍÞRÓTTIR
Karl Þráinsson brýst f gegn um vörn Fram. Mynd: E.ÓI
Handbolti
Meistarataktar
Það var greinilcga engin pressa
á liðum Fram og Víkings. Víking-
ar orðnir Islandsmeistarar og
Framarar lausir við falldrauginn.
Lokatölur 30-24 Víking í vil i ró-
legum leik.
Framliðið fór vel af stað, vörn-
in þétt og sóknin góð. Víkingar
byrjuðu ekki eins vel og geta
þakkað Kristjáni Sigmundssyni
að þeir skildu ekki vera 4-5 mörk-
um undir strax á fyrstu mínútum
leiksins . Um miðjan fyrri hálf-
leik þéttist vörn Víkinga og Krist-
ján lokaði markinu. Þá komust
Víkingar í fjögura marka forustu
og héldu henni til hálfleiks og
staðan í hálfleik var 14-10 fyrir
Víking.
Víkingar komu mjög ákveðnir
til leiks í síðari hálfleik og ætluðu
greinilega að sýna Frömurum
hverjir væru íslandsmeistarar.
Það gekk allt upp hjá þeim og
þegar 15 mínútur voru liðnar af
síðari hálfleik voru Víkingar
komnir með átta marka forustu
og slökuðu á. Þá komust Framar-
ar meira inn í leikinn og tókst
þeim að minnka muninn í 3
mörk. Þannig hélst leikurinn síð-
an í jafnvægi þar til um þrjár mín-
útur voru til leiksloka þá juku
Víkingar muninn í sex mörk.
Lokatölur því 30-24 Víking í vil.
Kristján Sigmunsson var best-
ur í liði Víkings einnig átti Árni
Friðleifsson góðan leik og Guð-
mundur Guðmundsson átti svo
stórleik í síðari hálfleik.
Óskar Friðbjömsson og Agn-
ar Sigurðsson voru bestir í liði
Fram.
Ó.St
Laugardalshöllin 29. mars
Fram-Víkingur 24-30 (10-
14)
1 -3,4-4,4-8,6-10,8-12,10-14,12-18,
15-23, 21-24, 22-29, 24-30.
Mörk Fram: Agnar Sigurðsson
6(2), Per Skaarup 5, Ragnar Hilmars-
son 3, Tryggvi Tryggvason 3, Birgir
Sigurðsson 2, Hermann Björnsson 2,
Ólafur Vilhjálmsson 1, Björn Eiríksson
1 og Óskar Friðbjörnsson 1.
Mörk Vfklngs: Guðmundur Guð-
mundsson 9, Bjarki Sigurðsson 5,
Siggeir Magnússon 5, Karl Þráinsson
4(2), Ámi Friðleifsson 4, Árni Indriða-
son 2 og Hilmar Sigurgislason 1.
Dómarar: Stefán Arnaldsson og
Ólafur Haraldsson - sæmilegir
Maður lelksins: Kristján Sig-
mundsson, Víking
Handbolti
Létt hjá FH-ingum
Ó-frískir Ármenningar töpuðu
stórt fyrir lítt sprækum FH-
ingum, í frekar daufum leik í
Höllinni. Semsagt lítil ánægja
fyrir fáa áhorfendur og lokatölur
33-24 FH-ingum í vil.
Úrslitin í þessum leik koma víst
fáum á óvart. Ármenningar
fallnir niður í aðra deild fyrir
löngu og lítil barátta á þeim bæ.
FH-ingar fóru hægt af stað en
um miðjan fyrri hálfleik voru þeir
komnir með sjö marka forskot.
Staðan í hálfleik var 18-11.
Síðari hálfleikur var enn
daufari en sá fyrri og var greini-
legt að það var bara formsatriði
að klára leikinn. FH-ingar héldu
uppteknum hætti og skoruðu átta
mörk á móti einu frá Ármenning-
um fyrstu tíu mínútur síðari hálf-
leiks. Þegar hér var komið í
leiknum voru FH-ingar famir að
leika sér og reyna að skora undra-
mörk. Það gekk þó lítið og náðu
Ármenningar að klóra í bakkann
og minnka muninn úr j 4 mörkum
í 9 og þannig endaði leikurinn
með níu marka mun FH í vil 33-
24. -Ó.St
Laugardalshöil 29. mars
Ármann-FH 24-33 (11-18)
0-2, 2-5, 4-8, 7-14, 11-18, 11-24, 14-
28, 21-30, 24-33
Mörk Armanns: Bragi Sigurðsson
6, Gaukur Kristjánsson 3(2v), Haukur
Haraldsson 3, Þráinn Ásmundsson 3,
Haukur Ólafsson 2, Björgvin Barðdal
2, Einar Naabye 2, Svanur Kristvins-
son 2 og Jón Ástvaldsson 1
Mörk FH: Gunnar Beinteinsson 7,
Héðinn Gilsson 7, Óskar Ármannsson
6(4v), Hálfdán Þórðarson 4, Stefán
Kristjánsson 4, Pétur Petersen 2,
Þorgils Óttar Mathiesen 1, Guðjón
Ámason 1 og Einar Hjaltason 1.
Dómarar: Þórður Sigurðsson og
Ólafur Steingrímsson-saemilegir
Maður leikslns: Gunnar Beinteins-
son, FH.
Körfubolti
Stórleikur Sturiu
Valur-Njarðvík í úrslitum
Valsmenn tryggðu sér sæti í
úrslitaieiknum við Njarðvíkinga,
um íslandsmeistaratitilinn í
körfubolta, með stórsigri gegn
Keflvfldngum á laugardag. Vals-
menn yfírspiluðu slaka
Keflvfldnga og sigruðu örugglega
90-74.
Valsmenn náðu forystunni
strax í upphafi og héldu henni all-
an tímann. í fyrri hálfleik munaði
lengst af 8-12 stigum á liðunum. í
hálfleik var staðan 34-53, Vals-
mönnum í vil.
Það var greinilegt strax í upp-
hafi að Valsmenn ætluðu að gefa
sig alla í leikinn. Frábær varnar-
leikur og góð hittni í sókninni
gerði Keflvíkingum erfitt fyrir.
Þeim gekk illa að hitta og vörn
þeirra galopin.
Valsmenn juku forskotið í
upphafi síðari hálfleiks og mestur
varð munurinn 22 stig.
Keflvíkingar náðu að saxa á for-
skotið og þegar fimm mínútur
voru til leiksloka var staðan 72-
80. Þá komu þeir Sturla Örlygs-
son og Leifur Gústafsson aftur
inná og það var ekki að spyrja að
því. Vömin small saman og
Sturla Örlygsson skoraði tíu stig í
röð, síðustu stig Valsmanna og
tryggði þeim sigur, 74-90.
Valsmenn sýnda þama einn
sinn besta leik á keppnistímabil-
inu. Vömin mjög góð og sóknarl-
eikurinn ömggur og markviss.
Sturla Örlygsson áti stórleik.
Ótrúlega sterkur í vörninni, hitti
mjög vel og sýndi mikla baráttu.
Þeir Leifur Gústafsson og Torfi
Magnússon vom einnig sterkir í
vöminni. Aðrir leikmenn Vals
áttu einnig góðan leik og sterk
liðsheild þeirra á eftir að verða
Njarðvíkingum erfiður ljár í þúfu
í úrslitaleikjunum.
„Þetta var mjög góður leikur
hjá okkur,, sagði Sturla Örlygs-
son í samtali við Þjóðviljann eftir
leikinn. „Við neyddum þá til að
skjóta langskotum sem þeir hittu
illa úr og einbeittum okkur að því
að spila sterka vöm. Ef við spil-
um eins vel og núna þá mega
Njarðvíkingamir vara sig.“
Keflvíkingar voru langt frá
sínu besta. Vörnin slök og slæm
hittni. Ekki bætti úr skák að
þeirra besti maður Gylfi Þorkels-
son var í villuvandræðum og því
lengst af á bekknum. Hann og
Ólafur Gottskálksson vom þeir
Crla Rafnsdóttlr lék mjög vel gegn Val þrátt fyrir meiðsli. Hór fer hún
framhjá Guðnýu Gunnarsdóttir. Mynd:E.ÓI
Kvennahandbolti
Stiaman sterkari
Stjarnan sigraði Val í baráttu-
leik, 22-19 i Digranesi á laugar-
daginn.
Fyrri hálfleikurinn var jafn
lengst af en Valur hafði þó undir-
tökin. En með mikilli baráttu
náði Stjarnan að jafna fyrir
leikhlé.
í síðari hálfleik var Stjarnan
sterkari aðilinn. Valsstúlkumar
tóku Erlu Rafnsdóttir úr umferð,
en hún var reyndar á annari löpp-
inni eftir að hafa snúið sig illa í
síðasta leik. En það var ekki nóg.
Stjaman var mun sterkari á loka-
mínútunum og sigur þeirra nokk-
uð ömggur.
Mörk Stjörnunnar: Erla
Rafnsdóttir 7, Margrét Theó-
dórsdóttir 4, Hmnd Grétarsdótt-
ir 4, Guðný Gunnsteinsdóttir 4
og Drífa Gunnarsdóttir 3.
Mörk VaJs: Ásta B.Sveinsdóttir 7,
Ema Lúðvíksdóttir 5, Guðrún Krist-
jánsdóttir 5 og Katrín Friðriksen 2.
Þá gerðu íslandsmeistarar
Fram jafntefli við Víking í
Laugardalshöllinni á sunnudag,
21-21.
Víkingsstúlkurnar vom sterk-
ari framan af og léku nokkuð vel.
Framstúlkurnar vom rólegar og
fóm ekki í gang fyrr en um miðj-
an leikinn, í hálfleik var staðan
13-12 Víkingum í vil.
Framarar náðu að jafna 19-19
og komust í fyrsta sinn yfir, 21-
20, þegar tæplega þrjár mínútur
vom til leiksloka. En Valdís Birg-
isdóttir jafnaði fyrir Víkinga þeg-
ar tæpar tvær mínútur vom til
leiksloka og þar við sat.
Það var greinilegt að þessi
leikur skipti Fram engu máli og
þær hafa oft leikið betur. En Vík-
ingsstúlkumar stóðu sig mjög vel
og léku skemmtilegan handbolta.
Mörk Fram: Guðrfður Guðjóns-
dóttir 6(2v), Jóhanna Halldórsdóttir
5, Oddný Sigsteinsdóttir 4, Arna
Steinsen 3, Margrét Blöndal 2 og Haf-
dís Guðjónsdóttir 1.
Mörk Víkings: Eiríka Ásgrimsdótt-
ir 5(lv), Svava Baldvinsdóttir 5, Inga
Lára Þórisdóttir 4, Valdís Birgisdóttir
4, Sigurrós Björnsdóttir 2 og Jóna
Bjarnadóttir 1. -MHM
Þrlðjudagur 31. mars 1987 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
einu í liðinu sem léku eftir getu.
Aðrir vom slakir og greinilega
ekki þeirra dagur.
„Það brást allt hjá okkur,“
sagði Gunnar Þorvarðarson,
þjálfari Keflvíkinga. „Við
reyndum að skipta mönnum, en
ekkert gekk. Vömin var galopin.
Við fengum okkar færi en nýttum
þau ekki og mikil taugaspenna
hafði slæm áhrif.“
Það verða því Njarðvík og Val-
ur sem Ieika til úrslita um íslands-
meistaratitilinn og er fyrsti
leikurinn í Njarðvík á morgun.
Þessi sömu lið Ieika einnig til úrs-
lita í Bikarkeppninni.
-SÓM/Suðurnesjum
Keflavík 28. mars
ÍBK-Valur 74-90 (34-53)
4-12, 10-18, 27-36, 30-43, 34-53, 40-
53,45-67, 57-72, 62-79, 72-80, 74-90
Stlg IBK: Gylfl Þorkelsson 16,
Ólafur Gottskálksson 16, Jón Kr.
Gíslason 14, Guðjón Skúlason 10,
Sigurður Ingimundarson 8, Hreinn
Þorkelsson 8 og Matti Stefánsson 2
Stig Vals: Sturla örlygsson 26,
Torfi Magnússon 18, Leifur Gústafs-
son 17, Tómas Holton 13, EinarÓlafs-
son 9 og Bjöm Zöega 2
Dómarar: Ómar Scheving og Jón
Otti Ólafsson - góðir
Maöur lelkslns: Sturla Örlygsson,
Val.
Staðan
í 1. delld karla I handknattlelk
Vlkingur 17 14
UBK 17 11
FH.....17 11
Valur..17 10
Stjarnan 17 9
KA.....17
KR.....17
Fram...17
Haukar 17
Ármann 17
425-
404-
452-
433-
433-
394-
10 361-
11 419-
12 363
16 320-
■370 29
391 24
399 23
385 22
406 20
394 18
397 13
•413 12
■422 8
444 1
Markahæstlr:
Sigurjón Sigurðsson, Haukum ....120
Hannes Leifsson, Stjömunni....112
Gylfi Birgisson, Stjörnunni....97
BirgirSigurðsson, Fram.........95
Jón Þórir Jónsson, Breiðablik..94
Jakob Jónsson, Val.............92
KonráðOlavsson, KR.............91
Karl Þráinsson, Víking.........89
ÓskarÁrmannsson, FH............87
Júlíus Jónasson, Val...........83
V-Þýskaland
Kiel úr leik
í bikarnum
Frá Jóni H. Garðarssyni, tréttamanni
Þjóðviljans í V-þýskalandi:
Um helgina var leikið í 16-liða
úrslitum í þýsku bikarkeppninni í
handknattleik. Það kom á óvart
að Kiel tapaði fyrir liði úr 2.
deild, Dornagen, 19-26 og er þar
með úr leik.
Dusseldorf sigraði Telenhosen
25- 18. Essen sigraði Frelenbech,
28-23 á útivelli.
Lemgo vann öruggan sigur
gegn Verden á útivelli, 17-29 og
sömu sögu er að segja af
Grosswaldstadt sem sigraði Lis-
dorf, 31-21.
Schwabing sigraði Asbach-
Moder, 17-23 og Milbertshofen
sigraði Rot, 36-20.
í vikunni voru einnig nokkrir
leikir í deildarkeppninni. Gumm-
esbach sigraði Hofweier 23-22.
Kristján Arason var markahæst-
ur í liði Gummesbach með 6
mörk.
Þá sigraði Essen Göppingen
26- 12. Staðan í hálfleik var 14-4.
Og Weiche Handewitt sigraði
Schwabing 25-24.