Þjóðviljinn - 03.04.1987, Blaðsíða 6
Fermingin
Hvers vegna
fermast?
Þjóðviljinn ræddi við nokkur væntanleg fermingarbörn í
Hagaskólanum um ferminguna og af hverju þau vildu
fermast. í samræðum við þau kom fram að þau sögðust
öll vera trúuð og fermdust þess vegna. Ekki vegna gja-
fanna. Þau voru nokkuð sammála um að hugsa sér að
Guð væri fremur einhverskonar máttur eða afl en ein-
hvers konar persóna eða gráskeggjaður karl. Við lögðum
eftirfarandi spurningar fyrir krakkana: Af hverju fermist
þú? Ertu trúuð/trúaður? Fermistu vegna skyldurækni eða
vegna gjafanna?
Sólveig Sigurgeirsdóttir
Fermingin er til að staðfesta skírnina og þess-
vegna læt ég ferma mig. Ég er svolítið trúuð og
þess vegna vil ég fermast. Gjafirnar skipta svolítið
máli, en eru ekkert aðalatriði.
Ólafur I. Stefánsson
Ég fermist til að játa trúna og staðfesta skírnina.
Það má segja að ég sé trúaður og ég fer stundum í
kirkju. Ég pæli ekkert í fermingargjöfum.
Sigríður Hagalín
Mér finnst sjálfsagt að fermast og ég er mjög
trúuð. Fermingargjafirnar skipta engu máli. Ég
fermist ekki þeirra vegna.
Magnús Geir
Þórðarson
Ég fermist til að endurnýja og staðfesta skírnina
og ganga í kristinn söfnuð. Ég er trúaður og það er
aðatriðið, en það verður auðvitað gaman að fá
gjafir og alls ekki verra. Ég tek auðvitað við þeim.
Sigurveig Margrét
Stefánsdóttir
Fermingin er að sumu leyti hluti af tilverunni og
nokkuð sem gerist þegar maðurer þrettán. Ég trúi
á Guð, einhvern veginn hefur heimurinn orðið til,
einhver hefúr skapað þetta allt, annars værum við
ekki til. Ég veit að ég mun ekki sjá eftir því að
fermast, en sæi eftir því seinna ef ég gerði það
ekki. Ég fermist ekki vegna gjafanna. Þær skipta
engu máli á þann hátt.
Fidel Helgi
Sanchez Gunnarsson
Ég er skírður sem kaþólikki en ég vil vera lúth-
erstrúar og í henni er fermingin hefð. Ég er mjög
trúaður og bið bænir og tala oft við Guð, þakka
honum þegar mér gengur vel og bið um hjálp
þegar verr gengur. Eg bið ekki um fermingargjafir
en ef einhver vill, má hann gjarnan gefa mér
eitthvað.
Kristín Axelsdóttir
Ég fermist og geri það til að staðfesta skírnina
og vegna þess að ég er trúuð. Ég bið ekki oft. Ég
fermist ekki vegna gjafanna. Þærskipta ekki máli.
erslunin
• ••
KruUujárn og hárblásari í einu og
sama tækinu. Þú kemur úr baði eða
sundi og þerrar hárið að mestu. Síð-
an bregður þú krullublásaranum í
hárið og lýkur við lagningu og
þurrkun hársins. Tvær hitastillingar
- létt og þægilegt! Verð kr. 2.580
og 2.180 (án aukahluta).
s Kiium d®1*1
PFAFF
Borgartúni 20
Sími 26788
Þjóðsögur og sagnir
Sigfusar Sigfussonar
Þjóðsögur og sagnir Sigfusar Sigfús-
sonar er eitt stærsta safn sinnar
tegundar sem út hefur komið hér á
landi. í heiid verður það u.þ.b. 4400
blaðsíður í 11 bindum. 7 bindi hafa
þegar komið út frá því hafist var
handa við hina nýju útgáfu fyrir 7
árum. VI og VII bindi komu út í
desember s.I.
Oskar Halldórsson, Grímur M. Helgason,
Helgi Grímsson og Eiríkur Eiríksson
hafa búið þau bindi safnsins til prentunar,
sem út eru komin.
Þrátt fyrir að það sögusvið sem íslenskar þjóðsögur
og sagnir taka mið af sé horflð sjónum nútíma
fólks, stendur þjóðmennlng okkar í dag nær hinni
fomu menningu en marga gmnar. Eitt besta dæmið
um þetta em ýmis orð og orðatiltækl sem enn lifa í
máli okkar og sem mörg hver aðeins skiljast til hlítar
sé fyrir hendi þekking á horfnum lifnaðarháttum og
hugsunarhættl forfeðra okkar.
Þeir sem nota tómstundir sínar til lestrar og áhuga
hafa á því að kynnast fortíð þessa lands, skal bent á,
að með lestri þjóðsagna má sameina lestur góðra og
skemmtilegra bókmennta og leit að fróðleik um
flesta þætti þjóðmenningar okkar.
Sérstaklega er vert að vekja uppalendur, foreldra,
fóstmr og kennara til umhugsunar um það að lestur
þjóðsagna okkar og ævintýra er snjöll aðferð til að
auka áhuga bama og unglinga á horfinni þjóðmenn-
ingu. Sé slíkur áhugi fyrir hendi er jafnframt unnt að
nota hann til að varpa (jósi á ýmsa þætti í menningu
samtímans, kynnast góðum og skemmtilegum
bókmenntum og auðga málfar vaxandi kynslóðar.
mtxM ÞINGHOLTSSTRÆTI 27 — SÍMI 1 3510