Þjóðviljinn - 09.04.1987, Page 2
NORÐURLAND VESTRA
Kosningarnar
Alþýðubandalagtö
á uppleið
Vilhjálmur Egilsson tætir fylgið afSjálfstæðisflokknum. Nýju
framboðin eiga ekki mikla möguleika. Alþýðubandalagið getur bætt
við sig manni. Framsókn nær örugg með tvo
Það er tvennt sem einkennir
kosningabaráttuna á Norður-
iandi vestra öðru fremur: mikill
fjöldi framboða annars vegar,
barátta á milli Alþýðubanda-
lags og Sjálfstæðisflokks um
þingsæti hinsvegar.
Alls eru átta listar í kjöri: Al-
þýðuflokkur, Alþýðubandalag,
Framsóknarflokkur, Sjálfstæðis-
flokkur, Flokkur mannsins,
Kvennalistinn, Borgaraflokkur-
inn og Þjóðarflokkurinn.
Þingmenn kjördæmisins eru
fimm og skiptast á Framsókn,
tvo, Sjálfstæðisflokk, tvo og Al-
þýðubandalag, einn. Nú er lík-
legt að breyting verði á og Sjálf-
stæðisflokkurinn tapi manni.
Pálmi Jónsson frá Akri er
oddviti Sjálfstæðismanna í kjör-
dæminu og nýtur virðingar út
fyrir raðir flokksmanna sinna. Til
skamms tíma hafði hann Eyjólf
Konráð Jónsson með sér í öðru
sæti en sem kunnugt er færði
Eykon sig til Reykjavíkur þegar
kosningalögunum var breytt. í
öðru sætinu er nú Vilhjálmur Eg-
ilsson, hagfræðingur VSÍ, sem
kolféll í prófkjöri flokksins í
Reykjavík.
Mikill urgur er í Sjálfstæðis-
mönnum í Norðurlandskjördæmi
vestra yfir sendingunni að sunn-
an, enda er Vilhjálmur ekki vel
kynntur í kjördæminu og þykir
nokkur bíræfni að láta harðan
málsvara frjálshyggjunnar fara
fram í rótgrónu landbúnaðar-
kjördæmi. Það er því mál manna
að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ver-
ið búinn að tapa öðru þingsæti
sínu, jafnvel áður en framboð
HRAFN JÖKULSSON ***
Fréttaskýring
Borgaraflokksins rak síðasta
naglann í pólitíska líkkistu Vil-
hjálms Egilssonar.
Kratar á niðurleið
Alþýðuflokkurinn býður einn-
ig fram hagfræðing í fyrsta sæt-
inu, Jón Sæmund Sigurjónsson,
frá Siglufirði. Þar er eitt helsta
vígi krata í kjördæminu, en í síð-
ustu kosningum fékk flokkurinn
aðeins 411 atkvæði og verstu út-
komu síðan núverandi kjör-
dæmaskipan var komið á. Vonir
Alþýðuflokksmanna um þingsæti
handa Jóni Sæmundi eru orðnar
að litlu, enda hefur kosningabar-
áttan í kjördæminu verið kraftlítil
og málflutningur frambjóðenda
ekki náð til fólks. Það er því ólík-
legt að flokkurinn bæti nema
sáralitlu við sig frá síðustu kosn-
ingum.
Páll Pétursson frá Höllustöð-
um og oddviti Framsóknarmanna
er afar umdeildur og hefur ekki
tekist að hefjast til jafn mikillar
virðingar innan kjördæmisins og
Ólafur Jóhannesson á sínum
tíma. Framsóknarflokkurinn
bauð fram klofinn í síðustu kosn-
ingum, Ingóifur Guðnason á BB-
lista náði ekki kjöri. Þeir Páll og
Stefán Guðmundsson voru kosnir
á þing fyrir flokkinn og eru aftur í
framboði nú. Samkvæmt öllum
heimildum er Framsóknarflokk-
urinn öruggur með tvo menn, þó
Stefán Guðmundsson hafi mjög
borið víurnar í menn á þeim for-
sendum að hann sé í fallhættu. í
síðustu kosningum fengu B-
listarnir í kjördæminu 2300 at-
kvæði og ekkert nema stóráfall
getur komið í veg fyrir kjör
tveggja Framsóknarmanna nú.
Þórður á möguleika
Alþýðubandalagið er í sókn í
kjördæminu, enda nýtur Ragnar
Arnalds mikils trausts hjá fólki,
ekki síst eftir ráðherratíð hans en
þá kom hann mörgum málum
kjördæmisins til betri vegar. í
öðru sæti er Þórður Skúlason,
sveitarstjóri á Hvammstanga, og
fyrrverandi formaður Fjórðungs-
sambands Norðlendinga. Þórður
er gjörkunnugur sveitarstjórn-
armálum og vanda landsbyggðar-
innar og hefur því verið stillt upp
sem valkosti á móti Vilhjálmi Eg-
ilssyni. Mörgum þykir hæpið að
Alþýðubandalagið geti unnið
mann af Sjálfstæðisflokki, en það
er þó engan veginn útilokað. Al-
þýðubandalagið er eini flokkur-
Ragnar Arnalds - Alþýöubandalag-
ið er í sókn.
Vilhjálmur Egilsson - hann féll .
prófkjöri í Reykjavík og fór norður.
Hann fellur þar llka.
inn í kjördæminu sem ekki líður
fyrir nýju framboðin: Þjóðar-
flokkurinn og Kvennalistinn eiga
eftir að höggva skörð í framsókn-
arfylgið, Borgaraflokkurinn
tekur frá Alþýðuflokki og Sjálfs-
tæðisflokki.
Forsenda þess að Alþýðu-
bandalagið vinni mann í kjör-
dæminu er að veruleg hreyfing
verði. Ljóst er að mjög mjótt
verður á mununum: Baráttan um
fimmta þingmann kjördæmisins
mun standa á milli Alþýðubanda-
lags og Alþýðuflokks - pólitísk
upprisa Sjálfstæðisflokksins úr
þessu myndi jafnast á við upprisu
Lazarusar hér um árið.
Kjósendur í Norðurlandskjör-
dæmi vestra hafa fundið fyrir því
undanfarin ár að fjármagnið er
allt fært til Reykjavíkur. Fólks-
fækkun á síðasta ári varð 1,2%.
Fólkið í kjördæminu borgar
milljónir í lífeyrissjóði sem síðan
veita fé í húsnæðismálakerfi alls
landsins. Umsóknir úr kjördæm-
inu eru 16 talsins - Þannig fara
tugmilljónir króna til bygginga
fyrir sunnan af fjármunum lands-
byggðarfólks!
Landbúnaðarstefnan hefur
komið illa niður á bændum og
samdrátturinn er farinn að segja
til sín í byggðarlögunum sem
byggja mikið á þjónustu við
sveitirnar.
Það er því næsta víst að kjós-
endur á Norðurlandi vestra sjá
litla ástæðu til þess að verðlauna
stjórnarflokkana með atkvæðum
sínum.
Hrafn Jökulsson
Pálmi Jónsson - Sjálfstæðisflokkur-
inn tapar manni þrátt fyrir að Pálmi
njóti trausts.
Þórður Skúlason - 2. sæti á lista
Alþýðubandalagsins. Raunhæft að
ætla honum þingsæti.
Páll Pétursson - Framsókn tapar
einhverju fýlgi en heldur tveimur
mönnum.
FERÐA
FÓLK
Shall
Staðarskáli Hrútafirði
Ákjósanlegur áfangi hvort sem þér eruö á léiö
noröur eöa aö noröan. Ef þér eruð á leiö aö sunnan
á Strandir þá athugið aö viö erum 4 km frá vega-
mótum Noröurlandsvegar og Strandavegar viö
Hrútafjarðará.
★ Bensínafgreiðsla
★ Gisting
★ Fjölbreyttar veitingar
★ Ferðamannaverslun
ESSO og SHELL þjónusta
ZrT
Það stansa flestir i Staðarskáia
Opið alla daga frá 8 til 23,30
/mAmu
Hrútafiröi Simi 95-1150
Netagerð
Vestfjarða hf.
ísafirði
Símar 94-3413, 3332, 3212
3077 og 4062.
Útibú Hvammstanga
sími 95-1710
Setjum upp og önnumst viðgerðir á rækju og
botnvörpum fyrir stór og smá skip.
önnumst alhliða netaviðgeröir.
Leitið ekki langt yfir skammt.
Netagerð Vestfjarða
Hvammstanga