Þjóðviljinn - 09.04.1987, Page 4

Þjóðviljinn - 09.04.1987, Page 4
NORÐURLAND VESTRA NORÐURLAND VESTRA — Á bændafundi í Fljótunum með Ragnari og Þórði Pórður Skúlason, Reynir Pálsson, fundarstjóri. Landbúnaðinn í öndvegi! „(Jm hvað verður kosið í þessum kosningum,” spurði Þórður Skúlason á fundi með bændum í Fljótunum á dögun- um. Og hann svaraði spurn- ingunni sjálfur: „Það verður kosið um byggðamálin, virðis- aukaskattinn, launamálin, skattakerfið, félagsmál og kjarnorkuvopnalaus Norður- lönd. Það verður kosið um það hvort byggð á að haldast í landinu. Stjórnvöld hafa sýnt að þau hafa engan skilning á málefnum landsbyggðarinnar: hvorki í sjávarútvegsmálum né landbúnaðarmálum. Fundurinn í Fljótunum var ekki haldinn einvörðungu vegna komandi kosninga. Ragnar Arn- alds hefur á hverju ári átt fund með bændum og að þessu sinni var Þórður Skúlason sveitarstjóri á Hvammstanga, sem skipar ann- að sæti á listanum, honum til fulltingis. Þórður kom sérstaklega að virðisaukaskattinum í ræðu sinni og benti á að verð á innlendum matvælum myndi stórhækka ef hann yrði tekinn upp. Skatturinn gæti því haft ófyrirsjáanlegar af- leiðingar fyrir landbúnaðarfram- leiðsluna. Alþýðubandalagið er á móti þessum sícatti, sagði Þórður. Hann kom einnig að launamál- unum: „Kaupmáttur launa hefur verið skertur til muna í tíð ríkis- stjórnarinnar þannig að fólk hef- ur mun minna handa í millum. Á sama tíma hafa niðurgreiðslur á landbúnaðarvörum verið minnkaðar stórlega. Minnkandi neysla er því engin tilviljun. Og það eru ekki bara bændur sem finna fyrir þessum samdrætti. Mörg byggðarlög byggja mikið á þjónustu við sveitirnar og ástand- ið er þannig afar slæmt mjög víða.” Þórður gat þess að flutningar frá landsbyggðinni væru nú þeir mestu síðan á viðreisnarárunum. Framsóknarflokkurinn hefði því staðið sig afar illa í að gæta hagsmuna landsbyggðarinnar: „Þeir vilja vel en hafa komið ótrúlega litlu fram í ríkisstjórn- inni. Frjálshyggjusjónarmið Sjálfstæðisflokksins hafa ráðið ferðinni.” Að lokum sagði Þórð- ur: „Kosningar snúast því ekki síst um það að snúa byggðastefnu íhaldsins og Framsóknar við - og efla byggðina aftur og setja land- búnaðinn í það öndvegi sem hann verðskuldar.” Gæluverkefni syðra Ragnar Arnalds tók næstur til máls og áréttaði að byggðamálin væru aðalmál þessara kosninga og meginviðfangsefni Alþýðu- bandalagsins í kosningunum. „í þessu kjördæmi varð 1.2% Ragnar á tali við einn fundarmanna. $ / li c fi fækkun á síðasta ári. Það virðist kannski ekki mikið en með sama áframhaldi verður þess ekki langt að bíða að heilar sveitir fara í eyði. Ein meginorsök fólksflótt- ans er efnahagsstefna núverandi ríkisstjómar. Við skulum hafa það hugfast að á meðan lands- byggðin á svo mjög undir högg að sækja þá blómstrar verslunin á Faxaflóasvæðinu. ” Ragnar sagði að vaxtastefnan hefði verið landbúnaði og sjávar- útvegi þung í skauti: „Verslunin þolir þetta vel - þeir hækka bara álagninguna hjá sér. En fólkið í landinu og grunnatvinnuvegirnir hafa fundið fyrir því að vaxta- byrðin hefur aldrei verið þyngri.” „Frjálsa álagningin hefur haft í för með sér að kaupmaðurinn fær nújafnmikið og bóndinn í sinn hlut afverði landbúnað- arafurða“ Ragnar sagði að stefnan í ríkis- fjármálum hefði þýtt stórfelldan niðurskurð á vericefnum úti á landsbyggðinni: Fjárveitingar til skóla, heilsugæslu, hafnar- og vegaframkvæmda hefðu verið minnkaðar á meðan fé væri ausið í gæluverkefni syðra: „Það hefur farið álíka til nýju flugstöðvar- innar og til allra byggðarlaga í landinu!” Kaupmaðurinn jafn- mikið og bóndinn „Við viljum hækka niður- greiðslur verulega,” sagði Ragn- ar. Hann undirstrikaði samheng- ið á milli þess þegar þrengdi að ■ Ullariðnaður Tískupeysur frá Hvammstanga Prjónastofan Drífa með eigin hönnun og framleiðslu sem er á góðri leið með að slá í gegn. Pantanir frá útlöndum og góð sala í reykvískum tískubúðum Prjónastofan Drífa á Hvammstanga hefur ekki lagt upp laupana þótt illa hafl órað í ullar- og prjónaiðnaðinum um nokkurt skeið. Á síðasta ári réð fyrirtækið Þórdísi Kristleifsdóttur hönnuð, til þess að hanna splunkunýja tískulínu af ullarpeysum. Og útkoman varð vægast sagt glæslleg: peysurnar frá Drífu renna út eins og heitar lummur úr reykvískum tískubúðum ög pantanir eru þegar byrjaðar að berast erlendis frá. Prjónastofan Drífa var stofnuð árið 1972 og hefur til skamms tíma eingöngu framleitt fyrir ris- ana á ullarmarkaðinum, Hildu og Álafoss. Á milli 20 og 25 starfs- menn vinna við fyrirtækið og verkefni hafa verið næg. Ytri að- stæður hafa hins vegar gert það að verkum að reksturinn hefur ekki gengið nógu vel allra síðustu ár. Þar vegur þyngst fall dollar- ans, - hann hefur gert prjónaiðn- aði marga skráveifuna enda allur útflutningur miðaður við hann. Það var Elín Þormóðsdóttir hjá Drífu sem átti hugmyndina að eigin framleiðslu prjónastofunn- ar og í samtali við Þjóðviljann kvaðst hún afar ánægð með hvemig til hefði tekist. Ullin er unnin á annan hátt en tíðkast hef- ur, þannig að peysumar verða þéttari í sér og ekki eins loðnar og sígildu ullarafurðimar. Elín sagði að vel hefði gengið að selja peysurnar í búðum fyrir jólin og 2500 stykki hefðu verið pöntuð frá Skotlandi og á næstunni yrðu afgreiddar pantanir til fleiri landa. Enn sem komið er, er eigin framleiðsla Drífu aðeins lítill hluti af heildarafköstum hennar, en Elín sagðist vona að í framtíð- inni gæti fyrirtækið aukið fram- leiðslu á eigin vörum. Peysur Drífu em framleiddar undir vömmerkinu MOSS og í haust er væntanleg ný lína frá fyrirtækinu. -þj. Reffilegir drengir í tískupeys- um frá Hvammstanga. landbúnaði þá kæmi það niður á byggðarlögunum. - „Og það er fleira sem er á afrekaskrá þessar- ar ríkisstjórnar - frjáls álagning kaupmanna hefur leitt til þess að kaupmaðurinn fær nú jaftimikið og bóndinn í sinn hlut af verði landbúnaðarafurða. Jafnmikið fyrir það að rétta kúnnanum kjöt yfir borðið og bóndinn fyrir allt sitt starf. Finnst ykkur þetta eðli- legt?” Ragnar fór síðan nokkrum orðum um stjórnmálaástandið í kjördæminu. (Hér ber að taka fram að þetta var áður en Albert Guðmundsson fór í sérframboð í öllum kjördæmum.) Hann taldi að Framsókn ætti að halda tveimur, þar sem komið hefði fram BB-framboð við síðustu kosningar sem fékk talsvert fylgi en nú væri Framsókn í einu lagi og ætti að halda sínu eftir öllum sólarmerkjum að dæma. Ragnar sagði að nú væri lag að fella Vil- hjálm Egilsson, fallkandídat úr röðum reykvískra frjálshyggju- manna. Hvað kratana varðaði, sagði Ragnar, að allir þekktu nú þeirra hug til landbúnaðarins og kæmi fyrir lítið þótt þeir reyndu að klóra í bakkann rétt fyrir kosn- ingar: „Stefna þeirra er fjand- samleg bændum og landsbyggð- inni.” „Ég held að við Alþýðubanda- lagsmenn höfum sett okkur verð- ugt markmið í þessum kosning- um: Að fá tvo menn á þing. Þórð- ur Skúlason yrði góður fulltrúi kjördæmisins, enda gjörþekkir hann málefni landsbyggðarinn- ar.” Takið kratana í gegn Eftir ræður þeirra Þórðar og Ragnars urðu nokkrar umræður og greinilegt að stefnan í land- búnaðarmálum brann heitt á fólki. Einnig var komið að því hvernig fjármunir eru færðir frá landsbyggðinni til Reykjavíkur og þangað þyrftu landsbyggðar- menn síðan að fara og nánast betla peningana aftur grátandi á hnjánum. Skilningur sunnan- manna væri einatt mjög takmark- aður og þannig yrði langsstærsti hluti verðmætanna eftir í Reykja- vík. Þá var og spurt hvort Alþýðu- bandalagið hygðist beita sér fyrir endurmati á starfi húsmóðurinn- ar. Þær væru nú réttindalausar með öllu og starf þeirra einskis metið. Ragnar svaraði því til að þetta mál væri eitt af stefnumál- um Alþýðubandalagsins í þessum kosningum og það mundi beita sér hart fyrir því. Mikil óánægja kom fram hjá fundarmönnum með ástandið í útvarpsmálum, skilyrði eru með eindæmum léleg þannig að Rás 2 næst ekki nema með höppum og glöppum og rás eitt oft á tíðum illa. Ekki virtist vera vilji hjá for- ráðamönnum RÚV að bæta á- standið og því lítið að marka slag- Skagaströnd Matká fulium dampi Fyrirtækið byggt upp eftir bruna í fyrra. Allri fram- leiðslu þessa árs þegar ráðstafað í maí í fyrra brann húsnæði og öll tæki bátagerðarinnar Mark s/f á Skagaströnd. Margir hefðu sjálfsagt lagt árar í bát við svo komið en það gerðu eigendur Mark s/f ekki. Fáeinum mánuð- um síðar var risið nýtt húsnæði, nafninu breytt í Mark h/f og framleiðsla er komin á fullan damp aftur. Fyrirtækið var stofnað árið 1984 og er nú í eigu sjö einstak- linga. Nú vinna 6 manns hjá Mark og fljótlega bætast tveir í hópinn. Fyrirtækið framleiðir báta úr trefjaplasti yfirleitt 5-9,5 tonna, en einnig vatnabáta fyrir bændur og fiskimenn. Mark Markovic tjáði tíðinda- manni Þjóðviljans að fram- leiðslan væri fylliiega samkeppn- isfær við innflutning, bæði hvað varðaði verð og gæði, enda væri nú búið að ráðstafa allri fram- leiðslu þessa árs. Mark vildi ekki rekja aukna sölu á smábátum til þeirrar reglu kvóta kerfisins að bátar undir 10 tonnum geti fiskað að vild, því þeir hefðu selst í mikl- um mæli áður en þær reglur komu til. Fyrir þá sem hafa hug á að snúa sér að útgerð má geta þess að full- búinn 9 tonna bátur með haffæm- isskírteini kostar u.þ.b. 2,8 milljónir króna. -þj. orðið um útvarp allra lands- manna. Einn fundarmanna bað þá Þórð og Ragnar að taka kratana í gegn þvi Alþýðuflokkurinn sigldi undir fölsku flaggi og það yrði skelfilegt ef hann kæmist til á- hrifa í landbúnaðarmálum. Þórð- ur og Ragnar kváðust glaðir taka kratana í gegn - til þess þyrftu þeir einungis stuðning kjósenda! -hj- „Það hefur farið álíka mikið fé til nýju flugstöðvar- innar og til allra byggðarlaga á landinu!“ Þ. JÓNSSON & CO. Skeifan 17 Reykjavík símar 84515 - 84516 ENDURBYGGJUM BÍLVÉLAR Sérhæft vélaverkstæði í viðgerðum á bensin- og disilveium i bitreiðum og vinnuvélum • Borum vélarblokkir • Rennum sveifarása • Rennum ventla og ventilsæti • Plönum vélarblokkir og hedd • Rafsjóðum á sveifarása A 4 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.