Þjóðviljinn - 09.04.1987, Síða 6

Þjóðviljinn - 09.04.1987, Síða 6
NORÐURLAND VESTRA Volgnar undir íhaldinu „Ungir kjósendur í þessu kjördæmi krefjast fyrst og fremst ábyrgrar heildarstefnu í málefnum landsbyggðarinnar. Stefnan í landbúnaðarmálum hefur snert okkur afar iila og. eins er það furðulegt að sjáv- arútvegspláss sem leggja þjóðarbúinu gífurlega fjár- munl þurfi að betla hverja krónu að sunnan,“ sagði Ingl V. Jónasson, tvítugur Sauðkræklingur í samtali við Þjóðviljann. afstöðu sína í landsmálunum. „Ég hef alltaf tekið afstöðu með lífsskoðun og hugsjónum Alþýðubandalagsins. Svo held ég líka að ég sé eini maðurinn í plássinu sem greiðir árgjöld til Samtaka herstöðvaandstæðinga. Mér finnst áhugaleysi á pólitík vera áberandi hjá ungu fólki, sennilega ræður þar mestu smæð hvers byggðarlags, auk þess sem þetta kjördæmi er rótgróið framsóknar- og íhaldsbæli. En það er athyglisvert að helstu Ingi V. Jónasson: Ábyrga heildarstefnu í málefnum landsbyggðarinnar. (Mynd: -hj.). andstöðuna við þessi öfl er að finna í kröftugu starfi yngri fé- laga“. En hverju spáir hann um úrslit kosninganna í kjördæminu? „Það er nú farið að volgna illa undir íhaldinu og Vilhjálmur Eg- ilsson nær ábyggilega ekki kjöri. Alþýðubandalagið á raunhæfa möguleika a öðrum þingmanni, enda er Þórður Skúlason virtur fyrir störf sín. Ætli Framsóknar- flokkurinn hangi ekki í tveimur, en annars er afar erfitt að spá, enda fjöldi smáframboða“. hj. Ingi er fæddur og uppalinn á Króknum og er nú á síðasta ári í Fjölbrautaskólanum þar. Hann hefur tekið virkan þátt í félags- málum og var m.a. formaður nemendafélagsins á síðasta ári og sat í framkvæmdastjórn Mælsku- og rökræðukeppni framhalds- skólanna (MORFÍS) á liðnum vetri. Aðspurður sagði Ingi að af- skipti sín af pólitík hefðu byrjað þegar hann tók þátt í framboði „Nýs afls“ í bæjarstjórnarkosn- ingunum á Sauðárkróki í fyrra. „Nýtt afl“ hafði stefnuskrá sína að mestu leyti frá Samtökum um jafnrétti milli landshluta og var skipað ungu fólki. „Nýtt afl“ náði ekki að koma manni að, en ýtti á ýmiss óhefðbundin mál, að sögn Inga, og hafði þannig nokkur áhrif. Ingi var spurður um pólitíska Ari Jóhann Sigurðsson ritstjóri og Haukur Hafstað blaðamaður: „Feykirerfrjáls og óháður". (Mynd: —hj.). MOTOFtOLA FARSÍMINN Eins og ávallt þá kemur tæknileg fullkomnun frá MOTOROLA Sala - ísetning - þjónusta. Fjarskipti St rafeindarásir h.f. Grandagardi 1b, sími 622986. Innbyggður íslenskur leiðarvísir í símanum. 99 bókstafa minni. Bjartir stafir. Léttur og þægilegur. Einfaldur í notkun. Feykir verður vikublað Haukur Hafstað blaðamaður: Stóru fjölmiðlarnir gera landsbyggðinni lítil skil Eina fréttablaðið sem kemur út að staðaldri í Norðurlands- kjördæmi vestra er Feykir, útgef- inn á Sauðárkróki. Feykir er nú á sjöunda ári og hefur til þessa komið út hálfsmánaðarlega í dag- blaðsformi, átta síður í senn. Nú er afráðið að gera Feyki að viku- blaði og er meiningin að efni blaðsins verði ferskara og nýrra af nálinni. Ritstjóri er Ari Jóhann Sigurðsson. Haukur Hafstað, blaðamaður á Feyki, sagði í stuttu spjalli við Þjóðviljann að Feykir væri frjáls og óháður flokkum og sumum þætti jafnvel sem full lítið væri af skoðunum í blaðinu. Það væri þó öllum opið sem í það vildu skrifa. Haukur kvað Dag á Akureyri hafa höggv- ið nokkur skörð í lesendahóp Feykis þegar hann var gerður að dagblaði, en salan væri þó að aukast aftur. Aðspurður um hlut- verk landsbyggðarblaða sagði Haukur: „Þau sinna málum sem einatt fara fyrir ofan garð og neð- an hjá stóru fjölmiðlunum, sem gera málefnum landsbyggðarinn- ar mjög lítil skil og oftast af van- þekkingu. Hinn mikli fjöldi þess- ara blaða, svo og útbreiðsla þeirra sannar ótvírætt að það er þörf fyrir þau. Fólk úti á landi vill fylgjast með því sem er að gerast í umhverfi þess, þó stóru fjölmiðl- arnir sjái ekki ástæðu til að veita þá þjónustu." - hj. HESTAMENN! Nú er kominn á markaðinn nýr þrumuhnakk- ur í algjörum sérflokki. íslensk hönnun, vand- aður og léttbyggður. HESTASPORT Bæjarhrauni 4, Hafnarfirði, sími 651006. Póstsendum.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.