Þjóðviljinn - 09.04.1987, Page 7
NORÐURLAND VESTRA
Getumnáð
tveimur
áþing
Kristbjörg Gísladótir, 7. sætiálista
Alþýðubandalagsins: Sérframboð
kvenna öfgakennt
Það er stundum eins og þær ætlist
jafnvel til að karlar gangi með
börnin!"
- Viltu spá um úrslit kosning-
anna?
„Það er nú mjög erfitt vegna
fjölda framboða. En ég finn að
Alþýðubandalagið er í sókn og
það á möguleika á tveimur
mönnum á þing“.
-þj.
Kristbjörg Gísladóttir með frum-
burðinn ífanginu: Sérframboð
kvenna er öfgakennt: Stundum er
eins og þær ætlist til að karlarnir
gangi með börnin fyrir þær!
(Mynd:-hj.).
Kristbjörg Gísladóttir, 23 ára
skrifstofustúlka á Hofsósi,
skipar 7. sætið á lista Alþýðu-
bandalagsins í Norðurlands-
kjördæmi vestra. Hún var
spurð að því hvaða mál snertu
ungt fólk öðrum fremur í kom-
andi kosningum.
„Pað er nú afar margt sem
mætti betur fara. Það er brýnt að
taka á skólamálum og fjölga tæki-
færum til menntunar hér í kjör-
dæminu. Eins er atvinnulífið ein-
hæft og það þarf að breytast til
þess að unnt sé að laða að ungt
fólk“.
- Nú eru mörg framboð fyrir
þessar kosningar, m.a. Kvenna-
listi. Eiga konur erfitt með að ná
áhrifum innan gömiu flokkanna?
„Innan Alþýðubandalagsins
eiga konur alla þá möguleika sem
þær vilja nýta sér. Mér finnst
sérstakt framboð kvenna öfga-
kennt og margt í stefnumálum
þeirra sem er alls ekki raunhæft.
Kosningamar snúast um byggðamál
Helgi Hannesson, Siglufirði: Verður að stöðva fólksflóttann og færa fjármagnið til sveitarfélaganna
„Byggðamálin eru tvímæla-
taust mál þessara kosninga
fyrir ungt fólk í kjördæminu.
Það verður að færa fjármagnið
til sveitarfélaganna og stöðva
fólksflóttann suður,“ sagði
Helgi Hannesson, liðlega tví-
tugur Siglfirðingur í samtali
við Þjóðviljann.
Helgi er fæddur og uppalinn á
Siglufirði og er iðnnemi hjá raf-
veitu bæjarins og verkstæðinu
Rafbæ.
Helgi nefndi til dæmis að Sigl-
ufjörður væri með hæstu útflutn-
ingshöfnum á landinu og því ekki
nema sanngjamt að heimamenn
fengju að ráðstafa þeim tekjum
að einhverju leyti. Eins og nú
væri málum komið þyrfti að
sækja allt suður, til dæmis vegna
nauðsynlegra úrbóta í hafnarmál-
um.
Önnur mál sem Helgi kvað
brýn fyrir ungt fólk í kjördæminu
eru húsnæðismál, en á Siglufirði
vantar tilfinnanlega leiguhúsnæði
fyrir fólk sem vill prófa að búa úti
á landi. Eins þyrfti að skapa at-
vinnu fyrir fólk sem menntaði sig,
en það fyndi ekkert við sitt hæfi,
eins og nú háttaði til. Úrbætur í
menntamálum í kjördæminu eru
einnig nauðsynlegar að sögn
Helga og nefndi hann sérstaklega
að á Siglufirði þyrfti að koma á
fót fiskvinnsluskóla. Aðspurður
um pólitískan áhuga hjá ungu
fólki sagði Helgi: „Hann er of lít-
ill en ég held að ungt fólk sé í
vaxandi mæli að taka afstöðu.
Ríkisstjórnarflokkarnir hafa séð
til þess að fólk er knúið til að
hugsa sinn gang“.
- iy.
NORÐURLAND VESTRA
Umsjón: Hrafn Jökulsson
m&jmém
Verið
velkomin
í Kaupféiagið
Það er ykkar
verslun
Kaupféiag Vestur-
Húnvetninga
Hvammstanga
IGUNDERSTED
MYKJUDÆLAN OG DREIFARINN
LEYSA MYKJUVANDAMÁLIN í
EITT SKIPTI FYRIR ÖLL!
flliiMHiW
KAPLAHRAUNI 18 - SIMI 91-651800
220 HAFNARFJÖRÐUR