Þjóðviljinn - 09.04.1987, Side 8
NORÐURLANP VESTRA
Kjörin
hafa
versnað
til muna
„Þaö er engin spurning að
við náum betri árangri með því
að semja beint við vinnu-
veitendur hér á Siglufirði.
Þannig náum við að eyða ýms-
um ágreiningi sem snertir okk-
ur sérstaklega,“ sagði Hafþór
Rósmundsson, formaður
Verkalýðsfélagsins Vöku á
Siglufirði í samtali við Þjóðvilj-
ann. Vaka tók ekki þátt í sam-
floti ASÍ, hvorki í febrúar- né
desembersamningunum á síð-
asta ári.
í Vöku eru nú um það bil 630
félagar í fimm deildum og kynj-
askiptingin er nánast hnífjöfn.
Hafþór var spurður um virkni
félagsmanna í Vöku.
„Félagar í Vöku hafa alltaf ver-
ið ákaflega virkir í starfsemi fél-
agsins og eru enn. Okkur Hefur
líka tekist að fá töluvert af ungu
fólki til starfa og það er mjög
gott. - En starfsemin er að því
leyti breytt frá því sem var að við
leggjum mikla áherslu á vinnu-
staðafundi og náum þannig góð-
um tengslum við okkar félags-
menn. Það er líka vart hægt að
ætlast til þess að fólk mæti mikið
á fundi, það er unnið hér meira
og minna tíu tíma á dag sex daga
vikunnar.”
- Þannig að það er næg vinna
hjá ykkur?
„Já, það er óhætt að segja það.
Yfirleitt er frekar að það vanti
fólk. Síðan er ekki minna vert að
atvinnan hefur verið stöðug,
enda góð samvinna og stjórn á
fiskveiðum útgerðarinnar hér.
Við höfum ekki tekið neinn þátt í
þessu gámaævintýri, heldur er
allur fiskur unninn hér.”
- En hvernig er þá ástandið í
húsnæðismálum fyrir þá sem
langar að flytja til Siglufjarðar?
„Það er nú að breytast til batn-
aðar. Bæði er verið að leggja
drög að byggingu leiguíbúða og
eins verður elliheimili tekið í
notkun á næstunni og þá losnar
húsnæði. Það er nauðsynlegt að
gefa aðkomufólki kost á því að
leigja áður en það gerir upp við
sig hvort það sest að til lang-
frama.”
-Nú er jöfn skipting kynja í
Vöku. Er jafnrétti í launamálum
líka?
„Nei, því miður. Það er nátt-
úrulega sama kaup fyrir sambæri-
leg störf, en hér eins og annars
staðar hafa karlar frekar lent í
betur borguðum stöðum.”
- En hvernig hafa kjör verka-
fólks verið síðustu árin að þínu
mati?
„Misgengi launa og verðlags
hefur sagt til sín og kaupmáttur
stórminnkaði þegar núverandi
ríkisstjórn afnam vísitölubætur á
laun og bannaði verkföll í upp-
hafi ferils síns. Það er alveg furð-
ulegt að ekkert skuli hafa verið
gert til að leiðrétta þetta. Það eru
ótrúlega þungar vaxtabyrðar á
fólki og það er helvíti hart þegar
það þarf að borga þúsundir í
verðbætur og vexti en síðan fá-
einar krónur af lánunum sjálfum.
Þetta er stórmál enda hafa kjör
versnað til muna.”
- En tók þá verkalýðshreyf-
ingin rétt á málunum í upphafi?
„Nei, hún tók þessu allt of
þegjandi og hljóðalaust. Það var
eins og menn gerðu sér ekki grein
fyrir hvað þetta var mikið mál.
Eg gerði það ekki fyrr en ég tók
við lífeyrissjóðnum hérna. Þann-
ig er kannski ekki við neinn að
sakast í þessu máli. En þessar að-
gerðir halda áfram að segja til sín
á meðan ekkert er að gert til að
leiðrétta þennan mismun launa
og verðlags.”
- Hvernig líst þér þá á kom-
andi kosningar með hliðsjón af
þessu?
- Ég myndi nú ekki treysta
mér til að spá um úrslitin - með 9
til 10 framboð í hverju kjördæmi.
En ég er þess fullviss að fólk verð-
ur að halla sér að Alþýðubanda-
laginu. Þó ég sé alls ekki alsáttur
við Alþýðubandalagið þá er það
eini flokkurinn sem hefur reynt
að bæta kjör launþega.
Þessar kosningar snúast um
byggðamál að mestu leyti og ég
hugsa til þess með skelfingu ef við
eigum að sitja uppi með sömu
stjórnina áfram.” -hj.
- Hafþór Rósmundsson,
formaður Verkalýðsfélagsins
Vöku á Siglufirði: Gífurlegt
misgengi launa og verðlags -
ótrúlega þungar vaxtabyrðar á
fólki. Hugsa til þess með
skelfingu ef sama stjórn verður
áfram
Hafþór Rósmundsson, formaður Verkalýðsfélagsins Vöku, ásamt Arndísi Kristjánsdóttur og Líneyju Kolbeinsdóttur.
Útgerðarmenn - skipstjórar -
vélstjórar
Nú eru 28.700 hestöfl af Berg
en Diesel í gangi á íslandsmið
um.
í pöntun eru 10.900 hestöfl.
Þetta sýnir það traust sem ís-
lenskir útgerðarmenn hafa á
Bergen Dieselvélum.
Bjóðum ykkur einnig hinar vel-
þekktu Cummins-ljósavélar,
hliðarskrúfuvélar og aðalvél-
ar.
Einkaumboð
Björn & Halldór hf.
Síðumúia 19 — Símar 36030 & 36930