Þjóðviljinn - 10.04.1987, Qupperneq 3
Póst-
menn
sömdu
„í stórum dráttum náðum við
fram svipuðum samningi og
Starfsmannafélag rfldsstofnana
hefur nýverið gert. Það má
reyndar alltaf betur gera, en ég
held að við megum vera sæmilega
sátt við þessi úrslit mála,“ sagði
Jenní Jakobsdóttir, formaður
Póstmannafélagsins, en samning-
ar tókust við ríkisvaldið um kaup
og kjör póstmanna í bítið í gær-
morgun.
„Þessi samningur gildir til
tveggja ára og færir okkur að
jafnaði um 24% hækkun launa á
samningstímabilinu. Það var
tekin upp ný launatafla, sem færir
okkur ein og sér 13,3% hækkun.
Þeir hækka hlutfallslega mest
sem eru í lægstu þrepunum.
Að auki eru ýms bókunaratriði
sem samkomulag náðist um,
varðandi ýms réttindamál okkar
félagsmanna og varða okkur
nokkru. Launaflokkahækkun,
sem kemur 1. janúar í samning-
um SFR, fengum við flýtt til 1.
apríl.
Við settum kauptryggingar-
ákvæði upphaflega á oddinn. En í
ljósi þess að háskólamenn hafa
staðið í ströggli um þetta atriði
við ríkisvaldið og þurft að fórna
miklu til, töldum við að okkur
væri ekki stætt á öðru en að
þiggja það sem var í boði til að
tryggja samninginn. Þannig að
verðtryggingin síðara árið felst í
því að það verður að skjóta mál-
inu í gerð, á sama hátt og er í
samningi SFR,“ sagði Jenní Jak-
obsdóttir.
Næstu daga mun samningurinn
verða kynntur póstmönnum og er
búist við að atkvæðagreiðsla geti
hafist strax eftir helgi. -RK
FRETTIR
Kjarabarátta
Tíu félög í verkfalli
Tvöfélög í viðbót hafa boðað verkfall á nœstu dögum. Margvíslegþjónusta úr skorðum
Félagsmenn tíu stéttarfélaga
eru í verkfalli um þessar
mundir, þar af er eitt í tíma-
bundnu verkfalii. Þessu til við-
bótar hafa tvö stéttarfélög boðað
verkfall á næstunni, takist samn-
ingar ekki áður. Margvísleg þjón-
usta og starfsemi hefur stöðvast
að hálfu eða öllu leyti vegna ver-
kfallanna.
Þýðingarmikil þjónusta, sem
ríkisspítalarnir veita, hefur veru-
lega gengið úr skorðum vegna
verkfalls hjúkrunarfræðinga og
þeirrar röskunar sem orðið hefur
á starfsemi Blóðbankans vegna
verkfalls náttúrufræðinga. Þjón-
usta bókasafna er í lágmarki
vegna verkfalls bókasafnsfræð-
inga og nokkur skólasöfn eru al-
veg lokuð.
Eftirfarandi félög eru í verk-
falli um þessar mundir: háskól-
amenntaðir hjúkrunarfræðingar
og sjúkraþjálfarar hafa verið í
verkfalli frá 19. mars að telja.
Sálfræðingar fóru í verkfall 24.;
mars og félagsráðgjafar, iðju-
þjálfar og leiðsögumenn þann 26.
Náttúrufræðingar hófu verkfall
31. mars, matvæla- og næringar-
fræðingar 1. apríl. Verkfall bóka-
safnsfræðinga hófst 2. þessa mán-
aðar.
í fyrradag hófst tímabundið
verkfall Múrarafélags Reykja-
víkur, sem stendur til 15. þessa
mánaðar. En hafi samningarekki
náðst að þeim tíma liðnum hyggj-
ast múrarar hefja allsherjarverk-
fall frá og með 21. apríl. Félag
íslenskra símamanna hefur einn-
ig boðað verkfall frá og með sama
degi.
-RK
Margrét Loftsdóttir bókasafnsfraeðingur ásamt starfssystrum: láglaunahópur innan BHM (mynd: Sig.)
Bókasafnsfrœðingar
Reynum að hanga í hinum
Margrét Loftsdóttir: Margir bókasafnsfrœðingar í skertum stöðum og ekki
heimildfyrir heilum stöðum. Getum ekki bætt okkur launin með eftirvinnu. Erum
láglaunahópur innan BHM
Bókasafnsfræðingar sem starfa
hjá ríkinu hafa verið í verkfalli
síðan 2. aprfl og tekur verkfallið
til 56 bókasafnsfræðinga sem
starfa m.a. í framhaldsskólum, á
Landsbóka- og Háskólabóka-
safni, Landspítalanum og ýmsum
opinberum stofnunum svo sem
Ríkisútvarpinu, Iðntæknistofn-
un, Veðurstofu og víðar.
„Við erum láglaunahópur
innan Bandalags Háskóla-
manna," sagði Margrét Lofts-
dóttir bókasafnsfræðingur, „og
bókasafnsfræðingar eru margir í
skertum stöðum vegna þess að
ekki er vilyrði fyrir heilum stöð-
um þannig að við getum ekki einu
Hafskipsmál
sinni bætt laun okkar með yfir-
vinnu. Okkar kröfur byggjast að-
allega á því að reyna að hanga í
skottinu á hinum og erum í því
sambandi að reyna að fá í gegn
launaflokkatilfærslur. “
Staðan hjá bókasafnsfræðing-
um er óljós eins og er og í gær
hafði ekkert verið talað við þá
síðan á sunnudag en þá kom ekk-
ert út úr fundi þeirra með samn-
inganefnd ríkisins. í gærkvöld
voru þeir boðaðir á fund klukkan
hálftíu.
Bókasafnsfræðingar hafa feng-
ið stuðningsyfirlýsingar frá Fóst-
urskólanum en hann hafði sótt
Yfirmenn ákœrðir af ríkissaksóknara. í ákœruskjali ríkissaksóknara kennir margra grasa. fræðingsTóianse^fengið^ynfun'
Sakargiftir nœr óteljandi. Fjársvik, skjalafals, fjárdráttur ogyfirhylmingar. Ragnar Kjartansson smðningsyfiriýsing þessi er
þar sem synjun undanþágunnar
_ . . til Fóstuskólans getur varðað það
ar 7 miljonir og Bjorgolfur tæpar greiðslur fóru i emkaneyslu s.s. hvort skóhnn tur ntskrifað
6 miljómr. Yfirht yfir fjartokur bflakaup, utanlandsfarir, bruð-
hinna ákærðu af hlaupareikning- kaupsveislur venslamanna og öl-
unum leiða í ljós að þessar föng. -RK
Sakargiftir - fjölskrúðug flóra
og Björgólfur Guðmundsson ákœrðir fyrir að láta greipar sópa um fjármuni Hafskips
M
eintar sakargiftir þeirrra
höfuðpaura Hafskips eru
ærið fjölskrúðugar. í ákæru
ríkissaksóknara, Hallvarðs Ein-
varðssonar, er þcim Björgólfí
Guðmundssyni, Ragnari Kjart-
anssyni, Páli Braga Kristjónssyni
og Helga Magnússyni gert að sök
að hafa ýmist í sameiningu eða
hver í sínu lagi, aðhafst ýmislegt
gegn betri vitund og gerst brot-
legir við almenn hegningarlög,
lög um hlutafélög, endurskoðun,
fjársvik, fjárdrátt, umboðssvik
og skjalafals. Ákæruskjalið er
mikið að vöxtum eða alls 34 þétt
vélritaðar síður.
í sameiningu eru þeir kumpán-
ar ákærðir fyrir að hafa staðið að
gerð rangra og villandi reiknings-
skila yfir rekstur og efnahag Haf-
skips og dótturfélaga þess fyrir
árið 1984, til að stuðla að áfram-
haldandi lánstrausti hjá Útvegs-
bankanum. Þannig var efnahags-
reikningur félagsins látinn sýna
jákvæða eiginfjárstöðu uppá 8
miljónir, þegar hann var í raun
neikvæður um 33 miljónir. í
þessu sambandi er þeim öllum,
nema Helga, gert að sök að hafa
miðlað bankastjórum Útvegs-
bankans í tvígang villandi og
röngum upplýsingum.
Ragnar og Björgólfur eru
ákærðir fyrir að hafa vélað hlut-
hafa til að samþykkja hlutafjár-
aukningu að upphæð 80 miljónir,
á grundvelli rangra upplýsinga
um rekstrarstöðu félagsins.
Helga Magnússyni er gefið að
sök að hafa gengið í berhögg við
viðurkenndar reikningsskilaað-
ferðir, í þeim tilgangi einum að
villa um fyrir hluthöfum, banka-
stjórum og öðrum viðskipta-
mönnum fyrirtækisins um raun-
verulega rekstrarafkomu. Að
auki er Helgi ákærður fyrir að
hafa skrifað uppá endurskoðun
reikningsskila fyrirtækisins og
ársreiknings 1984, án þess að
endurskoðun reikninganna hafi í
reynd farið fram.
Þeir Ragnar, Björgólfur og
Páll Bragi eru ákærðir fyrir fjár-
svik og fjárdrátt með einum eða
öðrum hætti. Ragnari og Björg-
ólfi er í sameiningu gefið að sök
að hafa aflað félaginu fjármuna
með sviksamlegum hætti og
stofna til aukinna skulda með
nýjum lántökum, á grundvelli
rangra upplýsinga um rekstrar-
stöðu Hafskips. Þar á meðal er
um að ræða skuldaaukningu hjá
Útvegsbanka uppá 757 miljónir
og öflun nýs hlutafjár uppá 73
miljónir.
Þeim þremenningum, Björg-
ólfi, Ragnari og Páli Braga, er
gert að sök að hafa svikið út úr
fyrirtækinu fé, bæði með því að
halda sérstaka hlaupareikninga,
sem haldið var utan við bókhald
fyrirtækisins, og með skjalafalsi.
Til samans er Ragnari og Björg-
ólfi gefið að sök að hafa tekið
heilar 13 miljónir út af þessum
hlaupareikningum, Ragnar rúm-
nemendur sína á réttum tíma í
vor, að sögn Margrétar.
-ing.
AUGLÝSING
UMINNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKlRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00
1980-1. fl. 15.04.87-15.04.88 kr. 1.338,78
‘Innlausnarverð er höfuöstóll, vextir, vaxtavextir og veröbót.
Innlausn spariskírteina ríkissjóös fer fram í afgreiðslu
Seölabanka íslands, Hafnarstræti 10, og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, apríl 1987
SEÐLAB ANKIÍSLANDS
Föstudagur 10. apríl 1987 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 3