Þjóðviljinn - 10.04.1987, Page 6

Þjóðviljinn - 10.04.1987, Page 6
VIÐHORF RÁÐSTEFNA um grunnrannsóknir á íslandi Vísindafélag íslendinga gengst fyrir ráðstefnu um grunnrannsóknir á íslandi í Norræna húsinu laugardaginn 11. apríl 1987. Ráðstefnan hefst kl. 9.00 að morgni og stendur fram eftir degi. DAGSKRA: Fyrir hádegi: Ráðstefnan sett. Helga M. ögmundsdóttir læknir: Að verða vís- indamaður á íslandi. Leó Kristjánsson, jarðeðlisfræðingur: Hug- leiðingar um aðstöðu til vísindarannsókna á Is- landi. Guðmundur E. Sigvaldason, jarðfræðingur: Út- sýn. Hafliði P. Gíslason, eðlisfræðingur: Við upphaf nýrra rannsókna á íslandi. Þorbjörn Karlsson, verkfræðingur: Grunnrann- sóknir í verkfræði. Guðmundur Pálmason, jarðeðlisfræðingur: Eru grunnrannsóknir stundaðar á Orkustofnun? Páll Jensson, verkfræðingur: Upplýsingatækni í þágu grunnrannsókna. Eftir hádegi: Sigmundur Guðbjarnason, háskólarektor: Vís- indastefna íslendinga. Helgi Valdimarsson, læknir: Líffræðivísindi á ís- landi - samyrkja eða hokur! Stefán Aðalsteinsson, búfjárfræðingur: Grunn- rannsóknir Llandbúnaði. Þóra Ellen Þórhallsdóttir, vistfræðingur: Grunnrannsóknir í vistfræði. Unnsteinn Stefánsson, haffræðingur: Grunn- rannsóknir á íslenskum hafsvæðum. Guðmundur Þorgeirsson, læknir: Grunnrann- sóknir í læknisfræði á íslandi. Jakob K. Kristjánsson, lífefnafræðingur: Líftækni og hagnýtar grunnrannsóknir. Frjálsar umræður. Guðmundur Eggertsson, erfðafræðingur: Niður- stöður. Ráðstefnu slitið. Fundarstjórar verða Jakob Jakobsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar og Þorkell Helgason, prófessor. Ráðstefnan er öllum opin. Tindastóls þeirra - læt mér nægja stól þann er ég ræð nú um stund- ir. Loðdýr get ég ekki haft vegna fjarlægðar frá fóðurstöð og svo er bullandi tap á þessu, skv. Tíman- um. í fiskeldi finnst enginn bóndi og lítil von um markað nema þá í refafóður. Sjórinn tekur að vísu lengi við - en á norðurhelmingi landsins skilar hann litlu af því, sem í hann er látið. í kanínurækt þarf skv. Bókinni eina mínútu á dag pr. kvikindi. í*að eru margar mínútur í degi bóndans og ekki myndi hann telja sig handseinni við þau störf. Héið er á 1700 kr. pr. kg skv. Bókinni en var 3000 kr. í fyrra og s.l. hálft ár hefur ekki einu sinni verið tekið á móti kanínuull, segir nágranni minn, sem drap sín dýr eftir áramótin. „Haughænsni“ og annað fiðurfé „Haughænsni" eru þar nefnd og egg „haughænsna" sögð bragðsterkt lostæti. Hér finnast hvergi nema hvítir ítalir. Ég á eftir að tala við góðkunningja minn, sem fæst við fuglarækt - e.t.v. á hann til „haughænsna- unga“. Ég er ekki viss um að svona nafn fari vel auglýsingum í kjörbúð - frekar væri möguleiki að selja þessi bragðsterku egg, í náttúrulækningafæði. Bjargfuglaegg vofu næst á list- anum. Ég sneri mér strax til bónda, sem ræður bjargi slíkra fugla, og gerði við hann sam- starfssamning: Ég ætla, með hans aðstoð, að síga í bjargið - þar ætti þyngdarlögmálið að hjálpa til. Ekki treysti fuglabjargsbóndinn sér til að draga mig upp með öllum eggjunum, en ætlar að leysa málið með því að fara á Eg- ilsbát undir bjargið og taka mig þar ásamt eggjunum. Bóndi þessi benti mér á að egg- in mættu ekki - skv. Bókinni - vera stropuð. Ég vil leysa þann vanda á auðveldan hátt - fá RALA það verkefni að kyn- hverfa karlfuglum bjargsins, eins og gert er við iaxinn. Hitt er tíma- frekara, að rækta upp bjargfugl, sem verpir allt árið, en það er nauðsynlegt, skv. Bókinni. Þar kæmi RALA inn í dæmið aftur, með ágætan erfðafræðing, sem hefur unnið við álíka verkefni í áratugi. Beitarrannsóknum mætti sleppa rétt á meðan. Petta tekur allt sinn tíma - á meðan verðum við fuglabjargsfélagar að hafa O flokk fjallalambsins til matar handa okkur og gestum þeim, sem að garði ber. Nú, kræklingur vex ekki í þessum dal og hugsveppir fara væntanlega í ginið á haughænsnunum - ef fuglabóndinn getur útvegað þau ókynhverfð. Horn og bein og hrossabrestir „Skrautgripir úr horni og beini“. Það er nú svo með þetta fé mitt, að það vaxa alls ekki horn á því og rifbeinin úr O flokknum mínum eru eins og nálar, í saman- burði við sterklegu rifin í fitu- flykkinu hennar CJlínu - sem feiti krumminn á skjánum hélt að væri af lambi, þótt ekki þyrfti nema brot af eðlilegu mannviti til að sjá að rifbeinin voru úr þrevetrum hrút. Öskubakkagerð úr hrosshóf- um er tilvalið verkefni fyrir ein- hvern úr toppliði hrossabænda, sem ekki er þjáður af of mikilli líkamlegri vinnu, og sama má segja um smíði hrossabresta. Leiga til gæsaskytterísmanna er talin ein auðsuppsprettan. Ekki nýtist mér það. Veldur því meðfædd og áunnin lífhræðsla, enda mun það hugsað sem „loka- ráð“ í tvennum skilningi - þyrfti þá ekki fleiri ráða við. Skemmtanir í hlöðum og fjósum ásamt túnþökusölu Athygli verður er kaflinn um skemmtanir fyrir „erlenda hópa“ í hlöðum og fjósum ásamt þjóð- legum réttum t.d. „kjötsúpa og pönnukökur", auk heimagerðra drykkja. í slíkum húsakynnum segir Bókin vel til fallið að hafa „hráskinnaleik", sem höfundin- um finnst mjög spennandi og fjörugur. Verðugt verkefni fyrir kvenfélög, segir hann, að annast hluta þessa ágæta leiks fyrir út- lendinga, - sem mættu þá vera áhorfendur eða þátttakendur eftir því sem þeim stæði hugur til. Ekki skal ég dæma um fjörið og spennuna í þessum ágæta leik, en þetta sérstaka húsnæði skortir al- veg hjá mér og flestum í mínu héraði. Ein fjáröflunarleiðin heitir „túnþökur“. Hún er táknræn fyrir allar hinar 99. Halldór Lax- ness segir einhvers staðar frá bændum, sem áttu það til þegar þeir höfðu heyjað upp á einn kap- Samvinnuskólinn á Bifröst góð atvinnutækifæri ágæt námsaðstaða og tölvubúnaður kröftugt félagslíf frekari menntunarleiðir skólaheimili tvö námsár undirbúningur undir störf og frama þjálfun í félagsstörfum og framkomu stúdentspróf Inntökuskilyrði: Umsóknirsendist: Samvinnuskólinn Tveggja ára framhaldsskólanámi lokið skólastjóri — á viðskiptasviði eða með viðskiptagreinum Bifrösl — eða öðrum sambærilegum undirbúningi. 311 Borgarnesi Umsóknarfrestur: ÍO. mars til 10. júní Upplýsingar í skóianum: Símar 93-5000/5001 1 bm im h mm mm h ■■ r~r mm mm al, að „fara suður“ með heyið og selja það fyrir brennivín, - en aldrei komust þeir þó svo langt að selja grassvörðinn ofan af túnum sínum. Nú telur Stéttarsamband- ið vænlegast að flá grassvörðinn af túnunum svo þau „fari ekki í órækt". Baðföt í Bahama og ostagerð Og á er það „taðreykingin“. Fé okkar Vestfirðinga er allt á grindum og undir þeim er ekkert tað. Ull myndi spillast hér ef grindur væru teknar - en það út af fyrir sig skiptir víst ekki máli. Mér skilst að nú nægi ekki lengur þótt ríkið borgi alla upphæðina, sem ég fæ, og gefi verksmiðjunni ullina, enda ekki við öðru að bú- ast því samkvæmt orðum fulltrúa ullariðnaðarins, er besti markað- urinn að selja hana í baðföt til Bahama. Efnislítil munu þau föt, - þófna fljótt og sandberast á rök- um sandinum. í næstu frétt á undan frá sama aðila, var helsti gallinn sá, að ullarhárin styngju viðkvæma húð og yllu fiðringi þar sem þau kæmu við - sumir kynnu þessu ekki illa, aðrir ver. Ég má til með að bæta hér við þessa baðfatatísku á Ba- hama frétt frá iðnaðarráðuneyt- inu. Þar komu um daginn blakicir menn og skildist heimamönnum að þeir væru frá Kenya og vildu fá hugvit frá íslandi í sambandi við nýtingu jarðvarma til ylræktar. Var þeim vel tekið, sem von var. „Fyrir fáum árum var gerð til- raun hér á landi með framleiðslu sauðaosta - gekk sú tilraun vel,“ segir þar. Ég hélt að enginn efað- ist um að hægt væri að gera osta úr sauðamjólk, líka úrvals smjör og jafnvel skyr líka. Spurningin í þessu máli eins og öllum hinum er sú sama, - hún er um peninga fyrir unna vinnustund við starfið, - og svarið við þessum 100 spursmálum er líka alltaf það sama. Grasatínsla, ána- maðkar og söl En það á ekki að vísa veginn, við eigum að fara hann sjálfir. Hér er smá uppástunga um að þrír menn reyni þetta, og þessu þarf að fylgja dálítil áhætta svo það verði meira spennandi. Búnaðarmálastjóri hefur oft hvatt okkur í þessum efnum. Hann gæti tínt grös í annáluðum grasaheiðum sinnar fornu heima- byggðar. Ég efast ekki um að hann yrði góður við það verk. Hans áhætta yrði þokan og sú lognmolla, sem henni fylgir. Nú, ég gæti tínt ánamaðka og selt á kr. 6 plús flutningskostnað. Mín áhætta yrði viðbrögð konu minnar þegar hún sæi allt umrót- ið í kringum blómin, lifandi og dauð. Þriðji maðurinn þarf að vera bókarhöfundur. Hann gæti tínt söl. Söl munu enn vaxa á skerjum sem Ágúst á Brúnastöðum gekk ungur drengur. Þar þarf ungan og liðugan mann því sullsamt mun vera við strönd þessa og skreipt á skerjum og betra að huga vel að straumnum og sjávarföllum. Of seint að sjá fótum forráð þegar állinn í land er orðinn óvæður í stórstraums aðfalli. Bókin öll minnir á teiknimynd, sem ég sá á dögum Vetrarstríös- ins í Finnlandi. Forljótur tröllkarl var með lítinn Finna á knjám sér og stóran skurðarhníf í kjaftin- um. Hjá þeim stóð hár og grannur maður í röndóttum bux- um og með pípuhatt. Hann rétti Finnanum tyggjóplötu og sagði: „Góflaðu á þessu góði - á meðan hann er að skera þig.“ Að endingu, ágætu leiðtogar: Næst þegar þið teljið ykkur eiga erindi við okkur þá ættuð þið að reyna að tala við okkur eins og við hefðum eðlilegt mannvit. 1. apríl, 1987 Halldór Þórðarson, Laugaiandi 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.