Þjóðviljinn - 10.04.1987, Síða 8

Þjóðviljinn - 10.04.1987, Síða 8
HEIMUBINN örbirgð alþýðunnar til sveita er óskapleg og hungur BfUSÍlíU landlægt. ---- Öreigar á hrakhólum Gífurlegur húsnœðisskortur veldur leiguokri, jafnvel í ömurlegustufátœkrahverf unum. Aœtlun stjórnarinnar um skiptingu jarðnœðis meðalfátækra miðar hægt Iúthverfum austan iðnaðar- borgarinnar Sao Pauio hafa menn lengi búið í sambýli við rottur og skorkvikindi í aumum kofahreysum sem minnsti gustur getur þá og þegar feykt um koll. Þessi ömurlegu fátækrahverfi nefna heimamenn „favelas.“ En nú standa yfir miklir brott- flutningar úr þessum borgarh- luta, meindýrin sitja heima en fólkinu hefur verið úthýst því það getur ekki lengur greitt himinháa húsaleigu. Tugþúsundum saman hrökklast það í burtu og hefst við undir berum himni. Húsaleiga hefur hækkað ótrú- lega mikið á einu ári eða um á að giska fimm hundruð prósent. Árið á undan hafði ríkisstjórn Jose Sarney lagt blátt bann við því að húseigendur hækkuðu leigugjöld og var það liður í þeirri stefnu hennar að vinna bug á óða- verðbólgu. Sú áætlun fór út um þúfur og þá óð verðlag upp úr öllu valdi. Síðan í febrúar hafa meira en þrjátíu og tvö þúsund fjölskyldur sest að á jarðskikum austan borg- arinnar og hefur komið fyrir ekki þótt yfirvöld hafi reynt að hrekja fólkið á braut með lögregluof- beldi. Einn maður var skotinn til bana nýverið þegar þjóðvarðlið- ar létu til skarar skríða. Erkibiskup Sao Paulo, Paulo Evaristo Arns kardínáli, sagði á dögunum að stjórnvöld yrðu að fara að hugsa sinn gang, hrakn- ingar aiþýðunnar og landnámið væru „alvarleg ábending til sjórnvalda." Hann krafðist þess að þegar í stað yrði tekist á við hinn tröllaukna húsnæðisvanda af festu og alvöru til að komast mætti hjá „átökum og upplausn í þjóðfélaginu sem ekki ættu sér neina hliðstæðu, fyrr né síðar.“ Kaþólska kirkjan í Brasilíu hefur Iöngum verið í broddi fylk- ingar þeirra sem borið hafa hag þeirra fyrir brjósti sem hvergi eiga höfði sínu að halla í borgum eða eiga engan jarðskika til eigin nota í sveitum. Hún hefur ætíð unnið mikið meðal berfætling- anna í „favelas“ í austur- úthverfum Sao Paulo. Angelico Sandalo Bernardino er biskup þessa borgarhluta og hefur látið málefni öreiga í bæj- um og sveitum mjög til sín taka. Hann segir: „Land okkar er hið fimmta stærsta í heimi en engu að síður á alþýðan ekki svo mikið sem smá- skika. Örfáir einstaklingar slá eign sinni á allt jarðnæði. Þetta er þjóðarsmán." Biskupinn hefur lýst yfir full- um stuðningi við landnámsmenn- ina austan Sao Paulo og hvetur þá til að fara hvergi, hvað sem líði orðum og yfirlýsingum stjórn- valda. Einkar athyglisvert er að í þessu máli hafa prestar og rót- tækir vinstrimenn tekið höndum- saman um að aðstoða öreigana við að helga sér jarðarblett og koma sér fyrir. Fólkið vonast síð- an til þess að í framtíðinni geti það reist sér kofa og stofnað heimili á þessum skikum. Vaxandi óánægju gætir nú meðal brasilískra sveitaöreiga og kirkjunnar þjóna með seinagang stjórnar Sarneys í umbótum og jarðnæðisskiptingu úti á lands- byggðinni. Samkvæmt umbótaáætlun stjórnarinnar átti að deila út fjögur hundruð og þrjátíu þúsund ferkílómetrum lands meðal fjórt- án hundruð þúsund fjölskyldna á árunum 1985-1989. En nú, á hálfnuðu þessu skeiði, er ein- göngu búið að láta sautján þús- und fjölskyldum í té sex þúsund og sex hundruð ferkílómetra. Jarðnæðisskiptingin hefur mætt heiftarlegri mótspyrnu stór- jarðeigenda og óðalsbænda. Þeir hafa margir hverjir ráðið leigum- orðingja í sína þjónustu sem elta uppi meinta landnema og drepa. Þegar hafa slíkir kónar myrt hátt á þriðja hundrað manns. Jose Sarney er fyrsti borgara- legi forseti Brasilíu í áratugi. Hann á ekki sjö dagana sæla í embætti. Efnahagur landsins er mjög bágborinn og erlendar skuldir nema hvorki meira né minna en hundrað og tíu miljörð- um bandaríkjadala. Að honum er sótt úr öllum áttum, kirkjan og alþýðan krefjast félagslegra um- bóta í einhverju mesta örbirgð- arríki heims meðan yfirstéttin vill ekkert af hendi láta og bruggar launráð með herforingjum sem ætíð sitja á svikráðum við um- bótastjórnir í þessum heims- hluta. En hann verður brátt að hrista af sér slenið. Annars fer allt í háaloft í Brasilíu. ÖRFRÉTTIR Mikaíl Gorbatsjof og frú Raisa komu loks til Prag í gær eftir að heimsókn þeirra hafði verið frestað fyrr í vikunni vegna lasleika leiðtogans. Hundruð manna veifuðu fánum og borðum sem á var letrað að hann mætti vera upp með sér af „því sem hann hefði gert fyrir þjóð sína.“ Hann ræddi við Gust- av Husak forseta síðdegis en mun halda ræðu í dag sem beðið er í ofvæni. Háttsettur sovéskur embættismaður sagði að Gor- batsjof myndi flytja mikilvæga yfirlýsingu um utanríkismál með- an á heimsókninni stæði. Alnafni trúbadorsins sívinsæla, Pauls Simons, öldungadeildarþing- maður frá lllinois hyggst spreyta sig íforkosningaslag Demókrata- flokksins fyrir forsetakosningar í Bandaríkjunum að ári. Hann er fimmtíu og átta ára gamall og þykir frjálslyndur. ísraelskar sprengjuþyrlur gerðu í gær loftár- ásir á búðir palestínskra skæru- liða nærri borginni Sídon í suður- hluta Líbanon. Þetta kvað vera níunda loftárás ísraelsmanna á svæði í Líbanon á þessu ári. Geislavirkt mjólkurduft er ekki vel séð í Júg- óslavíu og hafa því þarlendir ráðamenn skilað seljendum í Vestur-Þýskalandi tvöþúsund tonnum af óþverranum sem það- an var keyptur nýverið. Ekki er vitað hvaðan Þjóðverjarnir fengu duftið en varla búa kýrnar mjög fjarri Úkrainu. Geislavirknin mældist nítjánhundruð sextíu og átta beqverel í hverju kílói. íhaldinu breska virðist farið að fatast flugið en Verkamannaflokkurinn braggast örlítið ef marka má glænýja skoðanakönnun um fylgi stjórnmálaflokka á Bretlandi. Samkvæmt henni nýtur flokkur Thatchers fylgis þrjátíu og átta af hundraði kjósenda. Verka- mannaflokkurinn kemur næstur með þrjátíu og tvo hundraðshluta en miðjubandalagið rekur lestina með tuttugu og sjö af hundraði. Matvæla og landbúnaðarstofnun Samein- uðu þjóðanna gerir ráð fyrir aftur- kipp í framleiðslu hveitis og grófra korntegunda í ár miðað við árið í fyrra. Þetta þarf þó ekki að draga dilk á eftir sér því birgðir eru nægar í heiminum. í ár er gert ráð fyrir framleiðslu þrettán- hundruð fimmtíu og þriggja milj- ón tonna af þessum korntegundum í heiminum sem er þrjátíu og átta miljón tonnum minna en í fyrra. Eyðni herjar á íbúa þrjátíu og sjö landa í Afríku að sögn heimildamanna hjá Alþjóða heilbrigðisstofnun- inni. í tíu ríkjum heimsálfunnar er sjúkdómurinn landlæg plága. Nashyrningar geta ekki um frjálst höfuð strokið í Zimbabwe vegna drápsfýsnar og fégræðgi veiðiþjófa sem ásælast hornin og laumast unnvörpum yfir landamærin frá Zambiu í þessum hvimleiðu erindagjörð- um. Stjórnvöld hafa nú skoriö upp herör gegn þessu illþýöi og hafa hermenn og lögregluþjónar lagt veiðivörðum lið í baráttunni. Árangur er þokkalegur enn sem komið er, þrjátíu og þrír veiðiþjóf- *ar hafa verið veiddir. Og að endingu var það vítahringur- inn við Persaflóa. íranir sögðust í gær hafa lagt til atlögu við her- sveitir íraka við landamærin norðan Bagdað. Einsog við var að búast létu þeir drjúgum yfir góðum árangri herhlaupsins og þóttust hafa höggvið stór skörð í raðir óvinahersins. TONLISL4RSKOLI KOPFNOGS Fjórðu vortónleikar skólans verða haldnir í saln- um Hamraborg 11 laugardaginn 11. apríl kl. 15.30. Skólastjóri. ^RARIK RAFMAGNSVEríUR RÍKISINS Símavörður Rafmagnsveitur ríkisins auglýsa laust til umsókn- ar starf símavarðar á aðalskrifstofu í Reykjavík. Um er að ræða 1/2 dags starf. Laun eru samkvæmt kjarasamningum BSRB og ríkisins. Umsóknir er tilgreini menntun, aldur og fyrri störf sendist starfsmannastjóra fyrir 24. apríl nk. Rafmagnsveitur ríkisins Laugavegi118 105 Reykjavík SAMVINNU TRYGGINGAR ARMULA3 SÍMI (91)681411 Áðalfundir Samvinnutrygginga g.t. og Líftrygg- ingafélagsins Andvöku verða haldnir í Sam- vinnutryggingahúsinu, Ármúla 3, Reykjavík, föstudaginn 8. maí n.k. og hefjast kl. 16.00. Dagskrá verður samkvæmt samþykktum félag- anna. Stjórnir félaganna -ks. 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 10. aprfl 1987

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.