Þjóðviljinn - 12.05.1987, Síða 1

Þjóðviljinn - 12.05.1987, Síða 1
Knattspyrna Úrslitin í kvöld Úrslitaleikurinn í Reykjavík- urmótinu er í kvöld kl. 20.30. Þá leika Fram og Valur á gervi- grasinu í Laugardal. Valsmenn sigruðu KR í undan- úrslitum, 5-0 og Fram sigraði Víking 1-0. -Ibe Fatlaðir Sundið gekk mjög vel Sólarhringssund fatlaðra, sem fram fór um helgina, heppnaðist n\jög vel. AUs voru syntir 55 kíl- ómetrar. „Þetta gekk mjög vel og við náðum að ljúka þessu,“ sagði Er- lingur Þ. Jóhannsson í samtali við Þjóðviljann í gær. „Það var svo- lítið erfitt að halda þessu uppi um nóttina en það gekk. Við söfnuðum 80-90 þúsund krónum og það verður notað í tækjakaup. Það næsta á dagskrá er nor- ræna trimmkepppnin og svo Nor- ræna barna og unglingamótið sem verður hér í lok júní“._ibe England Varalið Tottenham Tapaði gegn Everton Everton sigraði varalið Totten- ham, 1-0 í síðasta leik 1. deildar- innar í Englandi. í liði Tottenham var aðeins einn sem lék gegn Wat- fors á laugardag. Fjórir leikmenn léku sinn fyrsta leik fyrir Tottenham, en einn hafði komikð inná sem vara- maður. Tottenham leikur gegn Coventry til úrslita í Bikarnum á laugardag. Samkvæmt reglum Breska knattspyrnusambandsins má lið ekki stilla upp varaliði og Totten- ham var sektað fyrir slíkt fyrir þremur árum þegar 10 varamenn léku gegn Southampton rétt áður en Tottenham lék í Evrópu- keppni. Talsmaður Breska knattspyrn- usambandsins sagðist hafa fengið skeyti í gær sem sagði að 8 leik- menn væru meiddir og þrír hvíld- ir. Þá var of seint að gera nokkuð í því en hann sagði að það myndi fara fram rannsókn. David Pleat, framkvæmda- stjóri Tottenham sagði aö þeir hefðu leikið 8 leiki á 22 dögum og hann hefði lítið getað notað ensku landsliðsmennina. Það var Derek Mountfield sem skoraði sigurmark Everton í gær á 81. mínútu. Þá var einnig síðasti leikurinn í skosku deildinni. Þar gerðu Dundee United og Hearts jafn- tefli 1-1. Lið Dundee, sem leikur til úrslita í skoska bikarnum á laugardag og til úrslita í Evrópu- keppni á miðvikudag, var einnig að mestu skipað varamönnum. -Ibe/Reuter Frakkland Etienne kaupir Franska félagið St.Etienne keypti í gær Mustapha Haddaoui, landsliðsmann frá Marokkó. Haddaoui hefur leikið með Lausanne í Sviss. Hann hefur skrifað undir fjögura ára samning en kaupverðið var ekki gefið upp. Þá keyptu þeir fyrir skömmu Jean-Pierre Francois frá Basle. -Ibe Maraþon Ingrid sigraöi Ingrid Kristiansen, norska hlaupaspíran, sigraði í Mara- þonhlaupi í Lundúnum í þriðja sinn um helgina. Ingrid hljóp á 2.22.40. í karlaflokki sigraði Hiromi Taniguchi frá Japan. Hann hljóp á 2.09.50. -Ibe reuter Portúgal Porto úr leik Það verða Benfica og Sporting Lissabon sem leika til úrslita í bikarkeppninni í Portúgal. Benfica sigraði Portimonense, 4-0 og Sporting sigrði Porto, 1-0 eftir framlengdan leik. Porto sem leikur til úrslita gegn Bayern Munchen í Evrópu- keppni meistaraliða varð fyrir miklu áfalli í leiknum gegn Sport- ing. Lima Pereira, einn sterkasti varnarmaður liðsins varð fyrir því óláni að fótbrotna og leikur því ekki með gegn Bayern. -Ibe/Reuter Körfubolti Torfi fyrirliði Torfi Magnússon mun taka við fyrirliðastöðunni af Vali Ingi- mundarsyni þegar liðið heldur til Mónakó á Olympíuleika smá- þjóða. Torfi Magnússon er nýkominn í landsliðið að nýju eftir árs hlé og Valur óskaði eftir því að hann tæki við fyrirliðastöðunni. Að ioknum Olympíuleikum smáþjóða verður haldið til Eng- lands þar sem tekið verður þátt í móti með heimamönnum, Tyrk- landi og Luxemburg. Úrslit Norðurlandamótsins í körfubolta voru mikið áfall fyrir íslendinga. Ein ástæðan fyrir því var smæð íslensku leikmann- anna, og til að bæta úr því hefur Einar Bollason landsliðsþjálfari kallað til Magnús Matthíasson. Sá er bróðir Matthíasar Matthías- sonar sem lék með íslendingum í C-keppninni í fyrra og er um tveir metrar á hæð. -Ibe Ragnar Margeirsson á fyrstu æfingunni með Fram. Mynd E.ÓI. Knattspyrna Allt opið enn Hefhug á að halda áfram íatvinnumennskunni, segir Ragnar Margeirsson Ragnar Margcirsson mætti á sína fyrstu æfíngu hjá Fram á laugardaginn. Hann er þó ekki al- veg á því að hann muni leika með Fram í sumar: „Það er allt opið enn og ég er ekki búinn að segja skilið við at- vinnumennskuna," sagði Ragnar í samtali við Þjóðviljann. „En ef ég kem heim þá leik ég með Fram, það er öruggt. Ég er enn samningsbundinn með Waterschei og sá samningur rennur ekki út fyrr en 30. júní. Það verður því líklega ekki ljóst fyrr en þá hvert ég fer. Ég held það séu jafnmiklar lík- ur að ég fari út aftur og ég leiki með Fram. En ég fer ekki aftur til Waterschei, ég hef ekki áhuga á því. En ég hef fullan hug á því að halda áfram í atvinnumennsk- unni, en verðið sem Waterschei setur upp er of hátt, 15 miljónir og þeir verða að lækka það tölu- vert. Ég er búinn að leggja inn fé- lagaskipti, en þau taka ekki gildi 'fyrr en undirskrift kemur frá Waterschei. Þá taka þau gildi og ég get farið að spila strax." -Ibe V-Þýskaland Schuster til Leverkusen Ef hann vinnur málið gegn Barcelona. Allofs til Marseille Mjög mikið er um kaup og sölur í þýsku deildinni í knatt- spyrnu um þessar mundir. Einnig er nokkuð um að menn fara til annara Evrópulanda. Það sem ber hæst er Bernd Schuster. Hann hefur lýst því yfir að hann sé á leið til Leverkusen eða Kölnar. Barcelona vill þó ekki viðurkenna það og nú er fyrir dómi krafa Schusters um að hann fái sig lausan þegar í stað. Ef hann vinnur þetta mál fer hann til annarshvors félagsins, þó hklega Leverkusen. Þá er búist við því að Uwe Rahn sé á leið til PSV Eindho- ven. Rahn hefur leikið með Gladbach, en þeir eru ekki búnir að samþykkja það. PSV vill fá Rahn til að fylla skarð Ruud Gul- lits. Klaus Allofs hefur fengið mjög freistandi tilboð frá Marseille í Frakklandi. Hann er ekki búinn að ákveða sig, en gerir það lík- lega í vikunni. Stuttgart hefur keypt tvo sterka leikmenn. Fritz Walder, sem nú er markahæstur í þýsku deildinni með 20 mörk og Rainer Schutterle frá Karlsrhue. Þá er búist við því að Karl Allgöwer sé á leið frá Stuttgart. Uerdingen keypti nú fyrir skömmu Reinold Mathy frá Bay- ern Munchen á 40 milj. króna. Mathy tók sér frí frá knattspymu eftir að hafa fengið of mikið. Hann þurfti að leita til sálfræð- ings til að losna við fótboltann en hann gat ekki hugsað um annað. Nú ætlar hann að reyna að nýju með Uerdingen. Þá hefur Hamburg mikinn áhuga á að fá Olaf Thon og hafa þeir gert Schalke mörg góð tilboð í hann, en Schalke vill ekki láta Þriðjudagur 12. maí 1987 Logi Bergmann Eiðsson ÞJÓOVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.