Þjóðviljinn - 24.05.1987, Blaðsíða 18
NR. 569
KROSSGATA
/ 2 Y 5 6 7 8 S? 9 10 11 11 12 13
/9 /5" 16 g 17 9 2 18 ? 10 c? 1 19
9 1o 12 9 2o 2? 21 1 16 13 7 12 13 Q? 1
1o /3 17 Zo 12 23 12 T~ 29 15~ 2.5 73 8
? 17 T~ 9 l 23 73 18 9? 26 8 7 1o 2/
2? 10 13 29 ? 1o /5 ’s 23- Æ 9? 29 /2 17
ZS 21 0? /3 25 2o g 13 9? /5 9 V 9 22
9 8 /7 /0 13 22 V 8 ? 2/ /? 20 ?
7 0? 3 29 /2 9 9 9 10 2o 11 lo 13 9? 30
J V 1 V H 22 <sP 1o 17 17 10 V 21 9 fo
V 1o /2 9 /0 9 10 V ío V 21 s? 3 V
c? 12 9 29 12 V ? 8 9 1o 15 2/ 9 8
3/ 9 2/ 9 ? 1o 2y 13 /0 12 9 2? V
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá nafn á
götu í Reykjavík. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til
Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr.
569“. Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinn-
ingshafa.
7 3 73 15 10 30 10 7 7 8
Stafirnir mynda íslenskt orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er
lárétt eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna
staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því með því eru gefnir
stafir í allmörgum orðum. Það eru því eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa
stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka
fram að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða
og breiðum, t.d: getur a aldrei komið í stað á gða öfugt.
Júlíus Stefánsson, Álfatúni 2,
Kópavogi, fékk verðlaun fyrir
krossgátu nr. 566. Lykilorðið
*var Sveinborg. Hann fær
senda bók Málfríðar Einars-
dóttur, Samastaður í tilver-
unni.
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Að þessu sinni er matreiðslu-
bók í verðlaun. Guðrún Hrönn
mun hjálpa vinningshafanum
að búa til Eitt hundrað og tíu
gómsæta pottrétti. Setberg
gaf út.
SKAK
BRIDGE
Ein gömul skák
Ovœnt úrslit
Það er fátt skemmtilegra en liggja
yfir skákstöðum og leggjast djúpt, að
minnsta kosti eins djúpt og manni er
gefið. Þá skiptir ekki öllu máli hvort
staðan er ný af nálinni eða gömul ef
hún er áhugaverð. Skákir genginna
meistara eru sífellt í skoðun enda víða
prentaðar og aðgengilegar mörgum.
Menn eru því einlægt að finna endur-
hx'tur á leikmáta gömlu stórmeistar-
anna og berst þá leikurinn oft út fyrir
sjálfa skákina.
Ein frægasta skák allra tíma er
viðureign Steinitz og Bardelebens á
skákmótinu í Hastings 1895. Hún var
tefld nálægt miðju móti og hafði Bar-
deleben, sem þá var í blóma lífsins,
gengið vel á mótinu, m.a. lagt Lasker
heimsmeistara. Steinitz var þá kom-
inn um sextugt og kraftarnir farnir að
bila. Hann hafði tapað heimsmeistar-
atitlinum til Laskers árið áður og
gerði örvæntingarfullar tilraunir til að
ná honum aftur. Framan af mótinu
gekk honum vel en síðan kom mikið
bakslag og hann tapaði fjórum
skákum í röð. Daginn áður en þessi
skák var tefld hafði hann einmitt tap-
að fyrir erfðafjandanum Lasker. Það
hefur því líklega fáa grunað þegar
þeir mættust að tafli að nú væri
Steinitz að tefla glæsilegustu skák ævi
sinnar.
Hvítt: Steinitz
Svart: Bardeleben
ftalski leikurinn
1. e4-eS
2. RD-Rc6
3. Bc4-Bc5
4. c3-Rf6
5. d4-exd4
6. cxd4-Bb4
7. Rc3-d5
Hér er mælt með 7. ...Rxe4 hér.
8. exd5-Rxd5
9. 0-0-Be6
10. Bg5-Be7
11. Bxd5-Bxd5
12. Rxd5-Dxd5
13. Bxe7-Rxe7
14. Hf-el-f6
15. De2-Dd7
16. Ha-cl-c6
17. d5-cxd5
Með peðsfórninni býr hvítur ridd-
ara sínum öruggt sæti á d4
18. Rd4-Kf7
19. Re6-Hh-c8
20. Dg4-g6
21. Rg5+-Ke8
endum framhaldið 25. ... Kg8 26.
Hg7+ Kh827. Dh4+ Kxg728. Dh7+
Kf8 29. Dh8+ 30. Dg7+ Ke8 31.
Dg8+ Ke7 32. Df7+ Kd8 33. Df8+
De8 34. Rf7+ Kd7 35. Dd6 mát. Yfir
þessa fléttu hafa menn fyrr og síðar
ausið slíku lofi að ekki þarf að auka.
Þess í stað skal horfið framar í
skákina.
Hvítur hefur teflt í tvísýnu því flest-
ir menn hans eru í uppnámi og kón-
gurinn hættulega settur í borðinu.
22. Hxe7+-Kf8
Svartur má ekki drepa hrókinn því
eftir 22. ... Dxe7 fellur hrókurinn á c8
og eftir 22.... Kxe7 23. He 1 + Kd8 24.
Re6+ vinnur hvítur lið. Hvítur má þó-
vara sig því drottningin er í voða og
máti hótað á cl.
23. Hf7+-Kg8
24. Hg7+-Kh8
25. Hxh7+
Hér lét Bardeleben sig hverfa úr
skáksalnum en Steinitz sýndi áhorf-
JÓN
TORFASON
Tarrasch skýrði skákina í mótsbók-
inni og gagnrýndi 16. leik svarts (eftir
16. Ha-cl)(Sbr. stöðumynd 1). Hann
benti á framhaldið 16. Ha-cl Kf7 (til
að koma hróknum á h8 í leikinn) 17.
Dxe7+ Dxe7 18. Hxe7+ Kxe7 19.
Hxc7+ og hvítur fær tvö peð fyrir
skiptamuninn. Nýjustu rannsóknir
sýna að svartur hefur síst verri færi í
þessu afbrigði svo Steinitz hefur lík-
lega leikið af sér í 16. leik. En hvað
átti hann þá að gera?
Rússneski skákmeistarinn og þjálf-
arinn Romanovskí lagði til árið 1929
að hvítur léki 16.d5. Eftir 16. ... Kf7
17. Ha-dl Hh-e8 18. De6+ er mjög
þrengt að svarti og ekki er 17. ...
Rxd5 18. Rg5+ fxg5 19. Df3+ Kg6
20. Hxd5 betra.
En áhangendur svarta taflsins
fundu öflugan mótleik:
17. ... Ha-dS
Eftir 18. De6+ Dxe6 19. dxe6+
Kg6 20. Rh4+ Kh5 21. Hd7 Rd5 22.
Rf5 Hxd7 23. exd7 Hd8 24. Rxg7+
Kh6 fellur hvíta d-peðið og endataflið
er jafnt.
Ónnur leið var 18. Rd4 Rxd5 19.
Re6 Hde8 20. Dh5+ g6 og svartur
hefur staðið af sér storminn. Var þá
fleira í þessari glæsiskák Steinitz eftir
allt saman?
Ein óvæntustu úrslit í sögu bridge,
og eitthvað í þeim dúr, mátti Iesa út úr
svip manna er úrslit voru kunngerð í
íslandsmótinu í tvímenning um síð-
ustu helgi. Símon Símonarson og
Guðmundur Páll Arnarson sigruðu á
glæsilegan hátt með „tröllaskori” í
síðustu umferð mótsins og „stálu” þar
með sigrinum af unglingalandsliðs-
parinu Matthíasi Þorvaldssyni og Júl-
íusi Sigurjónssyni.
Þeir Matthías og Júlíus voru með
yfirburðastöðu í mótinu er líða tók á,
en hér sannaðist hið fornkveðna, að
engu móti er lokið fyrr en síðasta spil-
inu er stungið í bakkann.
Annars var þetta mót frekar ein-
kennileg upplifun fyrir þá sem stóðu í
„baráttunni“. Er yfir lauk voru 15 pör
af 24 með yfir meðalskor og aðeins
tvö pör ná að kljúfa 100 stiga markið
og sigurparið vinnur á einni al-lægstu
skor sem undirritaðan minnir að
tekin hafi verið í þvílfkri úrslita-
keppni. Sennilegar skýringar á þess-
ari þróun og úrslitum eru helstar, að
mörg pör voru að spila sitt annað mót
saman (tvístruð pör), jöfn keppni
meðal „toppspilara” og einhver spila-
þreyta í einstaka spilara.
En Guðmundur Páll og Símon ná
að sigra þetta íslandsmót. Fyrir Guð-
mund er þetta sérstaklega ánægju-
legt, því hann hefur upplifað það
sama og stákarnir, að láta stela frá sér
móti í síðustu spilunum (þá á móti
Þórarni Sigþórssyni er Jón Baldurs-
son og Sævar Þorbjörnsson báru sigur
úr býtum). Næstu pör voru: Ásgeir
Ásbjörnsson - Aðalsteinn Jörgensen,
Hermann Lárusson - Ólafur Lárus-
son, Sævin Bjarnason - Ragnar
Björnsson og Hrólfur Hjaltason - Sig-
urður Sverrisson.
Umsjónarmaður ítrekar hamingju-
óskir sínar til Guðmundar og Símon-
ar.
Þátttakan í Bikarkeppni Bridge-
sambandsins virðist ætla að verða
talsvert minni en undanfarin ár.
Dregið verður um þessa helgi í 1. um-
ferð.
Um þessa helgi eru í gangi tvö
svæðamót. Á Akureyri Norðurlands-
mótið og á ísafirði Vestfjarðamótið.
Á uppstigningardag verður svo á
Ketilási í Fljótum meistaramót svæð-
isins í tvímenning.
Sumarbridge 1987 hófst s.l. þriðju-
dag. Góð þátttaka var á 1. kvöldi, eða
37 pör og var spilað í þremur riðlum.
Spilað verður í allt sumar á þriðju-
dögum og fimmtudögum að Sigtúni 9.
Miklar hræringar eru í íslenskum
bridgeheimili þessa dagana. Það nýj-
asta ku vera að Karl Sigurhjartarson
og Sævar Þorbjörnsson séu að stilla
saman strengi sína og „gömlu” menn-
irnir Ásmundur og Hjalti fari saman á
ný. Einnig hefur frést að Þórarinn
Sigþórsson sé að íhuga tilboð þeirra
Blöndals-bræðra, sem fimmti maður í
þeirra hópi. Og fleira. Reikitungl
bridgeheimsins þessa dagana, þeir
Matthías og Júlíus virðast vera á enda
síns félagsskapar (í bili) og heyrst hef-
ur að Matthías og Ragnar Hermanns-
son hyggist reyna sig saman.
Tveir spilarar eru þessa dagana í
keppni í Júgóslavíu. Það eru þeir
Hermann Lárusson og fsak Ö. Sig-
urðsson sem eru í Portoroz-
stórmótinu.
Nýr stöðulisti áunninna meistara-
stiga verður birtur í byrjuri júní, Áríð-
andi er að öll félög sendi inn skýrslur
um stig hið fyrsta.
Nýjasta bridgefélagið innan BSÍ er
Hjónaklúbburinn í Reykjavík, sem
samþykkti á aðalfundi sínum nú fyrir
skemmstu að sækja um aðild að BSÍ.
Umsjónarmaður óskar félags-
skapnum til hamingju.
Undirbúningur fyrir Norðurlanda-
mót yngri landsliða, sem haldið verð-
ur í Hrafnagilsskóla í Eyjafirði 22,-
27. júní n.k. er kominn vel á veg. Alls
munu 9 sveitir keppa á mótinu.
Og þátturinn vekur sérstaka at-
hygli á ca. 50 mín. löngum þætti í
ríkissjónvarpinu á sunnudagskvöldið
sem mun fjalla um bridge. f bígerð
mun vera að fylgja þessu framtaki
eftir og sýna í haust þætti um keppnis-
bridge. Svo virðist sem Þyrnirós sé
komin á stjá...
ÓLAFUR
LÁRUSSON
18 SIÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 24. maí 1987