Þjóðviljinn - 13.08.1987, Síða 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Holland
Frjálslyndi í vanda
Hollendingar óttast að landið verðifélagsleg ruslakista Evrópu. Holland Mekka eiturlyfjasjúklinga. Glæpum
fjölgar í kjölfar aukins eiturlyfjavanda
Lögreglan leitar að eiturlyfjum á vegfaranda á einni af götum Amsterdamborgar.
Hollendingar hafa löngum haft
það orð á sér að vera manna
frjálslyndastir, enda státa þeir
gjarnan af „upplýstu umburðar-
lyndi“ sem þeir segja einstakt í
sinni röð meðal þjóða heims.
Uppá síðkastið hefur þó borið á
því að breytinga kunni að vera að
vænta í þessum efnum og Hol-
lendingar láti af hömlulausu um-
burðarlyndi og leggi ríkari rækt
við „guðsótta og góða siði“ en
þeir hafa gert fram að þessu.
Undanfarin ár hefur Holland
verið nokkurskonar griðastaður
hverskyns „delikventa" og utan-
garðsmanna, sem flykkst hafa í
stríðum straumum til Hollands,
þar sem þeir hafa getað notið
ávaxtanna af stöndugu velferð-
arkefi (verzorgingsstaat) og af-
skiptaleysi yfirvalda, jafnvel þótt
þeir aðhefðust sitthvað misjafnt.
Mekka eitur-
lyfjaneytenda
í hugum eiturlyfjaneytenda
gegnir Amsterdam svipuðu hlut-
verki og Mekka í hugum múham-
eðstrúarmanna og Jerúsalem í
hugum gyðinga. Eiturlyfjaneyt-
endur hvaðanæva úr Vestur Evr-
ópu hafa á undanförnum árum
flúið ofríki lögregluyfirvalda á
heimaslóð og sest að í Amster-
dam og skal víst fáa undra.
Samkvæmt hollensku eitur-
lyfjalöggjöfinni er neysla og sala
veikari eiturlyfja ekki forboðin.
Yfirvöld láta það óáreitt að
„hasskaffihús“ auglýsi og selji
kannabisefni til viðskiptavina
sinna. - Ef meðferð veikari efna
væri refsiverð, leiddi það til þess
að ungmenni leiddust út í glæpi til
að verða sér úti um efnið, og þá
væri verr af stað farið en heima
setið, segir dr. Jan Wallburg,
stjórnandi Jelinek-meðferðar-
stofnunarinnar.
Sterkari eiturlyf eru ólögleg
samkvæmt hollenskum lögum.
Neysla þeirra er þó ekki talin
refsiverð og eru eiturlyfjaneyt-
endumir látnir í friði svo fremi
þeir haldi sig frá óknyttum og
glæpum. Eiturlyfjasala er aftur á
móti refsiverð.
Óyfirstíganlegt
vandamái?
Um þessar mundir eru 16.000
heróínsjúklingar skráðir í Hol-
landi og þar af er obbinn í Am-
sterdam og Rotterdam.
Hlutfall eiturlyfjasjúklinga af
mannfjölda er snöggtum hærra í
Hollandi heldur en í nágranna-
löndunum, Vestur-þýskalandi,
Frakklandi og Bretlandi. Munar
þar vissulega nokkuð um allan
þann fjölda eiturlyfjasjúlklinga
frá nágrannalöndunum, sem sest
hefur að í Hollandi.
í kjölfar vaxandi eiturefna-
neyslu hefur tíðni glæpa aukist
mikið á undanförnum árum í
stórborgum Hollands. í Rotter-
dam einni hefur þjófnaður færst
geigvænlega í vöxt. Árið 1960
voru skráð 8000 þjófnaðarmál,
en 1984 var tala þjófnaðarmála
komin uppí 64.000. Alvarlegum
ofbeldisglæpum fjölgaði um 15%
í fyrra í Rotterdam frá árinu á
undan, en talið er að megnið af
ofbeldisverkunum megi rekja til
eiturlyfjaneyslu.
Til að bregðast við eiturlyfja-
vandanum hafa stjórnvöld gripið
til margvíslegra ráða á undan-
fömum ámm, sem öll hafa ekki
reynst sem skyldi.
Snemma á áttunda áratugnum
reyndu borgaryfirvöld í Amster-
dam að ná stjórn á eiturlyfja-
neyslunni, með því að leyfa starf-
semi nokkurra kaffihúsa, sem
versluðu með sterk eiturlyf.
Árangurinn var vægast sagt
hörmulegur: Giæpir tengdir
eiturlyfjaneyslu færðust í vöxt og
þeim eiturlyfjaneytendum fjölg-
aði sem tóku síðasta skammtinn.
Borgaryfirvöld sáu loks að sér um
1980 og lögðu frekari tilraunast-
arfsemi í þessa veruna á hilluna.
í dag bregðast yfirvöld með
þeim hætti við eiturefnavandan-
um að refsingar við eiturlyfjasölu
hafa verið hertar og í hvert sinn
sem eiturlyfjaneytandi er hand-
tekinn fyrir afbrot, er honum gef-
inn kostur á að velja á milli fang-
elsisdóms og frírrar meðferðar á
stofnun, en áætlað er að 40%
þeirra sem fara í meðferð láti af
fíkn sinni.
Undanfarin ár hafa heilbrigðis-
yfirvöld sett upp fjölda meðferð-
arstofnana, sem veita eiturlyfja-
neytendum ókeypis meðferð
með metadonlyfjagjöf. Fjórir
gamlir strætisvagnar aka um þau
hverfi Amsterdam þar sem helst
er eiturlyfjasjúklinga að finna og
útbýta metadoni.
- Jafnvel þó að við séum oft
harðlega gagnrýndir af kollegum
okkar í öðrum löndum fyrir að
viðhalda vandamálinu með þessu
móti, er það oft svo að þeir sem
hæst láta hafa ekki neinar betri
lausnir á takteinum, segir dr.
Wallburg, sem áður er getið.
Umburðarlyndið
hefur sín takmörk
Margir Hollendingar, og ekki
síst stjórnvöld, telja sig hafa
komist að því fullkeyptu hvað
varðar ýmsa þá ókosti sem frjáls-
ræðið hafi í för með sér.
í kjölfar fjölgunar glæpa og
eiturlyfjaöldu verður æ algengara
umkvörtunarefni margra Holl-
endinga að vart sé þorandi að
hætta sér út á götu til að versla inn
til heimilisins, sökum hættu á að
verða rændur og limlestur. í þeim
borgarhverfum þar sem undir-
heimalífið er hvað blómlegast
hætta íbúar sér vart út fyrir húss-
ins dyr eftir að rökkva tekur.
Uppá síðkastið hafa ýmsir
stjórnmálamenn æ oftar hreyft
kröfum um að stjórnvöld verði að
taka í taumana, eigi Holland ekki
að verða að einskonar félagslegri
mslakistu Evrópu.
Ed van Thijn, borgarstjóri
Amsterdam, er einn þeirra sem
telja til vinnandi fyrir Hollend-
inga að láta af umburðarlyndinu.
- Eigi hollenskt samfélag ekki að
líða fyrir frjálslyndið, verðum við
að taka í taumana. Um 1970 taldi
ég að hægt væri að kljást við
eiturlyfjavandann með umburð-
arlyndi, en mér er nú ljóst að
vandamálið hleðst stöðugt upp,
grípum við ekki til hastarlegri
ráða, segir borgarstjórinn. Hann
spáir því að verði ekkert að gert
muni verða með öllu ólíft í Am-
sterdam.
-RK þýddi og endursagði
Eiturlyfjaneysla er orðin eitt helsta meinið I hollensku samfélagi að mati margra
Hollendinga. i stórborgum Hollands falla á ári hverju tugir ungmenna í valinn
vegna of stórs skammts.
Marijuana-planta á boðstólum í einni af blómaverslunum Amsterdam.
Manitóbaháskóli.
Prófessorsstaða í ís-
lensku er laus til um-
sóknar
Tekið verður á móti umsóknum eða tilnefningum
til starfs við íslenskudeild Manitóbaháskóla og
boðið upp á fastráðningu (tenure) eftir tiltekið
reynslutímabil í starfi ef öllum skilyrðum er þá
fullnægt. Staðan verður annaðhvort veitt á stig-
inu „Associate Professor" eða „Full Professor"
og hæfur umsækjandi settur frá og með 1. júlí
1988. Laun verða í samræmi við námsferil, vís-
indastörf og starfsreynslu. Hæfur umsækjandi
þarf að hafa lokið doktorsprófi eða skilað
sambærilegum árangri á sviði íslenskra bók-
mennta bæði fornra og nýrra. Góð kunnátta í
enskri tungu er nauðsynleg sem og fullkomið
vald á íslensku rit- og talmáli. Kennarareynsla í
bæði málfræði og bókmenntum er mikilvæg og
æskilegt að umsækjandi hafi til að bera nokkra
kunnáttu í nútímamálvísindum. Þar sem ís:
lenskudeild er að nokkru leyti fjármögnuð af sér-
stökum sjóði og fjárframlögum Vestur-
íslendinga, er ráð fyrir því gert að íslenskudeild
eigi jafnan drjúga aðild að menningarstarfi þeirra.
Þess er vænst að karlar jafnt sem konur sæki um
þetta embætti. Samkvæmt kanadískum lögum
sitja kanadískir þegnar eða þeir sem hafa
atvinnuleyfi í Kanada í fyrirrúmi.
Umsóknir eða tilnefningar með ítarlegum
greinargerðum um námsferil, rannsóknir og
starfsreynslu, sem og nöfnum þriggja er veitt geti
nánari upplýsingar, berist fyrir 30. október 1987.
Karen Ogden
Associate Dean of Arts
University of Manitoba
Fimmtudagur 13. ágúst 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11