Þjóðviljinn - 15.08.1987, Blaðsíða 2
'SPURNINGIN1
Verðbólgan fór yfir 30% í
síðasta mánuði. Óttastu
að hún sé að sækja í
gamla farið?
Olga Clausen
sölumaður:
Já, mér sýnist allt benda til þess.
Þá er nú hætt við að maður sitji í
súpunni með lánin sín.
Sigurður Ólafsson,
stýrimaður:
Ég vona ekki, en það er ábyggi-
lega hætt við því vegna þess hve
þenslan er mikil.
Hrefna Magnúsdóttir,
afgreiðslumaður:
Já, enda er ástandið að verða
eins og fyrir myntbreytingu. Það
stefnir hraðfara í það.
Pjetur Sigurðsson,
Ijósmyndari:
Eins og mér sé ekki sama. Ég
hirði bara kaupið mitt.
Bæring Ólafsson,
sölustjóri:
Já, ég óttast þaö ef svona heldur
áfram. Þar munar mest um
þensluna í þjóðfélaginu.
FRETTIR
Norðurtanginn hf.
Lifrin gefur á aðra milljón
Áhöfnin á Guðbjarti ÍS 16 getur aukið árshlut sinn um rúmlega milljón króna meðþví
að hirða lifrina. Lifrin hirt fyrirhafnarlítið með nýjum tœknibúnaði. Kristján Jóakimsson
sjávarútvegsfrœðingur: Erum að athuga möguleikann á að framleiða örverufóður úr slóginu
Undirbúningur að öflun hrá-
efnis frá togaranum Guð-
bjarti ÍS 16 til vinnslu þorskalýsis
er nú á lokastigi hjá Norðurtang-
anum hf. á Isafirði. Að sögn
Kristjáns Jóakimssonar, sjávar-
útvegsfræðings hjá fyrirtækinu,
hófst framleiðsla þorskalýsis úr
lifur frá landróðrarbátum í vor,
en búist er við að byrjað verði að
vinna úr hráefni frá Guðbjarti nú
í ágúst eða í september. Lýsið
verður þó ekki fullunnið hjá
Norðurtanganum, heldur verður
það kaldhreinsað og afsýrt hjá
Lýsi hf. í Reykjavík.
Þegar fram líða stundir mun
meirihluti hráefnisins fenginn frá
Guðbjarti. Að sögn Kristjáns
hefur lýsisverð fram til þessa ekki
verið togarasjómönnum nægileg
freisting til þess að leggja á sig
aukna vinnu við að hirða lifrina,
en með sérstökum tæknibúnaði
hefur reynst unnt að hirða lifrina
án mikillar fyrirhafnar.
Það er gert þannig að slógið er
hirt í heilu lagi frá aðgerðarborð-
unum um borð í togaranum og
flutt með snigli yfir í nokkurs
konar marningsvél, þar sem lifr-
armassinn er skilinn frá öðrum
hlutum slógsins.
„Við erum ekki að ræða um
háar upphæðir í þessu sambandi,
en þetta er viðleitni til þess að
nýta aflann betur en gert er. Það
má búast við að hlutur áhafnar-
innar hækki um á aðra milljón
króna á ári við þetta, en lýsishlut-
urinn kemur óskiptur í hlut
áhafnarinnar,“ sagði Kristján Jó-
akimsson.
Hann bætti því við að Norður-
tanginn hefði einnig hug á að gera
Kristján Jóakimsson sjávarútvegsfræðingur við lýsisskilvindu Norðurtangans. Lýsisframleiðsla úr lifur frá landróðrarbát-
um hófst í vor, en nú er þess beðið að hægt verði að afla hráefnis frá togaranum Guðbjarti. Kristján er annars á förum til
Japans innan skamms, þar sem hann hefur fengið styrk frá japanska ríkinu til þess að vinna að rannsóknum á notkun
ensíma í fiskiðnaði.
tilraun til þess að nýta aðra hluta
slógsins, sem nú er hent, maga,
garnir og skúf. Sú hugmynd hefur
verið rædd hjá fyrirtækinu að búa
til slógmeltu úr þessu hráefni í
örverufóður og vinnur Iðntækni-
stofnun nú að markaðsathugun
fyrir vöruna. Verði niðurstöður
þeirrar könnunar jákvæðar verð-
ur tekin ákvörðun um hvort lagt
verður út í framleiðsluna.
Þess má geta að Kristján er
senn á förum til Japans, þar sem
hann hefur fengið styrk frá jap-
anska ríkinu til þess að vinna að
rannsóknum á notkun ensíma í
fiskiðnaði og mun hann dvelja
ytra í eitt og hálft ár. Kristján er
Tromsö menntaður sjávarútvegs-
fræðingur og lokaverkefni hans
við skólann þar fjallaði um roð-
flettingu síldar með ensímum.
„Notkun ensíma á örugglega
framtíð fyrir sér í fiskiðnaði, en
þróunin á þessu sviði verður ekki
eins hröð og til dæmis á sviði tölv-
utækninnar/
lokum.
sagði Kristján að
-gg
Atvinnuleysi í júlí
420 manns atvinnulausir
Atvinnuleysi 0,3% afheildarvinnuafli. Skráðir atvinnuleysisdagar
fleiri á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvœði
fjölda á vinnumarkaði. Á sama
Skráðir atvinnuleysisdagar
voru u.þ.b. helmingi færri í
síðasta mánuði en í júlí mánuði í
fyrra, á tíunda þúsund í stað rúm-
ra 14000 á sama tíma í fyrra. í
síðasta mánuði voru 420 manns á
atvinnuleysisskrá, sem jafngildir
um 0,3% af áætluðum mann-
Laxárvirkjun
Viricjunarsagan á bók
Ut er komin á vegum Lands-
virkjunar Saga Laxárvirkj-
unar sem Gfsli Jónsson skráði.
Bókin fjallar raunar ekki bara
um sögu Laxárvirkjunar heldur
alla sögu raforkuöflunar fyrir
Akureyri, alit frá því fyrst komu
fram hugmyndir um rafvæðingu
bæjarins skömmu fyrir aldamót.
Höfundur greinir frá fyrstu
virkjun Akureyringa í Glerá og
síðan aðdragandann að stofnun
Laxárvirkjunar sem formlega tók
til starfa haiistið 1939. Síðan rek-
ur hann sögu allra framkvæmda á
vegum fyrirtækisins allt þar til
Laxárviricjun var sameinuð
Landsvirkjun árið 1983. í sögu-
lok eru sérstakir kaflar um tvo af
brautryðjendum í raforkumálum
Akureyringa, þá Stein Steinsen
fyrrverandi bæjarstjóra og Knut
Otterstedt fyrrverandi rafveitu-
stjóra. -yk.
tíma í fyrra voru 655 á atvinnu-
leysisskrá, eða 0,5% mannaflans.
Samkvæmt upplýsingum
Vinnumálaskrifstofu félagsmála-
ráðuneytisins var fjöldi atvinnu-
leysisdaga í júlí s.l. 9123, en réttu
ári áður voru atvinnuleysisdag-
arnir 14205.
Fjöldi atvinnuleysisdaga var
snöggtum meiri úti á landsbyggð-
inni en á höfuðborgarsvæðinu,
enda er atvinnuframboðið þar
ekki eins háð duttlungum árferð-
is og aflabragða og úti á landi.
Skráðir atvinnuleysidagar utan
Reykjavíkursvæðisins voru 5060
en 4063 í Reykjavík og nærsveit-
um.
í síðasta mánuði voru 297 kon-
ur á atvinnuleysisskrá og 124
karPar.
-rk
Norðurlönd
Vilja
fjölskyldu-
bú
Norrœnu bœndasam-
tökin leggja áherslu á
mikilvægi fjölskyldu-
búa
„Samband norrænu bænda-
samtakanna leggur áherslu á að
fjölskyldubúið er ráðandi búsk-
aparform á Norðurlöndum, og
mikilvægi þess að fjölskyldubú-
inu sé gert kleift að halda velli og
þróast.“
Þannig hljóðar upphaf álykt-
unar aðalfundar sambandsins,
sem haldinn varí Vildmansstrand
í Finnlandi 4.-6. ágúst sl.
Þá lagði fundurinn og mikla
áherslu á umhverfismál og
eflingu mengunarvarna, alþjóða-
markað, baráttu við hungrið í
heiminum og sjálfsnægtir hverrar
þjóðar í öryggisskyni.
„Norðurlönd framleiða óspillt-
ustu landbúnaðarafurðir í veröld-
inni. Það verður að tryggja
grundvöll þessarar framleiðslu
svo að hún geti haldið áfram um
ókomna tíð,“ segir þar. -mhg
Fáðu þér buff tartar.
Það er mjög áhugavert hérna.
Ég sagði þér að það væri mjög
áhugavert hérna
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 15. ágúst 1987