Þjóðviljinn - 18.11.1987, Blaðsíða 12
h*K!§ m £
I / '■ /'/
ÚTVEGUM
ALLAR ÁL-
OG STÁLVÖRUR
Eigum
til afgreiðslu
aflager:
Skipaplötur, þykktir
3-50 mm.
Vinkláog fíatjám
f ýmsum stæröum.
Álplötur í þykkt-
unum 3-5 mm.
VERDiD OKKAR
HITTIR í MARK!
ÍSVÖR H.l=.
Austurstræti 10A.
Pósthólf 1417.121 R1.
Sími 623455. Póstfax 623502.
Halldóra Erlendsdóttir: Hef aldrei fundið fyrir þeirri
tilfinningu að ég sé með peninga í höndunum
Gjaldkerastarfið:
ENGIN FREISTING
„Eg hef aldrei fundið fyrir
þeirri freistingu að taka
peningana og stinga af,“
sagði Halldóra Erlendsdótt-
VIÐ SJÁUMST í SPARISJÓÐI
VÉLSTJÓRA.”
TÉKKAREIKNINGUR tiiá sparisjóðnum gefur kost
ó yfirdróttarheimlld allt að kr. 50.000.
FÓST innlánsviðskipti = Launalán sparisjóðsins
alltað kr. 250.000.
BANKAKORT. hraðbankl og kreditkort.
GJALDEYRISPJÓNSUTA
INNLÁNSREIKNINGAR af ýmsum gerðum
sem bjóða upp á góða ávöxtunarmöguleika.
PERSÓNULEG þjónusta og gagnkvœmt traust,
byggt á föstum viðskiptum.
OPIÐ f Siðumúia t til kl. 18.00 á fimmtudögum.
OPIÐ í Borgartúni 18 tll kl. 18.00
á föstudögum.
SPARISJÓÐUR VÉLSTJÓRA
BORGARTUN116 SIMI 28577 - SIDUMULA 1« SlMI 6852)4
ir gjaldkeri í Búnaðarbank-
anum, „en ef laust f inna ein-
hverjir gjaldkerar fyrir
henni. Mér f innst ég ekki
vera með peninga í hönd-
unum, þetta er eins og hver
annar pappír“.
- Er þetta skemmtilegt starf?
„Já, mér finnst þetta mjög
skemmtilegt. Það er mikið um
mannleg samskipti og það er
eiginlega það skemmtilegasta við
starfið.“
- Hefur álag á ykkur gjaldker-
ana aukist við tölvuvœðingu bank-
anna?
„Já, það er heldur meira álag
en áður var, starfið er orðið
meira og ég verð tvímælalaust vör
við að það er aukið peninga-
streymi í þjóðfélaginu. Fólk hef-
ur meiri peninga á milli handanna
og ég verð mest vör við það um
mánaðamót, síðan fer það
minnkandi eftir því sem líður á
mánuðinn og fólk verður blank-
ara.“
- Verðurþú vör við að fólk borgi
reikninga í pósthúsum, eða er allt
greitt í bönkum?
„Ég held að fólk borgi almennt
allt í bönkum, að minnsta kosti er
það raunin hér, ég veit ekki
hvernig það er í öðrum bönkum.
Það er líka mikið um það að fólk
greiði allt á sama stað, hafi allt í
sínum viðskiptabanka, en sé ekki
hlaupandi út um alla borg til að
borga reikningana.“
- Verður þú vör við að fólk
greiði allt sem kemur í póstkassann
þeirra, jafnvel gíróseðla og happ-
drœttismiða sem það þarf ekki að
borga?
„Nei, ég verð ekki mikið vör
við það. Ég held að fólk viti alveg
hvar það standi í sambandi við
slíkt.“
- Hver heldur þú að framtíð
gjaldkerastarfsins sé?
„Það er alveg öruggt að það á
eftir að aukast enn meir, meira en
það hefur gert. Þó svo að tölvu-
þá
væðingin verði enn meiri
verða mannleg samskipti
bönkum aldrei óþörf. Fóík vill
einhvern til að tala við og spyrja
ráða,“ sagði Halldóra Erlends-
dóttir að lokum.
Þegar
Guð
bregst
Kauphallarhrunið í Wall Street
kom sumum svo á óvart að
það var ei'ns og Guð hefði
brugðist og grundvellinum
verið kippt undan tilverunni.
Þannig var það með Arthur
Kane, sómakæran fulltrúa á Fé-
lagsmálastofnuninni í Miami á
Flórída.
Sem starfsmaður Félagsmála-
skrifstofunnar hafði hann reglu-
bundnar og fastar árstekjur upp á
29000 dollara, sem dugðu honum
vel til framfærslu. En Kane var
ástríðufullur verðbréfasafnari og
hafði með mikilli eljusemi tekist
að sölsa undir sig hlutabréf sem
voru að verðgildi um 10 miljón
dollara fyrir verðfallið í Wall
Street. Kane var nær daglegur
gestur hjá verðbréfasala einum í
Miami þar sem hann hafði ávax-
tað sitt pund við góðan orðstír.
En skömmu eftir Svarta mánu-
daginn í Wall Street birtist Kane
vopnaður í verðbréfasölunni og
gerði sér lítið fyrir og skaut fors-
tjórann og særði verðbréfasalann
lífshættulega áður en hann svipti
sjálfan sig lífi.
Sannast þar hið fornkveðna,
að fyrir gullguðum gerir margur
knésig.
-Qffset fjölritun, Ljósiritun.Laser setning’
OG BOKAUTGAFA
HAMRABORG 1. 200 kópavogi