Þjóðviljinn - 18.11.1987, Síða 15
ERLENDAR FRÉTTIR
Lokadrög tilbúin
á mánudag?
Aðalsamningamaður Sovétmanna í Genf segirfáttþvítil fyrirstöðu að gengið verði
frá lokadrögum að samningi um eyðingu meðaldrœgra kjarnflauga fyrir mánudag
Aðalsamningamaður Sovét-
manna á afvopnunarráð-
stefnu risaveldanna í Genf lét svo
ummælt I gær að þrátt fyrir
minniháttar ágreining ættu
samninganefndirnar að hafa
gengið frá lokadrögum að samn-
ingi um eyðingu meðaldrægra
kjarnflauga Bandaríkjamanna og
Sovétmanna á mánudaginn kem-
ur.
Paö var Tass fréttastofan sov-
éska er hafði þetta eftir Júlí Vor-
ontsov. Hann fullyrti að Banda-
ríkjamenn settu enn fram ýms
skilyrði en það væru mest látalæti
og hann byggist ekki við öðru en
að nefndirnar lykju störfum þann
23.nóvember. Drögin yrðu því-
næst undirrituð af leiðtogum
stórveldanna í Washington þann
7.desember næstkomandi og
yrðu við það að fullgildum samn-
ingi
„Eg tel allar líkur á því að okk-
ur auðnist að telja bandarísku
samningamönnunum hughvarf
svo þeir dragi þessar óþörfu mót-
bárur sínar til baka og geri okkur
kleift að ljúka störfum á réttum
tíma,“ sagði Vorontsov.
Talsmaður bandarísku samn-
inganefndarinnar, Veda nokkur
Engel, sagði fréttamönnum í gær
að fyrirliði hennar, Max Kampel-
mann, væri líka mjög bjartsýnn
og teldi að fátt gæti orðið því til
fyrirstöðu að lokadrög yrðu til-
búin þegar leiðtogafundur skylli
á.
Vorontsov og Kampelmann,
hvor um sig með fríðu föruneyti,
hófu viðræðulotu sína um helgina
og hafa fundað stíft undanfarna
daga. Aðalásteitingsteinninn
mun vera gagnkvæmur ótti við-
ræðuaðila um svindl mótaðilans.
Samkvæmt frétt Tass mun
einkum vera deilt um þá kröfu
Bandaríkjamanna að þeir fái að
hafa eftirlit með verksmiðjum er
framleiða langdrægar kjarnflaug-
ar. Segjast þeir lafhræddir um að
Sovétmenn muni leika þann ljóta
leik að framleiða í þeim meðaldr-
ægar flaugar eftir að samningar
hafa verið undirritaðir um
eyðingu slíks góss. En Vorontsov
segir þessa kröfu ekki til umræðu
nú, um langdrægar flaugar og
verksmiðjur er þær framleiða
verði rætt á næsta stigi afvopnun-
arviðræðna risaveldanna, nú sé
um að gera að Ijúka samningum
um meðalskeytin.
-ks.
Júgóslavía
Verkamenn gegn
efnahagslögum
/ gœr og um helgina gripu ráðamenn í Belgrað
til harðra aðgerða í efnahagsmálum. Hagur
almennings versnar stöðugt
Yfir 5 þúsund verkamenn í
borginni Skopje gengu fylktu
liði um götur í gær í mótmæla-
skyni við efnahagsaðgerðir
stjórnvalda í Belgrað en þær
koma mjög hart niður á alþýðu
manna.
Að sögn sjónarvotta munu
verkamenn við Málmsteypu
Skopje, sem er stærsta borgin í
fátækasta héraði Júgóslavíu,
Makedóníu, hafa haldið að hér-
aðsþinghúsinu og haft uppi hróp
og köll og krafist launahækkun-
ar en samkvæmt efna-
hagsráðstöfunum valdhafa mun
kaup þeirra að öllum líkindum
verða lækkað á næstunni. Verka-
mennirnir eru sagðir hafa staðið
utan aðseturs þingsins í sex
klukkustundir og ekki fallist á að
hverfa á braut fyrr en yfirmaður
deildar kommúnistaflokksins í
héraðinu ávarpaði þá og hét að
taka kröfur þeirra til athugunar.
Sjónarvottarnir kváðu mót-
mælendurna hafa krafist þess að
atvinnuöryggi yrði tryggt og enn-
fremur að þess yrði gætt að allir
þjóðfélagsþegnar yrðu látnir i
sameiningu axla ábyrgð á lausn
hins geigvænlega efnahagsvanda
landsins.
Um síðustu helgi samþykkti
þingið í höfuðborginni Belgrað
ný lög um efnahagsmál er Branko
Mikulic forsætisráðherra sauð
saman og fullyrti að væru
nauðsynleg ef stemma ætti stigu
við óðaverðbólgu. Samkvæmt
þeim er bannað að hækka vöru-
verð og laun umfram ákveðið
mark, dregið er úr framkvæmd-
um ríkisins og nýir skattar lagðir
á almenning. Ennfremur gera
lögin ráð fyrir því að laun verka-
manna í fyrirtækjum sem rekin
eru með halla lækki um tíu af
hundraði. Fyrrnefnd málmsteypa
í Skopje kvað eiga í miklum erfið-
leikum og er því skiljanlegt að
verkamenn við hana óttist um
sinn hag.
En áður en lögin gengu form-
lega í gildi lét Mikulic hækka
verulega verð á eldsneyti, mat-
vælum, fargjöldum og sumum
tegundum hráefna. Og í gær bætti
hann um betur með því að fella
gengi dínarsins, gjaldmiðils
landsmanna, um hvorki meira né
minna en 24,6 af hundraði. Þetta
er í fyrsta sinn síðan árið 1983 að
stjórnvöld grípa til gengisfell-
ingar.
-ks.
Meðaldrægar Pershingflaugar Bandaríkjamanna í Vestur-Þýskalandi. Júlí Vorontsov kveður
Vopn
örlög þeirra og sovéskra systra þeirra verða ráðin fyrir mánudag.
Bretland
Jólapóstur
á tvist
og bast?
Breskir verkalýðsforingjar létu
það boð út ganga í gær að
starfsfólk póstþjónustunnar þar-
lendis hefði ákveðið í atkvæða-
greiðslu að fara i verkfall þegar
jólaannir steðjuðu að í næsta
mánuði.
Fyrirmenn verkalýðssambands
starfsfólks póstþjónustunnar sem
í eru 160 þúsund póstburðar-
menn, skrifstofumenn og fólk er
vinnur við flokkun pósts, tjáðu
fréttamönnum í gær niðurstöður
leynilegrar atkvæðagreiðslu um
vinnustöðvun í jólaösinni. Að
þeirra sögn voru um 55 af hundr-
aði félaga áfram um að fara í
verkfall til að fá samþykktar kröf-
ur um að vinnuvikan verði stytt
um þrjár klukkustundir.
Foringjarnir sögðust nú hafa
28 daga til stefnu til að ákveða
hvort boðað yrði til verkfalls el-
legar önnur atkvæðagreiðsla látin
fara fram. Þeir munu nú setjast
að samningaborði með yfir-
mönnum póstþjónustunnar en ef
viðræðurnar hafa ekki borið ár-
angur í vikulokin er talið að vinn-
ustöðvun sé óhjákvæmileg. Þá er
hætt við að 1,4 miljarðar bréfa og
böggla fari á tvist og bast í darrað-
adansi jólahaldsins.
Hið eina sem Margrét Thatc-
her forsætisráðherra hefur viljað
segja um þetta mál sagði hún í
síðustu viku. Nefnilega það að ef
póstþjónusta lamaðist sökum
verkfalls myndi hún afnema ríkis-
einokun á þjónustu þeirri og fá
hana í hendur einkaaðilum.
Starfsfólk bresku póstþjónust-
unnar fór síðast í verkfall árið
1971. Það stóð yfir í sjö vikur og
olli heilmiklu uppistandi.
-ks.
Tveir af leiðtogum Samstöðu, Lech Walesa og Zbigniew Bujak, eru í hópi sextíu manna er skorað hafa á stjómvöld að
heimila samtakafrelsi verkafólks og afnema forréttindi félaga Kommúnistaflokksins.
Pólland
Andófsmenn setja skilyroi
Pólskir stjórnarandstæðingar segja samtakafrelsi verkafólks ogafnám
forréttindaflokksbrodda við ráðningar í embœtti skilyrðiþess aðþorri
fólks fallist á efnahagsþrengingar
|| ópur þekktra
pólskra
menntamanna og leiðtoga
Samstöðu, hinnar bannfærðu
frjálsu verkalýðshreyfingar, hef-
ur skorað á stjórnvöld í Varsjá að
heimila starfsemi frjálsra verka-
lýðsfélaga og afnema forréttinda-
kerfi við ráðningar manna í
æðstu stöður. Fullyrða þeir að
mjög brýnt sé fyrir ráðamenn að
grípa til slíkra ráðstafana hyggist
þeir vinna fólk til fylgis við um-
bótaáætlun sína.
Áskoranirnar er að finna í
plaggi sem hópurinn lét frá sér
fara eftir fund í höfuðborginni í
öndverðum þessum mánuði. Þar
segir að sá vandi sem nú steðji að
Pólverjum, jafnt í stjórnmálum
og efnahagsmálum, sé svo djúp-
tækur að eingöngu sé hægt að
leysa hann með samstilltu átaki.
En til að stilla saman strengi
stjórnar og stjórnarandstöðu
þurfi frjálsar og hreinskilnar við-
ræður um alla þætti vandans.
60 menn leggja nafn sitt við
áskorun þessa. Þar á meðal eru
Samstöðuforingjarnir Lech Wa-
lesa, Bogdan Lis og Zbigniew
Bujak, andófsmennirnir Jacek
Kuron og Adam Michnik og
Henryk nokkur Samsonowicz,
fyrrum rektor Varsjárháskóla.
Það er kunnara en frá þurfi að
segja að þann 29. nóvember
næstkomandi munu Pólverjar
ganga að kjörborði og greiða at-
kvæði um áætlun stjórnarinnar
um strangar aðhaldsaðgerðir í
efnahagsmálum. Leiðtogar
landsins hafa heitið því að fallist
þegnar þeirra á efnahagsáætlun-
ina muni þeir slaka nokkuð á
klónni í stjórnmálum.
Plagg sextíumenninganna
kvað hafa verið sett saman þann
7. nóvember síðastliðinn en kom
ekki fyrir sjónir almennings fyrr
en í gær. Þar segir: „Landsmenn
munu ekki geta sýnt ráða-
mönnum traust og fallist á áætl-
anir þeirra um nýsköpun í efna-
hagsmálum og þjóðlífi nema þeir
tryggi verkamönnum samtaka-
frelsi. Það er útí hött að ræða um
umbætur og endurreisn þegar
Samstaða hefur ekki lagalegan
rétt til starfa.“
Að endingu fullyrða höfundar
plaggsins að alþýða manna skelli
skollaeyrum við hjali ráðamanna
um jafnan rétt og jöfn tækifæri
allra þegna nema þeir afnemi
„Nomenklatura" kerfið, það er
að segja hætti að gera aðild að
Kommúnistaflokknum að skil-
yrði fyrir því að menn séu ráðnir í
mikilvægar stöður og embætti.
-ks.
Miðvlkudagur 18. nóvember 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15