Þjóðviljinn - 18.11.1987, Side 19

Þjóðviljinn - 18.11.1987, Side 19
Akureyri Jónas og Þorvaldur fara ekki Knattspyrna Æfir með Bournemouth Ingólfur Jónsson, sem lék með Selfyssingum í sumar, æfír með 2. deildarliði Bournemouth í Eng- landi. Ingólfur er við nám í Englandi og hefur æft og leikið með vara- liði Bournemouth. Hann mun þó leika með Sel- fyssingum næsta sumar. -ibe í kvöld eru tveir landsleikir í Laugardalshöll. íslenska lands- liðið mætir Pólverjum og U-21 árs liðið leikur gegn Portúgal. Leikur íslands gegn Póllandi er sá fyrri af tveimur áður en liðið heldur norður. Þar verður stór- mót þarsem ísland leikur gegn Póliandi, Portúgal og ísrael. Pólverjar eru með mjög sterkt landslið og íslendingum hefur ekki gengið sérlega vel gegn þeim. Þjóðirnar hafa leikið 29 leiki, íslendingar sigrað í 8 leikjum, einum hefur lokið með jafntefli, en Pólverjar hafa sigrað í 20 leikjum. Islendingar hafa hins- vegar sigraði í þremur af fjórum síðustu viðureignum þjóðanna. Pólverjar eru með sitt sterk- asta iið. Þeir hafa æft stíft að und- anfömu og verða án efa erfiðir viðureignar. íslendingar eru einnig með sitt besta lið, en Bjami Sigurðsson komst ekki í leikinn. Portúgal og ísrael em ekki þekkt fyrir afrek í handknattleik, en hafa þó náð ágætum árangri. Báðar þjóðirnar leika hraðan og skemmtilegan handknattleik. Islendingar fá svo fleiri þjóðir í heimsókn fyrir jól. Tvær sterk- ustu þjóðir heims, Júgóslavía og Suður-Kórea koma hingað um miðjan desember og leika lands- leiki í Laugardalshöll. Það er ekki aðeins A- landsliðið sem stendur í ströngu. U-21 árs liðið er nú Iangt komið í undirbúningi fyrir Heimsmeistar- akeppni U-21 í Júgóslavíu í upp- hafi desember. Þar verður leikið gegn Norð- mönnum, Sovétmönnum og Ungverjum og til þess að komast í milliriðil verður ísland að sigra í tveimur af þremur leikjum. Þess- ir leikur eru því stór hluti í undir- búningi landsliðsins. Þessir landsleikir eru einnig mikilvægir fyrir íslendinga í bar- áttunni fyrir að fá að halda Heimsmeistarakeppnina 1994. Það er mikilvægt að spila gegn sem flestum þjóðum og ef svo færi að ísland fengi keppnina þá yrði að öllum líkindum einn riðill leikinn á Akureyri og Húsavík. Leikur íslands og Póllands hefst kl. 20.30 og að honum lokn- um leikur U-21 árs liðið gegn Portúgal. -ibe Dýr dreki Dreki sem húðflúraður var á handarbak kom upp um þann sem kastaði kampavínsflösku í höfuðið á Hugo Sanchez í leik Real Madrid gegn Sestao í bika- rkeppninni. Ahorfandi að leiknum sá húð- flúraða hönd rísa upp úr mannf- jöldanum og kasta kampavíns- flösku inná völlinn. Það vildi svo ekki betur til en svo að kampa- vínsflaskan lenti á höfði Sanchez og varð að sauma 11 spor. Þessi áhorfandi þekkti svo sökudólginn á húðflúrinu og lög- reglan handtók hann skömmu síðar. Flöskukastarinn er 19 ára og er „góðkunningi" spænsku lögreglunnar. -Ibe/Reuter Akureyringarnir Jónas Ró- bertsson, Þór og Þorvaldur Ör- lygsson, KA, hafa ákveðið að lcika áfram með liðum sinurn. Jónas Róbertsson fékk tilboð um að gerast þjálfari Reynis á Árskógsstönd, en hætti við og mun leika með Þór. Þorvaldur Örlygsson átti í við- ræðum við Skagamenn, en ákvað að leika áfram með KÁ. -HK/Akureyri Gu&mundur Guðmundsson skorar í landsleik gegn Pólverjum í fyrra. Hann verður að sjálfsögðu á fullri ferð með landsliðinu i kvöld. Handbolti Stórleikir í Höllinni ÍÞRÓTTIR 1.......... Spánn Stjörnugjöf Þjóðviljans Fyrirliðinn og þrír marianenn Efstir þegar íslandsmótið er hálfnað Fram Pétur sá besti Pétur Ormslev var útnefndur besti leikmaður Fram í sumar á uppskeruhátíð félagsins. Friðrik Friðriksson fékk verð- laun fyrir bestu ástundun og Ormarr Örlygsson var einnig heiðraður. Jórunn Frímannsdóttir var kjörin besti leikmaður meistara- flokks kvenna og Hrafnhildur Hreinsdóttir var heiðruð fyrir góða frammistöðu í sumar. Það var Steinar Þór Guðgeirs- son sem var markakóngur Fram í sumar. Hann skoraði 34 mörk í leikjum 3. flokks. -ibe Landsliðsfyrirliðinn og þrír markmenn eru efstir í Stjörnu- gjöf Þjóðviljans í handboltanum. Islandsmótið er nú hálfnað og því ekki úr vegi að líta á hvaða leik- menn standa best. Stjörnugjöfin virkar þannig að í hverjum leik er valinn „maður leiksins". Sá sem oftast hlýtur þá nafnbót hlýtur sæmdarheitið Stjörnuleikmaður Þjóðviljans 1988. Nú er níu umferðum lokið og fjórir leikmenn hafa þrisvar sinn- um verið valdir menn leiksins. Það eru Þorgils Óttar Mathiesen FH, Kristján Sigmundsson Vík- ingi, Gísli Felix Bjarnason KR og Hrafn Margeirsson ÍR. Alls hafa 29 leikmenn verið valdir „menn leiksins“. Þar af eru 12 markmenn. Þetta er hátt hlut- fall, en kemur ekki ýkja mikið á óvart, enda hefur markvarsla verið mjög góð á íslandsmótinu. Staðan í Stjörnugjöfinni er þannig: 3 Þorgils Óttar Mathiesen FH, Gísli Fel- ix Bjarnason KR, Kristján Sigmundsson Vikingi, Hrafn Margeirsson IR. 2 Guðmundur A. Jónsson Fram, Sig- mar Þröstur Óskarsson Stjörnunni, Guðmundur Hrafnkelsson UBK, Konr- áð Olavsson KR, Hans Guðmundsson UBK, Guðmundur Þórðarson ÍR, Vald- imarGrímsson Val, Héðinn Gilsson FH. 1 Jakob Sigurðsson Val, Gfsli Helga- son KA, Skúli Gunnsteinsson Stjörn- unni, Einar Þorvarðarson Val, Frosti Guðlaugsson [R, Óskar Helgason FH, Bjarki Sigurðsson Víkingi, Karl Þráins- son Víkingi, Brynjar Kvaran KA, Gylfi Birgisson Stjörnunni, Bergsveinn Berg- sveinsson FH, Júlíus Gunnarsson Fram, Axel Stefánsson Þór, Júlíus Jón- asson Val, Vigfús Þorsteinsson ÍR, Ólafur Gylfason [R og Sigurður Páls- son, Þór. -ibe 1X2...1X2...1X2... 1X2...1X2... 12. vika Arsenal-Southampton Í2>E|átÍl 2*5 Q h Q CC CO co c/> 111111111 Chariton-Ckjventrý Luton-Tottenham Oxford-Watford Portsmouth-Everton 2 x 2 2 x 1 2 x x 12 112 1112 1 11x11112 222222222 Q.P.R.-Newcastle WestHam-Nott.Forest Wimbledon-Manch.United 1 1 1 1 1 í 1 1 1 Blackburn-Crystal Palace Leicester-Bradford 2 12x2x21 1 Manch.Ccity-Birmingham Plymouth-Middlesbro Sfðasta vika var sú næst besta hjá islenskum getraunum í vetur. Alls voru 8 með 12 rétta og fókk hver kr. 74.265. Með 11 rétta voru 212 og tær hver kr. 1.201. Þorglls Óttar Mathlesen, landsliðsfyrirliði er efstur af útileikmönnum í stjömu- gjöf Þjóðviljans. Mi&vlkudagur 18. nóvember 1987 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 19

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.