Þjóðviljinn - 19.11.1987, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 19.11.1987, Blaðsíða 2
FRETTIR Svipmynd frá þeim fræga stað Skattstofunni. Ljóst er að skattaútreikningar einfaldast til mikilla muna með tilkomu staðgreiðslukerfisins, en ýmsir eru ósáttir við að tekjuskattshlutfallið verði hið sama af lágum jafnt sem háum launum. Staðgreiðsla skatta Tilhlakk hjá hátekjufólki Miliiþinganefnd um staðgreiðslu skatta skilar áliti. Reiknað með 28.5% tekjuskatti á alla og útsvari upp á6.25%. Persónuafsláttur 15 þúsund á mánuði. Fólk með meðaltekjur hækkar ísköttum —SPURNINGIN— Hefur þú gert þér hug- mynd um hvaöa áhrif hiö nýja staðgreiðslukerfi skatta muni hafa á skatt- byröi þína? GuðniJóhannsson: Já, ég held að þeir muni lækka. Mér líst vel á þetta kerfi. Jóhann Sigurðarson: Nei, það hef ég nú ekki gert. Ég veit ekki enn hvaða áhrif það mun hafa, en býst við að það verði ósköp svip- að. Geirþrúður Pálsdóttir: Nei, ég hef ekki gert það, en ég er fylgjandi staðgreiðslukerfi skatta. Þá veit maður hvað maður hefur í hönd- unum, þannig að þetta kerfi er miklu þægilegra. Alda Aðalsteinsdóttir: Nei, ég hef lítið kynnt mér þetta, en líst samt vel á það sem ég hef heyrt um það. Flosi Magnússon: Já, skattarnir mínir munu hækka. Þetta kerfi er til muna betra, því þá verða ekki þessi miklu vanskil á opin- berum gjöldum. Það verður samt erf- itt fyrst í stað hjá þeim sem eru með langan skuldahala. Milliþinganefnd um stað- greiðslu skatta hefur nú skilað álitsgerð, en af hálfu fjár- málaráðuneytisins var það verk- efni nefndarinnar að sjá til þess að skattbyrðin í staðgreiðslukerf- inu yrði hin sama og hún var á árinu 1986. Flatur tekjuskattur Nefndin telur að miðað við óbreytt skatthlutfall ríkisins, 28.5%, sé unnt að ná hinni á- formuðu skattbyrði, að því til- skildu að persónuafsláttur verði 180 þúsund krónur á árinu 1988, eða 15 þúsund krónur á mánuði. Miðáð er við að útsvarið verði 6.25%, og telur nefndin að það hlutfall sé hið sama að raungildi og útsvarið er á yfirstandandi ári. Félagsmálaráðherra mun síðan á- kveða innheimtuhlutfall útsvars- ins, en þess ber að gæta að sveitarfélög hafa heimild í lögum til að hafa útsvarið allt að 7.5%. Þar gæti því orðið um að ræða bakreikninga frá sveitarfélögum á miðju ári, eða þegar endanleg álagning opinberra gjalda fer fram í júlí. Það er ljóst að barnaleikur verður fyrir launafólk að reikna út skattinn sinn. Fyrst er saman- lagður tekjuskattur og útsvar - 34.75% - dreginn frá launum, en síðan er 15 þúsund króna per- sónuafslætti skilað. Einstakling- ur sem hefur 70 þúsund krónur í laun á mánuði greiðir samkvæmt þessu ríflega 9 þúsund krónur í skatta. Lágar barnabætur Barnafólki er ekki hossað í staðgreiðslutillögunum fremur en vant er; Tryggingastofnun greiðir barnabætur, og nema þær um 16 þúsund krónum á ári með einu barni, en eins og kunnugt er dugir þvílík upphæð fyrir dag- mömmuplássi í rúman mánuð. Fyrir tvö börn eru greiddar um 23 þúsund krónur. Merking launahugtaksins víkkar til muna með tilkomu staðgreiðslukerfisins og útfærsl- unni á því, og mun nú taka til bílastyrkja, dagpeninga, ýmissa launatengdra greiðslna og hvers kyns fríðinda og hlunninda, trygginga-, skaða- og vátrygg- ingabóta, höfundar- og heiðurs- launa og svo framvegis. Samkvæmt hinu nýja fyrir- komulagi mun skattstjóri senda launafólki skattkort, og er þess að vænta að glaðningurinn skili sér inn um bréfalúguna um næstu mánaðamót. Kort þetta á síðan að afhenda launagreiðanda fyrir upphaf greiðsluárs eða þegar maður ræður sig í vinnu. Launa- greiðandi dregur þann persónu- afslátt sem skráður er á skattkort- ið frá reiknuðum skatti launa- mannsins. Persónuafslátturinn er endurmetinn 1. júlí ár hvert í samræmi við breytingu lánskjara- vísitölu frá 1. desember árið á undan til 1. júní á staðgreiðsluár- inu. Launamaður sem er í hjóna- bandi eða sambúð sem veitir rétt til samsköttunar má afhenda launagreiðanda sínum skattkort makans ef sá hefur engar tekjur. Persónuafsláttur tekjulausa mak- ans kemur hinum útivinnandi þá til góða sem nemur 80%. Húsnæðisbaslarar munu að lík- indum milli vonar og ótta er þeir líta til nýs skattkerfis; þeir sem eru að kaupa eða byggja í fyrsta skipti fá svokallaðar húsnæðis- bætur í sex ár, 44 þúsund krónur á ári miðað við núgildandi verðlag. Meðal nýmæla í tillögum nefnd- arinnar hækkaður sjómannaaf- sláttur, en hann mun nema rí- flega 400 krónum á dag. Hátekjufólki hyglað Milliþinganefndin efndi til blaðamannafundar í gær og kynnti þar álitsgerð sína. í máli nefndarformanns, Kjartans Jó- hannssonar alþingismanns, kom fram að einhugur hefði ríkt um úrvinnsluna í flestum greinum. Þó urðu nokkrir til að viðra á- greiningsefni á fundinum. Óli Þ. Gudbjartsson, Borgara- flokki, sagðist óttast að ekki yrði staðið við þær forsendur kerfis- breytingarinnar að skattbyrðin héldist óbreytt. Þá var hann ósáttur við að persónuafsláttur skuli aðeins reiknaður út tvisvar á ári og sagði að slíkt kæmi launa- fólki í koll á verðbólgutímum. Kristín Sigurðardóttir, Kvennalista, sagðist vilja mánað- arlega framreiknun persónuaf- sláttar, og að hátekjuskattþrepi yrði komið á. Ragnar Árnason, Alþýðu- bandalagi, taldi líkt og Kristín að hærra skattþrep þyrfti að koma til fyrir hæstu tekjur. Hann sagði að skattkerfisbreytingin kæmi hin- um verst settu til góða, en einnig hinum tekjuhæstu, þar sem tekjuskattsprósentan væri hin sama á allar tekjur, og taldi Ragnar það fráleitt. Þá sagði hann að skattbyrðin ykist á þeim hluta launafólks sem hefur miðl- ungstekjur. Milliþinganefndin var skipuð fulltrúum þingflokkanna, ASÍ, VSÍ og fjármálaráðuneytisins. Auk þeirra sem þegar hafa verið nefnd áttu sæti í nefndinni þeir Geir Haarde, Sjálfstæðisflokki; Sigurgeir Bóasson, Framsóknar- flokki; Björn Þórhallsson, Al- þýðusambandi íslands; Ólafur Nilsson, Vinnuveitendasam- bandinu og Indridi H. Þorláks- son, fulltrúi fjármálaráðuneytis- ins. HS I RSK< KissKATTsnoni Skattkort 1988 \ K.ftftmtíia ' Kðnmtaiamaka útgánidasuf I Na1n - heknsh • póststöó Naln maka SkaílMutlaH stadgfftióslu HiutfeH peíjóRuafcSísttsw FðrMuualsia-M Skaitkort þatta sýnir skatthiutlall stadgreiðslu. hluttaii persónuatslattar svo og mánaðartega >;árnæd persónuatstattar Fiarhæð persónuafsláttar breytist 1 jutí 1988 tsamræmi við hækkun lánskjaravísitótu ftð t desember'987 til 1 jum 1988. > FllKiSSKATTSTJORI 2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINNl Fimmtudagur 19. nóvember 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.