Þjóðviljinn - 25.11.1987, Page 11
ÖRFRÉTTÍR
ERLENDAR FRETTIR
Afvopnunarsamningur risaveldanna
Allt klappað og klárt!
Shultz og Shevardnadze luku ígœrgerð samnings um
eyðingu meðaldrœgra kjarnflauga risaveldanna í Genf
Loksins, loksins! Þeir mega vel við una þessir tveir, Shevardnadze og Shultz.
ítalska verka-
lýðshreyfingin
hefur látið það boð út ganga að
um 20 miljónir verkamanna muni
taka sér frí frá störfum í fjórar
klukkustundir í dag í mótmæla-
skyni gegn sparnaðarráðstöfum
þeim er ríkisstjórn Giovannis
Gorias segir að séu bráðnauð-
synlegar ef vinna eigi bug á verð-
bólgu og bæta ítalskan efnahag
eftir verðbréfahrunið í fyrra mán-
uði. Litið er á vinnustöðvunina
sem styrkleikapróf fyrir hina
hefðbundnu verkalýðshreyfingu
sem mætt hefur vaxandi andófi
frá svonefndum Coba upp-
reisnarhópum verkamanna á
vinnustöðum er ítrekað hafa
skipulagt verkföll í trássi við
hana.
Uppreisn
verkamanna
er yfirvofandi í Júgóslavíu ef
stjórnvöld vinda ekki bráðan bug
að því að leysa efnahagskreppu
landsins. Þetta staðhæfði Zvon-
imir Hrabar, forseti Alþýðusam-
bands landsins, á fréttamanna-
fundi í gær. Hann sagði að ef síð-
ustu efnahagsaðgerðir ríkis-
stjórnarinnar skiluðu ekki skjó-
tum árangri gæti svo farið að
svipuð staða kæmi upp í Júgósl-
avíu og kom upp í Póllandi árið
1980. Hann bætti því við að á
þessu ári hefðu yfir 200 þúsund
verkamenn lagt niður vinnu í
lengri eöa skemmri tíma og það
ættu ráðamenn að láta sér að
kenningu verða.
Fulltrúar Sovétríkjanna og
Bandarfkjanna tilkynntu í
gær að þeir hefðu náð endanlegu
samkomulagi um samning um
eyðingu allra meðaldrægra
kjarnflauga sinna, fyrsta samn-
ing stórveldanna frá upphafí
kjarnorkualdar um útrýmingu
ákveðinnar tegundar slíkra
vopna.
Það voru þeir félagar og kol-
legar George Shultz, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, og
Eduard Shevardnadze, utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna, er tjáðu
mönnum þetta í Genf í gær. Þeir
sögðu nú ekkert því til fyrirstöðu
lengur að leiðtogafundur risa-
veldanna færi fram í Washington
dagana 7.-10. desember en þar
öðlast samningurinn gildi við
undirritun Ronalds Reagans og
Mikhaels Gorbatsjovs.
„Við höfum nú rutt öllum ljón-
um úr vegi samningsins um með-
aldrægu kjarnflaugarnar,“ sagði
Shultz á fréttamannafundi utan
aðalstöðva Bandaríkjamanna í
gær og Shevardnadze stóð hon-
um við hlið ogt kinkaði kolli af
áfergju.
Shevardnadze tók til máls: „Ég
er fullviss um að árangurinn af
starfi okkar hér sé í þágu allra
þjóða heimsins og við efumst
ekki um að leiðtogafundurinn í
Washington verður árang-
ursríkur. Þetta er söguleg stund.
Gleðifréttirnar bárust í fundar-
hléi á síðari degi viðræðna Shultz
og Shevardnadze en þeir liöfðu
ferðast til Genf til að leiða til
.lykta ýmsan ágreining er enn ríkti
um eftirlitsmál og fleira. Það
tókst og því gátu ráðherrarnir
með góðri samvisku skálað í
kampavíni í gær.
Það hefur tekið sex ár að
klastra þessum samningi saman
enda þekur hann rúmar 100 blað-
síður. Samkvæmt honum mun
yfir þúsund meðaldrægum
kjarnflaugum komið fyrir katt-
arnef á næstu þrem árum. Þorri
þeirra er nú staðsettur í Evrópu
en um 100 slíkar flaugar eru í As-
íuhluta Sovétríkjanna.
Fyrri samningar stórveldanna
um kjarnvopn, svo sem tveir
SALT samningar (um langdræg-
ar fláugar), hafa átt að hindra
frekari framleiðslu kjarnvopna
en ekki stuðla að eyðileggingu
þeirra.
Shultz sagði í gær að nú væri
aðeins eftir að ffnpússa tungutak
samningsins, svo sem samræma
ensku og rússnesku textana, en
um það væru minni spámenn
fullfærir.
-ks.
Haiti
Forseti kjörinn um helgina
A sunnudaginnfaraframforsetakosningar á Haiti ífyrsta
skipti frá því áður en Duvalierslektið hófst til valda
10 þúsund biblíur
verða brátt sendar til Sovétríkj-
anna. Það eru góðgerðarsamtök
í Svíþjóð er gefa þessa gjöf en
kostnaður við útgáfu og send-
ingu eintakanna mun vera
greiddur af kirkjum á öllum
Norðurlandanna. Biblíurnareru á
rússnesku og mun rétttrúnaðar-
kirkjan rússneska annast dreif-
ingu þeirra. Um 30 miljónir So-
vétmanna heyra henni til en
kirkjuleiðtogar hafa kvartað
undan biblíuskorti við erlenda
gesti að undanförnu enda þykj-
ast stjórnvöld hafa öðrum hnöpp-
um að hneppa en að standa í
útgáfu heilagrar ritningar. Þetta
mun vera í fyrsta skipti í 40 ár að
rétttrúaðir fá að taka á móti biblíu-
sendingu erlendis frá.
2000 Ijóðskáld
kirjuðu sín fegurstu Ijóðmæli í
eyru (rakskra dáta í gær. Þannig
er mál með vexti að allur þessi
aragrúi bragsmiða er samank-
ominn á alþjóðlegri Ijóðlistarhátíð
í Bagdað, einskonar ofvöxnum
Besta vini Ijóðsins. Menningar-
málaráðherra íraks tjáði þeim í
fyrradag að nú væri svo komið að
þjóðin ætti í nafntogaðri styrjöld
við granna sinn í austri, hvort þeir
vildu ekki gera svo vel að stytta
hermönnum á vígstöðvum stund-
ir með kvæðaflutningi. Auðsótt
mál og í Basra mátti í gær heyra
að flutt var bundið mál við undir-
leik fallstykkja og vélbyssna.
Kínverjar
hafa eignast nýjan forsætisráð-
herra en sá er enginn annar en Li
Peng, fóstursonur Chous heitins
Enlais er um áratugaskeið
gegndi þessu sama embætti. Li
er 59 ára gamall og því í hópi
yngri forystumanna kínverskra.
Hann er verkfræðingur að mennt
og ekki sagður heyra til neinni
klíku í kommúnistaflokknum.
Hann tekur við starfinu af Zhao
Ziyang sem kjörinn var formaður
flokksins á þingi hans fyrir
skemmstu. Sérfræðingar telja að
Li hafi ekki ólíkar skoðanir og
forveri hans en að hann sé gætn-
ari maður og gæti þess að troða
(engum um tær.
— penna er nú mikil á Haiti enda
9 ekki nema örfáir dagar þang-
að til forsetakosningar fara þar
fram í fyrsta sinni í þrjátíu ár.
Ofbeldisaðgerðir gegn frambjóð-
endum og árásir á kosningamið-
stöðvar að næturþeli hafa færst í
vöxt að undanförnu.
Meira en þriðjungur þriggja
miljóna Haitibúa hafa látið skrá
sig til þátttöku í kosningunum er
fram fara á sunnudaginn.
Ákvörðun um að halda þær var
tekin þegar Jean-Claude „baby
doc“ Duvalier var steypt af stóli í
febrúar í fyrra.
Þetta verður fyrsta forsetakjör
frá því áður en Duvalier hyskið,
„baby doc“ og faðir hans, Fra-
ncois „papa doc“ Duvalier, söls-
aði undir sig alræðisvöld á Haiti
árið 1957.
Það fór ekki að bera á ofbeldi í
kosningabaráttunni fyrr en þann
2. nóvember síðastliðinn eftir að
Bráðabirgðakjörráð landsins úr-
skurðaði að tólf af 35 lysthafend-
um væru ekki hæfir í forsetafram-
boð.
Einn þeirra er Clovis nokkur
Desinor en hann var um skeið
fjármálaráðherra „papa docs“.
Ákvörðun kjörráðsins um að úti-
loka hann frá framboði á rætur að
rekja til ákvæða kosningalaga um
það að engir fyrrum samstarfs-
manna Duvalierfeðga né einstak-
lingar er gert hafa sig seka um
mannréttindabrot séu kjör-
gengir.
Ofbeldið jókst síðan í fyrri viku
er kjörráðið lét það boð út ganga
að um fimm af hundraði fram-
bjóðenda til setu á löggjafarsam-
kundunni væru óhæfir. Ríkisút-
varpið flutti fréttir af skotbar-
dögum víðsvegar í bæjum úti á
landsbyggðinni en lét ógetið um
mannfall.
Af þeim 23 frambjóðendum til
forsetaembættis er kjörráðið gaf
grænt ljós eru fjórir helst taldir
líklegir til að hreppa hnossið.
Þeir eru þessir:
Sylvio Claude, frambjóðandi
Kristilega demókrataflokksins.
Hann er prestur og mótmælend-
atrúar. Claude sat eigi sjaldnar
en átta sinnum í dýflissu á vald-
askeiði Duvalierfeðga og sætti
ósjaldan pyntingum. Hann er nú í
felum eftir að byssubófar réðust á
kosningamiðstöð hans fyrr í þess-
um mánuði.
Louis Bejoie er kandídat Þjóð-
arflokks um iðnað og landbúnað.
Átökog
Hossain Mohammad Ershad,
forseti Bangladesh, gaf undir-
sátum sínum í gær fyrirmæli um
að hlífa sér hvergi og beita öllum
tiltækum ráðum til að kveða nið-
ur andóf andstæðinga sinna en að
undanförnu hefur allsherjarverk-
fall lamað allt athafnalíf í
landinu.
Embættismenn stjórnarinnar
kváðu forseta sinn hafa gefið lög-
regluþjónum fyrirmæli um að
Ieita í hverju einasta húsi höfuð-
borgarinnar að meintum spreng-
juframleiðendum og handtaka
sérhvern stjórnarandstæðing sem
væri með uppsteyt. Taugaveiklun
Ershads á náttúrlega rætur að
rekja til þess að fjendur hans hafa
haldið uppi linnulausum mót-
mælum gegn stjórn hans um
tveggja vikna skeið víðsvegar um
Bangladesh.
Tíu manns hafa látið lífið frá
því allsherjarverkfallið skall á.
Það voru leiðtogar 21 stjórnar-
andstöðuflokks er hvöttu til
vinnustöðvunarinnar í síðasta
mánuði til að freista þess að
Hann sneri heim úr útlegð í Pu-
erto Rico þegar „baby doc“ var
steypt af stóli. Faðir Bejoies og
alnafni var mótframbjóðandi
„papa docs“ í síðustu frjálsu for-
setakosningunum á Haiti árið
1957. Þá laut hann í lægra haldi.
Marc Bazin er frambjóðandi
Hreyfingar um endurreisn lýð-
ræðis á Haiti. Bazin er fyrrum
starfsmaður Alþjóðabankans og
var stutta stund fjármálaráðherra
„baby docs“ sem rak hann fyrir
að voga sér að gera tengdaföður
sínum að greiða skatt.
Gerard Gourgues er frambjóð-
andi Lýðræðisfylkingarinnar.
Hann setti á stofn Mannréttinda-
nefnd Haitis árið 1978 og var um
skeið dómsmálaráðherra Þjóð-
stjórnarráðsins sem farið hefur
með völd í landinu í tæp tvö ár.
Ef enginn frambjóðenda
hreppir hreinan meirihluta at-
kvæða á sunnudag, sem trauðla
verður þar eð 23 gefa kost á sér,
verður kosið á milli tveggja efstu
þann 20. desember næstkom-
andi.
-ks.
Bangladesh
allsherjarverkfall
koma forsetanum frá völdum en
hann hefur deilt og drottnað í
landinu í bráðum sex ár.
Upplýsingamálaráðherra
Bangladesh, Anwar einhver Za-
hid, tjáði fréttamönnum í gær að
fyrirtæki í landinu hefðu tapað
um 50 miljónum bandaríkjadala
á dag þann hálfa mánuð sem
verkfallið hefur staðið. „Efna-
hagurinn er á heljarþröm. Ef svo
heldur sem horfir verður hann
rjúkandi rústir innan skamms."
En Ershad lætur engan bilbug.
á sér finna. Hann þverneitar að
láta af embætti og staðhæfir að
vinstrimenn standi að baki verk-
fallinu og aðförinni að sér.
Lögregluyfirvöld kveða mörg
hundruð einstaklinga hafa slasast
í átökum stjórnarsinna og stjórn-
arandstæðinga á götum höfuð-
borgarinnar Dhaka að undan-
förnu. Yfir 1,500 andófsleiðtogar
og verkamenn hefðu verið hand-
teknir.
í gær var allt athafnalíf lamað í
Bangladesh, ekkert var unnið í
verkssmiðjum og verslanir og
skrifstofur voru lokaðar.
í Brahmanbariahéraði í aust-
urhluta landsins brenndu
mótmælendur brúðu sem gerð
hafði verið í mynd Ershads, börð-
ust þvínæst dágóða stund við
stuðningsmenn forsetans og
brutu rúður í bönkum og verslun-
um að sögn lögreglumanna.
í Dhaka þrömmuðu stjórnar-
andstæðingar um helstu götur og
hrópuðu slagorð gegn
stjórnvöldum. Sveitir herlög-
reglumanna fylgdust grannt með
en aðhöfðust ekkert.
Ershad hófst til valda í upp-
reisn herforingja árið 1982 og
ríkti í trássi við guð og menn þar
til að hann lét kosningar fara
fram í október í fyrra. Þá vann
hann glæsilegan „sigur“ en fáum
blandast hugur um að hann hafði
rangt við. Hann lét svo um mælt í
ávarpi til liðsforingjaefna í gær að
hann myndi „berjast til síðasta
b!óðdropa“ áður en hann léti af
völdum. Hann sagði herinn verða
að standa að baki sér á þessari
örlagastundu því annars kynni
illa að fara.
-ks.
Mi&vikudagur 25. nóvember 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11