Þjóðviljinn - 31.12.1987, Side 2

Þjóðviljinn - 31.12.1987, Side 2
Innlendur myndaannáll Tíðin var með eindæmum góð síðari hluta vetrar. Á sama tíma og íbúar á meginlandi Evrópu þurftu á öllum skjólklæðnaði að halda til að fá yl í kroppinn, gat landinn sprangað um á vorklæðnaði. Jarðargróöur fór ekki varhluta af hlýindunum og snjó- leysinu. í garðinum hennar Elísabet- ar Gísladóttur við Hringbrautina í Reykjavík voru blómplöntur í blóma í mars sem um mitt sumar væri. Kári var þó ekki langt undan og gekk kuld- akast yfir um miðjan mars, sem stefndi kulvísum gróðri í tvísýnu. i^lbert Guðmundsson var mikið í fréttum á árinu. Fyrst vændi Þor- steinn Pálsson hann um að fara kringum skattalögin meðan hann var fjármálaráðherra og Albert var gert að segja af sér ráðherradómi og síðar lýsti Þorsteinn því yfir að ekki kæmi til greina að Albert kæmi til álita sem ráðherraefni Sjálfstæðisflokksins að loknum kosningum. Við þetta gátu stuðningsmenn Alberts ekki unað og var því ráðist í stofnun Borgaraflokks- ins, sem bauð fram í öllum kjördæm- um og hreppti 6 þingmenn. Sverrir Hermannsson mennta- málaráðherra, gerðist vígfimur mjög í janúar. Hirti hann embættismenn fyrir að fara fram úr fjárveitingum. Til að orð hans vægju þyngra á metunum, gerði hann sér lítið fyrir og skiþaði Sturlu Kristjánssyni, fræðslustjóra Norðurlands eystra að hirða þokann sinn. Viðbrögðin við brottrekstrinum urðu þó harðari en Sverri gat órað fyrir. Sturla hóf lögsókn vegna ótíma- bærs brottreksturs úr starfi og varði fjárútlát sín fimlega með tilvísun í lög- boðnar skyldur fræðslustjóra hvað sem knappt skömmtuðum fjárveiting- um fjárlaga liði og fræðsluráðsmenn nyrðra vildu sem minnst af Sverri vita. Ýmsum þótti koma vel við vondan þegar ugp komst um strákinn Tuma og það spurðist að skrifstofa mennta- málaráðuneytisins hefði stigið út fyrir fjárlagarammann í ráðherratíð Sverr- is. Sykurmolarnir gerðu garðinn frægan í Bretlandi á árinu. Víðlesið og virt breskt tónlistarblað Melody Maker, mærði hljómsveitina í hvívetna. Erlendir hljómplötuútgefendur og „umbar" buðu hljómsveitarmeðlimum „gull og ræna skóga“. líkisstjórnin vildi í upphafi stjórnarferilsins selja hlut ríkisins í Útvegsbankan- um. Hlutirnir voru boðnirfalir og reyndust lysthafendurfleiri en kannski var búist við í fyrstu. Sambandið taldi sig svo gott sem búið að kaupa er hópur fjármál- aspekúlanta gerði óvænt tilkall til hlutabréfanna. Eftir miklar vífilengjur afréð viðskiptaráðherra að hætta við allt saman að sinni. Erlendir veðbankar og. jnnlendir poppspekúlantar voru nokkuð vissir um frækna frammistöðu íslendinga í Söngvakeppni evrópskra sjónvarps- stöðva, sem haldin var í Belgíu s.l. vor. Ung söngkona, Halla Margrét Árnadóttir, hafði heillað íslenska sjónvarpsáhorfendur í forkeppninni hér heima, en það dugði ekki til. Is- lenska framlagið féll ekki í kramið hjá dómnefndunum úti. í annað sinn urðu íslenskir að láta sér lynda að verma eitt af síðustu sætunum í keþpninni. lenningin blómstraði á árinu. Bókaþjóðin virtist óseðjandi á fagrar listir. Ávöxtur þessa listáhuga kom í Ijós í upþhafi árs. íslenska óþeran sleit þarnsskónum og er því komin fyrir vind. Á fimm ára afmæli óperunnar, var Aida á fjölum hennar. 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 31. desember 1987

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.