Þjóðviljinn - 31.12.1987, Síða 3

Þjóðviljinn - 31.12.1987, Síða 3
Ný flugstöð á Keflavlkurflugvelli var vigö með pomp og prakt skömmu fyrir kosningar. Fannst mörgum mikill kosningaþefur af vígslunni, þar sem húsiö var langt í frá frágengið. Eftir mikinn ánægjusöng um hve vel hefoi tekist til, vaknaði þjóðin upp við vondan draum síðar á árinu, þegar í Ijós kom að ærið margir bakreikningarnir voru ógreiddir við smiði byggingarinnar og kostnaðurinn hafði farið úr böndum. ^Javfð Oddsson borgarstjóri sló aðra „fyrirmenn" út I bílakaupum fyrir opinbert fé. Meirhluti borgarstjórnar valdi að kaupa bandarlskan Kádilák á 2,9 miljónir króna fyrir borgarstjóraembættið. Kádilákurinn leysti af þriggja ára gamlan Buick sem Davíð hafði haft til umráða. Minnihlutinn í borgarstjórn gerði að tillögu að ráðstöfunarfé borgarstjóra til bílakaupa yrði lækkað í 1,9 miljónir króna og mismuninum varið til að efla ferðaþjónustu fatlaðra. I^jaradeilur og verkföll settu nokkuð svip sinn á fyrri hluta árs. Mestur hiti hljóp í deilu sjómanna og ríkisstarfsmanna, - einkum kennara og starfsfólks í heilbrigðiskerfinu, sem beittu verkfallsaðgerðum og hópuppsögnum til að knýja á um bætt kjör. Af völdum kjaradeilna ríkis og opinberra skapaðist um tíma neyðarástand f heilbrigðis- og skólakerfi. f^egar vetri tók að halla, gerðust hjaðningavfg all tfð f pólitíkinni. Það leyndi sér ekki að kosningar voru á næsta leiti. Stefán Valgeirsson yfir- gaf Framsóknarflokkinn með sínu dyggasta stuðningsliði, þegar útséð var að hann yrði að láta svo lítið að skipa annað sætið á lista flokksins f Norðurlandskjördæmi eystra. Stefán. bauð fram eigin lista í alþingiskosn-’ ingunum s.l. vor og viti menn, þvert ofan f allar spár náði Stefán öruggu kjöri. “að fór vart fram hjá neinum að Alþýðubandalagsmenn völdu sér nýjan formann á árinu. Eftir mikið brambolt innan flokks og utan meðal raða stuðn- ingsmanna formannskandidatanna, varð Sigrfður Stefánsdóttir, frá Akureyri að lúta í lægra haldi fyrir mótframbjóðandanum Ólafi Ragnari Grfmssyni. ^^lafur Ragnar Grfmsson, prófessor, varð þess heiðurs aðnjótandi á árinu að vera f tvfgang sæmdur viðurkenningu fyrir framlag sitt til afvopnunarmála. I janúar afhenti Perez de Cuellar, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Ólafi Pomerance-verðlaunin, sem viðurkenningarvott fyrir starf hans á vegum alþjóðlegra þingmannasamtaka, sem komu á friðarfrumkvæði þjóðarleiðtoga sex landa. Síðar á árinu tók Ólafur við Gandhiverðlaununum, fyrir hönd Alþjóð- legu þingmannasamtakanna. Þetta var í fyrsta sinn sem verðlaunin voru veitt, en til þeirra var stofnað f minningu við Indiru Gandhi. Heitt var í kolunum f Verkamannasambandinu I haust. Á formannafundi sambandsins gekk töluverður hluti verkalýðsforkólfa af fundi, er þeim fannst sýnt að kæfa ætti f fæðingu kröfur fiskverkafólks um að vera ekki notað sem skiptimynt í samningum við atvinnurekendur. I kjölfar þessarar rimmu innan sambandsins ákváðu Austfirðingar að reyna fyrir sér með samninga heima f héraði og freista þess að rétta hlut fiskverkafólks. Flmmtudagur 31. desember 1987 |þj6ðVILJINN - S(ÐA 3

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.