Þjóðviljinn - 31.12.1987, Side 4
Erlendur myndaannáll
M önnum er enn í fersku minni fundur þeirra Reagans og Gorbatsjovs í
Washington dagana 7.-10.desember. Þá brutu þeir blað í sögu afvopnunar-
mála með því að samþykkja eyðileggingu allra meðaldrægra kjarnflauga
sinna. Mjög vel fór á með þeim félögum.
1 udolf Hess féll fyrir eigin hendi í Spandaufangelsinu í ágústmánuði síð-
astliðnum, 93 ára gamall. Hann iðraðist aldrei gjörða sinna og sagðist stoltur
hafa þjónað ypparsta ofurmenni mannkynssögunnar.
I jólamánuðinum risu palestínsk ungmenni á herteknu svæðunum við ísrael upp gegn dátum herraríkisins. í ójöfnum
leik þar sem grjóti og frumstæðum mólótovkokteilum var beitt gegn byssukúlum létust að minnsta kosti 22 Palestinu-
menn og mörg hundruð slösuðust.
W illy Brandt lét í vor af formennsku í vesturþýska Jafnaðarmannaflokknum
eftir að hafa sætt gagnrýni vegna vals á talsmanni flokksins.
IVlagga með brennu! Járnfrúin breska, Margrét Thatcher, vann það sér til
frægðar að sigra í þriðju þingkosnin'gunum í röð. Það hafði engum tekist á
þessari öld. Efnamenn horfa fram á áframhaldandi góðæri - en hinir fátæku
kvíða löngum, hörðum íhaldsvetri...
Z hao Ziyang heitir þessi maður og
gegnir starfi formanns kínverska
kommúnistaflokksins. Hann tók þann
starfa að sér í janúar þegar forveri
hans, Hu Yaobang, hrökklaðist frá
eftir stúdentaóeirðir í Peking en var
síðan einróma kjörinn til vegtyllunnar
á þingi flokksins í nóvember.
F orsetarnir Ortega frá Nicaragua, Duarte frá El Salvador, Cerezo frá Guate-
mala, Azcona frá Honduras og Arias frá Costa Ricu sömdu sín á milli um leiðir
til að koma á friði í löndum sínum í sumar. Arias var frumkvöðull og höfuðsmiður
samningsins sem aflaði honum friðarverðlauna Nóbels.