Þjóðviljinn - 31.12.1987, Page 9

Þjóðviljinn - 31.12.1987, Page 9
S eiðskratti Þjóðviljans spáirfyrir um árið 1988 H ver borgar sem hann torgar Eftir ótrúlega sumarblíðu sem enst hefur víðast um land fram til áramóta, mun snúast snarlega til hins verra á nýju ári. Þorri heilsar með gríðarlegu kuldakasti og of- ankomu meiri en elstu menn muna. Samgöngur fara allar úr skorðum og víða verður mjólkur- laust í bæjum. Gatnamálastjórinn í Reykja- vík verður fyrir miklu aðkasti sárreiðra bifreiðareigenda sem tóku hann trúanlega sl. haust og slepptu því að setja nagladekkin undir bfla sína og komast ekki spönn frá rassi fyrr en fer að hlána um páska. Stimpilklukka í Stjórnarráðið Svipað ástand verður á stjórn- arheimilinu og í veðraheimum. Hvassir byljir og rokur í krötum og Framsókn og Þorsteinn má hafa sig allan við að hafa fundar- fært í ríkisstjórninni. Að lokum grípur hann til þess ráðs að setja upp stimpilklukku í stjórnar- ráðinu fyrir ráðherragengið og verða þeir hýrudregnir sem ekki mæta. Þetta mun hrífa á krata sem verður sárt um tekjumissinn en Framsóknarmenn munu treg- ast við fram eftir vori. Þrátt fyrir árekstra stjórnarliða situr ríkisstjórnin blýföst í sessi en kemur fáu í gegnum alþingi. Verður að grípa til þess ráðs að efna til sérstaks sumarþings sem ekki hefur gerst síðan á síðustu öld til að afgreiða kvótafrumvarp landbúnaðarráðherra og víð- tækar breytingar fjármálaráð- herra á staðgreiðslukerfinu sem virkaði alls ekki eins og menn höfðu vænst. Neyslukílóa- skattur Mistökin með staðgreiðslu- kerfið sem uppgötvast ekki fyrr en eftir páska, verða stjórnvöldum dýrkeypt. Lands- menn hrósa happi þar sem skatt- heimta verður í lágmarki, vegna þess að innsiglað tölvukerfi Skýrsluvéla ríkisins hafði verið vitlaust matað í öllu atinu meðan jólaþingið stóð yfir. Til að vega upp á móti þessu leggur ríkis- stjórnin á sérstakan neyslukíló- askatt þar sem hver mun greiða eftir eigin vikt. Eða eins og fjár- málaráðherra segir í sérstöku ávarpi til þjóðarinnar þegar hann tilkynnir þennan nýja skatt. „Hver etur nú sem hann getur og borgar sem hann torgar." Spilling og vopnabrask Margvísleg stórspilling mun upplýsast í viðskiptaheiminum, einkum hjá fjármögnunarleigum sem margar hverjar hafa staðið í hæpnum og dularfullum fjárfest- ingum á erlendum verðbréfa- mörkuðum og m.a. leikið milli- liði í vopnasölusamningum. Spillingarmál þetta mun ná alla leið inn á borð Hvíta hússins þar sem nýkjörinn forseti Bandaríkj- anna Garry Hart mun bregðast hart við og krefjast rannsóknar bandaríska þingsins á sam- skiptum bandarískra hernaðaryf- irvalda við fjármálamenn á ís- landi. Sovéskar friðargæslusveitir Öll samskipti íslands við stór- veldin verða með öðrum hætti en áður hefur þekkst. Gorbatsjof mun enn styrkja stöðu sína í So- vétríkjunum, draga her sinn út úr Afghanistan og óska eftir því að fá að koma fyrir friðargæslusveit- um á Norðfirði og Hellissandi. Það mun vekja óskipta athygli að Bandaríkjaforseti tekur vel í þessa málaleitan en ríkisstjórn ís- lands biður um frest til næstu ára- móta til að svara þessari beiðni Sovétmanna. Austur yfir járntjald Ró og kyrrð einkennir starf- semi Alþýðubandalagsins innan- flokks, enda Ólafur Ragnar hætt- ur utanferðum að mestu til að halda utan um hópinn. í sept- ember verða átök um það hvort flokkurinn á að taka upp bein samskipti við sovéska kommún- istaflokkinn. Ýmsir úr gamla „flokkseigendafélaginu" eru áfram um að ná góðum tengslum við Gorbatsjof og frelsa hann frá íslenskum Framsóknarmönnum, en lýðræðiskynslóðin telur Ólaf Ragnar- eiga ágætt samstarf við Gorba og algjör óþarfi sé að að koma á föstum ferðalagasam- skiptum almennra félaga. Kirkjan í klemmu Svo undarlega sem það hljóm- ar þá verða mestu pólitísku deilur ársins ekki innan eða milli stjórnmálaflokkanna, heldur innan kirkjunnar, þegar kemur að vali nýs biskups. Hörð átök verða milli íhaldssamra og frjáls- lyndra klerka, en niðurstaðan verður sú að hópur róttækra klerka mun ráða úrslitum um biskupsvalið. Jón Sigurðsson bankamálaráð- herra situr ekki einungis uppi með nýjan biskup á árinu, heldur tekst honum engan veginn að koma Útvegsbankanum úr eigu ríkisins. Þrátt fyrir marg ítrekuð sölutilboð, berast engin tilboð í bankann, nema hvað Tófuvinafé- lagið leggur inn tilboð sem upp- fyllir alla útboðsskilmála en ráð- herra hafnar samkvæmt tilmæl- um loðdýraframleiðenda. Afrek í Seoul fslenskir íþróttamenn verða í sviðsljósinu á árinu 1988. Ekki einungis handknattleiksmenn sem gera garðinn frægan í Seoul, þrátt fyrir magakveisur og slæma 1) Átök milli hægri manna og ný og óvænt framboð: Klofningur Sjálfstæðisflokksins var stað- reynd og Albert bauð fram um allt land. 2) Árni Johnsen telur þessa uppstokkun til blessunar fyrir þjóðina: Vissulega varþað bless- un fyrir þjóðina, því Arni féll af þingi. 3) Aukið peningavald í fjölmiðl- um: Aldeilis kórrétt. Laufdals- kóngurinn setti upp sína eigin út- varpsstöð á árinu og Stöð 2 auglýsir eftir fyrirtækjum til að byrjun, heldur kemur landsliðið í knattspyrnu verulega á óvart og vinnur óvænta sigra. Skákmenn standa í ströngu og Jóhann Hjart- arson sýnir styrk og dirfsku í hörðu einvígi við Kortsnoj í Kan- ada. Nýr íslenskur stórmeistari bætist í hópinn á árinu. Langvinn átök Kjarasamningar takst ekki fyrr en eftir hörð átök sem standa fram í marsbyrjun. Jón Baldvin býður upp á þjóðarsátt þegar búið er að lama samfélagið með verkföllum, en henni er alfarið hafnað í atkvæðagreiðslu í verka- lýðsfélögunum. Mjólkurfræðing- ar samþykkja hins vegar þjóðar- sáttina öllum að óvörum og opna útsölu á mjólk í öllum mjólkur- búum. Jón Helgason landbúnaö- arráðherra lætur stöðva þessa mjókursölu, þar sem hún sé brot á mjólkurkvótasamningum og hætta á að meira seljist af mjólk en hann hefur heimilað, þar sem hvorki mangósopi né kakómjólk er boðin á útsölu mjólkurfræð- inga. Samningar takast ekki fyrr en í marslok, þegar dómsmálaráð- herra lýsir því yfir að bjór verði ekki seldur í sjálfsafgreiðsluversl- unum, hætti menn ekki verkföll- um, heldur verði fólk að fara í gamaldagsbiðröð og einungis verði seldar þrjá flöksur í einu gegn framvísun bankakorts. Það má því segja að þjóðin falli enda- nlega fyrir bjórnum, enda þing- menn búnir á óskiljanlegan hátt að afgreiða frumvarpið fyrir þinglok. Túristagos í Kötlu Þjóðin er búin að vera lang- eygð eftir eldgosum síðustu árin, enda hafa ferðamálayfirvöld kvartað yfir því hversu gos séu orðin fátíð og hætta á samdrætti í ferðamannaiðnaði. Katla gamla grípur því til sinna ráða á miðju sumri og verða sandarnir ófærir fram á haust. Þetta verður m.a. til þess að fyrirhuguð breyting á þjóðveginum yfir Mýr- dalssand, niður undir Hjörleifs- höfða verður lögð á hilluna en þess í stað allt kapp lagt á opnun hraðbrautar milli jökla beint austur á Hérað. Suðurlandsskjálftinn lætur ekkert á sér bæra en Almanna- varnarnefndin í Ölfusi efnir til skyndiæfingar vegna væntanlegs fjármagna dagskrárgerð stöðv- arinnar gegn góðri auglýsingu. 4) Sigurinn mikli sem Jón Baldvin stefnir að gengur honum úr greipum: Aldeilis kórrétt. Jón náði aðeins BJ fylginu sem við- bót og var þá búinn að innbyrða þingflokkinn fyrir. 5) Framtíð Útvegsbankans á huldu: Fór á hausinn, breytt í hlutafélag, settur á sölu en fékkst ekki keyptur. Þjóöin bíður spennt eftir næsta þætti í þessum farsa- leik Jóns Sigurðssonar. 6) Árekstrar innanlands vegna hvalveiða, án þátttöku Sea jarðaskjálfta, sem endar með miklum ósköpum. Erfitt en þolanlegt Þegar á heildina er litið er ljóst að komandi ár verður mörgum erfitt. Stjórnvöld og atvinnurek- endur læsa klónum saman og verkalýðshreyfingin er illa fyrir kölluð vegna aðgerðarleysis und- anfarin ár. Þegar líður á árið birt- ir hins vegar til með hækkandi sól og ýmsar lagfæringar nást á launakjörum, ekki síst þegar al- menningur verður farinn að átta sig á kostum staðgreiðslukerfis- ins og hættur að slíta sér út í botn- lausri yfirvinnu. Shephard: íslenska hvalavinafé- lagið var í sviðsljósinu og einnig uppi í mastri með bílasíma, keðj- ur og sjóræningjaflagg. 7) Lottóið í mestum blóma ís- lenskra fyrirtækja á árinu: Orð að sönnu. Þjóðin hefur verið haldin Lottóæði enda ávallt verið auðvelt að spila með landann. 8) Fangi á Litla-Hrauni lýkurstúd- entsprófi og hlýturviðurkenningu í bókfærslu: Rættist skömmmu fyrir jól. Fanginn hlaut ekki ein- ungis ein verðlaun frá skólanum heldur tvenn fyrir frábæran Styttri vinnuvika, aukin lík- amsrækt og útivera í blíðskapar- veðri komandi vetrar, mun auka hreysti og efla dáð, svo ríkisspít- alarnir verða að loka magasárs- og kransæðadeildum vegna skorts á sjúklingum. Hins vegar fá margir landsmenn taugaáfall þegar líður að næstu jólahátíð og þeir uppgötva þá herfilegu stað- reynd að þau bjóða lands- mönnum aðeins 1 aukafrídag. Alþýðusambandið mun þá grípa til sinna ráða og ná samningum á þriðja í aðventu við VSÍ um tvo aukafrídaga milli jóla og nýárs. Munu þeir samningar lengi í minnum hafðir. námsárangur. 9) Húsnæðisverð úti á landi rýkur upp vegna þess að bændur flosna upp af jörðum sínum: Þetta staðfesta þeir fyrir norðan. Fasteiganmat á Akureyri hækk- aði um nær 50% á árinu, þökk sé Jóni landbúnaðarráðherra og kvótakerfinu. 10) Ánægjulegt ár fyrir þá sem kunna að koma ár sinni fyrir borð og eru nærstaddir þegar góðær- inu er skipt: Hver vill ekki viður- kenna þennan spádóm, fyrir nú utan það að allt saman var skatt- frjálst. * Otrúlega sannspár skratti 1987 Trúlega hefur seiðskrattinn aldrei veriðcsannspárri en íspádómi sínumfyrir síðustu áramót, að því er elstu menn á ritstjórn Þjóð- viljans vilja halda fram. Skoðum nánar hverju skrattinn spáði:

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.