Þjóðviljinn - 31.12.1987, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 31.12.1987, Qupperneq 11
Eðvarð Þór Eðvarðs- son náði glæsilegum árangri á þessu ári. Hannsetti nokkurls- landsmet og er meðal bestu manna í bak- sundiíheiminum. Hann hafnaði í 4. sæti í 200 metra baksundi og6. sætiílOOmetra baksundi. Þettavar frábært ár hjá íslensku sundfólki og yfir 100 íslandsmet vorusett. Þaðergreinilegtað breiddin er að aukast og árangur islendinga áerlendummótum varglæsilegur. Mynd: Atli. Þaðgekkáýmsuhjá landsliðinu í knattspyrnu. Liðið lék fimm leiki í Evr- ópukeppninni. Tap gegn Frökkum og Sovét- mönnum, 0-2 og hræði- legurskellurgegn A- Þjóðverjum, 0-6. En liðið náði þeim frábæra árangri að leggja Norðmenn tví- vegisaðvelli. Fyrst heima, 2-1 og svo á úti- velli, 0-1. Hérfagna Pótur Pétursson, Bjarni Sig- urðsson og Sævar Jóns- son sigrinum á Laugardal- svelli. Mynd.E.ÓI. Það lið sem kom mest á óvart var Leiftur frá Ólafsfirði. Liðið tryggði sér sæti í 1. deild með sigri yfir Þrótti í síðasta leiknum, 2-1. Hér fagna bræðurinir Óskar og Steinar Ingimundarsynir sigrinum og sæti í 1. deild í fyrsta sinn í sögu félagsins. Víkingar sigruðu í 2. deild og tóku einnig sæti í 1. deild. Mynd:E.ÓI. þorgils Óttar Mathiesen stóð í ströngu með landsliðinu sem stóð sig vel á árinu. Hér skorar hann gegn Pólverjum. Meðal þjóða sem ísland sigraði voru Júgóslavía, A- Þýskaland, Suður-Kórea, Pólland, Danmörk og V-Þýskaland. Mynd:E- .Ól. Framstúlkur sigruðu tvöfalt í hand- boltanum. Þærvoru (slandsmeistarar og sigruðu FH í úrslitaleik bikar- keppninnar. Hér hampar Arna Steinsen, fyrirliði Fram, bikarnum. Mynd: E.ÓI. íslendingar léku fjölda landsleikja á árinu og hér fagna þeir Alfreð Gísla- son og Guðmundur Guðmundsson glæsilegum sigri yfir Júgóslövum, 24- 20 í Laugardalshöll. islendingar léku fimm leiki gegn Júgóslövum á árinu og sigruðu í þremur sem er glæsi- legur árangur. Sætasti sigurinn var án efa á sterku móti í Júgóslavíu, 18- 15. Mynd:E.ÓI. Pétur Guðmundsson hefur staðið sig mjög vel í atvinnumannadeildinni í körfuknattle'k í Bandaríkjunum. Hann leikur nú með San Antonio Spurs eftir að hafa verið seldur frá Lakers. Einar Vilhjálmsson sést sér þeyta spjótinu á Landsmótinu sem haldið var á Húsavík í júlí. Einar kastaði 82.96 metra og setti þarmeð Norður- landamet, en metið féll síðar á árinu. Einari gekk vel á árinu og hafnaði m.a. í 5. sæti í stigakeppni Evrópu- mótanna. Árangur hans er sá 8. besti f heiminum á árinu, en Sigurður Ein- arsson er í 20. sæti. Mynd:E.ÓI

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.