Þjóðviljinn - 21.06.1990, Side 9
MINNING
Sigursveinn D. Kristinsson
Fœddur 24. 4. 1911 - Dáinn 2. 5. 1990
Við þetta er engu að bæta,
nema því sem alþjóð veit.
Nokkrar minningar frá œsku-
árum okkar Sigursveins.
Sigursveinn dvaldi langdvölum
i æsku á heimili foreldra minna
Sæmundar Dúasonar og Guðrún-
ar Þorláksdóttur að Krakavöllum
í Flókadal.
Þegar við unglingarnir vorum
ekki að læra tungumál eða annað
hjá föður mínum, vorum við oft
við allskonar föndur. Sigursveinn
tók þátt í þessu af miklum áhuga
og kenndi okkur margt sem við
kunnum ekki áður, svo sem
undirstöðuatriði við margskonar
útskurð. Sigursveinn var lista-
maður í höhdunum og bjó til
marga listmuni um þetta leyti.
Sigursveinn hafði með sér
fiölu, sem hann spilaði á daglega
og söng með. Hann fékk aðra til
þess að raula með líka, það var
Sigursveinn sem sá um söng og
gleði á heimilinu, sá eini okkar
sem ekki gekk heill til skógar.
í*á er mér ekki síður minnis-
stætt, með hvflíkri atorku hann
þjálfaði þann hluta líkamans sem
heilbrigður var. Einkum útivið á
sumrin.
Hann vildi fylgjast með og taka
þátt í sem flestum störfum utan-
húss. T.d. smíðaði hann sér hrífu
með stuttu skafti og rakaði hey
uppi á túni. Færði sig til með
höndunum á milli hrífufara. Af
öllu þessu varð hann mjög sterk-
ur í höndunum og handleggjun-
um.
Þá er ógetið mesta afreks hans
á þessu sviði, sem má kallast of-
urmannlegt. Hann fór upp háa og
bratta fjallshlíð alveg upp á Brún
og niður aftur. Þetta dró hann sig
á höndunum. Með honum fór
Sæmundur Baldvinsson, fóstur-
bróðir minn þá unglingur, en
hann mátti ekkert hjálpa honum,
bara fylgjast með.
Sigursveinn var oft búinn að
tala um að sig langaði til að fara
upp á Brún. Faðir minn var ekki
hrifinn af þessari ferðaáætlun, en
þá fór Sigursveinn bara þegar
faðir minn var ekki heima og fékk
Sæmund með sér eins og fyrr
segir.
Sigursveinn lét ógjarnan af því
sem hann ætlaði sér.
Minningin lifir.
Magna Sæmundsdóttir
FLÓAMARKAÐURINN
SMÁAUGLÝSINGAR
Þegar Sigursveinn frændi minn
varð 50 ára, skrifaði ég smá
greinarkorn og ætlaði að birta í
riti Sjálfsbjargar.
Sigursveinn bannaði það,
sagðist ekki vilja láta birta neitt
um sig, fyrr en hann væri allur eí
einhvers væri þá að minnast.
Hann komst þó ekki hjá því að
hans yrði síðar getið að verð-
leikum, bæði í blöðum og í öðrum
fjölmiðlum.
Ég geymdi þetta greinarkorn
og hugsaði mér að birta það, ef ég
lifði Sigursvein. Hér kemur það.
Hann heitir Sigursveinn D.
Kristinsson maðurinn sem gekkst
fyrir stofnun Sjálfsbjargar félags
fatlaðra.
Fæddur er hann 24. apríl 1911 í
Fljótum í Skagafirði, sonur
Helgu Grímsdóttur og Kristins
Jónssonar. Þau fluttu til Ólafs-
fjarðar og þar ólst Sigursveinn
upp. Þar veiktist hann af lömun-
arveiki og lamaðist mikið, aðeins
13 ára.
Sigursveinn er orðinn þjóð-
kunnur maður fyrir tónlistarstarf
sitt og tónsmíðar. Og nú ekki
síður fyrir starf sitt fyrir fatlað
fólk. Að því hefur hann gengið
með sömu óþrjótandi eljunni og
dugnaðinum eins og öllu öðru
sem hann tekur sér fyrir hendur.
Hann hefur staðið að stofnun
allra deilda félagsins sem stofn-
aðar hafa verið og mun eflaust
ekki láta hér staðar numið.
Kona hans er Ólöf Þorláks-
dóttir og eru þau hjón mjög sam-
hent og heimili þeirra sem annað
heimili allra þeirra sem Sigur-
sveinn starfar fyrir og með.
Félagar: Lítið á Sigursvein og
sjáið hverju hægt er að áorka ef
aldrei er gefist upp, en sótt mark-
visst og stöðugt á brattann.
Tll sölu VW bjalla
árg. 1974. Einnig sterkbyggö barnakerra.
Uppl. í síma 15045.
Varahlutlr
Til sölu ódýrir í Skoda, svo sem startari,
alternator, head og rafeindakveikja. Upp-
lýsingar í síma 75619 ettir kl. 17.
íbúð óskast
Ungt par með 3 ára barn hefur áhuga á aö
taka á leigu 3-4 herbergja íbúö í Reykjavík
frá 1. september 1990. Upplýsingar í síma
10333. Þór Túlinfus.
Sumarbústaðalóölr til leigu
Sumarbústaðalóðir til leigu í kjarrivöxnum
hraunjaðri í Borgarfirði. Rómuð náttúrufe-
gurð á svæðinu. Uppl. í slma 93-51198.
Tll sölu
Til sölu er lítið drengjareiðhjól á kr. 3000,
lítið telpnareiðhjól á kr. 3500, svalavagn
með burðarrúmi á kr. 3000 og dúkkuvagn,
sem nýr, á kr. 3000. Uppl. í sfma 74212 eftir
kl. 17.
Hókus-pókus
Hókus-pókus stóll óskast keyptur. Uppl. í
sima 74304.
Sumarbústaðir til lelgu
Til leigu eru 2 fjögurra manna sumarbú-
staðir fram til 27. júlf. Rafmangsupphitun,
sturta, ísskápur og gaseldun. Gisting og
fæði í heimahúsi á sama stað. Uppl. f síma
93-51198.
Sumarfrf I Barcelona
Islensk-spænsk fjölskylda býður íbúð f
Barcelona i skiptum fyrir íbúð í mið- eða
vesturbæ Reykjavíkur í júlí. Uppl. í síma
23927 á kvöldin og um helgar.
Garðsláttur
Viltu láta slá garöinn þinn fyrir sanngjarnt
verð? Við erum röskir skólastrákar og
erum vanir að slá og hirða garða. Hringdu f
sfma 84023.
Einstaklingsfbúð óskast
Helst 1 herbergi, eldhús og bað, eða lítil 2ja
herbergja íbúð. Uppl. [ síma 678028.
Græðandi Ifna - Banana Boat
Banana Boat E-gel, græðir exem, sóriasis.
Græðandi og nærandi Body Lotion, sól-
krem, svitaeyðir, hárvörur og næturkrem
úr töfrajurtinni Aloe Vera. (sl. bæklingur.
Heilsuval, Barónsstig 20, póstkr.s.
626275, Baulan, Borgarf., Apótek Isafj.,
Ferska, Sauðárkr., Hlíðarsól Sigr. H., Ol-
afsfj., Heilsuhornið, Akureyri, Hilma, Húsa-
vík, Sólskin, Vestm.eyjum, Heilsuhomið,
Selfossi, Sólarlampinn, Margr. Helgad.,
Vogum, Bláa lónið, Heilsubúðin, Hafnarf.,
Bergval, Kópav., Árbæjarapótek, Samt.
sóriasis & exemsjúkl. Einnig í Heilsuvali:
Hárrækt m.leisi, rafn., „akupunktur",
svæðanudd, megrun, orkumæling, vítam-
fngreining. s. 11275.
Alvöru BMX-hJól
til sölu. Peugeot. Uppl. í slma 21784 eftir kl.
5.
Lærið skrautskrfft
á tveimur kvöldum hjá vönum kennara.
Upplagt fyrir félagasamtök eða vinahópa.
Uppl. í sima 21784 eftir kl. 5.
Kerllngafjöll
Eitt pláss i unglingahópnum 12. ágúst i
Kerlingafjöllum, til sölu vegna sérstakra
ástæðna. Búið er að greiða staðfestingar-
gjald. Uppl. í síma 674263.
HJónarúm til sölu
Sænskt hjónarúm úr massfvri furu með
springdýnum til sölu. Stærð 2x1.85 m.
Selst á 40 þúsund kr. Sími 50261.
Garðvlnna
Tökum að okkur garðslátt og snyrtingu á
beðum ef óskað er. önnur verkefni koma til
greina. Vinnum frá kl. 19 alla virka daga og
frá kl. 9-15 á laugardögum. Höfum öll
nauðsynleg verkfæri. Uppl. og tfmapant-
anir í síma 37920, Tómas Helgi, og
670461, Vigfús Gíslason.
Volvo 244 árg. 78
til sölu. Sjálfskiptur, nýskoðaður. Uppl. í
sima 10335 eftir kl. 18.
(búð óskast f Barcelona
Við erum tvær sem óskum eftir íbúð í
Barcelona í þrjár vikur, á tfmabilinu ágúst til
september. Allar upplýsingar vel þegnar.
Vala í síma 15521 og Frfða f sfma 25732.
Til sölu sjónvarp
18 tommu Fergusson sjónvarp til sðlu,
einnig lampaskermur og hjónarúm með
tveimur náttborðum. Uppl. í síma 20833
eftir kl. 19.
Fjögur dekk tll sölu
Stærð 13“ 165. Selst á 1000,- kr. stykkið.
Uppl. f síma 79215.
Auglýsing um umsóknir
um eldislánatryggingu
Samkvæmt lögum nr. 17 1990 hefur Ábyrgöa-
deild fiskeldislána tekiö til starfa innan Ríkis-
ábyrgöasjóös.
Ábyrgðadeildin mun yfirtaka ábyrgðir Trygg-
ingasjóös fiskeldislána eigi síðar en 1. júlí nk.
Þau fyrirtæki sem óska eftir sjálfskuldarábyrgð
ábyrgöadeildarinnar þurfa aö sækja um þaö á
þar til gerðum umsóknareyðublöðum sem fást
hjá Ríkisábyrgðasjóði, Kalkofnsvegi 1, 150
Reykjavík.
Reykjavík, 19. júní 1990
Stjórnarnefnd
Ábyrgðardeildar fiskeldislána
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Fundur miðstjórnar
Alþýðubandalagsins
haldinn á Egilsstöðum dagana 29. júní til 1.
júlí næstkomandi
Föstudagur 29. Júní kl. 20.30
1. Fundurinn settur I húsakynnum Menntaskólans á Egilsstöðum
2. Stjórnmálaumræður
2.1. Störf ríkisstjórnarinnar / Árangur I efnahagsmálum.
2.2. Urslit sveitarstjórnarkosninga / Stjórnmálaástandið staða
flokksins.
Laugardagur 30. júní kl. 9.00
Framhald stjórnmálaumræðna.
3. Flokksstarfið - Undirbúningur Alþingiskosninga.
4. Sjávarútvegsmál.
5. Landbúnaðarmál.
6. Önnur mál.
Um kl. 16 á laugardag verður gert hlé á fundarstörfum og farið I
heimsókn til Neskaupstaðar. Þar verður staðurinn skoðaður og
kvöldinu síðan eytt í boði heimamanna.
Sunnudagur 1. júlí kl. 10.00
Framhald umræðna
Afgreiðsla mála.
Fundi lýkur eigi síðar en kl. 15.00.
Að loknum fundi á sunnudag býðst fundarmönnum að fara I
skoðunarferð um nágrennið.
Flug og gisting
Ferðamiðstöð Austurlands hf. sér um skráningu I flug til Eg-
ilsstaða og í gistingu.
Nauðsynlegt er að miðstjórnarmenn skrái sig sem fyrst og I
síðasta lagi 25. júní.
Síminn I Ferðamiðstöð Austurlands er 97-12000.
Steingrímur J. Sigfússon
formaður miðstjórnar
Alþýðubandalagsins
Alþýðubandalagið Suðurlandi
Fundur kjördæmisráðs og fulltrúa í miðstjórn Alþýðubandalagsfé-
laganna á Suðurlandi verður haldinn á Selfossi, I húsi Alþýðu-
bandalagsins, föstudaginn 22. júní kl. 18.
Fundarefni: Miðstjórnarfundur Alþýðubandalagsins á Egilsstöð-
um um mánaðamótin.
Áríðandi að allir komi. Stjórn kjordæmisráðs
Jónsmessu-sumarferð Alþydubanda-
lagsins í fíeykjavík um Snæfellsnes
Dagskrá sumarferðar ABR
23. - 24. júní n.k.
Verð kr. 2.800.-
Bíll + gisting I svefnpokaplássi.
Laugardagur 23. júní
Lagt af stað frá Hverfisgötu 105 kl. 10.00.
Ekið sem leið liggur vestur I Staðarsveit. Séra Rögnvaldur Finn-
bogason, sem tekur á móti okkur á Staðastað segir frá ferð sinni til
Palestínu.
Undir leiðsögn Skúla Alexanderssonar ökum við svo yfir jökul.
Gist verður að Gimli á Hellissandi.
Sunnudagur 24. júní
Hress og endurnærð förum við frá Hellissandi kl. 10.00. Félagar
frá Grundarfirði koma til móts við okkur og segja frá sínum kenni-
leitum.
Við kveðjum þá I Berserkjahrauninu og höldum heim og verðum I
Reykjavík kl. 16.00 - 18.00.
Takið með hlý föt og nesti, svefnpokann, söngbækur og góða
skapið.
Tekið á móti pöntunum I ferðina á skrifstofu ABR, síma 17500, hjá
Guðrúnu B. síma 25549 eða Guðrúnu Ó. síma 15874/681150 til
hádegis á föstudag 22. júní.
Ferðanefnd ABR
Fimmtudagur 21. júní 1990 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
Úr einni sumarferð AB á Austurlandi. (Ljósm. H.G.)
Alþýðubandalagið á Austurlandi
Sumarferð laugardaginn 7. júlí 1990
um Reyðarfjarðarhrepp hinn forna
Búðareyri - Hólmanes - Eskifjörður - Breiðavík - Vöðlavík
Rútur leggja af stað sem hér segir:
★ Frá Egilsstöðum (Söluskála KHB) kl. 09.00.
★ Frá Neskaupstað (Söluskála Skeljungs) kl. 08.30.
★ Frá Breiðdalsvík (Hótel Bláfelli) kl. 08.00.
Safnast verður saman undir Grænafelli innst í Reyðarfirði kl.09.30
á laugardagsmorgni. Skoðaðar minjar um herstöðvar á Reyðar-
firði, gengið um friðland á Hólmanesi, litið á sjóminjar á Eskifirði,
silfurbergsnámu við Helgustaði, heimsóttur einokunarkaupstaður
á Útstekk við Breiðuvík og ekið um Víkurheiði til Vöðlavíkur.
Ferðalok um kl. 19.
Staðkunnugir leiðsögumenn (Helgi Seljan, Hilmar Bjarnason
o.fl.) lýsa söguslóðum og náttúru.
Fararstjóri: Hjörleifur Guttormsson.
Þátttakendur skrái sig sem fyrst hjá Ferðamiðstöð Austur-
lands, Egilsstöðum, sími 12000.
Hafið meðferðis nesti og gönguskó.
Allir velkomnir. Kjördæmlsráð AB
Maðurinn minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi
Halldór Laxdal
forstjórl
til heimilis að
Löngubrekku 12, Kópavogi
sem lést 16. júní sl. verður
jarðsunginn frá Langholts-
kirkju þriðjudaginn 26. júni kl.
13.30.
Sigríður Axelsdóttir Laxdal,
börn, tengdabörn og barnabörn