Þjóðviljinn - 26.01.1991, Side 15
MINNING
I DAG
Sigfús Jónsson Tryggvason
Fæddur 28. maí 1923 - Dáinn 14.janúar 1991
Hann andaðist eftir langvar-
andi veikindi í Landspítalanum
14. jan. og var jarðsunginn frá
Kópavogskirkju fostudaginn 18.
janúar kl. 3:00.
Faðir: Tryggvi f. 2/11 1892
d. í des. 1984, ffá Þórshöfn á
Langanesi, útvegsbóndi þar, en
síðar verkamaður í Reykjavík.
Sonur Sigfúsar f. 16/6 1865 að
Hermundarfelli í Þistilflrði,
Jónssonar bónda þar Gíslasonar
er bjó á Hermundarfelli 1855
með konu sinni Lilju Pétursdótt-
ur. Móðir Sigfúsar og kona Jóns
var Ingunn f. 1829 Guðmunds-
dóttir f. um 1805, Þorsteinssonar
bónda í Svalbarðsseli í Þistilfirði
1845 og konu hans Rósu Péturs-
dóttur f. 1793. Móðir Tryggva
var Guðrún f. 25.4. 1864 i Sand-
fellshaga í Axarfirði Guðmunds-
dóttir, bónda f. 1834, Þorgrims-
sonar og konu hans Sigríðar
Jónsdótturf. 1829.
Móðir: Stefanía Sigurbjörg
Kristjánsdóttir f. 16/11 1983, d.
1/11 1981, ffá Leifsstöðum í
Vopnafirði. Móðir hennar var
Signý Sigurlaug Davíðsdóttir frá
Höfn á Strönd Sigmundssonar af
Tjömesi og Guðrúnar Jónsdótt-
ur. Faðir hennar var af Fjalla-
bræðraætt Gunnar Kristján Jak-
obsson, Sveinssonar á Djúpalæk
og konu hans Hólmffíðar Guð-
mundsdóttur.
Stefanía og Tryggvi gengu í
hjónaband 19/9 1919. Tryggvi
vann áfram við útgerð foður
síns, hann var góður verkmaður
og afbragðs skytta og sjósóknari.
Að vera virtur útvegsbóndi í
sjávarþorpi var líkt og að vera
konungur í ríki sínu á þessum ár-
um. Utgerðin á Skálum stóð þá
með miklum blóma og Þórshöfn
var uppgangspláss og nokkurs
konar höfuðstaður Langaness.
Þá var líkt og nú, að sjávarút-
vegurinn réð mestu um afkomu
ibúanna. Á fyrri hluta aldarinnar
fiskaðist vel þama norður ffá, ef
gaf á sjó, og það rétt við land-
steina.
Á þessum ámm vora gerðir
út 2 bátar frá heimili þeirra, og
mannaðir að nokkru með Færey-
ingum, sem þáðu kost og aðsetur
á heimili þeirra.
Það segir sig sjálft að á
æskuheimili Sigfúsar var alltaf
mannmargt og oft glatt á hjalla.
Það var spilað á hljóðfæri og
sungið og þegar slegið var í
Lomber þá var nú líf í tuskunum.
Menn þurftu að leggja hart að sér
við vinnuna, en hvað var það,
þeir voru ffjálsir.
Þessi stóra útvegsheimili
kröfðust líka mikillar vinnu af
öllum sem vettlingi gátu valdið.
Sigfús var vart kominn af bams-
aldri þegar hann var farinn að
standa við beitningu.
Þegar heimsstyrjöldin síðari
barst hingað upp að landsteinum
í kjölfar kreppunnar miklu, herti
enn að litlu sjávarþorpunum.
Tundurduflin flutu rétt fyrir utan
flæðarmálið, svo illt var að elta
þann gula, og sjórinn nær allur
uppurinn af fiski vegna erlendra
fiskiskipa.
En þó að Sigfús væri ungur
að áram, varla tvítugur, var hann
farinn að gera út eigin bát. Hann
hafði lært það af foður sínum, að
til þess að stunda sjó á opnum
bátum, var það eflirtektin sem
sagði allt. Sjólagið þurfti að
þekkja og vita hvemig bregðast
ætti við hverjum vanda. Þá vora
ekki talstöðvar eða önnur örygg-
istæki í litlum trillum.
Stefanía og Tryggvi höfðu
eignast 13 böm, og þó að þau
kæmust ekki öll til manns var
það fyrir séð að þeirra biðu fá at-
vinnutækifæri í Þórshöfn.
Haustið 1944 flutti öll fjöl-
skyldan að norðan og settist að í
Kópavogi. Þeim tókst með sam-
stilltu átaki að koma sér upp þaki
yfir höfúðið, þá vora ekki lyftar-
ar eða önnur stórvirk tæki komin
til sögunnar. En það var Sigfús
sem lyfti Grettistakinu sem allir
aðrir höfðu gengið frá. Sigfús
hafði komið suður ári fyrr og
stundað sjóróðra ffá Suðumesj-
um. Þar fannst honum dapurleg
vistin, sofið var í óupphitaðri
verbúð og viðurværið var eftir
þvi. Næstu árin var hann svo við
sjóróðra á ýmsum bátum.
Systkini Sigfúsar urðu 13
talsins. 5 þeirra dóu í bemsku, en
þau sem upp komust voru:
Guðrún f. 22/4 1920 hús-
ffeyja á Þurrstöðum í Borgar-
hreppi. M. Helgi Helgason, hann
er látinn, böm 3.
Helga f. 1/6 1924 húsmóðir.
M. Pétur Hraunfjörð, skilin, böm
10.
Jakob Sveinbjöm f. 11/10
1926. M. Guðlaug Ingvarsdóttir,
hún er látin, böm 3.
Ólafúrf. 19/3 1929.M.Hall-
dóra Jóhannesdóttir, böm 2.
Sverrir f. 25/3 1930. M. Sig-
ríður Þorsteinsdóttir, böm 3.
Ingólfur f. 7/5 1934. M. Ág-
ústa Waage.
Signý Sigurlaug f. 8/10
1936. M. Haukur Þórðarson,
böm 6.
Alffeð Bjömsson f. 15/7
1915. M. Hulda Pétursdóttir,
böm 4.
26/11 1955 gekk Sigfús að
eiga Guðlaugu Pétursdóttur f.
20/4 1930 í Reykjavík, Hraun-
fjörð f. 14/5 1885 að Valabjörg-
um í Helgafellssveit, og Ásta
Kristjánsdóttir f. 6/6 1891 í
Stekkjartröð í Eyrarsveit.
Ungu hjónin bjuggu fyrst á
heimili foreldra Guðlaugar að
Sogabletti 17 í Sogamýri, en
fluttu í Kópavog árið 1960 og
hafa búið þar síðan. Sigfús var
góður heimilisfaðir. Honum
fannst ekkert of gott fyrir bömin
og heimilið.
Böm þeirra era:
Tryggvi f. 21/3 1956, strætis-
vagnastjóri. M. Helga Jónsdóttir.
Sturla f. 20/6 1958 vélstjóri.
M. Anna Guðmundsdóttir hjúkr-
unarff., böm 3.
Örvar f. 21/1 1960, stúdent.
Álfheiður f. 15/11 1961,
versl,- og tölvumenntuð. M. Er-
lingur Erlingsson bakari, böm 2.
Ásta f. 27/10 1963 hús-
mæðraskólagengin. M. Jökull
Gunnarsson, nemur tækniffæði.
Böm 2.
Ómar Hafsteinsson stjúpson-
ur f. 2/8 1953, rafvirki.
Meðan að bömin vora enn í
æsku veiktist Sigfús og varð að
dvelja á Vífilsstöðum í einangr-
un frá heimili sínu. Það voru erf-
iðir timar og lítið gert fyrir bam-
mörg heimili. Honum var það
mikið áfall að geta ekki séð
heimili sínu farborða, og eflaust
hefði batinn komið fyrr ef hann
hefði ekki verið svona áhyggju-
fullur vegna bamanna. En Guð-
laug kona hans studdi hann eftir
mætti á þessum erfiðu tímum,
hún útvegaði sér vinnu á Kópa-
vogshæli, í eldhúsinu, og þó hún
hafi verið búin að vera 9 mánuði
i húsmæðraskóla og húsmóðir í
15 ár varð hún að byija á byrj-
endakaupi.
Sigfús var starfsmaður hjá
Kópavogskaupstað s.l. 10 ár.
Hann var vinur vina sinna,
og alltaf boðinn og búinn til þess
að gera öðrum greiða og hirti lítt
um þó ekki kæmi borgun fýrir.
Hann vann alla tíð hörðum hönd-
um, bæði til sjós og lands og var
vel látinn í hveiju starfi.
Ég hef þekkt Sigfús frá því
að ég kom inn í þessa fjölskyldu
og ekki hef ég kynnst traustari
manni. Það er óhætt að gefa hon-
um sömu ummæli og höfð vora
um afa hans, Sigfús: „Hann var
rammur að afli og fylginn sér við
hvað eina, nærgætinn og hjálp-
samur.“ Þeir sem áttu bágt á einn
eða annan hátt vora alla tíð vel-
komnir á heimili þeirra. Margur
bitinn og sopinn hefur farið í gest
og gangandi. Mörg bömin eru
það sem þau hafa tekið upp á
arma sína um lengri eða
skemmri tíma.
Þegar bróðir Guðlaugar
missti konuna á besta aldri frá 10
bömum, sumum enn í æsku, var
ekkert sjálfsagðara en þau kæmu
inn á heimili þeirra og nytu þess
sama og þeirra böm.
Fyrir 5 árum veiktist Sigfús
af krabbameini og fór i aðgerð.
Allt virtist hafa farið á betri veg
og hann komst til starfa aftur, en
var ósköp þróttlaus. Á síðasta ári
tók meinsemdin sig aftur upp.
Hann hafði lengi þráð að geta
veitt sér tómstundir, siglt út á fló-
ann i bát sínum, veitt fisk og not-
ið samverustunda með bama-
bömunum er lífeyrisaldrinum
væri náð, en margt fer öðra vísi
en ætlað er.
Við hjónin vottum eiginkonu
og bömum innilega samúð.
Friður Guðs veri með hon-
um.
Hulda Pétursdóttir,
Útkoti
A
iS&J
Utideild
57 í Kópavogi
óskar að ráða starfsmann í hálft stöðugildi. Starfið
er fjölbreytt með sveigjanlegum vinnutíma,
aðallega á kvöldin og um helgar. Reynsla og/eða
menntun skilyrði. Umsóknarfrestur er til 7. febrúar
nk. Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu
Félagsmálastofnunar Kópavogs.
Nánari upplýsingar veitir unglingafulltrúi í síma
45700.
Félagsmálastofnun Kópavogs,
Fannborg 4.
ÞJÓÐVILJINN
FYRIR 50 ÁRUM
Skjalfestar upplýsingar fengnar
um þjófnaðartilraunir í sambandi
við útborgun i Bretavinnunni. Þeir
sem raunveruiega bera ábyrgð á
öllum þjófnuðum, svikum og rán-
um, sem framin hafa verið I Dags-
bnin siðasta ár skiptast niður á
lista atvinnurekenda I Dagsbrún:
Héðinn fékk Gísla Guðnason -
Haraldur fékk Jón S. J... og Torfa
Þorbjarnarson. Burt með völd at-
vinnurekendanna og svindlaranna
I Dagsbrún. Kjósið C-listann. At-
vinnurekendur berjast með hnúum
og hnefum fyrir kosningu Héðins
og inntöku hans i íhaldið. En allir
heiðariegir verkamenn hafa snúið
baki við þessum pólitíska föru-
manni.
26. janúar
laugardagur. 26. dagur ársins. 14.
vika vetrar byrjar. Solarupprás (
Reykjavik kl. 10.27 - sólarlag kl.
16.54.
Viðburðir
ÞjóðhátiðardagurÁstrallu og Ind-
lands. Bátaábyrgðarfélag Vest-
mannaeyja, elsta tryggingarfélag
landsins, stofnað 1862. Verka-
mannafélagið Dagsbrún stofnað
1906.
DAGBÓK
APÓTEK
Reykjavík: Helgar- og kvöldvarsla
lyfjabúða vikuna 18 til 24. janúar er í .
Haaleitis Apóteki og Vesturb. Apóteki.
Fyrmefnda apótekiö er opiö um helgar
og annast næturvörslu alla daga kl. 22
til 9 (til 10 á frídögum). Siðarnefnda
apótekið er opið á kvöldin kl. 18 til 22
virka daga og á laugardögum kl. 9 til 22
samhliöa hinu fyrmefnda.
LÖGGAN
Reykjavlk........« 1 11 66
Kópavogur. Selljamames Hafnarfjörður. «4 12 00 « 1 84 55 «511 66 « 5 11 66
« 2 32 22
Slökkvið og sjúkrabðar
Reykjavik « 1 11 00
Kópavogur. « 1 11 00
Seltjamames « 1 11 00
Hafnarfjörður. « 5 11 00
Garðabær. « 5 11 00
Akureyri.....................« 2 22 22
LÆKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavík, Seltjarn-
arnes og Kópavog er f Heilsuverndar-
stöð Reykjavikur alla virka daga frá kl.
17 til 8, á laugardögum og helgidögum
allan sólarhringinn. Vitjanabeiðnir,
simaráðleggingar og timapantanir (
« 21230. Upplýsingar um lækna- og
lyfjaþjónustu eru gefnar í simsvara
18888. Borgarspitalinn: Vakt virka
daaa frá kl. 8 til 17 og fyrir þá sem ekki
hafa heimilislækni eða ná ekki til hans.
Landspitalinn: Göngudeildin er opin
frá kl. 20 til 21. Slysadeild Borgarsplt-
alans er opin allan sólarhringinn,
tr 696600.
Neiðarvakt Tannlæknafélags islands
er starfræktumhelgar og stórhátiöir.
Simsvari 681041.
Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæsl-
an, * 53722. Næturvakt lækna,
tr 51100.
Garöabær: Heilsugæslan Garðaflöt,
■n 656066, upplýsingar um vaktlækni
«51100.
Akureyri: Dagvakt frá kl 8 til 17 á
Læknamiöstööinni, « 22311, hjá
Akureyrar Apóteki, « 22445. Nætur- og
helgidagavakt læknis frá kl 17 til 8 985-
23221 (farslmi).
Keflavik: Dagvakt, upplýsingar I
« 14000.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna,
« 11966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartimar: Landspítalinn: Alla
daga kl. 15 til 16 og 19 til 20. Borgar-
spitalinn: Virka daga kl. 18:30 til
19:30, um helgar kl. 15 til 18 og eftir
samkomulagi. Fæðingardeild Land-
spltalans: Alla daga kl. 15 til 16, feðra-
tími kl. 19:30 til 20:30. Fæðingar-
heimili Reykjavíkurv/Eiríksgötu: Al-
mennur timi kl. 15-16 alla daga, feðra-
og systkinatimi kl. 20-21 alla daga.
Öldrunarlæknlngadelld Landspital-
ans, Hátúni 10B: Alla daga kl. 14 til 20
og eftir samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspitala: Virka daga kl. 16 til 19,
um helgar kl. 14 til 19:30. Heilsu-
vemdarstöðin við Barónsstig: Alla
daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19:30.
Landakotsspitali: Alla daga kl. 15 til
16 og 18:30 til 19. Bamadeild: Heim-
sóknir annarra en foreldra kl. 16 til 17
alla daga. St. Jósefsspítali Hafnar-
firði: Alla daga kl. 15 til 16 og 19 til
19:30. Kleppsspitalinn: Alla daga kl
15 til 16 og 18:30 til 19. Sjúkrahús
Vestmannaeyja: Alla daga kl. 15 til 16
og 19 til 19:30. Sjúkrahús Akraness:
Alla daga kl. 15:30 til 16 og 19 til 19:30.
Sjúkrahúsið Húsavík: Alla daga kl. 15
til 16 og 19:30 til 20.
ÝMISLEGT
Rauða kross húsið: Neyðarathvarf
fyrir unglinga, Tjarnargötu 35,
« 91-622266, opið allan sólarhringinn.
Samtökin 78: Svarað er I upplýsinga-
og ráðgjafarsíma félags lesbla og
homma á mánudags- og fimmtudags-
kvöldum kl. 21 til 23. Slmsvari á öörum
timum. « 91-28539.
Sálfræðistöðin: Ráðgjöf I sáifræöi-
legum efnum,« 91-687075.
Logfræðiaðstoð Orators, félags
laganema, er veitt I slma 91-11012 milli
kl. 19:30 og 22 á fimmtudagskvöldum.
MS-félaglð, Álandi 13: Opiö virka daga
frákl. 8 til 17, «91-688620.
„Opið hús" fyrir krabbameinssjúk-
linga og aðstandendur þeirra i Skóg-
arhlið 8 á fimmtudögum kl. 17 til 19.
Samtök áhugafólks um alnæmls-
vandann sem vilja styðja smitaöa og
sjúka og aðstandendur þeirra i « 91-
22400 og þar er svaraö alla virka daga.
Upplýslngar um eyðnl: « 91-622280,
beint samband við lækni/hjúkrunar-
fræðing á miðvikudögum kl. 18 til 19,
annars simsvari.
Samtök um kvennaathvarf: « 91-
21205, húsaskjól og aðstoö við konur
sem beittar hafa verið ofbeldi eða orðið
fyrir nauðgun.
Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpanum,
Vestur-götu 3: Opið þriðjudaga kl. 20 til
22, fimmtudaga kl. 13:30 til 15:30 og kl.
20 til 22, « 91-21500, simsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið
hafa fyrir sifjaspellum: « 91-21500,
simsvari.
Vinnuhópur um sifjaspellsmál:
«91-21260 alla virka daga kl. 13 til 17.
Stigamót, miðstöð fyrir konur og böm
sem orðið hafa fyrir kynferðislegu
ofbeldi. Ráðgjöf, fræðsla, upplýsingar,
Vesturgötu 3, « 91-626868 og 91-
626878 allan sólarhringinn.
Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu:
« 27311. Rafmagnsveita: Bilanavakt I
« 686230.
Rafveita Hafnarfjarðar: Bilanavakt,
« 652936.
GENGHE)
25. Janúar1991 Sala
Bandarikjadollar...........54,74000
Sterlingspund.............107,14000
Kanadadollar...............47,15500
Dönsk króna.................9,56070
Norsk króna.................9,40070
Sænsk króna.................9,83560
Finnskt mark...............15,19920
Franskurfranki.............10,82570
Belglskurfranki............ 1,78570
Svissneskur franki.........43,53250
Hollenskt gyllini..........32,64060
Vesturþýskt mark...........36,79510
Itölsk lira.................0,04893
Austuniskur sch.............5,22830
Portúgalskur escudo........ 0,41470
Spánskur peseti.............0,58550
Japanskt jen................0,41391
Irskt pund.................98,02000
KROSSGÁTA
Lárétt: 1 leiði 4 sorg-
bitin 6 fæða 7 espi 9
höfuð 12 votir 14 fugl
15 fikt 16 seinka 19
sá 20 kvæði 21 bölvi
Lóðrétt: 2 hrædd 3
þöglir 4 jafningi 5
blett 7 króks 8 tóftir
10 gat 11 heilt 12
spök 17 borða 18
karimannsnafn
Lausn á siöustu
krossgátu
Lárétt: 1 koks 4 sorg
6 kák 7 masi 9 espa
12 klökk 14 ger 15
rot 16 eigra 19 reið
20 ópin 21 parta
Lóörétt: 2 oka 3 skil
4 skek 5 ráp 7 mag-
urt 8 skreip 10
skrapa 11 aftann 12
örg 17 iða 18 rót
Laugardagur 26. janúar 1991 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15