Þjóðviljinn - 03.05.1991, Blaðsíða 1
QJCiMU
Fánaborg Alþýöubandalagsins á Lækjartorgi á 1. mal fundinum. Mynd Kristinn.
pfp W j /: g .m M ij
f;Í i
Fjölmennir útifundir 1* maí
Mun fleiri mættu á
Lækjartorg á útifund
fulitrúaráðs verka-
lýðsfélaganna en und-
anfarin ár. Taldi lögreglan að um
5000 manns hefðu mætt á fund-
inn. Svipaða sögu var að segja
annars staðar að af landinu.
Ræðumenn dagsins lögðu allir
áherslu á að í komandi samningum
yrði að leiðrétta lægstu launin og á
Húsavík lagði Ásmundur Stefáns-
son forseti ASÍ áherslu á að í
samningana yrði að koma ákveðin
kaupmáttartrygging.
Ögmundur Jónasson formaður
BSRB benti á að nú væri fyrir
hendi innistæða í þjóðarbúinu,
innistæða sem launafólk hefði búið
til og að sú innistæða yrði sótt í
komandi samningum.
Mikið fjölmenni var einnig i 1.
maí kafii hjá verkalýðsfélögunum
og sömu sögu er að segja um 1.
maí kaffi Alþýðubandalagsfélaga
víða um land, mun fleiri en undan-
farin ár. Fjöldi manna notaði einn-
ig daginn til þess að ganga í Al-
þýðubandalagið.
-Sáf
Sjá síðu 6
Veruleg
vaxta-
hækkun
fyrir-
sjáanleg
Davíð Oddsson for-
sætisráðherra lýsti
því yfir eftir
ríkisstjórnarfund í
gær að vextir
á ríkisskuldabréfum
myndu hækka. Þá aftók hann
ekki að erlend lán yrðu tekin til
þess að mæta halla ríkissjóðs.
„Það er ljóst að húsbréfa-
markaðurinn er kominn með vext-
ina upp í 8,4 prósent sem er tölu-
vert yfir því sem almennt gerist hjá
bönkum og sparisjóðum," sagði
Ásmundur Stefánsson forseti Al-
þýðusambands íslands í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Prósentutalan sem hann nefndi
er núverandi ávöxtunarkrafa bréf-
anna. Ásmundur sagði að allar for-
sendur mikillar vaxtahækkunar
væru fyrir hendi þar sem stjómvöld
ættu eftir að afla fjár til að mæta
auknum halla rikissjóðs það sem af
er ársins auk þess sem húsbréfa-
kerfið kallaði á mikið fé.
„Aðstæðurnar virðast allar
stefna í það að hið opinbera sé að
knýja upp vexti,“ sagði Ásmundur.
En eitt fyrsta verk hins nýja
forsætisráðherra landsins Davíðs
Oddssonar var að boða hækkun
vaxta. Davíð sagðist þó eiga von á
því að vextir myndu aftur lækka
þegar tekið yrði á ríkisfjármálunum
en bætti við að vextimir hefðu í
raun og vem hækkað nú þegar þar
sem þeim væri haldið niðri sem fæ-
list meðal annars í því að ríkisbréf
seldust ekki vegna þess að vextim-
ir væm lægri en annars staðar.
Einar Oddur Kristjánsson for-
maður Vinnuveitendasambands Is-
lands sagðist fastlega vonast til
þess að stjómvöld næðu tökum á
stjóm peningamála en sagði að
vaxtahækkun nú, af tvennu illu,
væri betri kostur en að sjá efna-
hagslífið gliðna í sundur. „Vaxta-
hækkanir em mjög bagalegar fyrir
atvinnulífið því þær skerða sam-
keppniskjörin og skerða möguleika
fyrirtækjanna til að borga betra
kaup,“ sagði Einar Oddur. Hann
sagði að fyrirtækin væm afskap-
lega misjafnlega undir vaxtahækk-
un búin en að stórar greinar eins og
sjávarútvegurinn yrðu ekki fyrir
miklum áhrifum af vaxtahækicun
þar sem stór hluti rekstrarins
byggði á erlendu fé. „En þetta hef-
ur mjög slæm áhrif á samkeppnis-
aðstöðu mjög margra," sagði Einar
Oddur.
„Það er ljóst að ríkið fer fyrir í
vaxtahækkunum og það er ríkið
sem tekur til sín þá peninga sem
fara á markaðinn,“ sagði Ásmund-
ur.
Tvær leiðir em til að ná tökum
á ríkisfjármálunum, annars vegar
skattahækkun til að auka tekjumar,
hinsvegar niðurskurður útgjalda.
Hin nýja rikisstjóm ætlar ekki að
hækka skattana og er þá eftir niður-
skurðurinn. Hvorki náðist í Davíð
Oddsson né Friðrik Sophusson fjár-
málaráðherra í gær en hugsanlegt
er að farið verði út f erlendar lán-
tökur til að létta á fjármagnsmark-
aðnum innanlands áður en niður-
skurðurinn hefst. Ásmundur benti
þó á að erlendar lántökur væm
seðlaprentun í sjálfu sér og gætu
hafl aðrar óheppilegar afleiðingar.
- Þetta em hinar verstu ógöng-
ur, sagði Ásmundur „en það er ljóst
að vaxtahækkun gerir erfiðar fyrir
um allt framhald á þjóðarsátt og
gerð kjarasamninga í haust“.
-gpm