Þjóðviljinn - 09.05.1991, Síða 1
86. tölublað Fimmtudagur 8. maí 1991 56. árgangur
sSm
jSÍjWÍ
iVáé;.
' t UHHÉ
'f
, u
v: ! vV'y v'
Hrein torg, fögur borg... Ljósmyndari Þjóðviljans rakst á þennan haug af alls kyns drasli og leifar af amer-
ískum kagga í hjarta borgarinnar á annars fögrum degi í gær. Mynd: Jim Smart.
Alfreð með landsliðinu á ný
Flest virðist benda til þess að
Alfreð Gíslason handknatt-
leiksmaður gefí kost á sér í
íslenska landsliðið á ný og
taki þátt í æfingaferð liðsins til
Danmerkur og Svíþjóðar í byrj-
un júlí.
Þorbergur Aðalsteinsson lands-
liðsþjálfari segir að Alfreð hafí
tekið mjög jákvætt í það að vera
með á nýjan leik, enda yrði það
liðinu mitíll styrkur. Æfingaleik-
imir við Dani og Svía í júlí er upp-
hafið að lokaspretti liðsins fyrir B-
keppnina sem hefst í Austurríki
þann 18. mars á næsta ári. Stefnt er
að því að íslenska iiðið leiki allt að
tuttugu og fimm landsleiki áður en
að alvörunni kemur. Meðal þeirra
landsleikja sem þegar hafa verið
ákveðnir má nefna að Tékkar
koma hingað til lands um miðjan
september, í nóvember tekur ís-
lenska liðið þátt í sterku móti í
Ungverjalandi, Svíar koma hingað
til lands í byijun næsta árs, mót í
Austurríki í seinnihluta janúar og
Júgóslavar eru síðan væntanlegir
hingað í marsbyrjun.
Seinnihluta þessa_ mánaðar
verður haldið þing HSI og liggja
fyrir því alls fjörutíu og fimm
breytingartillögur og þar á meðal
um breytta skipan lslandsmótsins.
Reiknað er með að, allt að mánað-
arhlé verði gert á Islandsmótinu í
handknattleik vegna B-keppninnar
í Austurríki.
-grh
Atlaga
stjómar
að þjóðar-
sáttinni
Vaxtahækkanir ríkis-
stjórnarinnar stefna
þjóðarsáttinni í voða,
en fram til þessa hafa
markmið kjara-
samninganna staðist.
Kjararannsóknarnefnd hefur
sent frá sér tilkynningu um nið-
urstöður nefndarinnar fyrir fyrri
hluta samningtímabils Þjóðar-
sáttarsamninganna. í niðurstöð-
unum kemur fram að kaupmátt-
ur hafi staðið í stað fyrstu þrjá
ársfjórðungana, en aukist á þeim
fjórða. Kjararannsóknarnefnd
telur þetta í samræmi við þau
markmið sem sett voru með gerð
samninganna. Leifur Guöjónsson
hjá Verðlagseftirliti verkalýðsfé-
laganna segir að þetta séu
ánægjuleg tíðindi, en Leifur er
hræddur um að kaupmáttur fari
minnkandi núna þegar vextirnir
fara hækkandi.
Kjararannsóknamefnd sendi í
gær ffá sér niðurstöður nefndarinn-
ar ffá fyrri hluta samningtímabils
Þjóðarsáttarsamninganna. Þar
kemur fram að þróun kaupmáttar á
árinu 1990 hafi verið með þeim
hætti að hann hélst svo til óbreyttur
fyrstu þrjá ársfjórðungana og jókst
nokkuð á þeim fjórða. Kjararann-
sóknamefnd segir þetta vera i fúllu
samræmi við það sem stefnt var að
við gerð samninganna.
Laun landverkafólks í Alþýðu-
sambandinu hækkuðu að meðaltali
um 6% frá fjórða ársfjórðungi 1989
til fjórða ársfjórðungs 1990. Á
sama tíma hækkaði framfærsluvísi-
talan um 8%. Kjararannsóknar-
nefnd segir að þetta séu áhrif ffá
fjórða ársfjórðungi 1989, því þá var
kaupmáttarrýrnunin um tæplega
2%.
Breyting á mánaðartekjum
sama hóps (þ.e. mánaðartekjur með
yfirvinnu) ffá fjórða ársfjórðungi
1989 til sama tíma 1990, er sú að
launin hafa hækkað um 6%. Kaup-
máttur heildartekna hefur því einn-
ig lækkað um 2%. Meðalvinnutími
hjá landverkafólki innan ASI stytt-
ist um hálfa klukkustund á viku að
meðaltali á sama tímabili.
Kaupmáttur launa á fjórða árs-
fjórðungi 1990, hefur hækkað
2,1%, ef miðað er við paraðan sam-
anburð. Paraður samanburður
byggir á því að útreikningur launa-
hækkana miðast einungis við laun
þeirra einstaklinga sem koma fyrir
á tveimur ársfjórðungum í röð.
Leifur Guðjónsson hjá Verð-
lagseftirliti verkalýðsfélaganna
sagði að kjararannsóknir væru ekki
alveg algildar, - þó verða menn að
taka ákveðið mark á þeim. Þær eru
þó stundum dálítið sveiflukenndar,
sagði Leifur.
Leifur sagði að Þjóðarsáttin hafi
staðist mun betur en búast hafi mátt
við. Og þessar niðurstöður Kjara-
rannsóknamefndar séu vísbending
um það. - En við verðum að hafa
það í huga að ýmsir aðilar hafa ver-
ið að hækka gjaldskrár sínar, og þá
hafa ýmis sveitarfélög verið erfið í
sambandi við hækkanir, sagði Leif-
ur.
Launþegahreyfingar hafa að
undanfomu verið að vara stjómvöld
við vaxtahækkunum. Nýlega sam-
þykkti aðalfúndur Iðju og stjóm
Dagsbrúnar harðorðar ályktanir þar
sem félögin vömðu við hækkun
vaxta. Leifúr sagði að nú þegar rik-
ið hafi komið með fordæmið og
hækkað vextina hjá sér væri allt
eins víst að bankamir kæmu næstir
með sínar hækkanir. „Þetta er ein
skrúfa og þegar hún fer að snúast,
þá held ég að það verði illa ráðið
við það sem við köllum verð-
bólgu," sagði Leifur. „Viðskiptin
em þannig að verslanir fá lán til að
kaupa vömr, ef vextimir hækka
kemur það niður á vömverði. Einn-
ig þarf fólk sem er með lán á herð-
unum að borga af þeim og ef vext-
imir hækka verða afborganir hærri.
Það segir sig því sjálft að svona
ferli þýðir ekkert annað en kaup-
máttartap," sagði Leifur Guðjóns-
son. -sþ
Spennandi
viðureign
Jóhanns við
Kasparov
/
Helgi Olafsson
skrifar um
OÍafur Ragnar Grímsson
í brennidepli
mótið