Þjóðviljinn - 30.07.1991, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 30.07.1991, Blaðsíða 5
FEETTIR A Umsjón: Dagur Þorleifsson Talabani leit- ar hiálpar hiá Major Jalal Talabani, einn af helstu leiðtogum Kúrda í írak, er kominn til Lundúna og er gert ráð íyrir því að hann hitti John Major, forsætis- ráðherra Breta, að máli í dag. Talabani segist kominn til að leita vemdar fyrir Kúrda og stuðnings bresku stjómarinnar við kröfur þeirra um sjálfstjóm. Major hafði forgöngu um að vesturlandaríki sendu herlið inn í íraska Kúrdistan til vemdar lands- mönnum. Það lið er nú á brott og óttast Íraks-Kúrdar að hraðlið vesturlandaríkja, sem tekið hefúr sér stöðu í tyrkneska Kúrdistan, muni ekki duga til að hræða Iraks- stjóm frá ofsóknum á hendur Kúrdum. Talabani sagðist í gær ef- ast um að nokkuð kæmi út úr samningaumleitunum Kúrda við Iraksstjórn um sjálfstjórn og kvaðst einnig telja hæpið að Sadd- am Iraksforseta væri treystandi til að standa við samkomulag, þótt það næðist. ✓ Israel inn úr kuldanum Kona og barn króatisks lögreglumanns sem serbneskir skæmliöar drápu - Serbar eru sagðir stefna aö „stórserbnesku" riki. „Það eru lík allsstaðara Tugir en ef til vill hundruð manna féllu í bardögum milli Króata og Serba um helgina og er eftir þau manndráp flestra mál að úrelt sé að tala um yfirvofandi stríð milli þessara tveggja stærstu þjóða Júgóslavíu. Það stríð sé þegar skollið á. Bardagamir um helgina voru þeir mannskæðustu frá því að til ófriðar kom þarlendis eftir sjálfstæð- isyfirlýsingar Króatíu og Slóveníu í júnílok. Um helgina var einkum barist í nánd við borgina Glina í Króatíu, ekki alllangt frá landamæmm þess lýðveldis og Bosníu. Eftir embættis- manni einum í Dvor na Uni, bæ á þeim slóðum, er haft að um 100 króatískir þjóðvarðarliðar og lög- reglumenn hafi fallið þar frá því á fóstudag. Sjónarvottar skýra frá tugum dá- inna og deyjandi manna, sem liggja víðsvegar meðfram vegum, í húsa- görðum, á ökmm sem standa í Mafían sögð hafa myrt „bankastjóra Guðs Fyrrverandi liðsmaður siki- leysku Mafíunnar heldur því fram að hún hafi ráðið af dögum Roberto Calvi, aðal- bankastjóra ítalska bankans Banco Ambrosiano sem fannst hengdur undir brú í Lundúnum 1982. Sá sem þetta fullyrðir heitir Francesco Marino Mannoia. Hann er nú í New York og vinnur með bandarískum yfirvöldum gegn því að þau vemdi hann fyrir fýrrverandi fé- lögum hans. ítölsk blöð höfðu í gær eftir Mannoia að Francesco Di Carlo, fyrrverandi mafiuforingi, hefði drep- ið Calvi undir Blackfriars Bridge í Lundúnum að skipun Pippos nokk- urs Calo, sem á sæti í Kúpólu (Cu- pola) svokallaðri. Svo er nefnt eins- konar æðstaráð Maflunnar og sitja í því helstu Qölskyldufeðumir i fé- lagsskapnum. Var Calvi að sögn Mannoia gefið að dauðasök að hafa dregið sér fé sem þeir Calo og Licio Gelli, fyrrum höfuðpaur ólöglegrar frimúrarastúku sem nefnd var P2, áttu í Banco Ambrosiano. Mannoia segir að tveir flugu- menn í þjónustu Mafinnar haft sagt honum frá þessu 1983. Di Carlo sit- ur nú í fangelsi eftir að breskur dóm- ari dæmdi hann til 25 ára fangelsis- vistar fyrir heróínsmygl í mars 1987. Deilt hefur verið um hvort Calvi, sem kallaður var „bankastjóri Guðs“ blóma og úti í skógum. „Þetta er algert helvíti," sagði fréttaljósmyndari einn. „Það em lík allsstaðar." Eftir fréttum að dæma er mann- fallið miklu meira Króata megin, enda hefur sambandsherinn síðan á fímmtudag þrásinnis veitt skæmlið- um þeim serbneskum, sem gegn Króötum berjast og nefnast sjetníkar, stuðning með stórskotahrið. A þó svo að heita að sambandsherinn sé að reyna að ganga á milli skæruliða og króatíska þjóðvarðarliðsins. Þar að auki berjast serbnesku skæmlið- amir, sem margir em af serbneska þjóðemisminnihlutanum í Króatíu er allt vill frekar en að heyra undir sjálfstæða stjóm þar, af hörku, ólíkt þeim einingum sambandshers sem sendar vom gegn Slóvenum. Talið er að samráð sé með yftr- stjóm sambandshers, sem er serb- nesk að mestu, ráðamönnum í Serbíu og sétníkunum um að gefa einingu Júgóslavíu upp á bátinn, en einbeita sér í stað þess að því að koma á fót „stórserbneskú' ríki, er nái auk Serbíu sjálfrar yfir Bosníu-Herzegó- vínu og drjúgan hluta Króatíu. Evrópubandalagið reynir enn að stilla til friðar og ætlar að fjölga eft- irlitsmönnum sínum í Júgóslavíu úr 50 í 150 og senda suma þeirra til Króatíu, en hingað til hafa þeir að- eins verið í Slóveníu. EB lofar einn- ig að taka til endurskoðunar ákvörð- un sína um að frysta efnahagsaðstoð til Júgóslavíu ef stríðandi aðilar láti af bardögum og hefji viðræður um ffamtíð landsins. Samþykkt hefur verið að taka Israel inn í Efnahagsnefhd Sam- einuðu þjóðanna fyrir Evrópu (ECE), jafnvel þótt það sé i Asíu landfræðilega séð. Var þetta sam- þykkt með atkvæðagreiðslu í Efnahags- og félagsmálaráði S.þ. í Genf á föstudag. Úrslit atkvæðagreiðslunnar þykja tíðindum sæta og er talið að þau séu merki þess að Israel sé nú komið á leið með að losna úr ein- angrun þeirri á alþjóðavettvangi sem arabaríki komu því í með að- stoð annarra þriðjaheimsrikja og austurblakkarinnar fyrrverandi. A föstudaginn greiddu atkvæði með lsrael nokkur Austur-Evrópu- og þriðjaheimsriki sem jafnan hafa hingað til verið því öndverð i at- kvæðagreiðslum. I ECE hafa fulltrúa Evrópurík- in öll auk Bandaríkjanna og Kan- ada og er hlutverk nefndarinnar að greiða fyrir viðskiptum milli að- ildarríkja. Hliðstæð nefnd á veg- um S.þ. er starfandi fyrir Vestur- Asíu, en ríkin þar, ísjömsk og mörg arabísk, banna Israel þar inngöngu. Calvi - ævilok undir Blackfriars Bridge vegna mikilla sambanda við Páfa- garð, hafj. verið ráðinn af dögum af sjálfum sér eða öðrum. Banco Am- brosiano fór á höfuðið í ágúst 1982 og skuldaði þá yfir miljarð dollara. Er Gelli meðal um 30 manna, sem gmnaðir em um fjársvik í tengslum við banka þennan. Mannoia vakti í s.l. viku athygli með uppljóstmn í kringum cndalok Aldos Moro, sem hryðjuverkamenn myrtu 1978. Að sögn Mannoia kærðu sumir fomstumanna kristi- legra demókrata sig ekkert um að AUGLYSING UM INNLAUSNARVERÐ VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ *) Á KR. 10.000,00 1984-1.fl. 01.08.91-01.02.92 kr. 53.859,13 *)lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi,1 og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, júlí 1991. SEÐLABANKI ÍSLANDS Síða 5 ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 30. júlí 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.