Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1995, Blaðsíða 1
IÞROTTIR
Getraunir:
Sænsk/enski boltinn:
122-212-1 xx-1112
ítalski boltinn:
1 x1 -x21 -11 x-x22x
Lottó 5/38:
212242931 (4)
Arnar markakongur:
Franskt
lið skoðar
tvíburana
Daniel Ólafsson, DV, Akranesi:
„Tilfmningin^að vera marka-
kóngur er jafn ljúf og síðast og
þetta var mjög gaman. Þetta er
hálfótrúiegt. Ég spilaði 7 leiki í
deildinni og skoraði 15 mörk. Ég
og Bjarki höfúm ekki fengið nein
atvinnutilboð enn þá en það
munu koma menn að fylgjast
með okkur í Evrópuleiknum
gegn Raith á þriðjudaginn. Eftir
það ættu málin að skýrast,"
sagði Arnar Gunnlaugsson,
markakóngur íslandsmótsins,
við DV en samkvæmt heimildum
DV mun að minnsta kosti eitt
franskt lið hafa áhuga á þeim
tvíburabræðrum.
Þetta er i annað sinn sem Am-
ar er markakóngur 1. deildarinn-
ar. Hann skoraði einnig 15 mörk
árið 1992, en þá þurfti hann til
þess 18 leiki.
Amar hefur nú skorað í síð-
ustu 11 leikjum sinum í 1. deild-
inni, fjórum -síðustu leikjunum
1992 og í öllum sjö leikjunum í
ár. Þaö er met í 10 liða 1. deild
en Þórólfur Beck úr KR skoraði,
hins vegar í 15 leikjum í röð í
kringum 1960.
Birkir
með 200.
leikinn
-198 í röð
Birkir Kristinsson, markvörð-
ur Fram og íslenska landsliðsins
í knattspymu, lék sinn 200. leik í
1. deildinni á laugardaginn þegar
Framarar mættu Val í kveðju-
leik sínum í deildinni að sinni.
Hann er íjórtándi íslenski knatt-
spymumaðurinn frá upphafi
sem nær þessum áfanga en einn
annar náði honum í sumar, Kefl-
víkingurinn Ragnar Margeirs-
son.
Birkir hefur leikið 198 leiki í
röð án þess að missa úr leik í
deildinni, eða í 11 tímabil sam-
fleytt. Það er met sem seint verð-
ur slegið eða bætt, nema af hon-
um sjálfúm.
Jón Grétar með
114 leiki í röð
Jón Grétar Jónsson, fyrirliði
Valsmanna, kemur næstur á eft-
ir Birki af þeim sem nú spila í 1.
deildinni. Jón Grétar hefur spil-
að rúm sex tímabit án þess að
missa úr leik 5 deildinni, eða 114
leiki í röð. Næstm- á eftir honum
er Gunnar Oddsson, fyrirliði
Leifturs, sem lék sinn 100. leik í
röð í deildinni á laugardaginn.
Guðmundur hættur
hjá Fylkismönnum
Guðmundur Torfason, fyrrum atvinnu- og landsliðs-
mpður í knattspyrnu, tilkynnti í gær að hann væri
hættur að leika með Fylkismönnum sem unnu sér
sæti í 1. deildinni á dögunum. Guðmundur sneri heim
úr atvinnumennsku síðasta vetur og gekk til liðs við
Árbæjarliðið.
í fréttatilkynningu sem Guðmundur sendi út í gær
sagði hann: „Komið hefur upp ágreiningur við stjóm
knattspyrnudeildar Fylkis og hef ég í framhaldi af því
tilkynnt að ég muni ekki starfa hjá knattspymudeild
Fylkis eftir tímabilið 1995. Óska ég meistaraflokksliði
félagsins alls hins besta á næsta keppnistímabili í 1.
deild.“
it
Evrópa
vanní
New York
- sjá bls. 23
IA
og
KR
slást
Guðjón
Heimildir
DV herma
að stórveldin
í íslenskri
knattspyrnu,
í s 1 a n d s -
meistarar
Akraness og
bikarmeistarar KR-inga, bítist
nú um Guðjón Þórðarson sem
þjálfara fyrir næsta keppnistíma-
bil.
Guðjón mun hafa átt átt í við-
ræðum við Skagamenn upp á
síðkastið um aö taka við liðinu
að nýju en eins og kunnugt er þá
hættir Logi Ólafsson eftir tíma-
bilið og tekur við stöðu lands-
liðsþjálfara. Teitur Þórðarson og
Lúkas Kostic hafa einnig verið
nefndir sem líklegir eftirmenn
Loga en Guöjón virðist vera efst-
ur á óskalistanum hjá meistur-
unum.
KR-ingar ætla ekki að sleppa
Guðjóni svo glatt enda hefur
hann náð mjög góðum árangri
með liðið þessi tvö ár sem hann
hefur verið við stjórnvölinn.
Samkvæmt heimildum DV hafa
KR-ingar boðið Guðjóni nýjan
samning sem gildir til þriggja
ára. Stefhan hjá KR-ingum er að
halda öllum þeim leikmönnum
sem léku með liðinu í sumar.'