Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1995, Side 6
22
FÖSTUDAGUR 20. OKTÖBER 1995
ngar
Sýnjngar
Argentína, steikhús
Barónsstig 11a
L Jóhann G. Jóhannssson sýnir
rúmelga tuttugu myndir, unnar
með blandaðri tækni. Sýningin
stendur til 23. nóvember.
Ásmundarsafn
Sigtúni
Þar stendur yfir sýning sem ber
i yfirskriftina „Stíllinn í list Ás-
mundar Sveinssonar". Sýningin
er opin kl. 10-16.
Ásmundarsalur
Freyjugötu 41
Árni Ingólfsson sýnir frístandandi
verk og myndir á veggjum, unnin
sérstaklega fyrir staðinn. Sýningin
stendur til 29. október.
Gallerí Art-Hún
Stangarhyl 7, Rvik
Þar stendur yfir sýning á verkum
Erlu Axelsdóttur, Helgu Ár-
mannsdóttur, Elínborgar Guð-
mundsdóttur, Sigrúnar Gunnars-
dóttur og Margrétar Salome.
■ Galleríið er opið alla virka daga
kl. 12-18.
Gallerí Fold
Laugavegi118d
Opið daglega kl. 10-18 nema
sunnudaga kl. 14-18.
Gallerí Greip
Á laugardag kl. 14 verður opnuð
sýning á verkum Birgis Snæ-
bjarnar Birgissonar. Sýningin
stendur til 5. nóvember og er
opin kl. 14-18 alla daga nema
mánudaga.
Gallerí Guðmundar
Ánanaustum 15, sími 21425
Galleriið er opið virka daga kl.
10-18.
Gallerí List
Skipholti 50b
Galleríið er opið alla daga kl.
11-18 nema laugardaga kl.
11- 14. Sýningar í gluggum á
hverju kvöldi.
Gallerí Ríkey
Hverfisgötu 59
Sýning á verkum Rikeyjar. Opið kl.
13-18 virka daga en laugardaga og
sunnudaga kl. 13-16.
Gallerí Stöðlakot
Bókhlöðustíg 6
Á morgun opnar Helga Jóhann-
esdóttir leirlistarkona sýningu
sem hún nefnir „Ljós" en lista-
konan teflir saman leir, málmi,
textíl og gleri. Sýningin er opin
alla daga kl. 13-18 til 5. nóvemb-
er.
Gallerí Sævars Karls
Bankastræti 9
Árni Ingólfsson sýnir. Opið virka
daga kl. 10-18.
Gallerí Úmbra
Um helgina lýkur sýningu Þor-
steins J á Litabókinni. Sýningin
er opin kl. 14-18 föstudag, laug-
ardag og sunnudag.
Gerðarsafrt
Á morgun kl. 16 opnar Kees Ball-
intijn sýningu á silkiþrykksmynd-
um, unnum eftir Ijósmyndum af
íslensku landslagi.
w Hafnarborg
Á morgun opnar Guðjón Bjarna-
son sýriingu á málverkum. Sýn-
ingarsalir Hafnarborgar eru opnir
alla daga nema þriðjudaga kl.
12- 18, en á fimmtudögum er
opið til kl. 21. Inga Rós Loftsdótt-
ir opnar sýningu í Sverrissal á
morgun. Á sýningunni verða ol-
íumálverk og blýantsteikningar.
Sýningin stendurtil 6. nóvember.
Kaffi Mílanó
FaxafeniH
Guðbjörg Hákonsdóttir (Gugga)
sýnir verk sin. Opið mánud. kl.
9-19, þriðjud., miðvikud. og
fimmtud. kl. 9-23.30, föstud. kl.
9-1 og laugard. kl. 9-18.
Kjarvalsstaðir
Á morgun verður opnuð í vestur-
sal Kjarvalsstaða sýning á ís-
lenskri samtímalist sem ber yfir-
skriftina Eins konar hversdagsró-
matík. 16 listamenn sýna. Þá
verður opnuð í miðrými og forsöl-
DV-mynd BG
Á Kjarvalsstöðum eru nú sýnilegar vissar áherslubreytingar í myndlistarheiminum.
Samtímalist á Kjarvalsstöðum:
Eins konarhversdagsrómantík
„Þetta er samsýning sextán ungra
myndlistarmanna og þeir eru allir
fæddir á sjöunda áratugnum, þeir
yngstu 1970. Flestir hafa farið í fram-
haldsnám í myndlist erlendis, eða
þrettán,“ segir Auður Ólafsdóttir,
sýningarstjóri á Kjarvalsstöðum, um
sýningu á íslenskri samtímaiist sem
verður opnuð þar í vestursálnum á
morgun.
„Hugmyndin með þessari sýningu
var að gera sýnilegar vissar áherslu-
breytingar í myndlistarheiminum
sem hafa verið í gerjun síðastliðin
misseri og eru í deiglunni. Fyrir utan
það að vera fuUtrúar fyrir sjálfa sig,
eins og allir listamenn eru, eru þeir
kannski líka fuUtrúar fyrir ákveðinn
tíma,“ segir sýningarstjórinn.
Sýningin á Kjarvalsstöðum ber yf-
irskriftina Eins konar hversdags-
rómantík en eftirtaldir Ustamenn
sýna þar: Birgir Snæbjöm Birgisson,
Eygló Harðardóttir, Finnur Amar
Amarsson, Guðbjörg Hjartardóttir
Leaman, Gústaf BoUason, Hlynur
Helgason, Hulda Hrönn Ágústsdótt-
ir, LUja EgUsdóttir, Pétur Óm Frið-
riksson, Ragna Sigurðardóttir, Sig-
tryggur Bjami Baldvinsson, Stein-
unn Helga Sigurðardóttir, Valgerður
Guðlaugsdóttir, Victor Guðmundur
CUia, Þorbjörg Þorvaldsdóttir og
Þorri Hringsson.
Sýningin stendur til 6. desember
og veröur opin daglega frá kl. 10-18.
Kjarvalsstaðir:
Arkitektinn
Einar Sveinsson
Á morgun verður opnuð í miðrými
og forsölum Kjarvalsstaða yfirUts-
sýning á verkum Einars Sveinssonar
(1906-1973) arkitekts. Hann var ráð-
inn húsameistari Reykjavíkur 1934
og gegndi því starfi tU ævUoka. Auk
þess að gera uppdrætti að byggingum
hafði Einar yfirumsjón með skipu-
lagsmálum Reykjavíkur á ánmum
1934-49 og skipulagði ásamt sam-
starfsmönnum flest bæjarhverfi sem
byggðust upp á því tímabiU. Hann
var einnig merkur brautryðjandi í
hönnun íbúðarhúsa og höfðu hug-
myndir hans á því sviði víðtæk áhrif
á reykvíska húsagerð um og efdr
seinni heimsstyijöld.
Á sýningunni er leitast við að gefa
sem gleggsta heUdarmynd af starfi
Einars með því að beina sjónum að
framlagi hans á ólíkum sviðum. Auk
ljósmynda og frumteUcninga eru á
sýningunni allmörg upprunaleg til-
lögulíkön af byggingum Einars.
Eitt af verkum Ingu Rósu.
Svenrissalur í Hafnarborg:
Olíumálverk og
blýantsteikningar
Inga Rósa Loftsdóttir opnar sýn-
ingu á verkum sínum í Sverrissal í
Hafnárborg á morgun. Sýningin
stendur til 6. nóvember en á henni
eru olíumálverk og blýantsteikingar.
Þetta er fjórða einkasýning Ingu
Rósu en hún lauk námi frá MHÍ1987
og stundaði síðan framhaldsnám í
Hollandi.
Helga teflir saman leir, málmi, textíl
og gleri.
Leirlistarsýn-
ing Helgu Jó-
hannesdóttur
Leirlistarkonan Helga Jóhannes-
dóttir opnar á morgun sýningu á
verkum sínum í Stöðlakoti. Þetta er
önnur einkasýning hénnar en Helga
hefur auk þess tekið þátt í fjölda sam-
sýninga.
Yfirskrift sýningarinnar í Stöðla-
koti er „Ljós“ en þar teflir Helga sam-
an leir, málmi, textíl og gleri. Hún
hefur starfað á eigin vinnustofu á
Álafossi frá 1991 en þá lauk Helga
námi frá MHI.
Gallerí Greip:
Mannlausar
myndir
Á morgun verður opnuð í GaUerí
Greip sýning á verkum Birgis Snæ-
bjamar Birgissonar.
Birgir hefur í nokkur ár málað frá-
sagnarkenndar myndir af bömum
og unglingum en segist í þessum
nýjum verkum nálgast upphaf eöa
núllpunkt frásagnar. Þar er ýmist
eitthvað í vændum eða hefur þegar
gerst en frásögn af því er ekki hafin.
Myndimar, sem em mannlausar,
em aUar unnar með olíu á striga á
þessu ári.
Sýning Birgis stendur til 5. nóvemb-
er en hann tekur einnig þátt í samsýn-
ingu ungra listamanna sem verður
opnuð á Kjarvalsstöðum í dag.
Silkiþrykks-
myndir í
Gerðarsafni
í Gerðarsafni stendur nú yfir sýn-
ing á silkiþrykksmyndum eftir Kees
Ballintijn, unnum eftir ljósmyndum
af íslensku landslagi. Balhntijn sýndi
fyrst 1967 en hefur síðan haldið fjöl-
margar ljósmyndasýningar.
Á sýningunni eru 24 myndir og að
auki 6 grafískar landslagsljósmynd-
ir.
Guðjón í
Hafnarborg
Guðjón Bjarnason opnar sýningu á
verkum sínum í Hafnarborg á morg-
un. Þetta eru sömu verk og lista-
maðurinn sýndi í Drammen Kunst-
forening í Noregi fyrr á árinu.
Uppstillingar
Vignis
Um helgina er síðasta sýningarhelgi
á verkum Vignis Jóhannssonar i
Listasetrinu Kirkjuhvoli á Akranesi.
Listamaðurinn sýnir þar skúlptúra
(uppstillingar) og málverk.
Sýningar
um yfirlitssýning á verkum Einars
Sveinssonar arkitekts (1906-
1973). Sýningin Kjarval-mótun-
arár 1885-1930 verður opin fram
í desember. Kaffistofa og safn-
verslun opin á sama tíma.
Listasafn Einars Jónssonar
Njarðargötu, sími 13797
Safnið er opið laugardaga og
sunnudaga kl. 13.30-16. Högg-
myndagarðurinn er opinn alla
daga. Inngangur er frá Freyju-
götu.
Listasafn Islands
Fríkirkjuvegi 7
Opið alla daga nema mánudaga
kl. 12-18.
Listasafn Kópavogs
Hamraborg 4
Listasafn Kópavogs og Nýlista-
safnið hefur nú tekið höndum
saman um að efna til sýningar á
grafíkverkum eftir þýsk-sviss-
neska listamanninn Dieter Roth.
Uppistaðan í sýningunni eru
myndir sem Dieter hefur fært
Nýlistasafninu að gjöf á undanf-
örnum 13 árum. Sýningin stend-
ur til 29. október.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar
Laugarnestanga
Sýning á völdum andlitsmyndum
eftir Sigurjón Ólafsson, Þessir
kollóttu steinar, mun standa í all-
an vetur. Safnið er opið á laugar-
dögum og sunnudögum kl.
14- 17. Kasffistofa safnsins er
opin á sama tíma.
Listhúsið í Laugardal
Engjateigi 17, sími 680430
Þar stendur yfir myndlistarsýning
á verkum eftir Sjofn Har. Sýning-
in ber yfirskriftina „íslensk nátt-
úra, íslenskt landslag." Þá sýnir
einnig spænski listamaðurinn
Antonio Hervás Amezcua mál-
verk og skúlptúra. Sýningin er
opin til 30. október. Opið virka
daga kl. 13-18 og laugardaga kl.
11-16.
Mokkakaffi
v/Skólavörðustíg
Birgir Schiöth sýnir blýantsport-
rett af oddvitum íslenskrar mynd-
listar og stendur sú sýning til 27.
október.
Nesstofusafn
Neströð, Seltjarnarnesi
Safnið opið á sunnudögum,
þriðjudögum, fimmtudögum og
laugardögum kl. 13-17.
Norræna húsið
Þar stendur yfir sýning á málverk-
um eftir Björgu Þorsteinsdóttur.
Hún sýnir olíu-, akrýl og vatns-
litamyndir, unnar á sl. tveimur
árum. Sýningin er opin daglega
kl. 14-19 og lýkur 22. október.
Póst- og símaminjasafnið
Austurgötu 11, Hafnarf., sími
54321
Opið sunnud. og þriðjud. kl.
15- 18.
Sparisjóður Hafnarfjarðar
Garðatorgi 1
Jóhann G. Jóhannsson sýnir
rúmlega 20 myndir, unnar með
blandaðri tækni. Sýningin stend-
ur til 26. október.
Þjóðminjasafnið
Opið sunnud., þriðjud. fimmtud.
og laugard. kl. 12-17.
Málverkasýning á
Akranesi
Friðrik Jónsson heldur málverka-
sýningu í Listahorni Upplýs-
ingamiðstöðvar Ferðamála á
Akranesi og stendur sýningin frá
15. otkóber til 31. nóvember. Á
sýningunni eru aðallega vatns-
litamyndir auk þriggja olíumál-
verka.
Kirkjuhvoll
Akranesi
Síðasta sýningarhelgi Vignis Jó-
hannssonar á verkum hans. Vign-
ir sýnir skúlptúra (uppstillingar)
og málverk. Opið í dag kl. 16-18
og um helgina kl. 15-18.