Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1995, Síða 4
24
FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1995
►v
T Ó N L I S I A R
\ I
ÖJlÖjJ JJ
Ymsir - Þrek og tár
ickit
Gömlu lögin lifna við á ný
I leikriti Ólafs Hauks Símonarsonar, Þrek og tár, sem sýnt er um þess-
ar mundir í Þjóðleikhúsinu, leikur tónlist stórt hlutverk; svo mikið að
ráðist hefur verið í að gefa hana út á geislaplötu. Leikritið gerist snemma
á sjöunda áratugnum og tónlistin er þar af leiðandi frá sama tímabili.
Þetta eru margfrægir slagarar og dægurlög mestanpart, bæði erlend og
innlend og má nefna lög eins og Fjóra káta þresti, Þrek og tár, Rökkurró
og Draumalandið sem dæmi um þau lög sem hér er boðið upp á. ’
Ekki er að neinu leyti hróflað við útsetningum laganna heldur er lagt
upp úr því að þau hljómi sem líkast upprunalegu útgáfunni. Tekst það
bærilega vel og þar á Tamlasveitin, eða hljómsveit Áka Hansen eins og
hún heitir i leikritinu, hvað stærstan þátt en hún fer hreint á kostum í
þessum lögum.
Flytjendur laganna eru fjölmargir og það veröur að segjast eins og er
að það er makalaust hvað mikið af hæfdeikaríku og frambærilegu söng-
fólki leynist í Þjóðleikhúsinu. Hitann og þungann af söngnum bera þau
Egill Ólafsson og Edda Heiðrún Backman og þarf ekki að fjölyrða um
frábæra frammistöðu þeirra. Aðrir sem koma við sögu og standa sig
ekki síður eru Elva Ósk Ólafsdóttir, Vigdís Gunnarsdóttir, Stefán Jóns-
son, Hilmir Snær Guðnason, Anna Kristín Arngrímsdóttir, Jóhann Sig-
urðarson, Sveinn Þ. Geirsson og Örn Ámason sem loksins fær að syngja
alvöru hetjutenór á plötu og gerir það með glans í laginu hans Sigfúsar
Einarssonar um Draumalandið.
Tónlistin í Þreki og tárum er gott dæmi um sérlega vel heppnaða end-
urgerð á gömlum þekktum dægurlögum.
Sigurður Þór Salvarsson
Ýmsir - Jólagestir Björgvins:
irkk
Dægurlög með
jólaívafi
Jólagestir 3 er í beinu framhaldi af
tveimur plötum sem Björgvin Halldórs-
son gerði með aðstoð einvalaliðs söngv-
ara og hljóðfæraleikara, Jólagestir og All-
ir fá þá eitthvað fallegt, en sú seinni kom
út 1989. Björgvin fylgir þeirri stefnu sem hann strax tók á fyrstu plöt-
unni að vera ekki með hin hefðbundnu jólalög heldur leitar hann í smiðju
erlendra tónskálda, einkanlega frá Ítalíu og hefur fengið textahöfundinn
góðkunna, Jónas Friðrik, til að semja íslenska texta sem tengjast jólun-
um. Textar hans ásamt einum eftir Friðrik Erlingsson eru haganlega
ortir. Sem fyrr bregst Björgvin ekki í því að hafa uppi á áheyrilegum
dægurlögum og er Jólagestir þægileg hlustun og auðvelt að láta sér líða
vel yfir plötunni en eiginleg jólalög eru ekki til staðar.
Björgvin hefur fengið til liðs við sig fjóra söngvara, ber þar fyrst að
telja dóttur hans, Svölu Björgvinsdóttur, sem söng með fóður sínum á
Allir fá þá eitthvað fallegt, þá ung að árum. Hún hefur þroskast síðan
og stendur nú á eigin fótum sem söngkona og fer ágætlega með fyrsta
lag plötunnar, Þú og ég og jól, þó enn vanti nokkra fyllingu í rödd henn-
ar til geta tekist á við klassískan dægurlagasöng. Helgi Bjömsson kem-
ur á óvart í laginu Ef ég nenni og fer sérlega skemmtilega með lagið og
er í raun „ólíkur“ sjálfum sér. Sigríður Beinteinsdóttir og Berglind Björk
eru báðar sjóaðar í flutningi dægurlaga en hafa þó gert betur og Björg-
vin sjálfur bregst ekki frekar en fyrri daginn i flutningi á tilflnninga-
þrungnum lögun. Kannski er helsti kostur Jólagesta 3, sem á em gull-
falleg lög, einnig helsti galli hennar, uppruninn leynir sér ekki og verð-
ur platan því nokkuð einhæf þegar á heildina er litið en þrátt fyrir það
er hún alltaf áheyrileg.
Hilmar Karlsson
Rúdolf - Jólasöngvar:
irkk
Vandaður flutningur
Þór Heiðar Ásgeirsson, Sesselja Krist-
jánsdóttir, Sigrún Þorgeirsdóttir og Skarp-
héðin Þór Hjartarson eru fjórir söngvara
sem skipa kvartettinn Rúdolf, sem syngur
jólasöngva og er það nafn á plötu þeirra.
Stendur Jólasöngvar sannarlega undir
nafni sem jólaplatan í ár. Á plötunni eru
tuttugu jólalög, langflest þeirra þekkt, mörg laganna þau sem skapa hina
rétta jólastemningu og i flutningi Rúdolfs verða þau einkar áheyrileg.
Flutningurinn kvartetsins er látlaus og greinilegt er að hann er vel
samæfður, enda hefur Rúdolf undanfarin ár komið saman þegar fer að
líða að jólum og flutt þessi lög. Fjórmenningamir notast ekki við hljóð-
færi, raddimar fá að njóta sín og er stundum sungið á þær eins og hljóð-
færi, lögin eru öfl frekar stutt í útsetningum þeirra og eru útsetningar,
sem stundum þjóðlegar og stundum ryþmískar einkar látlausar og gerð-
ar af skynsemi, þar sem hinn þrönga flutningsform sem þau hafa valið
sér án hljóðfæra, gefur textunum meira gildi en í hinum hefðbundnu út-
setningum.
Styrkur kvartettsins liggur í samsöng þeirra sem er oft á tíðum fag-
ur á að hlusta, hvort sem um er að ræða létt bandarísk jólalög á borð
við Þorláksmessukvöld, Winter Wonderland'eða Let It Snow, íslenska
húsganga eins og Hátíð fer að höndum ein og Hin fyrstu jöl, bamagæl-
ur eins og Það á að gefa bömum brauð og Jólasveinar ganga um gólf
eða sálma á borð við Blíða nótt (Heims um ból), Frá borg er nefnist Bet-
lehem og Ó borgin helga Beflehem. Textar eru flestir þekktir, en þó hef-
ur kvartettinn látið gerá nýja texta við eins og Rúdolf og er ekki að heyra
annað en vel hafi tekist til.
Þegar á heildina er litið er Jólasöngvar ákaflega þægileg og hugljúf
plata, hátíðleg án þess þó að vera það um of, platan er samt ekki fyrir
afla, hún reynir stundum á þolrifinn, en þeir sem hafa gaman af góðum
söng verða ekki fyrir vonbrigðum.
Hilmar Karlsson.
Bestu lög
Geirmundar
„Mér fannst bara tími kominn til að
taka bestu lögin mín saman og gefa
þau út á einni og sömu plötunni. Helst
vildi ég hafa þau tuttugu en einhverra
hluta vegna var það ekki hægt svo að
þau urðu átján á endanum, segir Geir-
mundur Valtýsson um tilurð nýjustu
plötunnar sinnar, Lífsdansins, sem
nýkomin er út. Á henni er að flnna
fjölmörg lög sem hafa yljað lands-
mönnum um hjartaræturnar á undan-
förnum árum og jafnvel áratugum.
Eitt lag hefur reyndar ekki komið út
áður. Það er Þegar sólin er sest, sigur-
lagið í söngvakeppni Skagfirðinga
fyrr á árinu.
„Síðan hljóðrituðum við Bíddu við
aftur,“ segir Geirmundur. „Þegar það
var tekið upp í gamla daga söng ég all-
ar raddir þrátt fyrir að kvenrödd eigi
greinilega að syngja viðlagið. Við
ákváðum því að bæta úr því og nú
syngja Guðrún Gunnarsdóttir og
BerglindBjörk Jónasdóttirþað. Nú, og
síðan voru nokkur lög endurhljóð-
blönduð og hreinsuð upp. Aðrar breyt-
ingar voru ekki gerðar á lögunum.
Eitt lag á mánuði
Geirmundur segir að ekki sé að
vænta plötu frá sér með nýju efni á
næstunni. Jafnvel ekki fyrr en haus-
tið 1997.
„Ástæðan? Hún er einföld, mig
vantar efni. Ég á ekkert til sem stend-
ur,“ segir hann. „Reyndar lofaði ég
sjálfum mér að semja eitt lag á mán-
uði í vetur og við skulum sjá hvað set-
ur. Við höfum reyndar velt næstu
Geirmundur Valtýsson: Næstu plötu er ekki að vænta fyrr en að tveimur árum liðn-
um.
plötu aðeins fyrir okkur, ég og Magn-
ús Kjartansson, hægri hönd min í
hljómplötumálunum. Mig langar til að
vanda mjög til verka en er mér jafn-
framt meðvitaður um að ég má ekki
breyta miklu frá gamla stílnum. Hins
vegar er hægt að útsetja lögin mín með
ýmsu móti og leyfa samt því sem hef-
ur verið kallað skagfirska sveiflan að
halda sér. Við höfum jafnvel rætt um
að hljóðrita næstu plötu vestanhafs en
hvort af því verður á eftir að koma í
ljós. Nægur timi er til stefnu.
Danshljómsveit Geirmundar hefur
í nógu að snúast eins og venjulega.
Hún spilar fimmtíu helgar á ári, tek-
ur sér aðeins tveggja vikna frí eftir
verslunarmannahelgi. Geirmundur
segist vera búinn að bóka sig og sína
menn fram í september. Hljómsveitin
hefur spilað heilmikið í höfuðborginni
í haust. Eftir áramót er ætlunin sú að
taka lífinu rólega, að sögn hljómsveit-
arstjórans. Það þýðir að hljómsveitin
ætlar halda sig að mestu við heima-
slóðir, gróft til tekið Norðurlandskjör-
dæmi vestra. í hljómsveitinni eru
núna með Geirmundi þeir Eiríkur
Hilmisson gítarleikari, Kristján Bald-
vinsson trommari og Steinar Gunn-
arsson sem spilar á bassa.
-ÁT-
Tvö aðallög og tólf auka
Pétur Einarsson - P6: Næsta plata verður með öllum lögum
fullunnum. DV-mynd
Pétur Einarsson, forsprakki eins manns hljómsveitar-
innar P6, fer ekki troðnar slóðir i tónlistarmálunum. Hann
sendi fyrir nokkrum dögum frá sér plötuna Prologus. Á
henni eru lögin Fly Without og The World Within eftir Pét-
ur og til að hlustendur geti kynnst lagasmíðum hans nán-
ar á ýmsum stigum lætur hann tólf aukalög fylgja með.
Hann sér um allan hljóðfæraleik og söng sjálfur að því und-
anskildu að þeir rétta honum hjálparhönd Bragi Haralds-
son gítarleikari og Birgir Jóhann Birgisson á Hammond
orgel. Þá syngur Magnús Orri Grímsson miflirödd í öðru
aðallaginu.
„Plötunni hefur verið dreift í allar hljómplötuverslanir
og sáum við um það sjálfir, ég og útgefandinn. Síðan er ætl-
unin að senda kynningareintök til erlendra útgáfa ásamt
myndböndum og sérstakri kynningarmynd sem ég hef lát-
ið útbúa, segir Pétur. „Fram til áramóta einbeiti ég mér
hins vegar að jólavertíðinni og reyni að læra sem mest af
því að kynnast henni í návígi. Það er nú þegar orðið heil-
mikill skóli.
Hann segir að næsta plata sem kemur út með P6 verði
með öllum lögum fuflbúnum og vonast til að geta byrjað
að taka upp fljótlega á næsta ári. Harrn á rúmlega eitt hund-
rað lög tilbúin og i hverri viku bætast við eitt til þrjú.
Pétur Einarsson notar leið til að kynna sig og tórilist sína
sem lítt hefur verið beitt hér á landi en ryður sér mjög til
rúms erlendis. Hann hefur útbúið heimasíðu á Intemetinu
og er raunar að endurbæta hana eftir því sem tími gefst
til. Þeir sem áhuga og aðstöðu hafa geta skoðað það sem
P6 hefur fram að færa með því að slá inn http://www.vor-
tex.is/P6.
„Það er kominn gríðarlegur fjöldi tónlistarmanna og
hljómsveita á Internetið og mér sýnist þeim fjölga um hund-
rað til tvö hundruð á viku, segir Pétur. „Með svipuðu fram-
haldi gæti ég trúað því að þar verði að fmna um það bil
hundrað þúsund heimasíður sem tengjast tónlistinni með
mynd- og hljóðkynningum auk hins hefðbundna texta.
Þetta er án efa möguleiki til kynningar sem aflir þurfa að
gefa gaum að á næstunni. -ÁT-
Gleðifólkið-KK:
★★★
Með Gleðifólkinu geta aðdáendur
KK tekið gleði sína á ný og hún set-
ur KK aftur í fremstu röð þar sem
hann á heima. -SÞS
Þitt fyrsta bros - Gunnar Þórðarson:
★★★Á
Á plötunni má heyra þversniðið af
ferli Gunnars Þórðarsonar sem
popptónlistarmanns, allt frá Fyrsta
kossinum og Bláu augunum þínum
með Hljómum til endurútgáfu Stjórn-
arinnar og Jet Black Joe á gömlum
Hljóma- og Trúbrotslögum. -ÁT
Palli - Páll Óskar:
★★★
Þessi nýja plata Páls Óskars styrk-
ir stöðu hans sem eins besta söngv-
ara landsins og sýnir hve fjölhæfur
hann er. Hljóðfæraleikur er eins og
best verður á kosið. -SÞS
Crouqie d'oú lá
— Emiliana Torrini:
★★★Á
Söngurinn er ótrúlega íjölbreytt-
ur og hreint með ólíkindum hversu
margvíslegum söngstílum Emiliana
hefur yfir að ráða. -SÞS
Út og suður - Bogomil Font:
★★★Á
Það er ekki spuming að herra Font
syngur betur á þessari plötu en
nokkru sinni fyrr. Röddin er ekki eins
daufleg og hlutlaus og áður var, breidd
hennar og tónsvið meira. -ÁT
Hittu mig — Vinir Dóra:
★★★
Hittu mig er um margt vel heppn-
uð plata. Hljóðfæraleikur er með
ágætum og Dóri er í hraðri framför
sem gítarleikari. Blúsinn er vissu-
lega enn til staðar en hefur verið
poppaður talsvert upp. -ÁT