Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1995, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1995, Blaðsíða 12
 |{p^myndir Bíóborgin - sími 5511384 Pocahontas ★★ Eftir mikla sigurgöngu Walts Disneys í gerð teiknimynda brotlendir Pocahontas. Myndin er vel gerð og sum atriði skemmtileg en sálina vantar. íslenska talsetningin er vel unnin. -HK Assassins ★ Sylvester Stallone er góði launmorðinginn, Banderas er vondi launmorðinginn og Julianne Moore er góði þjófurinn í kvikmynd Richards Donners sem kann ýmislegt fyrir sér í gerð spennumynda en getur ekki bætt leiðinlega sögu. -HK Bíóhöllin - sími 587 8900 ;ig með ágætum sem ung og okka' Gullauga James Bond er loksins mættur aftur til leiks í hraðri og skemmtilegri mynd sem svíkur engan aðdáanda þessa mesta njósnara og kvennagulls allra tíma. Pierce Brosnan er góður og á eftir að verða betri. Einnig sýnd í Háskóla- bíói. -GB Hættulegir hugir ★★★ Michelle Pfeiffer stendur síl áhugasöm kennslukona. Þokkaleg mynd um sigur hins já- kvæða yfir hinu neikvæða, stundum þó of sykursæt. -GB Showgirls ★ Konungar kynþokkamyndanna í Hollywood, Verhoeven og Eszterhas, falla með glæsibrag á þessari innantómu og leiðinlegu mynd um sýningar- og dansstúlkumar í Las Ve- gas. -GB Saga-bíó - sími 587 8900 Algjör jólasveinn ★★ Ósköp sæt og ljúf mynd um fráskilinn heimilisföður sem lendir í því að taka að sér hlutverk jólasveinsins. Ungur sonur hans er stórhrifinn en ekki hinir fullorðnu. -GB Háskólabíó - sími 552 2140 Jade ★★ Sálfræðiþriller sem fer vel af stað en brotalamir koma í ljós þegar líður á myndina. Joe Eszterhas er greinilega að reyna að ná upp þeirri erótísku og grípandi stemningu sem ' Ir....................... einkenndi Basic Instinct en mistekst. -HK Fyrir regniö ★★★★ Stríðið í fyrrum lýðveldum Júgóslavíu er baksvið þessarar óvenju glæsilegu kvikmyndar frá Makedóníu um Íífshásk- ann sem fylgir því að taka afstöðu í lífinu. -GB Glórulaus ★★★ Einstaklega lífleg táningamynd um ríka krakka í Beverly Hills. Sagan er ekki merkileg en fyndin tilsvör söguhetjunn- ar Cher, sem er á skjön við allt, eru sérlega vel samin. -HK Laugarásbíó - sími 553 2075 Agnes ★★★ Vel gerð og oft áhrifamikil harmsaga ungrar konu sem má þola ýmislegt oíbeldi af hendi tveggja manna, uns hún grípur til örþrifaráða og verður ástmanni sínum að bana. Mikil dramatík en heldur er myndin samt lengi í gang og er það skaði. -GB Mortal Kombat ★★ Slagsmál og aftur slagsmál er það sem einkennir þessa hröðu mynd, sem gerð er eftir vinsælum tölvuleik. Sviðs- hönnun, búningar og áhættuatriði góð en þá er líka upp- talið það sem vit er í. -HK Feigðarboö ★★ Það er margt ágætlega gert í Feigðarboðum og á Peter Hall stundum auðvelt með að ná upp á yfirborðið innri spennu persónanna en handritið er brothætt og helstu persónur ekki nógu áhugaverðar. -HK Regnboginn - sími 551 9000 Borg týndu barnanna - ★★ Frumleg kvikmynd frá höfundum Delicatessen. Stórgóð sviðsetning og skrýtnar persónur vilja oft gleypa söguna, sem og það sem hún táknar svo úr verður kraðak, sem oft er erfitt að átta sig á. -HK Nine Months ★★★ Vel heppnuð gamanmynd um verðandi föður sem á erfitt með að sætta sig við orðinn hlut. Verður stundum þreyt- andi en nær sér á strik jafnóðum aftur. Lokaatriðið á fæð- ingardeildinni er mjög fyndið. -HK Beyond Rangoon ★★★ Oft á tíðum áhrifamikil ádeila á landsfeðuma í Burma en nokkuð brokkgeng þar sem myndmálið er sterkara en hið talaða mál. John Boorman hefur gert betri myndir en einnig verri. -HK Krakkar ★★★ Opinská, bersögul og krassandi mynd um unglinga í New York á hraðri leió til andskotans vegna fíkniefnaneyslu og almenns ólifnaðar. -GB Aö yfirlögöu ráöi Réttarhöld yfir morðingja beinast að hinu illræmda Alcatr- az-fangelsi. Sönn saga sem fær góða meðhöndlun í áhrifa- mikilli mynd. Kevin Bacon sýnir stórleik í hlutverki fang- ans Henri Young. -HK Braveheart ★★★ Mel Gibson hefur svo sannarlega gert stórmynd að öllu umfangi með frásögn af skosku frelsishetjunni William Wallace sem lifði eitthvað fram á 14. öldina en sverðaglam- ur ber mannlega þáttinn ofurliði. -GB Stjörnubíó - sími 551 6500 Indíáninn í skápnum ★★ Flatneskjuleg og óspennandi ævintýramynd um ungan dreng og töfraskápinn hans. Hins vegar vantar allan töfra- ljóma yfir frásögnina og myndin fellur kylliflöt. -GB Desperado ★★★ Kraftmikil og stórskemmtileg mynd um nafnlausan far- andsöngvara, með byssur í gítartöskunni, sem leitar hefnda fyrir morðið á kærustunni. Banderas í banastuði. -GB Benjamín dúfa Virkilega vel heppnuð kvikmynd. Gott handrit og sérlega góður leikur hjá ungu leikurunum ásamt góðri vinnu tæknimanna. Fer í hóp bestu íslenskra kvikmynda. Einnig sýnd í Bíóhöllinni. -HK Tár úr stelni ★★★★ Sérlega vönduð og vel heppnuð kvikmynd og ein allra besta íslenska kvikmyndin. Mannlýsingar eru sterkar og kvikmyndataka frábær. Mynd sem snertir mann og gefur mikið frá sér. -HK FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 1995 Michelle Pfeiffer í Dangerous Minds en hún er ein nokkurra leikkvenna sem þykja koma til greina að verða tilnefndar til óskarsverðlaunanna. Óskarsverðlaunin: Sterkur hópur leik kvenna sem berst um tilnefningar Tilnefningar til óskarsverðlauna verða ekki birtar fyrr en 13. febrúar, en nú er þeg- ar farið að spegúlera í tilnefningum og mikið lagt í auglýsingar út á frammistöðu ein- stakra leikara. Það er ljóst að baráttan mun vera mjög hörð meðal leikkvenna í ár, öfugt við í fyrra þegar það reyndist erfitt að finna fimm leikkonur, sem voru þess virði að eiga skilið hnossið. Þá var mest fjallað um það í þeirri defid að Linda Fiorentino var ekki gjaldgeng þar sem The Last Seduction hafði fyrst verið sýnd í sjónvarpi en altalað var að hún hafi verið sú eina sem skilið átti óskars- verðlaunin. Þau hlutu aftur á móti Jessica Lange fyrir leik sinn í Blue Sky, kvikmynd, sem fór fram hjá flestum og fór beint á myndbandamarkaðinn hér á landi. Það er annað upp á teningnum i ár og eru afrekin hjá kvenfólkinu mun meiri en hjá körlum þetta árið og margar sem koma til greina. Eins og fyrr segir er mikið skrafað um hverjar þær fimm verða sem hljóta tilnefn- ingu. Sú sem er heitust þessa dagana er Emma Thompson fyrir leik sinn í Sense and Sensibility en þær sem koma fast á hæla hennar eru Meryl Streep (The Bridges of Madison County), Nicole Kidman (To Die For), Susan Sarandon (Dead Man Walking), Sharon Stone (Casino), Kathy Bates (Dolores Claiborne), Michelle Pfeiffer (Dangerous Minds) og Elizabeth Shue (Leaving Las Veg- as). Þeir sem best þekkja til segja að hver einasta þessara hefði í fyrra getað hampað óskarsverðlaununum en í ár megi þær þakka fyrir tilnefningu. Til þess er tekið að nánast aldrei í kvik- myndasögunni hafa verið í boði jafn góð hlutverk fyrir konur og á síöasta ári og Kathy Bates, sem hér er í hlutverki sínu í Dolores Claiborne, þykir líkleg til að fá ósk- arstilnefningu fyrir leik sinn. kvenleikstjórar hafa heldur aldrei verið eins áberandi. Það er eins og Hollywood sé að uppgötva að 50% af þeim sem fara í kvik- myndahús séu konur. -HK Meryl Streep hefur fengið fjölmargar tilnefn- ingar til óskarsverðlauna og tvisvar hlotið þau. Hún þykir sýna afburðaleik í The Bridges of Madison County og er ein nokkurra sem koma til greina að fá ósk- arsverðlaun á næsta ári. Sharon Stone hefur hingað til ekki verið hátt skrifuð sem leikkona en hún þykir sýna snjlldarleik í Casion. Á myndlnni er hún í hlutverki sínu ásamt Joe Pesci. m í Bandaríkjunum - dagana 22.-25. desembei. Innkoma í milljónum dollara og heildarinnkoma. Angela Basset og Loretta Levin leika tvær af fjórum svörtum kon- um sem eru aðalpersónurnar í Waiting for the Exhale. Óvænt í efsta sæti Hin mannlega kvikmynd Waiting for the Exhale var ótvíræður sigur- vegari jólahelgina í Bandaríkjunum og kom það öllum á óvart. Náði myndin á einni helgi meira en hún kostaði í framleiðslu. Waiting for Exhale fjallar um fjórar vinkonur og eru það Angela Bassett, Whitney Houston, Lela Rochon og Loretta Levin sem leika þær. Leikstjóri er leikarinn kunni, Forest Whitaker, og er þetta fyrsta kvikmyndin sem hann leikstýrir en hann hefur áður leikstýrt sjónvarpsmyndum með góðum árangri. Það var mikil ánægja í herbúðum 20th Century Fox yfir velgengni Waiting for the Exhale en ekki var ánægjan jafn mikil hjá MGM/UA yfir gengi hinnar rándýru Cutthroad Island, sem kolféll, eins getur Oliver Stone varla verið ánægður með gengi Nixons sem þrátt fyrir mikið umtal náði aðeins tólfta sætinu. Nýj- ar myndir eru nokkrar á listanum; Grumpier Old Men er ffamhald vin- sællar myndar með Jack Lemmon og Walter Matthau í aöalhlutverk- um, Sudden Death er nýjasta kvik- mynd Jean-Claude Van Damme, Tom og Huck er byggð á klassísku ævintýri Mark Twain, með táningas- tjömunni Jonathan Taylor Thomas í aðalhlutverki og Dracula: Dead and Loving IT er nýjasta kvikmynd Mel Brooks. -HK 1 (-) Wailing for the Exhale 14,1 14,1 2 (2) Toy Story 12,1 115,7 3 (1) Jumanji 10,6 27,7 4 (-) Grumpier Old Men 7,8 7,8 5 (3) Heat 7,5 19,9 6 (4) Father of the Bride 7,0 31,8 7 (5) Sabrina 6,0 14,5 8 (-) Sudden Death 4,8 4,8 9 (-) Tom and Huck 3,2 3,2 10 (-) Dracula: Dead & Loving It 2,7 2,7 11 (-) Cutthroad Island 2,4 2,3 12(7) The American President 2,3 44,4 13 (-) Nixon 2,2 2,9 14(6) Goldeneye 2,0 86,9 15 (-) Balto 1,5 1,5 16 (14) Copycat 1,9 29,6 17 (8) Casino 1,0 35,0 18 (11) Sense and Sensibility 0,9 2,2 19 (9) Ace Ventura: When Nature Calls 0,6 102,8 20 (10) Money Train 0,6 33,4 Vampírumynd Tarantinos og Rodriguez Löngu áður en Quentin Tar- antino skrifaði handritin að Reser- voir Dogs og Pulp Fiction skrifaði hann handrit að kvikmynd sem hann kallaði From Dust till Dawn. Nú líður brátt að frumsýningu myndarinnar og er það vinur Tar- antinos, Robert Rodriguez (E1 mari- achi, Desperado), sem leikstýrir myndinni sem fjallar um tvo bræð- ur og leikur Tarantino annan bróð- urinn en hinn bróðurinn leikur nýjasta stjaman í Hollywood, Geor- ge Clooney, en eftir frammistöðu sína í hinni vinsælu sjónvarps- þáttaröð ER eru honum allar dyr opnar í höfuðborg skemmtanaiðn- aðarins. Bræðumir eru glæpa- menn á flótta. Þeir rekast á Fuller- fjölskylduna og taka hana sem gísla. Þeir hefðu samt betur haldið ferðinni áfram því fjölskyldan er ekki öll þar sem hún er séð þegar dimma tekur. Harvey Keitel, Juli- ette Lewis og Emest Liu leika Full- er-fjölskylduna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.