Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1996, Qupperneq 2
22
MÁNUDAGUR 29. JANÚAR 1996
íþróttir
Blak:
Þróttur R.
og HK eru
á toppnum
Stjarnan vann góðan sigur á
HK, 3-2, í 1. deild karla i Garða-
bæ á laugardaginn. Reykjavíkur-
Þróttur heldur forystu sinni í
deildinni eftir 3-1 sigur á ÍS.
Staðan i 1. deild karla:
Þróttur R. 16 14 2 45-25 45
Stjarnan 15 10 5 39-26 39
HK 15 9 6 33-25 33
ÍS 14 6 8 26-27 26
Þróttur N. 16 5 11 24-40 24
KA 12 1 11 10-34 10
HK tók á ný forystuna í 1.
deild kvenna með því að sigra
Víking, 3-2, í Digranesi.
Staðan í 1. deild kvenna:
HK 9 7 2 24-16 24
Þróttur N. 10 5 5 22-21 22
Víkingur 10 2 8 17-28 17
ÍS 7 4 3 16-14 16 -vs
Handbolti:
Yfirburðir hjá HK
gegn Þórsurum
á Akureyri
HK vann yfirburðasigur á
Þórsurum á Akureyri á föstu-
dagskvöldið, 17-30, og styrkti
með því stöðu sína á toppi 2.
deildar. Óskar Elvar Óskarsson
skoraði 7 mörk fyrir HK og Sig-
urður Valur Sveinsson 5.
BÍ vann Fjölni í Grafarvogi,
29-30, sama kvöld. Staðan í 2.
deild: HK 13 12 0 í 426-256 24
Fram 12 11 0 1 353-241 22
Þór A. 13 9 0 4 325-310 18
ÍH 12 7 0 5 261-266 14
Fylkir 11 6 0 5 291-260 12
Bf 12 3 2 7 311-362 8
Breiðablik 11 3 1 7 270-285 7
Ármann 12 1 1 10 249-398 3
Fjölnir 12 0 0 12 250-358 0
Körfubolti:
ísfirðingar
möluðu Reyni
fyrir vestan
KFÍ vann stórsigur á Reyni frá
Sandgerði, 91-60, í 1. deild karla
á ísafirði í gær. Enn stærri sigur
leit dagsins ljós í Hafnarfirði á
föstudagskvöldið þegar Þór frá
Þorlákshöfn vann þar ÍH, 67-120.
Staðan í 1. deild:
Snæfell 14 12 2 1350-1018 24
KFÍ 13 11 2 1136-975 22
ÍS 13 10 3. 976-919 20
Þór Þ. 13 7 6 1142-1059 14
Reynir S. 13 6 7 1056-1158 12
Leiknir R. 13 6 7 1023-1044 12
Selfoss 12 4 8 972-954 8
ÍH 13 3 10 1052-1229 6
Stjarnan 13 3 10 927-1089 6
Höttur 13 3 10 868-1047 6
Auðveldur KR-
sigur á Skaga
KR vann auðveldan sigur á ÍA,
38-67, í 1. deild kvenna í
körfuknattleik á Akranesi á
föstudagskvöldið. KR komst þar
með í 2. sætið í deildinni en
Breiðablik er með 22 stig, KR 20,
Keflavík 20 og Grindavík 18 stig.
Skíði:
Daníel fékk brons
í boðgöngunni
Daníel Jakobsson vann til
bronsverðlauna í boðgöngu á
sænska meistaramótinu á laug-
ardaginn. Daníel var i B-sveit
Ásarna sem náði óvænt þriðja
sæti, á eftir A-sveit sama félags
og sveit Piteá.
Guðríður
með
gegn
Rússum
Guðríður Guðjónsdóttir, handknattleikskonan snjalla
úr Fram, hefur ákveðið að gefa kost á sér í islenska
landsliðið sem leikur tvo erfiða leiki gegn Rússum í Evr-
ópukeppni landsliða hér á landi um næstu helgi. Guðríð-
ur var ekki í upprunalegum hópi Kristjáns Halldórsson-
ar landsliðsþjálfara en eftir mikinn þrýsting ákvað Guð-
ríður að gefa kost á sér í þessa leiki.
„Þetta er auðvitað mjög ánægjulegt fyrir okkur enda
býr Guðriður yfir mikilli reynslu og er frábær leikmað-
ur. Hún ákvað gefa sig i þessa leiki þar sem við eigum í
vandræðum með skyttuhlutverkin eftir að Auður Her-
mannsdóttir meiddist," sagði Kristján landsliðsþjálfari
við DV i gær.
- GH
Guðrtður Guðjónsdóttir kemur í landsliðið í stað Auðar
Hermannsdóttur.
Stórmótiö í sundi í Hafnarfirði:
Systkinin best
Systkinin Magnús og Eydís
Konráðsbörn urðu stigahæst í
karla- og kvennaflokki á stór-
sundsmóti Búnaðarbankans
og VISA sem fram fór í Sund-
höll Hafnarfjarðar í gær.
350 keppendur tóku þátt í
mótinu og var árangurinn
ágætur. Tvö heimsmet féllu á
mótinu en Bára B. Erlings-
dóttir setti tvö heimsmet í
flokki þroskaheftra í 100
metra og 200 metra flugsundi.
Magnús og Eydís unnu
bæði til þrennra gullverð-
launa og virðast vera í mjög
góðu formi um þessar mundir.
Elín Sigurðardóttir úr SH stóð
sig einnig mjög vel. Hún sigr-
aði í þremur greinum og náði
sínum besta árangri í 50 metra
skriðsundi þegar hún hlaut
tímann 27,95 sekúndur.
-GH
Jason
fær ekki
leyfi
Jason Ólafsson, leik-
maður með Brixen á
Ítalíu, fær ekki leyfi frá
félaginu til að leika
með íslenska landslið-
inu á Lottó-mótinu í
Noregi, sem hefst á
miðvikudaginn.
Brixen á að leika
mikilvægan leik í deifd-
inni á sama tíma og fé-
lagið tók ekki í mál að
láta sinn besta leik-
mann sleppa honum.
Þorbjörn Jensson,
landsliðsþjálfari, sagði
við DV í gærkvöldi að
ekki væri búið að
ákveða hver kæmi í
hans stað.
Sigurður Bjarnason
er kominn í landsliðs-
hópinn vegna meiðsla
Gunnars Andréssonar.
Áður hafði Jóhann G.
Jóhannsson úr KA
komið fyrir Valdimar
Grímsson sem kemst
ekki vegna vinnu. -GH
Það sáust oft lagleg tilþrif á Norðurlandamótinu í taekwondo í Laugardalshöllinni á laugardaginn.
DV-mynd Brynjar Gauti
NM í taekwondo:
ísland
fékk sex
verðlaun
- tveir náðu silfri
Sex íslendingar komust á verðlauna-
pall á Norðurlandamótinu í sjálfsvarnar-
íþróttinni taekwondo sem haldið var í
Laugardalshöllinni á laugardaginn.
Hlynur Örn Gissurarson náði í silfur í
-76 kg flokki karla og Reynir Sveinsson í
-70 kg flokki unglinga.
Bronsverðlaun fengu Kjartan Dag-
bjartsson og Magnús Örn Úlfarsson í +83
kg flokki karla, Ólafur B. Björnsson í -33
kg flokki karla og Erlingur Örn Jónsson
í —70 kg flokki karla.
Danir voru langsigursælastir á mótinu
en verðlaunaskipting var sem hér segir:
Gull Silfur Brons
Danmörk 12 8 11
Sviþjóð 5 1 3
Noregur 2 5 4
Finnland 2 1 2
ísland 0 2 4 -VS
Kristján með þrjú
tilboð í Þýskalandi
- Dormagen vill halda honum, tvö önnur hafa rætt við hann
Kristján Arason þjálfari þýska úr-
valsdeildarliðsins Dormagen er með
þrjú þjálfaratilboð í Þýskalandi fyrir
næsta keppnistímabil. Dormagen vill
halda honum og hefur gert honum
nýtt tilboð og tvö önnur lið hafa rætt
við hann.
„Það er úr vöndu að ráða. Ég hafði
hugsað mér að að yfirgefa Dormagen
en þeir hafa boðið mér nýjan samning
sem ég er að skoða. Ég get á þessari
stundu ekki greint frá hvaða félög
hafa rætt við mig en það ætti að skýr-
ast mjög fljótlega hvað ég geri,“ sagði
Kristján við DV í gærkvöldi.
Dormagen tapaði um helgina fyrir
Magdeburg á útivelli, 17-22, og er í 13.
sæti deildarinnar.
Hálfgerð svaðilför
„Þetta var hálfgerð svaðilsför. Ferð-
in tók 12 klukkustundir en venjulega
tekur hún ekki nema fjóra tíma. Það
var mikil umferðarteppa á leiðinni og
við lentum í 110 km bílaröð. Við kom-
um alltof seint í leikinn og undirbún-
ingur fyrir hann var því nánast eng-
inn. Við erum ekki í bráðri fallhættu
en markmiðið er að fikra sig ofar í
töflunni. Deildin er jöfn og nokkrir
sigrar í röð geta fleytt okkur í hóp
efstu liða,“ sagði Kristján.
-GH
Chicago vann Phoenix í gærkvöld
Chicago vann Portland, 93-82, í NBA-deildinni í
körfuknattleik í gærkvöld en leiknum lauk rétt áður en
blaðið fór í prentun.
Michael Jordan skoraði 31 stig fyrir Chicago en Charles
Barkley skoraði 20 stig fyrir Phoenix og tók 16 fráköst.
Þetta var 38. sigur Chicago í 41 leik og liðið þarf aðeins
að vinna einn leik enn til að jafna met LA Lakers sem er
39 sigrar í fyrstu 42 leikjunum. Það verður hins vegar erf-
iður leikur því hann er gegn meisturum Houston á úti-
velli.
Önnur úrslit um helgina eru á bls. 28. Leikur Chicago og
Phoenix er ekki inni í stöðunni sem þar er. -SV/VS
KR-ingar
ekki meö
í deilda-
bikarnum
- fara út í maí
KR-ingar ætla ekki að
vera með í deildabikar-
keppninni í knattspyrnu
sem hefst í fyrsta sinn í
vor. Áætlað er að keppnin
hefjist um mánaðamótin
mars-apríl og er stefnt að
þátttöku 36 liða í keppn-
inni.
„Mér finnst einfaldlega
of mikið fyrir strákana að
taka þátt í þessu móti til
viðbótar við Reykjavíkur-
mótið. Ég tel það ekki gott
að spila ört á gervigrasinu
og því vil ég frekar stefna
á að fara utan í maí og
spila við góðar aðstæður,
svona rétt fyrir íslands-
mótið,“ sagði Lúkas Kost-
ic, þjálfari KR, við DV í
gær. -GH