Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1996, Side 1
MÁNUDAGUR 25. MARS 1QQ«
IÞROTTIR
Getraunir:
Enski boltinn
112x11111111x
Italski boltinn
122112111 x122
Lottó 5/38:
411 1315 22(36)
ififi/f/í/ifi/fffffffííffífif/f/ffff
Hljómsveit
IBV hótað
lögreglu
- fékk ekki að spila í Ásgarði
Vestmannaeyingar voru mjög
óhressir meö Stjörnumenn á laug-
ardag því þeim var bannað að láta
hina þekktu hljómsveit sína,
Stalla-hú, leika meðan á leik
; Stjömunnar og ÍBV í úrslita-
keppni kvenna í handbolta stóð í
Garðabæ. Hljómsveitinni var að-
' eins leyft að hafa eina trommu og
einn lúður á áhorfendapöllunum
en önnur hljóðfæri voru bönnuð.
„Viö erum mjög óhressir með
þetta því okkur hefur aldrei áður
verið bannað að spila í neinu
íþróttahúsi og höfum við farið
víða. Við höfum ávallt fengið að
leika hressileg stef þegar mark
hefúr verið skorað og áður en lið-
in hefja sókn. Við höfum fengið lof
fyrir að setja skemmtilega stemn-
ingu á leikina en núna bönnuðu
starfsmenn handknattleiksdeildar
Stjömunnar okkur að spila í hús-
inu Þeir hótuðu meira að segja að
kalla á lögregluna ef við hlýddum
ekki,“ sagði einn af stuðnings-
mönnum Eyjaliðsins við DV eftir
leikinn í gær.
Eyjamenn fjölmenntu á leikinn
og studdu þrátt fyrir þetta vel við
bakið á stúlkunum sínum.
-RR
Tekur Sigurður
við Stjörnunni?
- Norðmaður kæmi með - Konráð og Magnús á förum?
Svo gæti farið að Sigurður Gunn-
arsson, fyrrum landsliðsmaður og
þjáifari norska liðsins Bodö, yröi
næsti þjálfari 1. deildar liðs Stjörn-
unnar í handknattleik.
Forráðamenn Stjömunnar stað-
festu í samtali við DV i gær að við-
ræður væm þegar hafnar við Sig-
urð en of snemmt væri að segja til á
þessari stundu hvort af ráðningu
hans yröi. Þá hefur DVheimildir
fyrir því að Sigurður sé tilbúinn að
koma með norskan leikmann með
sér ef hann verður ráðinn þjálfari
Viggó Sigurðsson hefur stýrt
Stjömuliðinu undanfarin tvö ár en
eins komið hefur fram í DV þá verð-
ur hann næsti þjálfari þýska 2.
deildar liðisins Wuppertal.
Magnús og Konráð á leið til
útlanda
Það er nokkuð ljóst að breytingar
eru fyrirsjáanlegar á Stjömuliðinu
á næsta keppnistimabili. Rússinn
Dmitri Filippov mun að öllum lík-
indum leika með Wuppertal undir
stjóm Viggós og þá em Magnús Sig-
urðsson og Konráð Olavsson að
íhuga að leika erlendis.
Magnús Sigurðsson heldur til
Þýskalands á Fimmtudaginn til að
skoða aðstæður hjá þýska 3. deildar
liðinu Willstadt.
„Þetta félag er í efsta sæti í 3.
deild og er á leið í 2. deildina. Ég
mun líta á aðstæður hjá félaginu og
spjalla við forráðamenn liðsins og
væntanlega kem ég heim með samn-
ingsdrög í farteskinu,” sagði Magn-
ús í samtali við DV í gær.
Svissneskt 2. deildar lið hefur
spurst fyrir um Konráð og hefur
hann í hyggju að líta á aðstæður hjá
félaginu.
Sigurður Bjarnason búinn
að semja
Jákvæðu fréttimar úr herbúðum
Stjömunnar em þær að Sigurður
Bjarnason skrifaði fyrir helgina
undir nýjan eins árs samning við
Stjömuna en hann hafði verið orð-
aður við KA.
Þá hefur DV heimildir fyrir því
að Stjömumenn séu á höttunum eft-
ir Sigurpáli Áma Aðalsteinssyni,
homamanninum snjalla úr KR.