Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1996, Blaðsíða 6
26
MÁNUDAGUR 25. MARS 1996
íþróttir
FH-KA
(13-15) 28-29
2-0, 2-2, 6-4, 77, 8-11, 11-14,
(13-15), 14-17, 18-20, 18-22, 21-22,
22-24, 25-24, 26-25, 27-27, 27-29,
28-29.
Mörk FH: Hálfdán Þórðarson
5, Héðinn Gilsson 5, Sigurður
Sveinsson 5/4, Siguijón Sigurðs-
son 4, Hans Guðmundsson 3, Guð-
jón Ámason 3, Gunnar Beinteins-
son 2, Guðmundur Pedersen 1.
Varin skot: Magnús Árnason
2, Jónas Stefánsson 7.
Mörk KA: Julian Duranona
12/8, Björgvin Björgvinsson 6,
Atli Þór Samúelsson 3, Patrekur
Jóhannesson 2/1, Leó Öm Þor-
leifsson 2, Alfreð Gíslason 2, Er-
lingur Kristjánsson 1, Jóhann G.
Jóhannsson 1.
Varin skot: Guðmundur Arn-
ar Jónson 4, Bjöm Bjömsson 8.
Brottvísanir: FH 6 mínútur,
KA 14 mínútur.
Dómarar: Rögnvald Erlings-
son og Stefán Arnaldsson, dæmdu
í heild vel en voru kannski full-
strangir í vítakastdómum og
brottvísunum.
Áhorfendur: Um 1500.
Maður leiksins: Björgvin
Björgvinsson, KA.
Sportkorn
Dtti við
Isafjarðarflugið
Undanfarnar vik-
ur hefur körfu-
boltahreyfingin
staðið á öndinni
og fylgst með
gengi ísfirðinga í
1. deildinni. Ljóst
og leynt hafa
margir beöið og
vonaö að þeim
tækist ekki að vinna sig upp í úr-
valsdeildina. Ástæðan er sú að oft
eru erfiðleikar með flug til ísafjarðar
á vetuma vegna þess að flugbrautin
þar er ekki upplýst og hætt við að
liðin þurfi að gista þar ef leikið er í
miðri viku. Úr herbúðum KKÍ hefur
heyrst að þátttaka ísfirðinga í úr-
valsdeildinni leiði til þess að fækka
verði leikjum þar verulega og
spumingin er nú hvað gerist þegar
sigur þeirra í 1. deildinni er orðinn
að veruleika.
Við viljum koma
vestur
Það voru þó ekki
allir sem óskuðu
vestanmönnum
alls hins versta.
Fyrir úrslitaleik-
inn gegn Þór úr
Þorlákshöfn á
fimmtudaginn
bámst ísfirðing-
um baráttukveðj-
ur frá Njarövíkingum sem hljóðuðu
eitthvað á þessa leiö: „Við viljum
koma vestur næsta vetur, nú er bolt-
inn hjá ykkur." Annars em dálítil
tengsl milli Njarðvíkur og ísafjarðar
því „allsherjargoði" ísfirðinga f
körftiboltanum er Njarðvíkingurinn
Guðjón Þorsteinsson.
Leyton Orient
BÞaö kemur fyrir á
bestu bæjum að
þýðingar úr er-
lendum blöðum
og fréttaskeytum
misfarast og
stundum má hafa
ansi gaman af.
Góð dæmi er
markheppni
ensku knattspymumannanna Close
Range og Replay og þá stóð Rookie
Anthony Peeler sig einhvem tímann
vel í NBA-deildinni. 1 einu dagblað-
anna varð svipað óhapp á dögunum
þegar sagt var að tveir enskir knatt-
spymumenn hefðu fallið á lyfjaprófi,
Roger Stanislaus og Leyton Orient.
Umræddur Stanislaus féll vissulega
á lyfjaprófi en hann spilaði með liði
sem heitir Leyton Orient.
Umsjón Vfðir Sigurösson
KA menn héldu haus
- komust í hann krappan gegn FH en tókst að tryggja sér sigur og leika til úrslita
„Viö stefndum alltaf á það fyrir
úrslitakeppnina að komast alla leið
og ég er mjög ánægður með að hafa
lagt FH, 2-0. Ég er ekki sammála þvi
að við höfum verið í einhverri lægð
sem margir hafa verið að tala um.
Við erum búnir að vinna deildar-
meistaratitilinn, bikarmeistaratitil-
inn og erum komnir í úrslit um
sjálfan íslandsmeistaratitilinn en
kröfumar eru kannski orðnar svo
miklar til okkar að menn eru að
tala um lægðir þegar gengur ekki
allt upp,“ sagði Patrekur Jóhannes-
son, leikmaður KA, við DV, eftir
sigur á FH, 28-29, í Kaplakrika á
fóstudagskvöldið.
KA menn komust svo sannarlega
í hann krappan. Þegar flestir héldu
aö þeir væru að sigla fram úr FH-
ingum í stöðunni, 18-22, náðu FH-
ingar frábærum leikkafla og með
mikilli seiglu tókst þeim að komast
marki yfir þegar 5 mínútur voru eft-
ir. En KA-menn héldu haus. Þeir
héldu ró sinni og með yfirveguðum
leik tókst þeim að innbyrða sigur en
segja má að heppnin hafi verið
kannski verið svolítið á þeirra
bandi og þá ef til vill meistara-
heppni.
FH-ingar eiga hrós skilið fyrir
síðari hálfleikinn þar sem þeir léku
vel og börðust eins og ljón og voru
ekki langt frá því að næla sér í
oddaleikinn. Hálfdán Þórðarson,
Siguijón Sigurðsson og Héðinn Gils-
son léku best í liði FH en lykilmenn
á borð við Gúðjön Ámason og Sig-
urð Sveinsson náðu sér ekki á strik
frekar en markverðimir.
Þáttur Alfreðs vó þungt
Björgvin Björgvinsson lék mjög
vel með KA. Þar sem Patrekur og
Duranona vom í strangri gæslu
mestallan leikinn kom það oft í hlut
Björgvins að taka af skarið. Dura-
nona lék einnig vel og sýndi gífur-
legt öryggi á vítalínunni. ÞátturAl-
freðs Gíslasonar vó þungt í lokin en
þessi gamli refur kom í sóknina þeg-
ar norðanmenn vom undir og með
leikreynslu sinni náði hann að
skora eitt mark og fiska vítakast á
örlagastundu.
Heppnin ekki með okkur
„Við lékum mjög góðan seinni
hálfleik og vorum þá betri aðilinn
en heppnin féll ekki okkar megin á
lykilstundum. Alfreð kom inn á með
mikilvægt innlegg og ég vil meina
að hann hafi unnið leikinn fyrir
sína menn. Við byrjuðum kannski
heldur seint að berjast og hafa trú á
því sem við voram að gera. Ég vil
óska KA mönnum til hamingju og
ég spái liðinu íslandsmeistaratitlin-
um,“ sagði Guðmundur Karlsson,
þjálfari FH, eftir leikinn.
-GH
Keflvíkingar fögnuöu að vonum innilega eftir sigurinn á Njarðvikingum á föstudagskvöldið.
Körfuknattleikur:
Er alveg í skýjunum
- sagði Jón Kr. Gíslason þjálfari Keflvíkinga sem eru komnir í úrslit
DV, Suðurnesjum:
„Okkur langaði ekkert aftur
inn í Njarðvík og það lét okkur
spila svona vel. Um leið og við
náðum aö byija að hitta á móti
svæðisvöminni áttu þeir ekki
möguleika í okkur en þeir gátu
ekki stöðvað okkur maður á
mann,“ sagði Falur Harðarson,
leikmaður Keflvíkinga, sem átti
frábæran leik þegar Keflvíkingar
lögðu Njarðvíkinga, 99-74, í Kefla-
vík á föstudagskvöld. Það verða
því Keflavík og Grindavík sem
leika til úrslita um íslandsmeist-
aratitilinn og fer fyrsti leikurinn
fram í Grindvík annað kvöld.
Þaö vora fyrst og fremst tveir
stórkostlegir kaflar hjá Keflvík-
ingum sem veittu leikmönnum
Njarðvíkur rothögg. Heimamenn
byrjuðu með látum og komust í
10-0. Þessi upphafskafli sló ís-
landsmeistarana út af laginu sem
náðu sér aldrei almennilega á
strik þrátt fyrir hetjulega baráttu.
Endanlega rothöggið kom í síðari
hálfleik þegar Keflvíkingar, sem
ekki höfðu skorað í tæpar 3 mín-
útur, settu niður þrjár 3ja stiga
körfúr, breyttu stöðuni úr 64-58 í
73-60 og þar með var sigurinn í
höfii. Yfirburðir Keflvíkinga vora
miklir eftir þennan leikkafla og
þeir vora famir að fagna þegar 4
mínútur vora til leiksloka.
Fór allt úrskeiðis
„Það fór allt úrskeiðis sem gat
farið í raun og vera. Fyrst og
fremst fór byijunin fram hjá okk-
ur einhverra hluta vegna og vor-
um við einfaldlega ekki með og
vorum kannski of spenntir. Við
komumst inn í leikinn í síðari
hálfleik en vorum mjög ólánsamir
með nokkra dóma á mikilvægum
augnablikum. Þeir vora betri en
við í þessari seríu. Við voram
með jafnbesta liðið í vetur fram
að úrslitakeppninni en síðan áttu
Keflvíkingar meira inni heldur en
við og við verðum bara að sætta
okkur við það,“ sagði Hrannar
Hólm, þjálfari Njarðvíkinga, eftir
leikinn.
Undir 80 stigum í öllum
leikjunum
„Ég er alveg í skýjunum. Það
sem ég er ánægðastur með í þess-
um leikjum er að við náðum aö
halda þeim undir 80 stigum og það
er út af fyrir sig afrek á móti liði
eins og Njarðvík. Ég held að við
höfum náð að spila vamarleikinn
hárrétt á móti þeim,“ sagði Jón
Kr. Gíslason, þjálfari Keflvikinga,
sem enn og aftur hefúr sannað
hæfni sína sem þjálfari.
Hrikalega sárt
„Þetta er hrikalega sárt eftir
svona gott tímabil að detta út. En
við lærum af þessum og geram
betur næst. Þeir voru einfaldlega
betur en við. Þeir spiluðu góðan
leik en við náðum ekki að hanga í
þeim núna,“ sagði Teitur Örlygs-
son, leikmaður Njarðvíkinga, eftir
leikinn.
Falur og Albert vora frábærir í
leiknum, Guðjón skoraði mikil-
væg stig og þeir Stewart, Sigurður
og Davíð vora sterkir.
Teitur var bestur í liöi Njarð-
víkinga en greinilegt er að.meiðsl-
in sem hann hlaut í öðrum leikn-
um háðu honum. Þá áttu Kristinn
og Páll ágæta spretti inn á milli.
-ÆMK
Keflavík-Nj ar ö vík (43-35) 99-74
10-0, 16-9, 21-13, 21-18, 32-22, 32-26 (43-35),
54-39, 55-48, 79-66,95-70,99-74.
Stig Keflavíkur: Albert Óskarsson 27, Fal-
ur Harðarson 26, Guöjón Skúlason 18, Sigurð-
ur Ingimundarson 13, Dwight Stewart 11, Dav-
íð Grissom 3, Jón Kr. Gíslason 1.
Stig Njarðvflmr: Teitur örlygsson 23, Frið-
rik Ragnarsson 11, Kristinn Einarsson 9,
Rondey Robinson 9, Páll Kristinsson 6, Rúnar
Ámason 6, Gunnar Örlygsson 4, Sverrir Þ.
Sverrisson 2.
Fráköst: Keflavík 42, Njarðvik 42.
3ja stiga körfúK Keflavík 9, Njarðvík 5.
Vítanýting: Keflavík 33/26 (79%), Njarövík
15/9 (60%).
Flestar stoðsendingar: Falur 5, Guðjón 4 -
Rondey 5, Teitur 2..
Flest fráköst: Stewart 11, Albert 10 - Ron-
dey 20 Gunnar 5.,
Varin skot: Stewart 4 - Njarðvík 0.
Dómarar: Kristinn Albertsson og Leifúr S.
Garöarsson, dæmdu lengst af mjög vel.
Áhorfendun 1200.
Menn leiksins: Albert Óskarsson og Fal-
ur Harðarson, Keflavik.