Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1996, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1996, Side 2
22 MÁNUDAGUR 1. JÚLÍ íþróttir_________________________________________________________________________________________ðv Hart var barist í leik Keflavíkur og Maribor Branik. Þrátt fyrir nokkur góð marktækifæri var ekkert mark skoraö í leiknum og leikmenn fóru ilia meö nokkur góö tækifæri. DV-mynd EJ Inter Toto-keppnin í knattspyrnu: Keflvíkingar komu á óvart - og náðu markalausu jafhtefli gegn Maribor Óvænt úrslit í 3. deildinni Víöir-Grótta ..........3-1 Guðmundur Einarsson, Sigmar Scheving og Þörvaldur Logason skor- uöu fyrir heimamenn en Páll Líndal svaraði fyrir Gróttu. Ægir-Reynir S. 2-1 Halldór Páil Kjartansson og Haraldur Jóhannsson skoruðu fyrir Ægi og tryggðu þar meö dýrmæt stig en Trausti Ómarsson skoraði fyrir Reyni. Þróttur N.-Dalvik 5-2 Jón Ingi Ingimarsson skoraði eitt en Óli Stefán Flóventsson og Marteinn Hilmarsson skiptu meö sér hinum fjórum fyrir Þróttara en Grétar Stein- dórsson og Jón örvar Eiríksson'skor- uðu fyrir Dalvíkinga. HK-Selfoss 4-3 Stefán Guðmundsson, ívar Jónsson, Ólafur Már Sævarsson og Tryggvi Valsson tryggðu Kópavogsbúum sig- ur í bráðfjörugum leik. Höttur-Fjölnir 3-3 Sigurður Magnússon, Albert Jensson og Sigurður Valur Árnason skoruðu fyrir Hött en Þórður Jónsson skoraöi tvö fyrir Fjölni og Ólafur Sigurðsson eitt. Staða n Víðir 6 4 0 2 17-11 12 Reynir S. 6 3 2 1 19-9 11 Dalvík 6 3 2 1 18-n H Þróttur N. 6 3 12 15-12 10 HK 6 3 0 3 11-14 9 Ægir 6 2 13 10-8 7 Fjölnir 6213 13-16 7 Selfoss 6212 12-16 7 Grótta 6 12 3 12-14 6 Höttur 6 12 3 11-21 5 Úrslit í 4. deild Smástund-Bruni ............10-2 ÍH-Afturelding..............3-4 Ármann-TBR..................2-2 Skautafélag R.-Haukar ......0-7 Kormákur-SM.................1-5 Tindastóll-Magni ...........1-1 KS-Neisti H.................6-0 KSÁÁ-GG.....................1-0 Njarðvík-Framherjar.........3-1 Léttir-HB ..................3-0 Geislinn-Emir í............10-3 Höröur-Reynir Hn............... Huginn-KVA..................0-3 Sindri-Einherji.............5-2 Volkers bjargað úr banninu Ástralski sundþjálfarinn Scott Volkers mun mæta á ólympíu- leikana en lengi vel leit út fyrir að hann yrði í banni vegna dóms sem hann hlaut fyrir að gefa heimsmeistaranum Samönthu Riley ólögleg lyf. Volkers fékk á sínum tíma eins árs hann en um helgina mildaði dómstóll í Sviss dóminn niður í 5 mánuði og þvi verður Volkers mættur til Atlanta en hann losnaði úr banninu í gær. -SK Emil til Fenerbache Búlgarski landsliösmaöurinn Emil Kostadinov hefur skrifað undir eins árs samning við tyrk- nesku meistarana Fenerbache. Hann var seldur frá Porto en var I láni hjá Bayem Múnchen. -SK DV, Suðurnesjum: „Þetta var dúndurleikur og við spiluðum virkilega vel. Það er langt síðan ég hef séð svona skemmtileg- an leik. Ég er svekktur yfir því að fá ekki öll stigin en ég reiknaði reynd- ar ekki með þeim möguleika fyrir leikinn," sagði Kjartan Másson, þjáifari Keflvíkinga, eftir jafntefli Keflvíkinga og slóvenska liðsins Maribor Branik í Toto-keppninni á laugardagskvöld. Keflvíkingar geta nagað sig í handarbökin því þeir fengu gullin tækifæri í leiknum til að tryggja sér sigurinn. Þrátt fyrir það átti lið Keflavíkur mjög góðan dag og leik- menn liðsins komu til þessa leiks með réttu hugarfari. „Ég er ekki ánægður með suma af mínum mönnum. Við getum spilað mun betur en við gerðum að þessu sinni,“ sagði Bojan Prasnikar, þjálf- ari Maribor Branik, eftir leikinn gegn Keflvíkingum. „Keflvíkingar léku mjög sterkan og aðgerðamikinn bolta. Þeir voru harðir í öllum sínum tæklingum og börðust af gríðarlegum krafti, miklu meiri krafti en mínir menn. Við komum ekki til íslands til að ná jafntefli. Þvert á móti lögðum við allt kapp á að fara héðan með öll stigin en þvi miður tókst það ekki. Úrslitiri voru sanngjöm og bæði lið fengu nokkur góð marktækifæri sem ekki tókst að nýta,“ sagði Prasnikar. Að hans dómi voru Kristinn Guðbrandsson og Ólafur Gottskálksson bestir hjá Keflavík. -SK/-ÆMK Allar vildu meyjarnar eiga hann Austuríski tennisleikarinn Thomas Muster er óhemju vin- sæfl í heimalandi sínu og ekki síst á meðal kvenna. Nýlega var gerð könnun á meðal kvenfólks í Austurríki á vegum tennistímarits og á meðal spurninga var þessi: Með hverj- um vilt þú helst eignast bam? 207 þúsund konur greiddu Muster atkvæði sitt en kvenfólk í Austurríki er um 3 milljónir. Muster hafði mikla yfirburði í könnuninni og kappar eins og Amold Swarzenegger voru hon- um langt að baki. Muster er ekki á meðal kepp- enda á Wimbledon-mótinu sem nú stendur yfír. Ekki er annað vitaö en hann ætli að halda áfram í tennis. Það er hins vegar ljóst að ef hann hefúr áhuga þá getur hann haft nóg að gera í heimalandi sínu. -SK „Verð drepinn ef ég keppi ekki á ÓL“ Annar þekktur tennisleikari var í sviösljósinu um helgina, Svisslendingurinn Marc Rosset. Rosset varð ólympíumeistari í Barcelona árið 1992. Hann telur ekki annað koma til greina en að mæta til Atlanta og verja titil- inn: „Ef ég myndi ekki mæta tO Atlanta yrði ég drepinn af lönd- um mínum. Ég er dauður maður í Sviss ef ég fer ekki. Ég myndi alls ekki eiga afturkvæmt tfl Sviss og mér yrði ekki hleypt inn í landið ef ég keppti ekki i Atlanta," sagði Rosset. -SK Tanui missti af Atlanta Hinri heimsþekkti langhlaup- ari, Moses Tanui frá Kenía, verð- ur ekki á meðal keppenda í 10.000 metra hlaupinu. Tanui hætti keppni í 10.000 metrunum á úrtökumóti Keníubúa um helgina: „Ég gat bara ekki haldið áfram vegna meiðsla í fæti. í dag langar mig ekki á ólympíuleikana. Ég verð að ná mér af meiðslunum og reikna ekki með að mæta aftur tO leiks fyrr en á næsta ári,“ sagöi Tanui í gær. •ðK Surin skaut þeim bestu skelk í bringu Kanadamaðurinn Bruny Sur- in náði góöum tíma og sigraði í 100 metra hlaupi á Grand Prix móti í frjálsum íþróttum í París um helgina. Surin hljóp á 10,03 sekúndum en heimsmeistarinn Donovan Bailey, landi Surins, varð annar á 10,04 sekúndum og Bretinn Linford Christie þriðji á 10,05 sekúndum. Heimsmethafmn, Bandai-íkja- maðurinn Leroy Burrell, varð aðeins sjötti í hlaupinu og var lengi á leiðinni, kom í mark á 10,13 sekúndum. Heimsmet hans er 9,85 sekúndur „Ég er mjög ánægður með það hve ég og Donovan erum í góðri æfingu þegar skammt er til leik- anna í Atlanta. Það lítur út fyrir að við getum gert góða hluti þar og að Kanada komi mikiö viö sögu,“ sagði Surin. -SK Vítaspyrnukeppnirnar á EM 1996: Hreinsa þarf fótboltann af þessum ófögnuði Evrópukeppninni í knattspymu er lokið. Einkum er það þrennt sem situr eftir í huganum er litið er yfir keppnina. I fyrsta lagi allar vítaspyrnukeppnirnar, í öðru lagi frábær frammistaða Tékklendinga og að endingu gott gengi enska landsliðsins. Fyrst um vítaspymukeppni. Það er með hreinum ólíkindum að leikir á stórmóti, sem Evrópu- keppnin óneitanlega er, skuli enda með þessum ósköpum. Betra liðið sigrar ekki heldur það sem hefur heppnina með sér í það og það skiptið. Knattspyrnumenn geta verið snjallir og í fremstu röð en ekki verið frambærilegar vita- skyttur og öfugt. Eilíf vítaspyrnukeppni vár mjög dökkur blettur á þessari annars skemmtilegu keppni. - Það getur varla skaðað íþróttina að fáist ekki úrslit eftir framlengingu leiki viðkomandi lið að nýju. Það hljóta allir að hagnast á því. Tökum sem dæmi leik Englands og Þýskalands í undanúrslitunum. Það hefði ekki verið amalegt að fá annan leik á milli þessara þjóða. Viðureign þjóðanna vakti heimsathygli, var án vafa langbesti leikur mótsins og því hefði verið gott fyrir alla að fá annan leik. í stað þess þurftu skjálfandi hetjumar að bíða örlaga sinna og komast að því hvort þær ynnu í happadrættinu eða ekki. Vítaspyrnukeppni hefur jú ekkert með getu í knattspymu að gera. Seigir Tékklendingar Tékklendingar komu mjög á óvart á mótinu, þrátt fyrir að Tékkar hafi hér á árum áður verið mikil íþróttaþjóð og átt marga af- reksmenn á hinum ýmsu sviðum íþróttanna. Auðvitað voru Tékklendingar heppnir að komast í úrslitaleikinn eftir sigur í vítaspyrnukeppni gegn hinu merka franska liði. Hinu er þó ekki hægt að mótmæla að Tékkar vom með eitt skemmti- legasta lið keppninnar. Frakkar töldu sig aftur á móti geta verið án Cantona og Ginola en vitanlega gekk það ekki upp. Enn einn sigurinn Ensk knattspyrna vann enn einn sigurinn á mótinu. Þegar á leið mótið sýndi enska liðið hvað í þvi býr og sigurinn gegn Hollend- ingum var sérlega glæsilegur. Frammistaða Englands á mót- inu var enn ein rósin í hnappagat enskrar knattspymu. Og ljóst er að skemmtilegasta og besta knatt- spyrnan á næstu árum verður leikin í Englandi. Þar eru að safnast saman allir bestu knattspyrnumenn heims. -SK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.