Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1996, Page 6
26
MÁNUDAGUR 1. JÚLÍ 1996
Iþróttir
Kynbótahrossa-
aðallinn mætir á Hellu
Meirihluti hæst dæmdu kynbóta-
hrossa á árinu 1996 kemur fram á
fjóröungsmótinu á Hellu sem hefst
næstkomandi miövikudag en lýkur
á sunnudaginn.
Flest hrossanna verða sýnd sem
kynbótahross en nokkur keppa sem
gæðingar.
Tveir hæst dæmdu stóðhestamir
í 6 vetra flokknum: Galsi frá Sauð-
árkróki og Hlekkur frá Hofi, eiga
ekki keppnisrétt en stóðhestar í níu
næstu einkunnasætum eiga rétt á
að mæta.
Logi frá Skarði verður sennilega
sýndur í kynbótasýningu en Óður
frá Brún í gæðingakeppninni.
í A-flokki gæðinga eru skráðir að
minnsta kosti ellefu stóðhestar og
munu flestir koma.
Fróðlegt verður að sjá viðureign
Kolfinns frá Kvíarhóli, sem keppir
fyrir Ljúf, Seims frá Sveinatungu,
sem keppir fýrir Geysi, Hjörvars frá
Ketilsstöðum, sem keppir fyrir And-
vara, og Óðs frá Brún sem keppir
fyrir Fák.
Fyrsta einkunnin í töflunum hér,
sem sýna hæst dæmdu einstakling-
ana í hverjum flokki til þessa á kyn-
bótasýningum í sumar, er fyrir
byggingu, sú næsta fyrir hæfileika
og loks kemur aðaleinkunnin. Við-
miðunareinkunn á fjórðungsmót er
8,05.
Ekki verður hreyft við byggingar-
einkunn hrossanna; slíkt er bannað
samkvæmt nýju dómsreglunum.
6 vetra stóðhestar
Galsi frá Sauðárkróki 7,87 9,01 8,44
Hlekkur frá Hofi 7,98 8,84 8,41
Logi frá Skarði 8,23 8,57 8,40
Óður frá Brún 7,78 8,90 8,34
Sjóli frá Þverá 8,13 8,52 8,32
Eydís frá Meöalfelli er hæst dæmda kynbótahrossiö á fjóröungsmótinu á Hellu. Knapi er Einar Ö. Magnússon
DV-mynd E.J.
5 vetra stóðhestar
Kormákur frá Flugumýri kemur
ekki á fjórðungsmótiö en hestamir í
fjórum næstu sætum eiga þátttöku-
rétt og eftir þvi sem best er vitað
koma þeir allir.
Viðmiðunareinkunn á fjórðungs-
mót er 7,95
Kormákur frá Flugumýri
8,19 8,30 8,24
Skinfaxi frá Þóreyjarnúpi
7,97 8,37 8,17
Valberg frá Amarstöðum
8,21 8,12 8,16
Ásaþór frá Feti 8,28 8,03 8,15
Frami frá Ragnheiðarstöðum
8,36 7,89 8,12
4 vetra stóðhestar
Fengur frá íbishóli er skráður
fyrir norðan og kemur ekki en ailir
hinir fjórir eiga þátttökvu-étt.
Viðmiðunareinkunn á fjórðungs-
mót er 7,85 og eiga keppnisrétt ell-
efu af þeim fjórtán stóðhestum sem
hafa náð þeirri aðaleinkunn í sum-
ar.
Hamur frá Þóroddstöðum
8,26 8,21 8,23
Fengur frá íbishóli 7,95 8,03 7,99
RoðifráMúla 8,10 7,85 7,99
Eiður frá Oddhóli 8,18 7,76 7,97
Straumur frá Hóli 7,96 7,97 7,96
6 vetra hryssur
Tíu hæst dæmdu hryssur lands-
ins era skráðar í eigu hrossarækt-
enda á Suðurlandi og eiga þátttöku-
rétt á fjórungsmótinu.
Vitað er að Lukka frá Víðidal,
sem keppir fyrir Gust, og Kórína frá
Margir hestamenn kannast viö Reyni Aöalsteinsson á Sigmundarstööum í Borgarfiröi. Nú hefur annar Reynir
Aöalsteinsson vakið athygli í hestageiranum. Hann býr einnig á Vesturlandi og gerir út frá Akranesi. Reynir
yngri er sonur Aöalsteins Aöalsteinssonar, sem var tamningamaöur hjá Reyni á Sigmundarstöðum er Reynir
yngri fæddist og nefndi hann í höfuöið á þeim eldri. Hér sjást þeir saman á kynbótahrossasýningu í Borgarfirði.
DV-mynd E.J.
Tjamarlandi, sem keppir fyrir
Geysi, munu keppa í gæðingakeppn-
inni.
Viðmiðvmareinkunn á fjórðungs-
mót er 7,95
Eydís frá Meðalfelli 7,91 8,93 8,42
Randalín frá Torfastöðum
8,40 8,39 8,39
Lukka frá Víðidal 7,81 8,95 8,39
Kórína frá Tjarnarlandi
8,25 8,50 8,37
Fjöður frá Sperðli 7,87 8,75 8,31
5 vetra hryssur
Tvær af þremur hæst dæmdu 5
vetra hryssum landsins, Þíða og
Þröm, em frá Hólum í Hjaltadal og
verða ekki sýndar á fjórðungsmót-
inu á Hellu. Þrátt fyrir það er hóp-
urinn föngulegur og eiga keppnis-
rétt ellefu af fimmtán hryssum sem
hafa náð 8,00 eða meira í aðalein-
kunn á sumrinu.
Viðmiðunareinkunn á fjórðungs-
mót er 7,85
Þíða frá Hólum 8,31 8,25 8,28
Hera frá Herríðarhóli
8,20 8,16 8,18
Þröm frá Hólum 7,97 8,37 8,17
Þöll frá Vorsabæ 8,21 8,14 8,17
Elding frá Víðidal 7,89 8,39 8,14
4 vetra hryssur
Einungis þrjár hryssúr hafa náð
8,00 eða meira í aðaleinkunn í 4
vetra flokknum í sumar og eiga all-
ar þátttökurétt á fjórðungsmót.
Viðmiöunareinkunn á fjórðungs-
mót er 7,75.
Vigdís frá Feti 8,11 8,03 8,07
Hrafntinna frá Sæfelli
8,16 7,94 8,05
Birta frá Hvolsvelli 7,97 8,10 8,03
E.J.
Afkvæmahross:
Laug’
arvatns-
hross
efst til
heiðurs-
verð-
launa
Þrjú hross verða sýnd til heið-
ursverðlauna fýrir afkvæmi á
fjórðungsmótinu á Hellu, einn
stóðhestur og tvær hryssur.
Tveir stóðhestar og sex hryss-
ur verða sýnd til 1. verðlauna
fyrir afkvæmi og einn stóðhest-
ur til 2. verðlauna fyrir af-
kvæmi.
Staða hrossanna er ljós og er
farið eftir kynbótaspá þeirra eft-
ir dóma í vor. Afkvæmin verða
ekki dæmd sérstaklega á Hellu
til að bæta stööu foreldranna.
Angi eini heiöursverö-
launahesturinn
Fjórir stóðhestar verða sýndir
með afkvæmi á fjórðungsmótinu
á Hellu.
Angi frá Laugarvatni, undan
Öngli frá Kirkjubæ og Sif frá
Laugarvatni, í eigu Hrossarækt-
arsambands Suðurlands, er
sýndur til heiðursverðlauna.
Angi er með 129 stig í kynbóta-
spá fyrir 60 dæmd afkvæmi.
Orri frá Þúfu, undan Otri frá
Sauðárkróki og Dömu frá Þúfu, í
eigu Indriða Ólafssonar, er með
dúndrandi stöðu til 1. verðlauna
og er með 139 stig í kynbótaspá
fyrir 39 dæmd afkvæmi.
Piltur frá Sperðli, undan Stíg
frá Kjartansstöðum og Perlu frá
Kaðalsstöðum, í eigu Pilts sf., er
einnig sýndur til 1. verðlauna.
Piltur er með 123 stig í kynbóta-
spá fyrir 43 dæmd afkvæmi.
Platon frá Sauðárkróki, undan
Fáki frá Sauðárkróki og Freyju
frá Ögmundarstöðum, í eigu Páls
Skúlasonar, er sýndm- til 2. verð-
launa fyrir afkvæmi. Hann er
með 119 stig í kynbótaeinkunn
fyrir dæmt 31 afkvæmi.
Glíma ofar heiöursverð-
iaunahryssum
Glíma frá Laugarvatni, undan
Dreyra frá Álfsnesi og Sjöfh frá
Laugarvatni, í eigu Bjama Þor-
kelssonar, stendur ofar þeim
tveimur sem sýndar em til heið-
ursverðlauna. Glíma er með 126
stig í kynbótaspá fyrir 6 dæmd
afkvæmi.
Brana frá Kirkjubæ, undan
Glóblesa frá Hindisvík og
Glennu frá Kirkjubæ, í eigu
Kirkjubæjarbúsins, er með 124
stig í kynbótaspá fyrir 8 dæmd
afkvæmi.
Gola frá Brekkum, undan
Hrafni frá Holtsmúla og Ör frá
Hellulandi, í eigu Sigurbjöms
Bárðarsonar og Fríðu H. Stein-
arsdóttur, stendur efst hryssna
með 1. verðlaun fyrir afkvæmi.
Gola er með 119 stig í kynbót-
aspá fyrir 4 dæmd afkvæmi.
Perla frá Kjartansstöðum,
undan Feng frá Sauðárkróki og
Brúnku frá Teigi, í eigu Gúðrún-
ar L. Ágústsdóttur, er í öðra sæti
með 119 stig.í kynbótaspá fyrir 6
dæmd afkvæmi. Blíöa frá Gerö-
um, undan Ófeigi frá Flugumýri
og Gerplu frá Kópavogi, í eigu
Magnúsar Einarssonar, er í
þriðja sæti 1. verðlauna hryssna
með 118 í kynbótaspá fyrir 5
dæmd afkvæmi.
Dúna frá Stóra-Hofi er í 4. sæti
með 118 stig fyrir 5 dæmd af-
kvæmi, Gyðja frá Gerðum í 5.
sæti með 117 stig fyrir dæmd 4
afkvæmi og í 6. sæti er Blíða frá
Kálfholti með 116 stig fyrir 4
dæmd afkvæmi. E.J.