Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1996, Side 7
MÁNUDAGUR 1. JÚLÍ1996
27
dv____________________________________________________________________________________________íþróttir
Evrópubikarkeppnin í frjálsum íþróttum kvenna:
Árangur Guðrúnar
stendur upp úr
-tvö íslandsmet féllu í boöhlaupum
“Það er engin spurning að þetta er sterkasta
mót sem islenskt landslið hefur tekið þátt í og
stelpurnar eru að skila sínu besta eða nálægt
sínu besta. Það má þvi segja að ég hafi ekki orð-
ið fyrir vonbrigðum með neitt og stelpurnar
stóðu sig allar frábærlega vel,” sagði Kristján
Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins
í frjálsum íþróttum að loknu Evrópubikarkeppn-
inni í Bergen á laugardag.
“Það sem stendur upp úr frá þessu móti er
náttúrlega árangur Guðrúnar Arnardóttur og ís-
landsmetin tvö þar sem við erum að stinga þjóð-
ir eins og Norðmenn og Dani af,” sagði Kristján.
Litlir möguleikar á að halda sér uppi
Það var ljóst frá upphafi að möguleikar ís-
lenska liðsins á því að halda sér í 1. deild Evrópu-
bikarsins voru ekki miklir. Á mótinu voru mjög
sterkar þjóðir, m.a. Rúmenar og Svisslendingar.
AUir þeir einstaklingar sem urðu í fyrstu tveim-
ur sætum á mótinu eru á leið til Atlanta til að
taka þátt í ólympíuleikunum og nokkrir þeirra
koma örugglega til með að stíga þar á verðlauna-
pall. T.d. má nefna að rúmanska stúlkan Felisia
Tilea kastaði spjótinu 69,26 metra, sem er besti
árangur í heiminum í dag .
Árangur Guðrúnar Arnardóttur í 100 og 400
metra grindahlaupi var glæsilegur. Hún náði
mjög góðum tímum í báðum hlaupunum og sér-
staklega vekur árangur hennar í 400 metrunum
athygli þar var hún að reyna nýja tækni sem felst
í því að taka færri skref en áður á milli grinda og
þrátt fyrir að hafa hrasað tvívegis um grindurn-
ar þá náði hún ööru sætinu næst á eftir Ionela
Tirlea frá Rúmeníu sem hljóp í úrslitum síðasta
heimsmeistaramóts.
Spretthlaupssveitin stóð sig jafnframt frábær-
lega. Tvö íslandsmet féllu, hún hljóp 4x100 á 46,43
sem er bæting um rúm 7 sekúndubrot og 4x400 m
bættu þær um tæpar tvær sekúndur, hlupu þá á
3.38,96 mínútum.
Til stóð að Martha Ernstdóttir hlypi 5000 og
3000 m en er ljóst varð að hún náði ekki lágmark-
inu í 5000 m hlaupinu, sem er 16 mínútur sléttar,
þá var ákveðið að hún freistaði þess að ná því á
Bislett-leikunum sem fara fram í Ósló á föstudag.
Martha hljóp vegalengdina á 16.00,76 og á því
möguleika á að ná lágmarkinu í Ósló.
En nneðsta sætið í keppninni og fall í 2. deild
er hlutskipti íslenska liðsins auk þess sem Danir
falla. Rúmenar urðu sigurvegarar mótsins og
flytjast í úrvalsdeild Evrópubikarsins.
Stelpurnar stóðu sig með sóma
“Mér fannst stelpurnar standa sig með sóma og
þetta er allt annað að keppa í 1. deild heldur en 2.
deild. Við erum að glíma við allt aðrar tölur
heldur en við erum vanar en þetta var mikilvæg
reynsla. Það var ánægjulegt að fá met í boðhlaup-
unum og Martha var skuggalega nálægt að ná
Olympíulágmarkinu.,” sagði Þórdís Gísladóttir,
fyrirliði íslenska liðsins. -ih
íslenska kvennaliðið slappar af að aflokinni keppni í Bergen um helgina. Á myndinni eru Dóra Gunnarsdóttir fararstjóri, Sigríður Guðjónsdóttir, Birna
Björnsdóttir, Þórdís Gísladóttir, fyrirliði íslenska liðsins, og Helga Halldórsdóttir. - DV mynd/ih
Arangur íslenska liðsins:
Vigdís Guðjónsdóttir kastaði 46,52 metra
í spjótkasti og varð í 8. sæti. Felisia Til-
ea frá Rúmeníu kastaði 69.26 metra sem
er besti árangur i heiminum í dag.
Hanna Lind Ólafsdóttir kastaði kringlu
41,68 metra og varð í 7. sæti. Nicoleta
Grasu (Rúmeníu) kastaði 64,64.
Sigríður Guðjónsdóttir varð áttunda i
þrístökki, stökk 12,44 metra. Rodica
Mateescu (Rúmeníu) sigraði en hún
stökk 14,34 metra.
Guðún Arnardóttir varö önnur i 400
metra grindahlaupi á 55,79 sek. Ionela
Tirlea sigraði á 55,61.
Geirlaug Geirlaugsdóttir hljóp 100 metra
á 12,14 sek. og varð í 6. sæti. Sigúrvegari
varð Sanna Heemesniemi (Finnlandi) á
11,75.
Bima Bjömsdóttir fór 800 metra á 2.19,10
og varð áttunda. Malin Ewerlöf frá Svi-
þjóð sigraði á 2.01,75.
Helga Halldórsdóttir hljóp 400 metra á
55,56 sek. og varð sjötta. Corrine Sima-
sotchi frá Sviss vann á 53,20 sek.
Martha Emstdóttir varð sjöttaa i 5000
metra hlaupi á tímanum 16.00,76 en Stela
Oltenau, Rúmeníu, sigraði á 15.31,53 mín-
útum.
íslenska boðhlaupssveitin setti íslands-
met i 4x100 metra hlaupi á timanum 45,71
sek. en finnska sveitin sigraði á 44,43 sek-
úndum.
Guðrún Arnardóttir varð þriðja í 100
metra grindarhlaupi á 13,22 sek. Lena
Reimann frá Noregi sigraði á 13 sekúnd-
um sléttum.
Sunna Gestsdóttir hljóp 200 metra á 24,44
og varð sjötta. Sanna He4mesniemi,
Finnlandi, hljóp á 23,47 sekúndum.
Boðhlaupssveitin setti annað íslandsmet
í 4x400 metmm fór á tímanum 3.38„96 og
varð i 7. sæti en svissneska sveitin hljóp
á 3..34,23.
Fríða Rún Þórðardóttir hljóp 1500 metra
á 4.33„77 og varö áttunda. Ewerlöf frá
Svíþjóð sigraði á 4.07,28 mínútum.
Fríða hljóp einnig í 3000 metrunum og
varð áttunda á 10.10,46 en Annemari
Sandell, Finnlandi, fór á 8.48,36.
Sigríður Guðjónsdóttir stökk 5,68 metra í
langstökki og varð áttunda en Renata
Nielsen, Danmörku, stökk 6,69 metra.
Þórdís Gísladóttir varð sjöunda í há-
stökki, fór yfir 1,83 metra en Siegelinda
Cadusch, Sviss, stökk 1,89 metra.
Guðbjörg Viðarsdóttir kastaði kúlu 11,76
metra og varö áttunda en Zabaawska frá
Póllandi kastaði kúlunni 17,49 metra.
Lokastaðan:
Rúmenía 101 stig, Sviss 92 stig, Pólland
89 stig, Finnland 88 stig, Svíþjóð 77 stig,
Noregur 69 stig, Danmöörk 56 stig og Is-
land 40 stig.
NBA-fréttir:
18ára ogval-
dir í NBA
Kobe Bryant og Jermaine
O’Neal eru ekki nema 18 ára
gamlir og þeir eru á leiðinni inn
í NBA, Bryant var númer 13, val-
inn af Charlotte Hornets, og
O’Neal fer til Portlands og var
númer 17 í röðinni.
Bryant spilaði fjögur ár með
Lower Merion High School í
Pennsylvaniu. „Mér finnst það
mjög mikilvægt fyrir hvern og
einn að velja það sem er best fyr-
ir þá og í þessu máli studdi fjöl-
skyldan mig 110%,“ sagði þessi
öflugi leikmaður sem skoraði að
meðaltali 30,8 stig, átti 6,5
stoðsendingar, 4,0 stolna bolta og
3,8 varin skot í hverjum leik.
Hann skoraði 2883 stig á þessum
fjórum árum og er það betri ár-
angur en hjá Wilt Chamberlain.
O’Neal spilaði með Eau Claire
High School í S-Karólínu, varði
5.2 stig, skoraði 22,4 stig og átti
12.2 fráköst að meöaltalj í leik.
Chicago Bulls
völdu Knight
NBA-meistararnir í Chicago
Bulls völdu Connecticut miöherj-
ann, Travis Knight, en hann var
sá 29. í röðinni.
Hann skoraði að meðaltali
11,7 stig, átti 5,3 fráköst og 2,3
varin skot í leik. Það gæti farið
svo að Knight yrði þriðji mið-
herjinn í staðinn fyrir James Ed-
wards eða þá að hann yrði send-
ur til útlanda til að öðlast
reynslu.
Robinson
spilar ekki
Framherji Milwaukee Bucks,
Glenn Robinson, spilar ekki með
Dream Team III á ólympíuleik-
unum í Atlanta sökum meiösla.
Sá sem kemur inn fyrir Robin-
son verður valinn í vikunni og
er líklegast að það verði Shawn
Kemp sem leikur með Seattle.
Liðið lítur þá svona út: miðherj-
arnir Shaquille O’Neal, Hakeem
Olajuwon og David Robinson,
framherjamir Karl Malone,
Scottie Pippen, Grant Hill og síð-
an varamaður Robinsons, bak-
verðirnir Penny Hardaway,
Reggie Miller og John Stockton
en þjálfari landsliðsins er Lenny
Wiikens, þjálfari Atlanta, sigur-
sælasti þjálfari NBA frá upphafi.
Nýliðavalið
í NBA1996
1. Philadelphia - Allen Iverson, bak-
vörður frá Georgetown.
2. Toronto - Marcus Gamby, miöherji
frá Massachusetts.
3. Vancouver - Shareef Abdur-Ra-
hhn, framherji frá Kaliforníu.
4. Milwaukee - Stephon Marbury,
bakvörður frá Georgia Tech (skiptu á
valrétti við Minnesota).
5. Minnesota - Ray Allen, bakvörður
frá Connecticut (Minnesota fær
einnig fyrsta valrétt Milwaukee
næst).
6. Boston - Antoine Walker, fram-
herji frá Kentucky (skiptu viö
Dallas).
7. LA Clippers - Lorenzen Wright,
miöherji/framherji frá Memphis.
8. New Jersey - Kerry Kittíes, bak-
vörður frá Villanova.
9. Dallas - Samaki Walker, framherji
frá Louisville.
10. Indiana - Erick Dampier, miðherji
frá Mississippi (skiptu við Denver).
11. Golden State - Todd Fuller mið-
herji/framherji frá North Carolina.
12. Cleveland - Vitaly Potapenko,
miðheiji frá Wright State (skiptu við
Washington).
13. Charlotte - Kobe Bryant, bakvörð-
ur frá Lower Merion HS.
14. Sacramento - Predrag Stojakovic,
framherji frá PAOK, Grikklandi.
15. Phoenix - Steve Nash, bakvörður
frá Santa Clara. -JGG
Barkley og Olajuwon saman í Houston?
- Perry með Barkley til Houston og Phoenix fær Robert Horry og Sam Casell
Stjörnuleikmaður Phoen-
ix Suns, Sir Charles
Barkley, gæti verið á leið-
inni til Hakeem Olajuwon
og félaga í Houston
Rockets.
Samkvæmt The New
York Daily News hafa fé-
lögin tvö náð samningum
um að Barkley og Elliot
Perry fari til Houston í
staðinn fyrir Robert Horry
og Sam Cassell.
Houston er ekki eina lið-
ið sem vill fá Barkley því
Dallas bauð víst Jim
Jackson og fyrsta valrétt í
nýliðavalinu fyrir hann og
New York Knicks og Indi-
ana hafa líka boðið í kapp-
ann. Þessi 33 ára gamla
stjarna hefur spilað 12
tímabil í NBA og síðustu
Qögur með Phoenix en
fyrstu átta tímabilin lék
hann með Philadelphiu.
Barkley var síður en svo
ánægður með sína menn
eftir síðasta tímabil og vill
hann ólmur komast i lið
sem á meiri möguleika á að
verða meistari en Barkley
hefur aldrei náð því tak-
marki.
-JGG