Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1996, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1996, Blaðsíða 8
28 MÁNUDAGUR 1. JÚLÍ Iþróttir Þeir eru frægir fyrir sín skemmtiiegu „fögn“ og hér eru Eyjamenn að fagna markinu sem Leifur Geir skoraði en hann liggur fyrir framan féiaga sína. Því miður fyrir strákana sigruðu Grindvíkingar, 3-2, í hörkuleik. DV-mynd EJ Grindavík skellti Eyjamönnum - ÍBV komst í 0-2 en svo hrukku heimamenn í gang Leikurinn var í 5. umferð en hon- með tveggja mínútna millibili í upp- um var frestað vegna veðurs. Grind- hafl leiksins en góð barátta liðs- víkingar halda áfram að koma á heildar Grindvíkinga náði að koma óvart í deildinni og þessi stig voru liðinu inn í leikinn að nýju. þeim kærkomin í baráttuna sem „Við eigum fyrstu 25 mínúturnar fram undan er, en stemningslið og síðan hleypum við þeim inn í Eyjamanna virðist slá út þegar tek- leikinn. Eftir að þeir jöfnuðu hefði ur að líða á leikinn. sigurinn getað lent hvorum megin Það er ekki hægt annað en að sem Var. Þetta V£ir ekki nógu gott hrósa Grindvíkingum fyrir góða hjá okkur en það er húið að vera frammistöðu og var allt annað að mikið að sem við verðum bara að sjá til liðsins en þegar það tapaði vinna okkur út úr,“ sagði Atli Eð- illa fyrir KR-ingum á dögunum. • valdsson, þjálfari Eyjamanna. Eyjamenn náðu að skora tvö mörk -ÆMK Óli Þór hættur í Keflavík Óli Þór Magnússon er hættur í liði Keflavíkur og í samtali við DV sagðist hann vera að hætta af persónulegum ástæðum og að hann væri óánægður með að hafa ekki fengið nóg af tækifær- um með liðinu. Samkvæmt heimildum DV hefur Óli ekki komið inn á nema í tveimur leikjum sem varamað- ur og hann var ekki i 16 manna hópi Keflvikinga í síðasta leik þeirra gegn Breiðabliki. Töpuöu báðum stórt íslenska kvennalandsliöið í knattspyrnu spilaði tvo leiki við Þjóðverja um helgina og töpuðu þær samanlagt 11-0. Fyrri leikurinn var haldinn í Mannheim en sá seinni í Pforzheim. Þýskaland-ísland.............&-0 Þýskaland-ísland.............3-0 Ari á Skagann? Ari Gunnarsson, sem lék á síð- asta vetri meö Borgnesingum í úrvalsdeildinni í körfuknattleik, hefur að undanfömu æft með liði Skagamanna. Ari hefur ekki skrifað undir félagaskipti en for- ráðamenn ÍA eiga von á því að Ari leiki með þeim á næstu leik- tíð og leiki þá með fyrrum félaga sínum, Alexander Ermonlinski, sem skrifaði undir tveggja ára samning við Skagamenn í síð- ustu viku. Ermonlinski mun þjálfa og leika á Skaganum. Einnig er vonast til þess að Har- aldur Leifsson komi aftur í slag- inn og þá verður liö Skaga- manna geysisterkt. Auk þess eru Skagamenn að leita að útlend- ingi fyrir liðið og verður það al- hliða leikmaður og gæti alveg eins farið svo að sá leikmaður kæmi frá austantjaldslandi. Dýfinganámskeið Að frumkvæði nokkurra fram- takssamra ungra Reykvíkinga verður í sumar haldið námskeið í dýfmgum í Sundhöll Reykja- víkur. Dýflngar hafa verið virt keppnisíþrótt erlendis um áratugaskeið en eins og vitað er hafa íslendingar fram til þessa ekki haft möguleika á að læra og æfa dýfingar hér heima. Námskeiðin verða þrisvar í viku, mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga, klukkustund í senn, frá kl 20 til 21. Frekari upplýsingar um nám- skeiðin fást í afgreiðslu Sund- hallarinnar. Framarar komnir á sigurbraut 0-1 Ágúst Ólafsson (6.) 0-2 Ágúst Ólafsson (50.) Leikurinn var frekar dapur allan tímann og fátt um fina drætti á Húsavík þar sem heima- menn töpuðu 0-2 fyrir Frömur- um í tiðindalitlum leik. Framarar voru mun sterkari allan tímann og réðu þeir gangi leiksins og er víst að þeir eru ákveðnir í að spila í 1. deildinni á næsta ári enda hafa þeir verið að vinna hvern leikinn af öðrum en því miður fyrir baráttuglatt liö Völsungs var þetta þriðji tap- leikur þess. Það bar helst til tíöinda í leiknum að slakur dómari veif- aði spjöldum í tíma og ótíma, þar af einu rauðu á Hallgrím Guðmundsson hjá Völsungi, en ljóst er að Húsvíkingar verða að taka sig á því fram undan erfitt sumar í sterkri 2. deild. Maður leiksins: Ágúst Ólafs- son, Fram. „Þessi úrslit sýna hvað býr í strákunum en sumir þeirra hafa litla sem enga reynslu að spila í fyrstu deildinni. Við vorum ekki vaknaðir í byrjun leiks og þeir fengu tvö mörk í forskot. Þetta var frábært hjá strákunum sem unnu fyllilega fyrir öllum stigunum og börðust fyrir þessum sigri,“ sagði Guðmundur Torfason, þjálfari Grindvikinga, eftir sigur á Eyja- mönnum, 3-2, i mjög fjörugum leik í gærdag og voru mörkin afar glæsi- leg eftir skemmtilega undirbúning. Góður sigur og „skallarnir" enn á toppnum O-l Bjöm Axelsson (70.). Lið Skallagríms heldur áfram að koma á óvart í 2. deildinni í knattspymu. í gær fengu FH-ingar lið Skallagríms i heimsókn og fóru gestimir með sigur af hólmi og skoruðu eina mark leiksins. Það var Bjöm Axelsson sem skoraði mark Skallagríms og tryggði lið- inu stigin þijú. Sigur Skallagríms var tiltölu- lega sanngjarn og allir leikmenn liðsins börðust sem einn maður og uppskám eftir því. Varnar- leikur liðsins var stérkur og skyndisóknir liðsins mjög hættu- legar. FH-ingar vom mjög daufir í þessum leik og lítil barátta í lið- inu. FH var meira með knöttinn en liðið náði ekki að skapa sér hættuleg marktækifþæri. Útlitið er ekki gott hjá FH og leikur liðs- ins þarf að lagast mikið ef topp- baráttan á að koma í hlut liðsins í sumar. Maður leiksins: Garðar Newman, Skallagrími. -SK/-GH Sex mörk á Valbjarnarvelli í hörkuleik 1-0 Heiðar Sigurjónsson 1- 1 Þorvaldur Makan 2- 1 Zoran Micovich 2- 2 Bjami Jónsson 3- 2 Zoran Micovich 3-3 Þorvaldur Makan Það var mikiii baráttuleikur á Valbjamarvelli í gær þar sem Þróttur, Reykjavík, og KA mætt- urst og endaði leikurinn 3-3. Sex mörk litu dagsins ljós og var þetta prýðisgóður leikur hjá báðum liðum í blíðunni i gær. Leikurinn einkenndist af mikilli baráttu beggja liða enda mikið í húfi hjá þessum tveimur félög- um. Þróttarar hafa verið að spila vel undanfarið og hafa þeir verið að skora mikið af mörkum en þeir unnu Völsimga 4-1 núna síðast og hafa því skorað hvorki meira né minna en sjö mörk í tveimur leikjum. Það er ljóst að fram undan er griðarleg barátta í annarri deild og verður gaman að fylgjast með henni það sem eför lifir sumars. Maður leiksins: Þorvaldur Makan Sigbjömsson, KA. Hálfur sigur hjá Modahl Breska hlaupakonan á enn i málaferlum við breska frjálsí- þróttasambandið og sér ekki fyr- ir endann á þeim. Modahl var á sínum tíma dæmd í fjögurra ára keppnis- bann vegna lyfjanotkunar en hefur alla tíð barist fyrir sak- leysi sínu ásamt manni sínum. Fyrir ekki alls löngu komu upp efasemdir um ágæti lyfja- prófsins á sínum tíma og í kjöl- farið var keppnisbanninu aflétt. Modahl ber mönnum innan breska sambandsins ekki vel söguna og þar er sprottið upp mikið hatur og stór orð hafa fallið. Hún tryggði sér á dögim- um réttinn til aö keppa fyrir Englands hönd í 800 metra hlaupi kvenna í Atlanta. Um helgina vann hún hálfan sigur í baráttu sinni í skaða- bótamáli við breska frjálsí- þróttasambandið. Dómari vísaði frávísunarkröfu sambandsins frá og Modahl var ánægð með niðurstöðuna: „Núna get ég farið að einbeita mér að íþróttunum aftur og ólympíuleikunum í Atlanta," sagði Modahl." -SK Gríndavík - ÍBV (2-2) 3-2 0-1 Hlynur Stefánsson (6.) eftir send- ingu frá Leifi Geir. 0-2 Leifiir Geir Hafsteinss. (8.) með skalla eftir fýrirgjöf frá Tryggva. 1- 2 Grétar Einarsson (17.) af mark- teig eftir sendingu frá Zoran sem braust skemmtilega í gegn. 2- 2 Zoran Ljubicic (41.) með stór- glæsilegt mark eftir sendingu frá Grétari. 3- 2 Ólafur Ingólfsson (79.) eftir að Gunnar Már skaut í stöng. Lið Grindavfkur: Albert @- Gunnar M., Guðmundur @, Guðjón ®, Guð- laugur ®- Ólafur Ö„ Hjálmar, Kekic, Zoran @- Grétar Ólafur. Lið ÍBV: Friðrik - Magnús @, Her- mann, Lúðvík, ívar @- Tryggvi (Nökkvi 79.), Hlynur, Bjamólfur, Rút- ur @- Leifur, Steingrímur @. Markskot: Grindavík: 10. ÍBV 13. Hom: Grindavík: 4. ÍBV: 7. Gul spjöld: Grindavík: Kekic, Gunn- ar, Zoran og Grétar. ÍBV: Rútur, Bjamólfur og Hermann. Rauð spjöld: Engin. Skilyrði: Smánorðangola, ágætis knattspymuveður og völlurinn góður. Dómari: Pjetur Sigurðsson dæmdi erfiðan leik vel. Áhorfendur: Um 300. Maður leiksins: Zoran Ljubicic, Grindavík, átti sinn besta leik í sum- ar. Var mjög hreyfanlegur og skoraði glæsilegt mark og lagði upp annað á skemmtilegan hátt. Vann mjög vel í leiknum og var fremstur á meðal nokkurra jafningja sins liðs. Staðan -1. deild ÍA 7 6 0 1 22-8 18 KR 6 5 1 0 18-5 16 ÍBV 7 4 0 3 14-12 12 Leiftur 7 3 2 2 15-14 11 Stjarnan 7 3 1 3 9-12 10 Grindavík 6 2 2 2 7-11 8 Valur 6 2 1 3 • 5-7 7 Fylkir 6 1 0 5 11-12 3 Keflavík 6 0 3 3 5-12 3 Breiðablik 6 0 2 4 6-19 2 Staðan - 2. deild Skallagr. 6 4 2 0 14-3 14 Fram 6 3 3 0 18-7 12 Þór A. 5 3 1 1 7-6 10 Þróttur R. 6 2 3 1 16-12 9 FH 6 2 2 2 7-7 8 KA 6 2 2 2 13-12 8 Völsungur 5 2 0 3 6-7 6 Leiknir R. 5 1 2 2 6-9 5 Víkingur R. 5 1 1 3 7-8 4 ÍR 5 0 0 5 0-15 0 Frjálsar íþróttir: Bubka bætti ekki metið Mjög góður árangur náðist á Grand Prix móti í frjálsum íþróttum í Paris um helgina. Úkraínumaðurinn Sergei Bubka reyndi tvívegis við nýtt heimsmet í stangarstökki, 6,15 metra en mistókst. Bubka sigraði þó stangarstökkinu og stökk 6,00 metra. Frankie Fredericks frá Namibíu keppti i 200 metra hlaupi og hljóp á 19,95 sekúndum. Fredericks, sem hljóp 100 metrana á dögunum á 9,87 sekúndum, sagði eftir hlaupið að svo gæti farið að hann keppti einnig í 200 metrunum i Atlanta. Enn er óvist hvort Bretinn Linford Christie keppir í Atlanta en von er á yfirlýsingu frá honum í dag. Franska stúlkan Marie-Jose Perec náði frábærum tíma í 400 metra hlaupi kvenna. Hún hljóp á 49,47 sekúndum sem er besti tími ársins í greininni. Þá náði rúmenska stúlkan Gabriela Szabo besta tímanum: i heiminum í ár i 1500 metrunum er hún hljóp á 4:03,19 mínútum. Tékkiendingurinn Jan Zelezny sigraði í spjótkasti karla, kastaöi 88,42 metra. Tom Pukstys, USA, varð annar með 86,04 metra. -SK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.