Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1996, Side 6
MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1996 DV
26 tiómstundir og útivist_____________
Reykjavíkur maraþonið verður þreytt þann 18. ágúst:
Von á tveimur hlaupurum á
heimsmælikvarða frá Kenía
- segir Ágúst Þorsteinsson, framkvæmdastjóri maraþonsins
uy uiuuu
Reykjavíkur maraþonið hefst
kl. 11 sunnudaginn 18 ágúst.
Ræst verður í tveimur hópum og
er lagt af stað frá íslandsbanka-
húsinu í Lækjargötu. Þeir sem
keppa í maraþonhlaupi, háif-
maraþoni og 10 km hlaupi verða
ræstir kl. 11 en þeir sem taka
þátt í skemmtiskokkinu, sem er
þriggja km leið, verða ræstir kl.
11.03. Hringurinn, sem maraþon-
hlauparamir hlaupa, er 21,098
kílómetrar. Þetta er sá hringur
sem hálfmaraþonhlauparamir
hlaupa en þeir sem fara heilt
maraþon fara tvo hringi því
maraþonvegalengdin er 42,195
kílómetrar.
Þátttak- Tvöfalt Afhend-
endur gjald eftir
tryggðir 14. ágúst gagna
Vátryggingafélagið Skandia
tryggir þátttakendur gagnvart slys-
um og gildir umslagið utan um
keppnisgögnin sem skírteini.
Forskráningu í 10 km, hálf-
maraþon og maraþon lýkur 14.
ágúst. Eftir þann tíma tvöfaldast
skráningargjaldið nema í
skemmtiskokkið sem verður
óbreytt fram að hlaupi.
Keppnisgögn (rásnúmer, leiðbein-
ingar o.fl.) verða afhent i Ráðhúsi
Reykjavíkur laugardaginn 17. ágúst
milli kl. 11 og 17.
„Ef veðrið leikur við okkur má
búast við miklum fjölda í Reykja-
víkur maraþonið í ár en það er ljóst
að veðrið skiptir miklu máli hvaö
þátttöku varðar,“ segir Ágúst
Þorsteinsson, framkvæmda-
stjóri Reykjavikur maraþons-
ins, sem þreytt verður þann 18.
ágúst næstkomandi.
„í fyrra tóku 3.200 manns
þátt í hlaupinu en það var
minni þátttaka en árin áður
vegna veðurs. Það skiptir líka
máli hvemig veðrið er vikuna
fyrir hlaupið þvi það virðist draga
úr fólki ef það er ekki eins og best
verður á kosið. En vonandi verða
veðurguðimir okkur hliðhollir í ár.
í þetta sinn verður tekin upp sú ný-
breytni að boðið verður upp á lif-
andi tónlist í miðbænum og svo
mega gestir og gangandi eiga von á
þvi að einhvers staðar á leiðinni
verði einnig spilað en við höfum
fengið Hitt húsið til liðs við okkur
sem sér um að gera þetta sem
skemmtilegast og mest lifandi.
Götuleikhúsið verður með uppá-
komur fyrir krakkana og ætla liðs-
menn þess einnig að hlaupa með
þeim skemmtiskokkið," segir
. Ágúst.
Von á tveimur hlaupurum frá
Kenía
Erlendum þátttakendum hefur
fjölgað jafnt og þétt undanfarin ár
og er búist við 250-300 erlendum
hlaupumm í ár.
„Við eigum von á tveimur hlaup-
umm frá Kenía sem em á heims-
mælikvarða. Þetta em þeir Paul
Yego, sem á tímann 61,09 í hálf-
maraþoni, og Bitok, sem hefur
hlaupið maraþonið á tímanum
2:11,13. Þeir hafa boöað þátttöku
sína og vonandi láta þeir sjá sig. Frá
Bretlandi kemur Hugh Jones, sem
vann maraþonið í fyrra og setti
reyndar brautarmet fyrir nokkmm
árum, og svo verða okkar bestu
- hlauparar auðvitað með. Má þar
nefna Mörthu Emstdóttur, sem
keppir í hálfu maraþoni, Sigmar
Gunnarsson, Jóhann Inga Bergsson
og Daníel Smára Guðmundsson,"
sagði Ágúst Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Reykjavíkur mara-
þonsins.
-gdt
Ágúst þor-
steinsson,
framkvæmda-
stjóri Reykja-
víkur mara-
þonsins
Þátttöku-
gjald
Þátttökugjald er 1.500 kr.
fyrir maraþonhlaupið, 1300
kr. fyrir hálfmaraþonið, 1100
kr. fyrir 10 km hlaup, 900 kr.
fyrir skemmtiskokkið en 700
kr. fyrir börn yngri en 12 ára.
Ef böm 12 ára og yngri skrá
sig með foreldrum eða for-
eldri er gjaldið 400 krónur.
Fatlaðir fá einnig afslátt og er
þeim bent á að hafa samband
við íþróttasamband fatlaðra
varðandi skráningu.
Vegleg
verðlaun
Allir keppendur er ljúka
hlaupinu fá verðlaunapening.
Mörg vegleg verðlaun verða
veitt í öllum flokkum, að
skemmtiskokkinu undan-
skildu. Sigurvegarar í mara-
þoni og hálfmaraþoni fá utan-
landsflugmiða frá Flugleiðum
en einnig verða veitt peninga-
verðlaun. Ef brautarmet verð-
ur sett fær viökomandi pen-
ingaverðlaun. Eins og undan-
farin ár verða veitt verðlaun
fyrir furðulegasta hlaupabún-
inginn.
Skráning
á mörgum
stöðum
Skráning fer fram dagana
8.-16. ágúst í Reykjavík en
henni lýkur 14. ágúst á lands-
byggðinni. Skráning fer fram
í íþróttabúðinni íþrótt í
Reykjavík, Hinu húsinu í
Reykjavík, Sportbúð Óskars í
Keflavík, Akrasporti á Akra-
nesi, Vesturferðum á ísafirði,
Sportveri á Akureyri og
Sportbæ á Selfossi. Einnig em
gefnar upplýsingar á skrif-
stofú Reykjavíkur maraþons.
Þess ber að geta að skráning
fer ekki fram í síma.
Þriggja
manna
sveitakeppni
í maraþoni, hálnnaraþoni
og 10 km hlaupi er boðið upp
á þriggja manna sveitakeppni.
Vinnufélagar, félagasamtök
og fjölskyldur geta tekið sig
saman og myndað sveitir og
geta karlar og konur myndað
sveit saman. Fyrstu þremur
sigursveitunum í hverri vega-
lengd era veitt verðlaun. í
hópi sveitanna í 10 km hlaupi
verður dregið um tvenn auka-
verðlaun.